Morgunblaðið - 12.09.1975, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1975
11
Lltið eitt
Lítið eittmeð heil-
mikið á döfinni
LÍTIÐ eitt hefur tekið upp
þráðinn, þar sem frá var horfið,
plötuupptöku fyrir tveimur
árum, og nú er ný plata á ferð-
inni eftir þetta hlé á dag-
skránni. Við heimsóttum Lftið
eitt í upptökusal Hljóðritunar
hf. f Hafnarfirði þar sem þau
unnu af fullum krafti með
stjórnanda plötunnar, Jónasi R.
Jónssyni.
Lítið eitt hefur ekki tekið
lagið í tvö ár, svo það var
sannarlega tfmi til kominn að
það heyrðist lítið eitt í þeim og
það bendir allt til þess að.það
verði heilmikið, því að ellefu
lög eru f sigti, við ljóð eftir
Davíð, Stein, örn og ýmsa aðra
valinkunna. Þau kváðu upptök-
una á góðri leið, þrátt fyrir
svita og tár framan af, því að
þau þurftu lítið eitt að stilla
saman raddir á ný eftir tveggja
ára flæking, en gítarsamleikur-
inn small með það sama.
Það var snemma s.l. haust að
þau fengu fluguna að nýju plöt-
unni. Jón Árni hitti Steinþór og
sagði: „Hvenær eigum við að
taka upp nýja plötu?“ „Eigum
við ekki að byrja í vor,“ svaraði
Steinþór. Gunni hitti Steinþór
nokkrum dögum seinna og
spurði hvort það væri ekki ráð
að ráðast í plötuupptöku í vor.
Steinþór hélt nú það og auð-
vitað var Linda til í tuskið.
Það var síðan byrjað að æfa í
vor og síðan hefur þetta verið
að fæðast með talsverðum
hljóðum af og til. 5 frumsamin
lög eru á plötunni, 3 eftir
Gunna og 2 eftir Jón Árna, hin
eru úr ýmsum áttum eins og
sprang
Eftír
Árna Johnsen
Litið inn í upp-
tökusal Hljóðrit-
unar í Firðinum
veðurspáin frá degi til dags.
Þau f Lítið eitt áréttuðu það að
það sem hefði gert þeim kleift
að taka þessa plötu upp væri
ómetanlegur skilningur og
þolinmæði Jónasar R. Jóns-
son-ar í Hljóðritun, en hann
hefur verið tilbúinn að vinna
með þeim nætur og daga eftir
þvf sem hentað hefur og ekki er
amaleg aðstaðan í hinu ágæta
stúdíói Hljóðritunar. Nýja
platan er væntanleg á markað-
inn í haust, liklega september-
lök, en það er Fálkinn sem
gefur plötuna út í samvinnu við
Lítið eitt.
Hefðbundin hljóðfæri söng-
flokksins eru notuð, gítarar,
klassískir og annarra tegunda,
kontrabassi og rafmagnsbassi,
sem Steinþór þreif sér í hönd
þegar þurfti, flauta og
mandólín, en auk þess hlupu til
liðs við þau trommuleikari og
píanóleikari, allt til þess gert að
hleypa Lítið einu af stokkunum
á ný úr nausti.
Koma þangað sem
sjúkrahúsin eru
ÞJÓÐVERJAR gera út fjögur
skip til lijálpar þýzkum togurum
á Islandsmiðum og eru oftast tvö
skip við landið hverju sinni. Þessi
hjálpar- og eftirlitsskip eru
Kreppt að „Amnesty”
í Sovétríkjunum
Moskvu, 8. sept. NTB.
LEIÐTOGI mannúðarsamtak-
anna Amnesty International í
Moskvu hefur bcðið leiðtoga þá,
sem komu saman á Öryggismála-
ráðstefnu Evrópu, að beita áhrif-
'im sínum í Kreml til að starfs-
skilyrði samtakanna í Moskvu
verði bætt. Leiðtogi samtakanna
dr. Valentin Turtsjin, hefur einn-
ig í bréfi til 34 þjóðarleiðtoga
borið fram þá kröfu, að starfsskil-
yrði erlendra blaðamanna í Rúss-
landi verði bætt.
Frithjof, Walter Hertwig,
Merkatze og Rothesand.
Yfirleitt munu skipin vera 3—4
vikur á Islandsmiðum í einu, en
fara þá heim til að hvíla áhöfnina.
Þau koma almennt ekki til
hafnar, nema í þeim tilvikum að
þau þurfi að flytja sjúkling til
lands og helztu viðkomustaðir
þeirra eru fyrst og fremst Reykja-
vík, Isafjörður, Neskaupstaður og
Patreksfjörður.
Hjá hafnsögumönnum í Reykja-
vík fékk Mbl. þær upplýsingar, að
ekki væri vitað hve oft skipin
hefðu komið í höfnina á s.l. ári, en
mjög misjafnt væri hve oft þau
kæmu til hafnar. Hafnsögumenn
og starfsmenn Reykjavíkur-
hafnar hafa ekki veitt þeim neina
þjónustu í langan tíma t.d. hafa
skipin ekki fengið vatn í Reykja-
vík.
'mmí
|6SS
EMT^UflE
50% — 80% verðlækkun
Opið til kl. 10 í kvöld og
til hádegis á morgun
■ -
BANKASTRÆTI
*S*-14275
VANTAR ÞIG VINNU (nj
VANTAR ÞIG FÓLK í
Þl’ AUGLYSIR LM ALLT
LAND ÞEGAR Þl' AL’G-
LÝSIR í MORGLNBLAÐIM'