Morgunblaðið - 30.09.1975, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 30.09.1975, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1975 Kennsla hefst fyrst í október. Innritun og upplýsingar kl. 1—5 daglega. Sími: 32153. lllEl S KO SIGRÍÐAR Ll ÁRMANN jmm Blaðberar — Hafnarfjörður Blaðbera vantar í nokkur hverfi í Hafnarfirði. Uppl. í síma 50374. iunss*>i# Jk Síðasti innritunar- dagur í síma 84750 frá kl. 10-7 Takið eftir Hafnfirðingar — Reykjavíkingar Bjóðið eiginkonu og unnustu að læra sam- kvæmisdansá, gömlu dansana eða jutterbug og rokk. Pantið tímanlega. Sérstakir timar fyrir hjón og einstaklinga. Afhending skirteina fer fram sem hér segirí REYKJAVÍK Safnaðarheimili Langholtssóknar kl. 6—9.30 e.h. 1. október. HAFNARFJÖRÐUR Iðnaðarmannahúsið kl. 6—10. 2. október. AKRANES R.,„«. 2-6.3. °k,óbef Kennslustaðir S a fnaðarheimili Langholtssóknar Ingólfskaffi Breiðholt / Breiðho/t II Seljahverfi Hafnarfjörður Iðnaðarmanna- húsinu og sjálfstæðishúsinu. Rein, Akranesi. D.S.Í. Afmæli í dag: Kristján Sigurjónsson fyrrum yfirvélstjóri I DAG er minn ágæti kunningi og fyrrum starfsfélagi Kristján Sigurjónsson sjötugur. Ég segi, ja, hver skyldi trúa því að hann Kristján væri orðin sjötugur. Þetta unglamb sem alltaf hefur verið svo kvikur í hreyfingum og jafn ungur í útliti eins og þegar við vorum saman fyrir 15 árum. Kristján Sigurjónsson er fædd- ur 30. september 1905 á Bíldudal í Arnarfirði. Foreldrar hans voru Hjálmfríður Kristjánsdóttir skipasmiðs, Kristjánssonar, á Bíldudal og hagleikssmiðsins Sigurjóns Kristjánssonar vél- stjóra, er var ættaður frá Hagaseli i Staðarsveit á Snæfellsnesi. Ég veit það að Kristján leit upp til föður síns og þótti svo vænt um móður slna að hann taldi hana einhvern þann besta kvenkost sem landið hefði nokkurn tima átt. Og móðir hans hún aldi hann upp 1 anda kristinnar trúar eins og þær öldnu sjómanns mæður sem urðu að halda uppi heimilinu á meðan faðirinn var til sjós. Foreldrar Kristjáns voru ekki rik og því urðu þau að velta hverj- um eyri fyrir sér. Kristján gerði sér því snemma ljóst hvað pening- ur væri og hefur síðan fylgt því eftir að vera sparsamur og hugsa um þjóðar hag. Og væri betra ef margir sem nú eru að vaxa úr grasi tækju slíkan mann sér til fyrirmyndar. Ungur ákvað Kristján að feta í fótspor föður sins. í þvl sambandi fór hann i vélvirkjanám hjá Hamri h/f og lauk þaðan prófi, samhliða iðnskólaprófi árið 1925. Árið 1926 gerðist hann kyndari á V/s Öðni, en það sama ár fór hann á Vélstjóraskólann og lauk þaðan prófi árið 1927. Eftir það var hann fyrst vélstjóri á togaranum April. En 1 júlí árið 1929 var hann ráðinn sem 3. vélstjóri á v/s Ægi en það skip var þá ný smíðað fyrir íslensku landhelgisgæsluna og var jafnframt fyrsta islenska skipið sem var með díselvél. Þar með hófst 41 árs óslitið starf Kristjáns Sigurjónssonar hjá rík- inu. Þegar Kristján byrjaði sem starfsmaður á sjónum var Land- helgisgæslan og Skipaútgerð ríkisins undir einum og sama hattinum. Þeir starfsmenn sem þar unnu þá voru því ýmist á varðskipunum eða strandferða- skipunum. Kristján var einn af þeim sem urðu að ganga á milli skipanna. Marga hef ég hitt sem hafa sagt mér að þeir minntust alltaf glæsimennisins Kristjáns Sigurjónssonar. Og þeir sem úti á landsbyggðinni bjuggu á þeim tíma þegar samgöngur voru erfið- ar að þá hafi þeir alltaf getað leitað til Kristjáns sem alltaf hafi verið tilbúinn þeim til aðstoðar. Kristján hefur alltaf verið áhugasamur um að fylgjast með Myndlistarnám barna 5 — 1 6 ára auk þess tengist leikræn tjáning Kennslu 8—1 1 ára deildar Innritun í síma 1 1 990, frá kl. 1 0—1 6. Myndlistaskólinn í Reykjavík M imisvegi 15, Ásmundarsal. Ýmsar gjafir eru acíeins notadar nokkurn hluta ársins, adrar ekki einu sinni svo oft. Eri Sheaffer Imperial er öruggur um ad1 vera notacfurdaglega. Ekki acfeins vegna þess ací pennahylkid erframleidd úrekta sterling silfri,heldurvegna þess hve hann er hentugur. Veljicf um pennaset, kúlupenna, blýant eda merkipenna. Sheaffer Imperial eradeins einn af mörgum Sheaffers. Peir eru allir 365 daga gjöfin. SHEAFFER, SHl AfHH.WOKM) WIOI AtexlrDR COMi’ANY nýjungum í vélfræði. Hann var einn af þeim fyrstu sem settust á skólabekk árið 1936 þegar vél- stjóraskólinn stofnsetti rafmagns- deildina. Kristján vann sér fljótt álit sem vélstjóri og voru honum í því sambandi falin ýmis trúnaðar- störf fyrir hönd útgerðarinnar og má í því sambandi benda á að honum var falið að fylgjast með niðursetningu vélanna í Herðu- breið og Skjaldbreið. Þessi skip voru byggð í Skotlandi rétt eftir stríðið, en þá var mikill skortur hjá hinum stríðshrjáðu löndum. Það var því ekkert sældarlíf hjá Kristjáni þann tíma sem hann dvaldist sem vélaeftirlitsmaður í Skotlandi, en maðurinn var nægjusamur og þekkti frá bernsku sinni að láta sér vera nóg af litlu. Þegar v/s Þór var byggt í Áiaborg árið 1951 var Kristján við niðursetningu þar um borð, og var 2. vélstjóri fyrst í stað en tók siðan við sem yfirvélstjóri. Ég var svo heppinn að vera samskipa þessari kémpu sem ég tel að hafi verið bæði samvisku- samur og ekki mátti vamm sitt vita. Það var bæði lærdómsríkt og gaman að sigla með mönnum eins og Kristjáni, Eiríki Kristóferssyni skipherra og Steingrími Matthías- syni loftskeytamanni, en þessar kempur sýndu oft fjör f messan- um þegar þeir ræddu landsins gagn og nauðsynjar, og sakna ég sannarlega þeirra tíma. í maí 1962 var Kristján gerður að skipaeftirlitsmanni hjá Land- helgisgæslunni og gegndi hann því starfi með miklum sóma til ársins 1970 aö hann varð að hætta vegna veikinda. Þegar ég lít yfir þau ár sem ég hef haft kynni af Kristjáni Sigurjónssyni, þá vil ég segja, að hann hafi verið einn af þeim góðu mönnum sem voru af gamla skólanum, en í þeim skóla ríkti húsbóndahollusta og sam- viskusemi i starfi. Kristján er tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Sigríður Ágústs- dóttir frá Kiðabergi í Vestmanna- eyjum, en hún lést árið 1961. Þau eignuðust tvö börn: Fríðu, sem gift er Rögnvaldi Bergsveinssyni skipstjóra á Langá og eiga þau tvö börn; og Ágúst, sem giftur er Heklu Þorkelsdóttur og eiga þau þrjú börn. Seinni kona Kristjáns er Asta Einarsdóttir, Hróbjartssonar f.v. póstfulltrúa i Rvík. Eins og lesa má hefur Kristján starfað sem vélstjóri hjá ríkinu í 41 ár. Þessi maður er búinn að vinna þjóð sinni langt og gæfuríkt starf. Mér hefur oft orðið hugsað til Kristjáns vinar míns þegar ég hef verið að hlusta á fréttir um orðuveitingar, og þá vanalega lagt fyrir mig sömu spurninguna: Af hverju ekki hann? En þeirri spurningu verður að sjálfsögðu orðunefnd að svara. Það þykir ábyggilega bjánalegt að ræða slfkt I afmælisgrein en læt mig samt hafa það og vil skora á orðunefnd að hún hugsi til þess- arar kempu, og er hún tæki til í skúffu sinni þá efast ég ekki um að hún myndi þar finna bréf frá okkur varöskipsmönnum. Á þessum merkisdegi Kristjáns Sigurjónssonar vil ég fyrir hönd okkar fyrrverandi starfsfélaga hans hjá Landhelgisgæslunni óska honum og fjölskyldu hans, innilega til hamingju með daginn og bið honum langra lífdaga um leið og ég þakka honum góðar samvinnustundir til sjós. Þau hjónin, Kristján og Asta, eru nú stödd erlendis og fylgja þeim frómar óskir. Helgi Hallvarðsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.