Morgunblaðið - 12.09.1975, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 12.09.1975, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12, SEPTEMBER 1975 3 Þannig lftur glataða hornið út, en þetta fékk Lilja lánað til myndatökunnar f Tðnlistarskólanum f gær. Hálfrar milljón króna hljóðfœri stolið frá stúlku LILJA Valdimarsdóttir heitir 18 ára nemandi f Tónlistarskól- anum. Hún leikur á franskt horn og eftir margra ára erfiði eignaðist hún forláta horn fyrir um það bil þremur vikum. Nú hefur horninu verið stolið frá henni, en hljóðfærið er hálfrar milljónar króna virði. Þegar Mbl. ræddi við Lilju f gær sagði hún m.a.: „Ég á heima að Bergstaða- stræti 9 í kjallara, og þar hefur verið farið inn um glugga, sennilega milli kl. 8 og 9 á mánudagskvöldið. Ég er búin að hafa svo mikið fyrir því að eignast þetta hljóðfæri — fór til dæmis á sjóinn um tima — og þetta er reyndar aleiga mín. Það hlálega er nú reyndar, að enginn getur haft not af horn- inu, a.m.k. ekki hér á landi, þvi að þetta er svo sjaldgæft hljóð- færi, að það mun strax þekkjast, ef reynt verður að koma því í verð. Hér er heldur ekkert annað hljóðfæri til nákvæmlega eins, en þetta var handsmiðað í Englandi. Ef ég fæ hornið ekki aftur þá verð ég lfklega bara að hætta að leika á hljóðfæri, en þá fer bæði til spillis margra ára nám og margra ára vinna til að eignast hljóðfærið." Glataða hornið er gyllt að lit og var í svartri tösku. Það eru eindregin tilmæli rannsóknarlögreglunnar, að all- ir þeir, sem geta gefið einhverj- ar upplýsingar um hvar hljóð- færið kunni nú að vera niður- komið, gefi sig fram. SUS-þing hefst í Grindavík í dag ÞING Sambands ungra sjálfstæð- stjórnar sambandsins og for- ismanna verður haldið 1 Grinda- manna aðildarfélaga. vík nú um helgina. Formaður SUS, Friðrik Sófusson, setur þingið kl. 4 f dag, en að ávarpi hans loknu býður Magnús Gunnarsson, formaður kjördæm- issamtaka ungra sjálfstæðis- manna f Reykjaneskjördæmi, þingfulltrúa velkomna fyrir hönd heimamanna. Sfðan verður kosið f nefndir, sem starfa munu á þinginu, en nefndastörf hefjast kl. 8 f kvöld. Dagskrá laugardagsins hefst með frjálsum umræðum, en þá taka við nefndastörf fram til hádegis. Eftir hádegi verða af- greidd nefndarálit og síðan kynntar tillögur um önnur mál, sem borizt hafa þingforseta fyrir fundinn. Um kvöldið snæða þing- fulltrúar kvöldverð þar sem Geir Hallgrímsson forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins verður heiðursgestur, en eftir kvöldverð hefst dansleikur í Festi. Á sunnudagsmorgun starfa nefndir og eftir hádegi verður lokið við afgreiðslu nefndarálita. Þá fer fram stjórnarkjör. Að lokn- um eiginlegum nefndarstörfum verður fundur nýkjörinnar Helztu mál þingsins verða menntamál, sjávarútvegsmál, kjördæmamálið, einkaframtak og iðnaður, jafnréttismál og sam- dráttur rfkiskerfisins og lækkun ríkisútgjalda. Þá mun þingið taka afstöðu til áheyrnaraðildar SUS að COCDYC (Samb. ungra Ihalds- manna og kristilegra demókrata í Vestur-Evrópu) og marka stefnu f utanrikissamskiptum sambands- ins. Einnig verða ræddar og af- greiddar lagabreytingatillögur. Þingfundir verða haldnir í fé- lagsheimilinu Festi, en þingfull- trúar munu gista í verbúðum á staðnum. Hópferðir verða úr Reykjavík kl. 15 i dag og kl. 11.30 á morgun og síðan frá Grindavík eftir kl. 6 á sunnudag. Þingskjöl og kjörgögn eru til afgreiðslu í skrifstofu Sjálfstæðisflokksins í Reykjavik, en verða einnig afhent i Grindavík gegn framvisun kjör- bréfa. Þátttökugjald er 1250—2250 krónur, en þar er innifalin gisting og þingskjöl. Mikil undirbúningsvinna hefur farið fram fyrir þingið og hafa tugir einstaklinga lagt þar hönd á plóginn. Um 170 fulltrúar úr öll- um kjördæmum munu sitja þing- ið. Höfleg bjartsýni á samkomii- lag eftir viðræðurnar í gær MORGUNBLAÐIÐ ræddi f gær við fslenzku ráðherrana tvo, sem þátt tóku 1 viðræðunum við Breta, Einar Ágústsson, utan- ríkisráðherra, og Matthias Bjarnason, sjávarútvegsráð- herra. Ennfremur ræddi Mbl. við Roy Hattersley, aðstoðarut- anrfkisráðherra Breta, sem var formaður brezku samninga- nefndarinnar. Viðtöl við ráð- herrana fara hér á eftir: Einar Ágústsson sagði að við- ræðurnar hefðu farið þannig fram, að báðir aðilar hefðu skýrt frá skoðunum sfnum og rætt hefði verið um flest atriði varðandi veiðar Breta hér við land. Hvorugur lagði fram til- lögur. Einar sagði hins vegar að samkomulag hefði náðst milli nefndanna um að halda nýjan fund í London f byrjun októ- bermánaðar. „Við bjuggumst við því að Bretar legðu fram einhverjar tillögur og ég bjóst svo sannar- lega við því að kröfur þeirra yrðu mildari en raun varð á, sérstaklega þegar tekið er tillit til breyttra aðstæðna í þessum málum í heiminum.“ Einar sagði jafnframt, að sér fyndist ekki hafa orðið nein hugarfars- breyting á afstöðu Breta frá því er viðræður fóru siðast fram. Bretar óskuðu eftir þvi á fund- inum að fá tiloögur frá íslenzku nefndinni, en Einar sagðist hafa lýst því yfir þegar í upphafi að þeirra væri ekki von. Matthías Bjarnason, sjávarút- vegsráðherra, sagði, að viðræð- urnar í gær hefðu einungis ver- ið byrjunarviðræður og þær hefðu náð það skammt að ekki væri unnt að fullyrða neitt um það, hvort þær myndu bera árangur eða ekki. „Á árdegis- fundinum var skipzt á skoðun- um og hvor aðilinn skýrði sjón- armið sín. A síðdegisfundinum var siðan nánar farið út í efnis- atriði. sem hvor um sig mun síðan skýra ríkisstjórnum land- anna frá. Umræður snerust um atriði hugsanlegs samkomu- lags, svo sem eins og aflamagn, skipafjölda og samningstima. Samkomulag var um það að skýra ekki frá þessu á þessu stigi málsins og að aðilar hittust snemma í október og þá vænt- anlega í London.“ „Jú, tollamál bar á góma,“ sagði Matthías Bjarnason. „Við gerðum þau sérstaklega að um- ræðuefni. Við lýstum vonbrigð- um okkar yfir því að tollasamn- ingur okkar við Efnahags- bandalagið hefði ekki komið til framkvæmda vegna mótmæla Þjóðverja, þótt samningar hefðu verið gerðir bæði við Breta og Belga. Fyrir mitt leyti get ég ekki sætt mig við að neinir samningar komi til fram- kvæmda á meðan tollaþvingun- um, sem beitt er á hendur okk- ur, hefur ekki verið aflétt." Roy Hattersley, aðstoðarutan- ríkisráðherra Breta, sagði að íslenzka nefndin hefði ekki vilj- að tala við brezku nefndina í alvöru um tölur, fjarlægðir og gildistfma væntanlegs sam- komulags. Þó sagði hann að nokkur ávinningur hefði orðið, þar sem þegar hefði verið rætt um nokkur undirstöðuatriði viðræðnanna. Þó kvað hann enn langa leið eftir til sam- komulags. Islendingar hefðu síðan stungið upp á því að næsti fundur yrði haldinn í London eftir mánuð, þegar utanríkis- ráðherrann kæmi aftur frá Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Sfðan sagði Hattersley: „Það var von okkar, að við næðum það langt á leið, að unnt yrði að sjá fyrir sam- komulag, sem tekið gæti gildi fyrir 13. nóvember. Ég lagði til Roy Hattersley, aðstoðarutanrfkisráðherra Breta, kemur til fundar- ins f gær. Með honum t.v. er Kenneth East, sendiherra Breta á tslandi. — Ljósm.: ÖI.K.M. að við notuðum bráðabirgða- samkomulagið sem vinnuplagg og að tölur og fjarlægðir, sem þar væri minnzt á, ætti að nota Matthfas Bjarnason, sjávar- útvegsráðherra, kemur til fundarins. Elnar Agústsson, utanrfkisráð- herra, kemur til fundarins f gær. sem undirstöðu viðræðnanna. Islenzka ríkisstjórnin vildi hins vegar ekki ræða nein einstök atriði." Hattersley lýsti áhyggjum sinum með það, að sá tími, sem enn væri eftir þar til bráða- birgðasamkomulaginu lyki, styttist óðum og honum þótti miður að viðræðum skyldi frestað svo lengi. Hann sagði að þeim mun nær sem drægi 13. nóvember yrði erfiðara að ná samkorhulagi, en hann kvaðst þó bjartsýnn, að þáð tækist, í októberbyrjun, ef allir legðu sig fram. Hattersley sagði að rætt hefði verið um takmarkan- ir á aflamagni Breta og hugsan- lega minnkun þess. Ríkisstjórn íslands hefði þó ekki viljað ræða neinar skráðar tölur — einnig hefði verið rætt um fækkun skipa á miðunum, „sem þeir kölluðu Islenzk mið“ — sagði ráðherrann. Þá var ráðherrann spurður að því, hvort hugsanlega væri unnt að fá Breta til þess að fallast á minnkun aflamagns t.d. um þriðjung og svaraði hann þá, að það væri óhugsandi. I bráðabirgðasam- komulaginu er rætt um 130 þúsund tonna ársafla. Að öðru leyti vildi hann ekki ræða ein- stök atriði og sagði að tillit þyrfti að taka til þeirra allra I einu, er tillagna væri að vænta frá Islendingum. „Við erum ákveðnir i að ná samkomulagi,1 sagði Hattersley, „sem mætt getur þörfum brezka fisk- iðnaðarins." Þá var brezki ráðherrann spurður um tollamál íslands og Efnahagsbandalagsins. Hann sagði: „Ég lýsti því yfir á fundinum í dag, að ekkert myndi gleðja mig meira en að geta farið á ráðherrafund Efna- hagsbandalagsins í næsta mánuði eða þar næsta og skýrt honum frá því að ekkert væri i veginum frá brezkum stjórn- völdum, að bókun 6 t'æki gildi.“ Hins vegar sagði ráðherrann að Bretar gætu ekki fyrirskipað öðrum bandalagsþjóðum að falla frá ákvæðum samnings- ins, sem felur í sér skilyrði um að samkomulag hafi tekizt í landhelgisdeilunni við íslendinga. Það væri islenzku rikisstjórninni líka ljóst. Einar Agústsson lýsti því einnig I gær, að líta þyrfti á samninga við fleiri þjóðir Efna- hagsbandalagsins í samhengi, þegar rætt væri um fiskveiði- heimildir og að ekki kæmi til mála að semja um neinar heimildir á meðan tollalaga- samningurinn tæki ekki gildi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.