Morgunblaðið - 12.09.1975, Page 10
10
MORGUNBIAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. SEPTKMBKR 1975
„Oft byggt meira af
en raunsœi”
Sú var tíðin að svo til allur saltfiskur, sem tslendingar verkuðu var
þurrkaður og fluttur þannig út. Þurrfiskurinn var um skeið eitt helzta
útflutningstákn landsmanna. A slðari árum hefur megnið af saltfisk-
framleiðslunni verið flutt út blautverkað, en þð eru alltaf einhverjir
sem hafa fengizt við þurrfiskverkunina og á sumum stöðum á landinu
hefur það farið vaxandi að menn þurrki saltfiskinn áður en hann er
seldur úr landi. Sá staður á íslandi, þar sem þurrfiskverkunin er I
mestum hávegum höfð, er sjálfsagt Garðurinn, en þaðan munu vera
flutt út um 50% af allri þurrfiskframleiðslu landsmanna frá 9
verkunarstöðum og ein fiskvinnslustöðvanna þar mun framleiða 20%
af allri þurrfiskframleiðslunni. Þessi fiskverkunarstöð, sem ber nafn
Guðbergs Ingólfssonar, er f eigu Guðbergs og sona hans, en þeir eru
átta talsins. Guðbergur hðf atvinnurekstur fyrir um það bil 24 árum og
byrjaði smátt eins og gerizt og gengur, en nú orðið munu vinna
80—100 manns að staðaldri hjá fyrirtæki hans. Fyrir skömmu brá
blaðamaður Mbl sér f Garðinn og hitti Guðberg þar að máli og spurði
hann fyrst hvaða ár hann hefði hafið atvinnurekstur sinn og hvers-
vegna.
Alltaf er eitthvað hengt upp
Byrjaði 1951
„Ég byrjaði á því að verka salt-
fisk árið 1951,“ segir Guðbergur,
„fram að þeim tíma hafði ég verið
sjómaður á ýmsum Suðurnesja-
bátum. Ég var kominn með mjög
stórt heimili og varð því að drifa
mig í land. Sumarið 1951 hóf ég
að verka fisk og þurrkaði hann
hér á túnunum og jafnhliða fisk-
verkuninni var ég með smábú-
skap. Yfir vetrartímann vann ég
svo í fiskaðgerð og var það ákvæð-
isvinna."
„Hvaðan fékkst þú fiskinn í
fyrstu og hvenær byrjaðir þú að
þurrka fiskinn innandyra?"
„Upphaflega keypti ég mikið af
fiski af trillunum, sem gerðar
voru héðan út og reyndar víða
annars staðar og fljótlega festi ég
kaup á litlu húsi, sem ég setti i
þurrklefa og stækkaði síðan. I
þessu húsi var ég til 1960, en þá
byggði ég fyrsta hluta hússins,
sem fyrirtækið hefur aðalaðsetur
í núna. Á þessum árum var mikið
um skreiðarverkun og því ekki
hægt að tala um öra framþróun í
saltfiskverkun."
Fjörkippur
vegna Biafrastríðsins
„Þú segist hafa keypt mikinn
afla af trillunum fyrstu árin, sem
lögðu upp í Garðinum. Er hér enn
mikil trilluútgerð?“
„Á árunum milli 1950 og 1960
var hér mikil trilluútgerð og þá
keypti ég mest um 500 lestir af
fiski á ári af þeim. Um 1960
dettur þessi útgerð niður og hefur
ekki borið sitt barr síðan, og eftir
1965 er vart hægt að segja að
trilla hafi verið gerð héðan út.
Sömu sögu er að segja af þurrfisk-
verkuninni allt frá 1960—1968.
Þessi ár voru mjög dauf, enda
snerist allt um síldina, en 1968
verður mikil breyting á. Þá brauzt
Biafrastíðið út og um leið lokaðist
fyrir sölu á skreið til Nígeríu og á
þessu ári datt síldveiðin alveg nið-
ur. Okkar framleiðsla tók þá mik-
inn fjörkipp og þá seldum við
gömlu húsin og stækkuðum aðal-
húsið.“
„Hvað hefur verið framleitt
mikið af þurrfiski á s.I. árum? “
„Það hefur komist svona upp f,
6.500 tonn og við höfum verið með
um 20% af framleiðslunni. I fyrra
framleiddum við t.d. 900 tonn af
þurrum fiski.“
„Vann marg fólk við verzlunina
hjáykkur fyrstu árin?“
„Nei, allt fram til 1968 var það
að mestu fjölskyldan, sem vann
við verkunina, nema þegar verið
var að þurrka. Oft var þetta erfitt,
sérstaklega frá 1960—1968, því að
þá var lítið um þurrfiskmarkaði,
en með Bíafrastríðinu jókst fram-
leiðslan hröðum skrefum og á
stuttum tíma tífaldaðist þurrkun
á saltfiski. Þetta hlé, sem hafði
orðið á sölu þurrfisks, skapaði
mikla erfiðleika við að vinna
markaði á ný, en okkur tókst samt
fljótlega að ná verulegri fót-
festu í Brasilíu og fleiri S-
Amerikulöndum, og siðar í Port-
úgal. Nú eru þurrfiskmarkaðirnir
mjög víða, í einum 7—8 löndum,
en tveir stærstu eru í Portúgal og
Brasilíu. Þangað eru fara
2000—3000 lestir á ári, en hin-
löndin kaupa þetta 200—300 tonn
hvert. Vaxandi markaðir hafa t.d.
verið í Puerto Rico, Dóm-
iníkanska lýðveldinu og jafnvel i
Frakklandi.“
Meira verðmæti
„Telur þú að Islendingar þyrftu
að leggja meiri áherzlu á þurr-
fiskmarkaðina en gert hefur ver-
ið?“
„Við þurfum að minnsta kosti
að vera vel að verði. Þurrfisk-
verkunin gefur af sér mikil verð-
mæti, miklu meiri en
blautfiskurinn. Og við hana getur
fjöldi húsmæðra og unglinga unn-
ið, en það er gott vinnuafl, sem
annars væri ónýtt."
„Ertu þá ánægður með verðið á
sl. árum?“
„Það verður að viðurkenna að
þurrfiskverkun hefur komið
ágætlega út á s.l. árum og það
hefur tekizt að selja fiskinn fyrir
sæmilega gott verð. Þetta er mik-
ið að þakka samstöðu þeirra, sem
þurrka fiskinn, og ekki sízt for-
ráðamönnum Sölusambands fs-
lenzkra fiskframleiðenda."
„Hvað telur þú, að íslendingar
þurfi að gera til að auka frekar
útflutning sinn á þurrkuðum salt-
fiski ? “
Sölustofnun f S-Ameríku
„Ég hef mikinn áhuga á að kom-
ið verði á fót sérstakri sölustofn-
un í Suður-Ameríku og þá fyrst og
fremst í Brasílíu. Þar er stærsti
þurrfiskmarkaður heims, og fer
sífellt stækkandi."
Fyrir tæplega tveimur árum tók
fyrirtæki Guðbergs i notkun
fyrstu sjálfvirku þurrfiskverkun-
arvélina hér á landi. Mbl. spurði
Guðberg hvaða árangur hefði orð-
ið af vélinni og hver aðdragand-
inn hefði verið að kaupum þessar-
ar vélar.
Vélin þurrkar
650 tonn á ári
„I fyrstu,“ segir Guðbergur,
„ber að taka það fram, að ég og
Magnús sonur minn fórum til
Noregs fyrir röskum tveimur ár-
um og skoðuðum þá norskar þurr-
fiskverkunarstöðvar í Álasundi,
en þetta voru fyrstu vélarnar sem
framleiddar höfðu verið til þess-
ara nota. Áður en við fórum að
heiman höfðum við heyrt sitthvað
um þessar vélar. Mér leizt strax
vel á þessa vélasamstæðu og þeg-
ar ég kom heim fór ég að hugsa
meir og meir um að kaupa svona
vél. En mér fannst vélin dýr, hún
átti að kosta 10 millj. fsl. króna.
En eftir nokkurn tíma fór ég að
leita eftir fyrirgreiðslu í þessu
sambandi, en hana var hvergi að
fá, nema í fiskimálasjóði. Það fór
samt svo, að við festum kaup á
einni vél og var hún tekin í notk-
un 5. febr. 1973. Ég þarf ekki að
sjá eftir þessum kaupum. Vélin
hefur reynzt afburðavel og segja
má, að hún hafi ekki stanzað síðan
hún fór í gang, en alls þurrkar
hún 650 tonn af fiski á ári. Þess
má geta hér, að verið er að setja
upp samskonar vél í Vestmanna-
eyjum, en þar er nú verið að
byggja stórt þurrkhús. Við sáum
lika aðra tækni í Noregi, meðal
annars pökkunarvél og þvottavél,
sem við síðan keyptum. Þessi
tæknivæðing okkar, ef svo má að
orði komast, hefur haft mikinn
sparnað í för með sér.“
„Við þurrkunina sjálfa vinna
ávallt 25—30 manns, þ.e. í báðum
þurrkunarstöðvunum okkar, og
oftast nær 10 tíma á dag allt árið
um kring. Þetta fólk þarf ekki að
vera verkefnalaust á meðan
blautsaltaður fiskur fæst keyptur
í landinu, en yfirleitt eigum við
4—5 mánaða lager af blautfiski.
Þá eigum við núna 400—500 lestir
af þurrfiski, sem verið er að selja,
en aðalsölutímabilið er nú að
hefjast og stendur fram i maí.“
Óvissan verst
„Hvað eru, að þínu mati, mestu
erfiðleikarnir við fiskverkun?"
„Aðalerfiðleikarnir eru fyrst og
fremst hinar miklu sveiflur í sjáv-
arútveginum og síðan óvissan í
efnahagsmálum. T.d. þurfum við
alltaf að kaupa 4—5 mánaða
birgðir af blautfiski eftir hverja
vertið til að vera öruggir með
nægt hráefni. Þá er líka oft erfitt
að fá fólk til starfa hér, en nábýlið
við herinn á ugglaust sinn þátt I
því, en þangað fer fólk vegna
betri kjara. Það þarf því að gera
átak til þess að fólk sem vinnur í
fiski, fái hærra kaup á einhvern
hátt. Enda er það svo, að margt að
því, sem við gerum, er byggt á
meiri bjartsýni en þurrkun á salt-
fiski, nú orðið reka þeir einnig
frystihús I Garðinum, þótt engin
höfn sé þar. — „Hvenær hófuð
þið frystihúsrekstur?“
Frystihúsrekstur 1973
„Við keyptum hraðfrystihús
Gerðabáta, 1973 sem byggt var á
stríðsárunum, um áramótin
1972—73. Útgerðir Gerðabátanna
höfðu þá fengizt við fiskvinsslu í
43 ár. Okkar aðalverk í sambandi
við frystihúsið um þessar mundir
er að byggja það upp, þannig að
það svari kröfum tímans. Hefur
það gengið nokkuð vel miðað við
það ástand, sem ríkir í þessum
málum í dag.“
„En hafið þið þá ekki farið
einnig út í útgerð?"
Ekki er hægt að neíta því, um
áramótin síðustu keyptum við
Ólaf Sigurðsson frá Akranesi, og
Framhald á bls. 21
Rœtt við Guðberg Ingólfsson í Garði
— einn stœrsta fiskverkanda landsins
Hér er þurrkaður saltfiskur f stæðum
Guðbergur Ingólfsson ásamt þrem sona sinna.
Ljósm. Mbl.: Þórleifur Ólafsson