Morgunblaðið - 12.09.1975, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1975
Hafnfirðingar varðveita um-
hverfið undir Hamrinum
Friðþjófur Sigurðsson bygg-
ingafulltrúi Hafnarfjarðarbæjar,
sagði f samtali við Morgunblaðið í
gærkvöldi, að ekki hefðu verið
leyfðar neinar breytingar á
húsum undir Hamrinum um
nokkurt skeið. Hér væri fyrst og
fremst um þrjár götur að ræða
þ.e. Lækjargötu, Brekkugötu og
Öldugötu. Reynt yrði eftir megni
að halda þessu hverfi óbreyttu, og
því væri beiðnum um stækkun
húsa og þar fram eftir götunum
hafnað. Hitt bæri líka að viður-
kenna að á þessu skemmtilega
svæði væru' nokkrir kofar sem
væru lýti á umhverfinu.
Kristinn Ö. Guðmundsson,
bæjarstjóri, sagði að hugmynd
bæjaryfirvalda væri sú, að um-
hverfinu undir Hamrinum yrði
ekki raskað, og hvert einstakt til-
felli um breytingar á húsum yrði
metið hverju sinni.
VERZLUNARMANNAFÉLAG
REYKJAVÍKUR
Framboðs
frestur
Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjar at-
kvæðagreiðslu í Verzlunarmannafélagi Reykja-
víkur, um kjör fulltrúa á 10. þing Landssam-
bands íslenzkra verzlunarmanna.
Kjörnir verða 53 fulltrúar og jafnmargir til vara.
Listar þurfa að hafa borizt kjörstjórn fyrir kl. 1 2
mánudaginn 15. sept. n.k.
Kjörstjórnin.
NYLEGÁ höfnuðu bæjaryfirvöld
f Hafnarfirði beiðni um stækkun
á húsinu nr. 6 við Lækjargötu.
Var það gert á þeirri forsendu, að
stefna bæjaryfirvalda væri sú að
halda svæðinu undir Hamrinum
að mestu óbreyttu en húsin þar
eru flest járnvarin timburhús,
byggð á árunum 1915—20.
Hreint h
^land I
fagurt I
land I
LANDVERND
/ \
Viö afgreiöum
litmyndir
yöar á 3 dögum
Umboðsmenn um land allt
Hans Petersenf
Bankastræti — Glæsibæ
S 20313 S 82590
VlÐIR FLYTUR — Um þessar mundir er trésmiðjan
Víðir að flytja starfsemi sína af Laugaveginum og í nýtt
húsnæði í Kópavogi. Um síðustu helgi var unnið að því að
flytja stórar vélar og var það ekki létt verk eins og sjá
má.
Melskurður á laugardag
Uppskeran minni en í fyrra
LANDVERND og landgræðslu-
nefnd Skarphéðins (HSK) f
Árnessýslu beita sér fyrir söfnun
melfræs við Þorlákshöfn n.k.
laugardag 13. september. Sá
háttur hefur verið hafður á und-
anfarin ár, að safnað hefur verið
sjálfboðaliðum til þessara starfa
og f fyrra fengust t.d. 10 tonn af
fræi.
I fréttatilkynningu frá Skarp-
héðni segir, að upphaflega hafi
verið ráð fyrir því gert, að
melurinn yrði skorinn 30. ágúst
s.l. en veður hefði þá verið óhag-
stætt og melurinn þroskast seint
að þessu sinni.
Haukur Hafstað hjá Landvernd
sagði í samtali við Morgunbiaðið,
að á undanförnum árum hefðu
þeir hjá Landvernd fengið í vax-
andi mæli sjálfboðaliða frá skól-
um og áhugamannafélögum og
fengið nokkuð á sjötta hundrað
manns til melskurðarstarfa í
fyrra. Meginhluti melsins hefði
verið skorinn í nánd við Þorláks-
höfn.
Þá sagði Haukur að melurinn
hefði þroskazt mjög hægt á þessu
ári og yrði uppskeran minni en f
meðalári. Og hann bað að þvf yrði
komið á framfæri að farið yrði frá
BSl í áætlunarbílum, en nánari
upplýsingar væru veittar á skrif-
stofu Landverndar.
■D
■o
öx
c-
r*
o
(O
(O
(D
<
3
ök
SIMANUMER
74100
KJÖT
NÝLENDUVÖRUR
MJÓLK
FISKUR
SENDUM HEIM
HÓLAGARÐUR
KJÖRBÚÐ
BREIÐHOLT 3
eftir JÓN Þ. ÞÓR
Timman
sigraði
í Natanya
ISRAELSMENN halda árlega
öflugt skákmót I borginni
Natanja á Miðjarðarhafsströnd.
I ár var mótið haldið í tölfta
sinn, og fór það fram f júní-
mánuði síðastliðnum. Úrslit
urðu sem hér segir: 1. Timman
(Holland) 9 v., 2. — 3. Liberzon
og Kraidman (Israel) 8,5 v., 4.
Lederman (Israel) 7,5 v., 5. —
6. Najdorf (Argentinu) og
Pachman (V-Þýzkal.) 7 v., 7. —
9. Kagan, Radasjkovitsj og
Sjamkovitsj (Israel) 6,5 v., 10.
Panno (Argentínu) 5,5 v., 11.
— 12. Yanovsky (Kanada) og
Balshan (Israel) 5 v., 13.
Bleiman (Israel) 4,5 v., 14
Cardoso (Fillipseyjar) 4 v.
Úrslit mótsins koma ekki
mikið á óvart. Kraidman og
Lederman stóðu sig mjög vel,
en flestir munu hafa búizt við
meiru af Panno og Sjamkovitsj.
Sigur Timmans hékk á
bláþræói, enda tapaði hann
þremur af fyrstu fimm skákun-
um. Lítum nú á tvær skemmti-
legar skákir frá mótinu.
Hvftt: Radasjokowitsj (Israel)
Svart: Timman (HollandL
Hollenzk vörn.
1. d4 — g6, 2. c4 — Bg7, 3. Rf3
— c5, 4. d5 — f5, 5. g3 — d6, 6.
Bg2 — Ra6, 7. 0—0 — Rf6, 8.
Rc3 — 0-0, 9. a3 — Rc7, 10
Dc2 — b5, 11. cxb5 — Dd7, 12.
b4 — cxb4, 13. axb4 — Bb7, 14.
Bb2 — Rcxd5, 15. Db3? — Kh8,
16. Ha5 — Rxc3, 17. Bxc3 —
Bd5, 18. Da3 — e5, 19. Hdl —
Db7, 20. Rel — Hfc8, 21. Bxd5
— Rxd5, 22. Bb2 — Rb6, 23.
Df3 — Df7, 24. Hcl — Rc4, 25.
Ha2 — Rxb2, 26. Hxc8 — Hxc8,
27. Hxb2 — e4, 28. Db3 —
Dxb3, 29. Hxb3 — Hcl og hvftur
gaf.
Hvftt: Pacman
Svart: Liberzon
Kóngsindversk vörn.
1. d4 — Rf6, 2. c4 — g6, 3. Rc3
— Bg7, 4. e4 — d6, 5. f3 — 0—0,
6. Be3 — e5, 7. d5 — Rh5, 8.
Dd2 — f5, 9. 0—0—0 — R47,
10. Bd3 10. — Rdf6, 11. Rge2 —
fxe4, 12. Rxe4 — Rxe4, 13. Bxe4
— Rf6, 14. Rg3 — Rxe4, 15.
Rxe4 — Bf5,16. Bg5 — De8,17.
Hhel — b5, 18. Db4 — bxc4,19.
Dxc4 — Df7, 20. He3 — h6, 21.
Bh4 — IIab8, 22. Bf2 — h5, 23.
Hc3 — Bh6+, 24. Kbl — a5, 25.
a3 — Hb7, 26. Kal — Hfb8, 27.
Hc2 — Bd7, 28. Rc3 — c5, 29.
Bel — Hb6, 30. h3 — Be3, 31.
Ra4 — Bxa4, 32. Dxa4 — Bd4,
33. Hxd4 — exd4, 34. He2 — d3,
35. He6 — Hxb2, 36. Bc3 —
H2b3, 37. De4 — Hxa3 mát.
Mótmæla
„gikkslegum”
samþykktum
bænda
Á stjórnarfundi Landssamb-
ands iðnverkafólks, sem haldinn
var 6.9 1975, var gerð eftirfarandi
samþykkt:
Stjórn Landssambands iðn-
verkafólks lýsir undrun sinni á
hinum gikkslegu samþykktum
Stéttarsambands bænda í garð
verkalýðshreyfingarinnar. Virð-
ist nú augljóst að áður kunnur
fjandskapur formanns Stéttar-
sambandsins f garð verkalýðs-
hreyfingarinnar er orðinn stefnu-
markandi fyrir sambandið.
Stjórn Landssambands iðn-
verkafólks telur því tfmabært að
verkalýðssamtökin geri sínar ráð-
stafanir til að mæta árásum Stétt-
arsambands bænda á viðeigandi
hátt.