Morgunblaðið - 12.09.1975, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 12.09.1975, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1975 35 — sagði Marteirm Geirsson VILDUM ENGA ÁHÆTTU TAKA SAGÐI JENS SUMARLIÐASON — ÞÓ að við komum heim með þrjú töp á bakinu, held ég að ekki verði annað sagt en að árangur fslenzka landsiiðsins I ferðinni hafi verið stórkostlega góður, sagði Jens Sumarliðason, formað- ur landsliðsnefndar KSl f viðtali við Morgunblaðið f gærkvöldi. — Það er samdóma álit þeirra sem fylgzt hafa með knattspyrnunni f Evrópu að undanförnu að nú séu þrjú Iið þar greinilega sterkust: Belgfa, Sovétríkin og Pólland. Við kepptum við tvö þessara liða og töpuðum leikjunum fyrir þeim aðeins 1—0. Þetta hlýtur að teljast góður og eftirtektarverður árangur, og hann hefði ekki náðst ef ekki hefði komið til frábær barátta og góður Iiðsandi hjá fslenzka liðinu. að leikmennirnir voru orðnir nokkuð þreyttir bæði eftir öll ferðalögin og eins eftir leikina við Belgíu og Frakkland. Jens sagði það skoðun sína að það hefði ekki haft mjög mikil áhrif að atvinnumennina þrjá vantaði í islenzka liðið, eins og leikurinn var útfærður, en hins að sækja meira síðustu 20 mínúturnar í leiknum, ef vel gengi, en það var greinilegt að þeir voru orðnir svo þreyttir að þeir lögðu ekki í að breyta leikað- ferðinni, enda tæpast rétt að taka áhættu, jafnvel þótt staðan væri ekki nema 1—0, sagði Jens. Þegar hann var að því spurður, hvort kvartanir íslenzku leik- mannanna yfir lélegu fæði i Sovétrfkjunum hefði við rök að styðjast svaraði Jens: — Það er alls ekki hægt að bera á móti því að það var enginn veizlukostur sem fyrir okkur var borinn, og ákaflega stirð öll þjónusta. Vildum við breyta ein- hverju frá því sem fyrirfram var ákveðið var það nánast ekki hægt, eða kostaði miklar vangaveltur. Eitt af því sem var þeim t.d. mikið umhugsunarefni var það, að islenzku leikmennirnir vildu fá ávaxtasafa að drekka með matn- um. Matthfas Hallgrfmsson og Tony Knapp landsliðsþjálfari bfða eftir töskum sfnum f afgreiðslunni á Keflavfkurflugvelli við komuna f gær. vísi nú, sagði Marteinn, — þá reyndu þeir ákveðnara að sækja að markinu og leika sig I góð færi, nú gekk leikaðferð þeirra meira út á það að láta knöttinn ganga á milli sln úti á vellinum, I þeirri von að fslendingamir kæmu fram á móti þeim og opnuðu þannig vörn slna. Okkur stóð nokkurn veginn á sama um það þótt þeir væru að dúlla úti á vellinum, en þegar þeir sóttu inn að teignum var komið ákveðið á móti þeim, og þar fengu þeir aldrei neinn frið. Má vera að það hafi verið meiri barátta I liði þeirra á Laugardals- vellinum sumar, af þeim sökum að þá voru þeir ekki orðnir öruggir um að komast á Olympluleikana. Marteinn sagði að þessi keppnis- ferð með landsliðinu hefði verið jafn erfið og hún var ánægjuleg. — Sér- staklega var ferðin til Sovétrlkjanna og dvölin I Moskvu erfið, sagði hann. Við áttum að hafa nokkuð góðan tlma til þess að undirbúa okkur undir leikinn eftir að við komum þangað, en raunin var sú, að menn hvildust lítið og voru hreint ekki vel upplagðir þegar að leiknum kom. Þannig þótti okkur t.d. maturinn sem okkur var boðið upp á mjög ólystugur og flestir leikmannanna léttust mikið á meðan á Sovétheimsókninni stóð. Við fengum að vlsu kjöt sem við gátum borðað, en slðan ekki söguna meir. Þannig var t.d. ekki hægt að fá ávaxtasafa eða gosdrykki, og vatnið var llka með öllu ódrekkandi. Þeir sem höfðu kók á boðstólum I flug- höfninni I Kastrup I Danmörku gerðu þvl góð viðskipti þegar Islenzka landsliðið kom þangað á leiðinni frá Moskvu. Um atvinnutilboð sagði Marteinn, að ekkert ákveðið hefði gerzt I ferð- inni. Það var aðeins lauslega rætt við mig, en framvinda mála er óljós. Fái ég hins vegar sæmilegt tilboð frá liði sem mér llzt á þá er ég ákveðinn að fara I atvinnumennskuna. —SOVÉZKA liðið lék frábærlega góða knattspyrnu. Þetta voru greini- lega þrautþjálfaðir menn, sem gátu gert nánast það sem þeim sýndist með knöttinn, sagði Marteinn Geirs son I viðtali við Morgunblaðið I gær, — en Islenzka liðið átti einnig góðan dag I Moskvu, og baráttuviljinn og andinn var alveg sérstakur. Menn töluðu látlaust saman og börðust og börðust, þannig að Sovétmennirnir fengu ekki mörg færi. Reyndar fengu þeir betri færi en þeir skoruðu mark sitt úr, en það kom nokkuð óvart, seint I fyrri hálfleiknum, rétt eftir að við höfðum verið að kallast á að halda nú hreinu I hálfleik. Marteinn sagði, að þrátt fyri að Sovétmenn hefðu leikið þennan leik á heimavelli slnum, hefðu þeir tæpast sýnt eins góðan leik og þeir gerðu á Laugardalsvellinum fyrr I sumar. — Þeir léku töluvert öðru Marteinn Geirsson. Jens sagði að íslenzku landsliðs- mönnunum hefðu verið gefin fyrirmæli um að leika ákveðinn varnarleik gegn Sovétjnönnunum og þeir hefðu farið mjög vel eftir þeim fyrirmælum. — Það var aldrei tekin áhætta í leiknum, sagði Jens, — við gáfum Sovét- mönnunum eftir ákveðinn hluta vallarins, en tókum þá svo þegar nálgaðist markið. Þessi leikaðferð var m.a. valin vegna þess að í íslenzka liðið vantaði atvinnu- mennina þrjá: Ásgeir, Guðgeir og Jóhannes, og auk þess vissum við Jens Sumarliðason. vegar bæri að játa, að ef til vill hefði verið reynt að leika meira upp á sókn, hefðu þeir verið með. — Við vorum búnir að segja strákunum að þeir skyldu reyna 1 liifðu eríndi sem erfíði ISLENZKA knattspyrnuliðið kom heim úr frægðarför sinni til Frakklands, Belgfu og Sovétríkj- anna f gærdag. Verður ekki annað sagt en að þeir hafi haft erindi sem erfiði f ferðinni, en sjálfsagt hafa flestir verið fegnir að vera komnir heim aftur, enda mikil ferðalög að baki. Sumir knatt- spyrnumannanna fá þó ekki mikla hvfld frá íþrótt sinni, þar sem úrsiitaleikurinn f bikar- keppni KSl fer fram á sunnudag- inn, og þar verða margir lands- liðsmannanna f sviðsljósinu. MikiII tfmi fór f ferðalög f keppnisferð þessari, og var liðið t.d. 14 klukkustundir á leiðinni frá tslandi og til Nantes f Frakk- landi þar sem fyrsti leikur þess fór fram. Þegar það hélt svo frá Belgfu til Sovétrfkjanna var lagt af stað kl. 7 um morgun og ekki komið til ákvörðunarstaðar fyrr en kl. 1 næstu nótt. Það vekur athygli að þeir knatt- spyrnumenn sem Morgunblaðið átti tal við f gær kvörtuðu yfir þvf að aðbúnaður þeirra í Sovétríkj- unum hefði ekki verið nógu góð- ur. Þannig hefði fæðið verið mjög lélegt, og erfitt að fá neinu breytt sem ákveðið hafði verið fyrir- fram. Yfirleitt er lögð mikil á- herzla á að búa sem bezt að f- þróttaliðum sem eru á keppnis- ferðalögum og bæði UEFA og FIFA hafa sett ákveðnar reglur þar að lútandi. Virðist svo sem þarna séu Sovétmenn svolftið á eftir tfmanum. Gáfumþeim aldrei færi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.