Morgunblaðið - 30.09.1975, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 30.09.1975, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1975 13 Blóm @ vlkunnar FLESTAR tegunair DiomiauKa eru fjölærar. Eins og fyrr var sagt mynda margir smálaukar fallegar, þéttar breiður þegar fram líða stundir. Getur þá stundum verið nauðsynlegt að taka þá upp og skipta þeim og dreifa. Sama máli gegnir um páskaliljur, ef ræktun þeirra á annað borð tekst vel þarf að skipta þeim á nokkurra ára fresti. Túlípanar eru yfirleitt ekki fjölærir hér, en sumar tegundir, einkum kaupmanna- túlípanar, geta þó enzt í nokkur ár ef heppnin er með. Þó fara blómin jafnan minnkandi eftir því sem árunum fjölgar. Ef túlípanar eru ræktaðir á mjög áberandi stað er næstum óhjákvæmilegt að skipta um lauk á hverju ári. Snemma- blómstrandi smálaukar fara mjög vel undir trjám og runn- um, þeir blómstra áður en tré laufgast, en að blómgun lokinni hylur laufið visnaða blóm- stöngla og blöð. Hávaxnari tegundir er hinsvegar heppi- legt að gróðursetja aftast í beði með fjölærum blómum, sem taka við að blómstra þegar laukblómin hafa lokið sínu hlutverki. Séu blómlaukar gróðursettir fast upp við hús- veggi koma þeir óþarflega fljótt til á vorin og hættir þá við að biða tjón í vorhretum. Og þegar nú gróðursetning- unni er lokið er þrautin þyngst að bíða rólegur vorsins. Eftir svo sem 6 mán. getum við vænst þess að sjá fyrstu blómin: vor- lilju, vorboða, vetrargosa, snæ- stjörnu og fleiri smálauka, sfð- an taka páskaliljur við, þá hyacintur, perluhyancintur og túlípanar og þegar þeir hafa lokið sér af ætti að vera komið sumar ef allt er með felldu. Og I görðum þeirra útvöldu, þeirra sem lengst eru komnir í garð- ræktinni gerast slík undur og stórmerki svo að segja daglega að þvf verður ekki lýst f stuttu blómlaukaspjalli! Að lokum smá áminning: Brjótið blómhnappana af eftir blómgun, það kemur f veg fyrir fræmyndun og þar af leiðandi orkutap, — leyfið blöðunum að visna og falla af sjálfu sér þvf gegnum þau fá laukarnir mikla næringu. /ÁB—HL. Tvíræður kveðskapur Santiago, 27. september — Reuter. AHRIGAMIKILL chilenskur blaðamaður var f nótt látinn laus úr fangelsi eftir að hafa setið inni f næturlöngum yfir- heyrslum hjá öryggislögregl- unni um ljóð eitt sem birtist f blaði hans og var móðgun við herforingjastjórnina f Chile þó að það á yfirborðinu virtist við fyrstu sýn lofsyngja haria, að þvf er innanrfkisráðuneytið sagði. Hernan Lopez, aðstoðar- ritstjóri kvöldblaðsins La Segunda, var handtekinn f gær, — einum degi eftir birtingu ljóðsins og skömmu eftir að glöggir lesendur komu auga á hina leyndu merkingu þess. Ljóðið, sem undirritað var af „A. Vergara“ og ' nefndist „Þjóðernislegur september- söngur“ lófsöng valdarán hers- ins f september 1973, sem steypti hinni vinstri sinnuðu samsteypustjórn Salvador Allende, heitins. I Ijóðinu sagði að ganga ætti af öllum marxist- um dauðum. En fyrstu stafir hverrar ljóðlínu, ef lesið var niður á við, mynduðu orðin „morðingjar og hernaðarharð- stjórar og afturhaldssamir asnar“. Innanrfkisráðuneytið sagði f nótt eftir að ritstjórinn hafði verið látinn laus aó La Segunda hefði að því er virtist birt ljóðið í góðri trú. í þessu liogur CUDO Mun mcira af þéttiefni — þrælstcrku Terostat, sem ekki þarf að verja sérstaklega. T erostat hefur, skv. prófunum, mestu viðloðun og togkraft, sem þekkist. Álramminn er efnismeiri og gerð hans hindrar að ryk úr rakavamarefnum falli inn á milli glerja. Álrammamir em fylltir rakavarnarefnum allan hringinn — bæði fljótvirkandi rakavarnarefni fyrir samsetningu og langvarandi, sem dregur i sig raka, sem getur myndast við hitabreytingar. AÐRIR Yfirleitt mun minna af þéttiefni, vegna rúm- frekari ramma úr þynnra áli. Áðeins 2 hliðar rammans fylltar með einni gerð rakavamar- efnis. Minni viðloðun þéttiefnis, sem þarf að verja sérstaklega gegn utanaðkomandi efna- fneðilegum áhrifum. Við trúum því, að verðmæti húseignar aukist með tvöföldu Cudogleri. Hvort sem þú byggir fyrir sjálfan þig, aðra eða byggir til að selja, þá hækkar verðgildi byggingarinnar við ísetningu glers frá framleiðanda, sem aðeins notar Terostat þéttiefni, sparar hvergi til við samsetningu glersins, og gefur 10 ára ábyrgð á framleiðslunni. Þess vegna borgarðu heldur meira fyrir Cudogler — þú ert að fjáifesta tilframbúðar. CUDO- GLERHF.I "VIÐERUM REYNSLUNNIRÍKARI ” Skúlagötu 26 Sími 26866 . Framleidandi: Oli Þorbergsson. Útsölustaðir: Húsgagnahúsið, Auðbrekku 61. Húsgögn og raftækí, Iðnaðarhúsinu Hallveigastig 1. Skeifan, Kjörgarði. Örkin hans Nóa, Akureyri. Alltaf er hann beztur Blái borðinn • smjörliki hf.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.