Morgunblaðið - 12.09.1975, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1975
raðauglýsingar — radauglýsingar — raðauglýsingar
tilkynningar
Frá Akraborg
Vegna mikillar eftirspurnar er ákveðið að
fjölga ferðum næsta mánuð. Verður
áætlun skipsins þann tíma sem hér segir:
Frá Akranesi kl. 8.30, 1 1.30, 14.30 oq
1 7.30.
Frá Reykjavík kl. 10.00, 13.00, 16.00
Og190° Afgreiðslan.
Geymið auglýsinguna.
Kynning á æskulýðs- og
félagsmálastarfi í Vestur-
Þýzkalandi maí—júlí
1976.
Vestur-þýsk stjórnvöld og Victor Gollancz menntastofnunin
bjóða starfsfólki og sérfræðingum ! æskulýðs- og félagsmála-
starfi til þriggja mánaða náms- og kynnisferða r Sambandslýð-
veldinu Þýskalandi næsta sumar (maí—júli 1976).
Þátttakendur þurfa að hafa gott vald á þýskri tungu, vera
starfandi við æskulýðs- og félagsmálastarf og vera yngri en 35
ára.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást i menntamála-
ráðuneytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavik, og þurfa umsóknir um
þátttöku að hafa borist ráðuneytinu fyrir 5. október n.k.
Menntamálaráðuneytið,
8. september 1975.
Lífeyrisjóður
Hlífar og Framtíðarinnar
Stjórn Lífeyrissjóðs Hlífar og Framtíðar-
innar vekur athygli sjóðsfélaga á því, að
umsóknir um lán úr sjóðnum eru af-
greiddar tvisvar á ári, vor og haust.
Umsóknir um lán við haustúthlutun þurfa
að berast fyrir 1 . okt. og við vorúthlutun
fyrir 1. apríl.
Viðbótarlán verða ekki veitt við úthlutun
nú í haust.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu sjóðs-
ins að Strandgötu 1 1, skrifstofan er opin
frá kl. 1 —4.
Frá Víghólaskóla
íKópavogi
Nemendur komi til náms í skólann mánu-
daginn 1 5. sept. sem hér segir:
5 og 6 bekkur (framhaldsdeildir) kl. 9
Landsprófsdeildir og 4. bekkur kl. 10
2. bekkur kl. 1 1
3. bekkur kl. 1 3
1. bekkur kl. 1 4
Fræðslustjórinn í Kópavogi.
Lötaksúrskurður í
Keflavíkurkaupstað
Samkvæmt beiðni Keflavíkurkaupstaðar
úrskurðast hér með að lögtök geta farið
fram vegna gjaldfallina en ógreiddra út-
svara og aðstöðugjalda álagðra í Keflavík
árið 1975 allt ásamt dráttarvöxtum og
kostnaði.
Lögtök geta farið fram að liðnum 8 dög-
um frá birtingu úrskurðar þessa, ef ekki
verða gerð skil fyrir þann tíma.
Bæjarfógetinn í Kefiavík 5. september
1975 Vaitýr Sigurðsson settur.
uppbod
Eftir beiðni skiptaréttar Reykjavíkur fer fram opinbert uppboð
að Sólvallagötu 79, laugardaginn 13. september 1975 og
hefstþað kl. 13.00.
Seldar verða ýmsar útgerðarvörur og veiðafæri svo sem:
netaslöngur, net, önglar, nylon og monilla tóg, garn, netakúl-
ur, línutaumar, koparrör, nylonlina og margt fleira.
Ávlsanir ekki teknar gildar sem greiðsla nema með samþykki
uppboðshaldara eða gjaldkera.
Greiðsla við hamarshögg.
Uppboðshaldarinn i Reykjavík.
+
HÁKON BARÐASON,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 12. sept kl 10.30.
Htilda Björg Hákonardóttir,
Teresia Guðmundsson,
Htfdur Barðadóttir.
Utför,
ÓLAFS EGGERTS ÞORSTEINSSONAR,
Skagabraut 34, Akranesi,
fer fram frá Akraneskírkju laugardaginn 13. september kl. 2. Blóm og
kransar afþakkaðir, en þeim, sem vildu minnast hans, er bent á
Sjúkrahús Akraness
Fyrir hönd aðstandenda, r
Ólafina Ólafsdóttir.
i Elskulegur sonur okkar og bróðir. h
GUÐMUNDUR BIRGIR JÓNSSON,
Vallartröð 6, Kópavogi
lézt af slysförum 9. september. Guðný Guðmundsdóttir, Jón Óskar Guðmundsson,
Guðrún H. Bjarnadóttir, Sigrlður Jónsdóttir, Jón Óskar Jónsson.
1 Hjartkær eiginmaður minn, h
HALLGRÍMUR PÉTURSSON, skósmiður, Laugarásvegi 29,
lézt að morgni 10 september Kristín Aðalsteinsdóttir.
+
JÓN SIGURÐSSON,
Bugðulæk 1 7,
er andaðist 3. september verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
laugardaginn 13 september kl 10.30, Blóm vinsamlega afþökkuð, en
þeim sem vildu minnast hins látna, er bent á Hjartavernd
Gróa Guðjónsdóttir
Þórunn Jónsdóttir Sæmundur Gunnarsson
Guðjón Jónsson Gréta Jónsdóttir.
og barnabörn
Sigurður Eyleifsson
skipstjóri — Kveðja
Þann 17. ágúst síðastliðinn and-
aðist Sigurður Eyleifsson skip-
stjóri á Landakotsspítala, eftir
stutta legu. Utför hans var gerð
frá Dómkirkjunni miðvikudaginn
27. s.m.
Sigurður var fæddur 6. júlí
1891 að Gesthúsum á Seltjarnar-
nesi. Foreldrar hans voru hjónin
Eyleifur Guðmundsson og
Kristjana Margrét Sigurðardóttir.
Sigurður átti bróður er Guðmund-
ur hét og er hann látinn. Sigurður
fór ungur til sjós, síðan lá leiðin í
Stýrimannaskólann. Að loknu
námi sigldi hann sem stýrimaður
og sfðar skipstjóri fram á efri ár.
Var hann farsæll í starfi og sigldi
Öll striðsárin.
Sigurður var tvíkvæntur. Fyrri
kona hans lézt eftir stutta sambúð
frá fjórum litlum börnum. Með
seinni konu sinni eignaðist hann
tvö börn, og dóttir hennar ólst
upp á heimili þeirra.
Ég sem þessar línur rita ætla
mér ekki að skrifa um ævi og
störf Sigurðar, það gera mér fær-
ari menn. Lítinn þakkarvott til
tengdaföður míns, langar mig þó
að sýna en oflof væri honum sízt
að skapi.
Ég minnist hans fyrst, þegar ég
var kynnt fyrir honum, og er enn
minnisstætt, hve góðar móttökur
hann veitti mér. Sigurður var
myndarlegur maður, þéttur á
velli, hjálpsamur, gestrisinn og
glettinn mjög. Held ég, að sá
eiginleiki hafi hjálpað honum
mikið, því að hann eins og aðrir
fékk að kenna á sorg og mótlæti á
+
Móðir okkar,
GUÐFINNA GUÐMUNDSDÓTTIR,
frá Mið-Fossum,
andaðist í Sjúkrahúsi Akraness miðvikudaginn 10 september.
Börnin.
+
Sonur minn,
ÓLAFUR KJARTANSSON
bréfberi
Keflavík,
verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju laugardaginn 13 september kl
2. Fyrir hönd aðstandenda,
Kjartan Ólason.
lffsleiðinni. En aldrei heyrði ég
hann kvarta um sína hagi, heldur
var spurt hvernig við hefðum það,
tíðrætt um sjósókn og aflabrögð,
sem var honum hugleikið.
Sigurður var heilsuhraustur
maður fram á efri ár, en það sem
hrjáði hann mest seinni árin voru
fæturnir, þeir voru farnir að gefa
sig, því að áður fyrr var ekki um
hvíld að ræða er skipstjórinn stóð
í brúnni, — það var staðið meðan
stætt var.
Börnin sakna afa. og langafa,
hann sem alltaf var svo glaður,
þegar þau komu. Og barnabörnin
vissu að þegar jólin nálguðust,
sendi hann ævinlega miða til að
fara á jólaskemmtun barna hjá
Oddfellowum, jafnvel þó að
hópurinn stækkaði og yrði að
lokum 25 barnabörn.
Kærar kveðjur og þakkir flyt ég
frá fyrsta barnabarni hans og fjöl-
skyldu þess, sem búsett er í Svf-
þjóð, og á ekki því láni að fagna
að sjá afa sinn aftur á lífi.
Þakklátur var Sigurður lækn-
um og hjúkrunarliði er önnuðust
hann á spftalanum. Og glettni
sinni hélt hann til hinztu stundar.
Þó það sé sárt að sjá á bak sinna
nánustu, máttum við samt þakka
fyrir að fá að hafa hann svona
lengi hjá okkur. — Nú hringir
hann ekki lengur til að spyrjast
fyrir um líðan okkar eins og hann
gerði svo oft. Og ég veít að ég
mæli fyrir munn allra er þekktu
hann, að Sólvallagata 5a er ekki
sú sama og áður, er Sigurðar nýt-
ur þar ekki lengur við.
Hjartans þakkir færum við frá
fjölskyldunni á Hverfisgötu 55.
Far þú í friði, friður Guðs þig
blessi, hafðu þökk fyrir allt og
allt.
Brynja Kristjánsdóttir.
+
Þökkum auðsýnda samúð við
andlát og útför sonar okkar og
bróður,
HANS OLAFS,
Sérstaka þökk til lækna,
hjúkrunarfólks og annars starfs-
fólks á Kópavogshæli, fyrir sér-
staka umönnun honum til
handa
Dröfn Kalmansdóttir,
Leif Nielsen,
og systkini.