Morgunblaðið - 12.09.1975, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1975
Slökkvilið að störfum á horni Barónstfgs og Laugavegar I
gærmorgun.
Tvítug stúlka ját-
ar á sig íkveikju
Urskurðuð í 2ja mán. gæzluvarðhald og geðrannsókn
1 GÆRMORGUN kviknaði 1
húsinu á Laugavegi 82. Var
slökkviliðið kvatt á staðinn og
tókst að ráða niðurlögum elds-
ins á skömmum tíma. Slys urðu
ekki á mönnum, en stúlka var
flutt í slysavarðstofuna meðvit-
undarlftil af reyk og þaðan 1
fangageymsluna. Við yfir-
heyrslu játaði hún á sig
fkveikju og hefur nú verið úr-
skurðuð í 60 daga gæzluvarð-
hald og geðrannsókn. Hún ját-
aði einnig á sig fkveikju f sama
húsi 30. ágúst sl.
Hér er um að ræða liðlega
tvítuga stúlku, sem bjó f her-
bergi á rishæð hússins, þar sem
eldurinn átti upptök sín. Þegar
slökkviliðið kom að húsinu stóð
eldsúla upp úr þakinu. Þrátt
fyrir snör handtök slökkviliðs-
ins skemmdist rishæð og háa-
loft talsvert af eldi og reyk.
Sæborgin RE 20 brann
úti af Malarrifi í nótt
Hættir reknetaflotinn
um helgina?
Síldarkaupendur gáttaðir á lágu síldarverði
UM miðnætti f fyrrinótt brann
Sæborgin RE 20 út af Malarrifi á
Snæfellsnesi. Átta manna áhöfn
var um borð f bátnum og björguð-
ust allir um borð f gúmmfbát.
Skuttogarinn ögri var fyrsta
skip, sem kom að bátnum. Var
báturinn þá logandi stafna á milli,
en áhöfnin komin í björgunarbát-
Myndavélin
fundin - hvar
er sjónaukinn?
ÞJÓFURINN, sem var á ferð í
Morgunblaðsportinu í fyrradag,
hefur ekki gert það endasleppt,
því að i Ijós kom, að hann lét sér
ekki nægja myndavélina, sem lýst
var eftir í blaðinu f gær. Um sama
leyti hvarf úr annarri bifreið í
portinu brún leðurskólataska sem
í var sjónauki.
Síðdegis I gær kom piltur, sem
búsettur er í Grjótaþorpinu, á rit-
stjórn Morgunblaðsins með
myndavélina. Hafði hann fundið
töskuna með myndavélinni í ösku-
tunnunni við hús sitt.
Ef einhver hefur orðið var við
skólatöskuna eða sjónaukann, eða
hvort tveggja, er sá hinn sami
beðinn að hafa samband við rit-
stjórn Morgunblaðsins.
Þess má geta, að í samtali við
Mbl. í gær, lét Helgi Daníelsson
rannsóknarlögreglumaður, þau
orð falla, að svo mikið væri um
gripdeildir í borginni um þessar
mundir, að vart væri þorandi að
rétta náunganum höndina án þess
að telja puttana á eftir.
inn. Þeir voru síðan teknir um
borð I ögra, sem kom til Reykja-
víkur í gærmorgun. Þegar þyrla
flaug yfir slysstaðinn um hádegis-
bilið í gær var flakið enn ofan-
sjávar. Nánari tildrög bátsbrun-
ans eru enn ókunn, en sjópróf
hefjast fljótlega.
Sæborg RE 20 var rúmlega 100
tonna eikarbátur, smíðaður á
Akureyri árið 1943. Eigendur
voru Magnús Grímsson og Jakob
Sigurðsson, en skipstjóri var
Eyjólfur Kristjánsson.
Um borð f Steinunni SF á Hornafjarðar-
miðum í gærkvöldi, frá Árna Johnsen
blaðamanni Morgunbiaðsins.
1 VIÐTALI við reknetasjómenn á
Hornafirði f dag hefur komið
fram að hljóðið f þeim er mjög
þungt vegna verðsins á sfldinni
sem þeir telja alltof Iágt og von-
laust að halda áfram veiðum upp
á sama. Benda þeir á, að meðal-
verð fyrir kfló sé 100% lægra nú
en f fyrra þrátt fyrir að Iftið er af
sfld á heimsmarkaðsverði og allur
kostnaður hefur hækkað stórkost-
lega sfðan. Sjómenn á öllum rek-
netabátum, yfir 20 að tölu, hafa
sent síldarútvegsnefnd, Verðlags-
ráði og sjávarútvegsráðuneytinu
skeyti þar sem þeir tilkynna að
þeir muni leggja niður veiðar n.k.
mánudag ef lagfæringar verða
ekki gerðar á verðákvörðuninni.
Búið er að salta tæplega 3000
tunnur af síld á Hornafirði en 1
víðtali við Ásgrím Halldórsson
fyrrverandi kaupfélagsstjóra og
núverandi forstjóra hins nýja
frystihúss og þess er lýtur að út-
gerðarmálum, kom fram, að illa
horfði ef af þessu yrði.
„Annars,“ sagði hann, „er mað-
ur svo gáttaður á þessu síldar-
verði að maður á ekki orð. Það
hefði einhverntima þótt i frásög-
ur færandi að síldarverð á ágætri
sild væri aðeins helmingur þess
sem fæst fyrir kílóið miðast við
hráefni i gúanó, en öll síld rek-
netabáta fer í salt eða frystingu.
Það voru hjá mér fyrir nokkrum
dögum þrír Svíar i fylgd með
Seðlabankamönnum og þeir
sögðu mér að ein síld upp úr
tunnu í Svíþjóð væri seld á 3—4
krónur sænskar og er þá átt við
síld af stærðinni 32 sentimetrar.
Við sem kaupum sildina hér erum
sallarólegir yfir þessu en okkur
þykir kynlegt að heyra yfirlýsing-
ar um að ekkert gangi að selja síld
og á sama tíma og heimurinn er
svo til síldarlaus. í fyrra t.d. seld-
um við ekki saltaða síld fyrr en í
desember. Við söltuðum þá 4500
tunnur og það er ekkert óeðlilegt
að síldin seljist nokkrum mánuð-
um eftir að hún veiðist. Það hefði
verið alveg eins gott að sam-
þykkja ekkert síldarverð núna
heldur en þetta verð sem er í dag.
Það verður þó að taka það mikla
áhættu varðandi sölu og ákveða
það hátt verð að það sé einhver
möguleiki að gera út á síldina.
Annars held ég að forsvarsmenn
þessara mála séu í rusli út af
leyfðri væntanlegri veiði nótabát-
anna þar sem stórsíldin verður
eftir I flokkunarvélunum en
smærri síldin fer dauð í gegnum
lensiportinn í sjóinn aftur. Þetta
síldarverð nú kemur út á 16—20
króna meðalverð og ég hef séð á
skýrslum hjá okkur að allt að
72% aflans er á 14 krónur kílóið.
Maður skilur ekki þennan
Reykjavíkurmátt sem ræður öllu
verðlagi og við sem erum á kafi í
þessu úti á landsbyggðinni, erum
aldrei spurðir ráða. Þá er þaó
furðulegt að sama verð skuli vera
ERNST STABEL, ræðismaður
Islands 1 Cuxhaven, sagði 1 sím-
tali við Mbl. 1 gær, að blaðaskrif
þar 1 landi gæfu til kynna að
Þjóðverjum væri töluvert mikið I
mun að ná samkomulagi við
Islendinga 1 fiskveiðimálum.
I einu helzta blaði Cuxhaven
sagði í fyrirsögn 1 gærmorgun, að
verulegrar bjartsýni gætti í
væntanlegum viðræðum, enda
væri það báðum aðilum nauðsyn
að samkomulag næðist og
löndunarbanninu í Þýzkalandi
AFSKIPUN á loðnumjöli upp í
samninginn við v/o Prodintorg í
Moskvu gekk greiðlega. Var síð-
asta loðnumjölinu skipað um borð
í Siglufirði 4. sept. í m/s Skóga-
Spilverkið
á LJÓS 75
SPILVERK þjóðanna, sem að
undanförnu hefur vakið athygli
landsmanna fyrir háfjallatónlist
sfna og hressa framkomu, mun í
kvöld, föstudag, halda klukku-
tíma konsert á Ijósmynda-
sýningunni LJÓS ’75 að Kjarvals-
stöðum og hefst hann klukkan 28
mínútur yfir 8, stundvislega.
Þetta verður í fyrsta skipti sem
Spilverkið kemur fram opinber-
lega fram eftir að því bættist liðs-
auki, þar sem er Sigrún Hjálmtýs-
dóttir (Diddú). Aðgangur kostar
30C kr. og gildir um leið fyrir
sýninguna.
á síld til beitu og s.l. ár. Allt hefur
þó hækkað en þessi sparnaður
bitnar bara á hópi örfárra manna,
sjómönnunum semiveiða síldina.
Ég veit ekki hvers þeir eiga að
gjalda þessir menn. Ég er varkár
en ég er ekki svartsýnn á að ekki
takist að selja síldina fyrir skikk-
anlegt verð þótt eitthvað þurfi ef
til vill að bíða. En það getur t.d.
þurft að lækka 18% útflutnings-
gjaldið til þess að leiðrétta þetta
verð, það er þó betra fyrir rikis-
sjóð að fá einhvern gjaldeyri
heldur en engan af síldveiðum,”
sagði Ásgrímur að lokum.
yrði aflétt í kjölfar þess. „I blöð-
um hér hefur ekkert verið minnzt
á afgreiðslubann á þýzk eftirlits-
skip,“ sagði Stabel, „enda er það
engin ný frétt. Sáralltið hefur
verið sagt frá klippingum
íslenzkra varðskipa á togvírum
þýzkra togara og sýnist mér flest
benda til að Þjóðverjar vilji forð-
ast fyrir hvern mun að ýfa al-
menningsálitið upp gegn Islandi
og áhugi sé á því að leiða nú
deilumál landanna til lykta hið
fyrsta.”
foss. Var loðnumjölinu skipað þar
um borð af hagkvæmnisástæðum,
svo að m/s Skógafoss þyrfti ekki
að lesta á fleiri höfnum.
Eftir er að afhenda 2.500 tonn
af þorskmjöli. Verður 1.400 tonn-
um afskipað með m/s Fjallfossi I
lok september og 1.100 tonnum
með m/s Dísarfelli i byrjun októ-
ber.
(Úr fréttabréfi Fél. ísl. fisk-
framleiðenda).
Þorskafjarð-
arheiði ófær
vegna snjóa
ÞORSKAFJARÐARHEIÐI er nú
ófær vegna snjóa og ekki hefur
verið hægt að hefja mokstur þar
vegna skafrennings. Um aðra
fjallvegi á Vestfjörðum er það að
segja, að hálka er á Rafnseyrar-
heiði, Breiðadalsheiði og Botns-
heiði. Þá er einnig hálka á vegin-
um yfir öxnadalsheiði og víða á
öðrum fjallvegum á Austurlandi.
Samkvæmt upplýsingum. Vega-
eftirlitsins eru líkur á þvi að
Sprengisandsleið sé orðin ófær en
ekki var vitað um færð á Kili i
gær.
Grundartanga-
deilan leyst
HÓTUN starfsmanna við málm-
blendiverksmiðjuna á Grundar-
tanga um að leggja niður vinnu á
hádegi f fyrradag vegna vangold-
inna launagreiðslna kom ekki til
framkvæmda þar sem deiluaðilar
jöfnuðu ágreining sinn áður en
til kastanna kom.
Skúli Þórðarson, formaður
Verkalýðsfélags Akraness, tjáði
Mbl. i gær, að hér hefði verið um
að ræða seinagang i afgreiðslu
skrifstofu Union Carbide i
Hafnarfirði. Hefði samizt svo um,
að greiðslur yrðu inntar af hendi
n.k. mánudag, auk þess sem
samkomulag varð um hvernig
greiðslurnar færu fram
eftirleiðis.
Ljósmynd Sv. Þorm.
TUNNUSKIP — Þetta er sjón sem ekki hefur sézt í mörg ár. Sæborg kemur til hafnar í Reykjavík með
tómar síldartunnur fyrir komandi vertíð.
íslenzki ræðismaðurinn í Cuxhaven:
„Blaðaskrif gefa til kynna
að Þjóðverjar vilji semja
Afgreiðsla á loðnu-
mjöli til Rússlands