Morgunblaðið - 30.09.1975, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1975
5
Ljósm. Mbl.: Árni Helgason.
Frá framkvæmdunum I Stykkishólmi. Frá hafnargerð, gatnafram-
kvæmdum og nýbyggingum húsa.
Mikið um framkvæmdir
í Stykkishólmi í sumar
Stykkishólmi 20. sept.
NU ER verið að breyta og endur-
bæta hafnarbryggjuna í Stykkis-
hólmi. Bryggjuhausinn var
orðinn mjög lélegur. Var þvf
byrjað á að bæta við hann nýrri
byggingu og sprengja niður I sjó
klettaborg sem þar var fyrir.
Sfðan var steypt og loks á að setja
rammgerða staura fremst. Við
þetta verður talsverð bót á rými
við hafskipabryggjuna. Eldri
hluti bryggjuhaussins verður ef
til vill styrktur eitthvað en fé er
ekki fyrir hendi í bili til að gera
meira en þetta enda dýr og kostn-
aðarsöm framkvæmd. Verkstjóri
er Grétar Bjarnason.
Þá er verið að gera stórvirki I
gatnagerð í kauptúninu. Fyrir
nokkrum árum var hluti (mið-
hluti) aðalgötunnar í Stykkis-
hólmi steyptur. Nú í sumar hefir
verið að vinna að því að undirbúa
að steypa hluta sitt hvorum megin
við það sem fyrir var. Hafa stór-
virkar vélar verið að störfum og
er nú búið að skipta um jarðveg
að meirihluta í þessum áfanga.
Hugmyndin er að klára að steypa
þann hluta sem veit upp úr bæn-
um og eins er verið að útbúa
undir steypu neðri hluta
götunnar, eða þann hluta sem veit
að gamla athafnasvæði bæjarins.
Er búið að grafa þann hluta
þannig að erfitt er að komast um
hann. T.d. varð að fjarlægja
kirkjutröppurnar svo nú er ekki
hægt í bili að komast að kirkju-
dyrunum. Þá er fyrirhugað að
setja olfumöl á aðrar götur í bæn-
um og hefir um það verið samráð
með öðrum kauptúnum sýslunnar
og er þetta nú í athugun og ef allt
fer eins og hugsað er munu fram-
kvæmdir við olíumölina hefjast
næsta sumar. Verkstjóri er Högni
Bæringsson, Stykkishólmi.
Eins og áður hefir verið sagt frá
er hestamennska mikil í Hólm-
inum og munu menn hér eiga um
50 til 60 hesta. Er þetta orðið hið
mesta sport. Vegleg hesthús hafa
risið upp fyrir ofan bæinn til fyr-
irmyndar aðstandendum. Er oft
gaman að sjá gæðingana í hópum
tölta um götur með glaðlega
knapa.
Mikið hefir verið byggt i
Hólminum að undanförnu og
munu nú um 20 hús vera í bygg-
ingu. Einnig er byrjað á nýrri
kirkju.
— Fréttaritari.
Fólki boðið á
sinfóníuæfingu
ALÞJÓÐARÁÐ tónlistarmanna
undir forystu Yehudi Menuhins
hefur ákveðið að tileinka mið-
vikudaginn 1. október tónlistinni,
og verður sá dagur alþjóðlegur
tónlistardagur.
Af þvi tilefni býður Sinfóníu-
hljómsveit Islands þeim, sem
áhuga hafa, að sækja æfingu
hljómsveitarinnar, sem haldin
verður í Háskólabíói 1. október kl.
9.30—12.30. Þar mun Vladimir
Ashkenazy æfa 6. Sinfóníu Tsjai-
kovskýs.
Vid getum audvitad ekki ábyrgzt þér
lO í vélritun
á vorprófinu.
En llkur þess aukast notir þú
skólaritvél
SKRIFSTOFUVELAR H.F.
t- Hverfisgötu 33
' X Sími 20560 - Pósthólf 377