Morgunblaðið - 30.09.1975, Síða 21

Morgunblaðið - 30.09.1975, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1975 21 Við getum ekki þolað slíkar aðgerðir lengur Stefna okkar hefur verið alkunna í nærri 30 ár og getur ekki komið neinum að óvörum Herra forseti. Leyfið mér að hefja mál mitt með því að taka undir orð starfsbræðra minna og óska yður til hamingju með kjör yðar sem forseta 30. ailsherjarþings Sam- einuðu þjóðanna. Þetta kjör yðar er mér þeim mun meira ánægjuefni sem þjóðir okkar eru bundnar sérstökum böndum vináttu og gagnkvæmra samskipta. Kjör yðar ber ekki aðeins vitni þeim miklu kostum, sem þér eruð búnir til að gegna þessu vandasama og virðulega embætti, heldur sýnir það einnig hve mikilvægu hlutverki smáþjóðirnar geta gegnt innan vébanda Sameinuðu þjóð- anna. Ég óska yður alls velfarnaðar í þessu háa og mikilvæga embætti og full- vissa yður jafnframt um fullkomið traust og stuðning sendin^fndar minnar. Leyfið mér einnig nú í upphafi máls míns, að bera lof á aðalframkvæmda- stjóra Sameinuðu þjóðanna, dr. Kurt Waldheim, og starfslið hans fyrir þrot laust starf að framkvæmd þeirra mál- efna og markmiða, sem fólgin eru í stofnskrá samtakanna. Það er okkur einnig sérstakt ánægju- efni að bjóða þrjú ný aðildarríki vel- komin í hóp þeirra þjóða, sem eru innan vébanda Sameinuðu þjóðanna, en það eru Grænhöfðaeyjar (Cape Verde), Mósambík og Sao Tome. Við hyggjum gott til samvinnu við þau sem aðila að samtökunum. Þar sem ég hafði ekki tækifæri til þess að sækja og ávarpa 7. aukafund alls- herjarþingsins fyrr í þessum mánuði, þá vil ég, herra forseti, óska leyfis til þess að segja fáein orð um árangur þess fundar, sem einkum og sér i lagi fjallaði um þróunarmál og alþjóðlega samvinnu á sviði efnahagsmála. A þessum auka- fundi kom fram af hálfu allra aðildar- ríkjanna greinilegur vilji til þess að taka þátt í og stuðla að raunhæfum aðgerðum til lausnar þeim vanda, sem þjóðir heimsins eiga nú við að etja í efnahags- og fjármálum. Sú efnahagskreppa, sem að undanförnu hefur gert vart við sig víðsvegar um heim, skapar jafnt þróuð- um löndum sem þróunarlöndunum ýmis- konar erfiðleika. 1 þeim löndum, þar sem þessa hefur hvað mest gætt, er ástandið svo alvarlegt að verulegur hluti íbúanna á í harðri og daglegri baráttu gegn fátækt og hungri. Sú staðreynd að við skyldum á 7. auka- fundi þingsins geta snúið deilum og ásökunum upp í samstöðu og samvinnu, þrátt fyrir þá miklu erfiðleika, sem við er að etja, álít ég að megi teljast mjög mikilvægur pólitiskur árangur. Þrátt fyrir geysimikla efnahagsörðugleika þá reyndist eftir sem áður nægilegur póli- tískur vilji vera fyrir hendi til þess að vinna með þróunarlöndunum og láta af hendi rakna nokkra fjármuni þeim til aðstoðar. Nú er að þvi komið að við verðum að hrinda ákvörðunum aukafundarins i framkvæmd. Ekki er hægt að búast við neinum verulegum árangri nema allir leggi sig fram og sýni vilja sinn i verki. Auðsætt er að hér þarf bæði raunsæi og örlæti að koma til, ef mögulegt á að reynast að koma fram þeim breytingum, sem nauðsynlegar eru. Þessi fundur markar tímamót í sögu allsherjarþingsins, þar sem það kemur nú saman til fundar í 30. sinn. Ég skal ekki tefja tímann fyrir þingheimi með því að fara mörgum orðum um árangur- inn af starfi þingsins og Sameinuðu þjóðanna, eða ræða gallana á skipulagn- ingu samtakanna. Slika úttekt hafa aðrir ræðumenn gert á undan mér. Leyfið mér aðeins að láta í ljós þá von aö við höfum lært nokkuð af fyrri mis- tökum og að sá árangur, sem starfið kann að bera verði okkur hvatning til þess að leggja okkur enn betur fram á komandi árum f viðleitni okkar til þess að finna lausn á þeím umfangsmiklu og margvíslegu vandamálum, sem við blasa hvarvetna. Ég er fyllilega sammála því áliti, sem fram kemur í upphafi skýrslu aðalfram- kvæmdastjórans, að samtök okkar hafi getað lagað sig að breyttum aðstæðum í heiminum, og þau hafi einnig reynst þess megnug að takast á við ýmiskonar vanda, sem óvænt hefur að höndum borið. Engu að síður þurfum við að efla enn frekar en áður getu Sameinuðu þjóðanna til þess að gegna því hlutverki sínu að vera heimsþing þjóðanna til efl- ingar öryggi, friði og samheldni um veröld alla. Ég skal nú víkjá nokkrum orðum að afstöðu okkar til þeirra megin alþjóða- mála, sem fyrir þessu þingi liggja. Fyrir 30 árum ákváðu stofnendur Sameinuðu þjóðanna að meginverkefni samtakanna skyldi vera fólgið í varð- veislu heimsfriðar og öryggis. Þrátt fyrir einbeitna viðleitni innan Sameinuðu þjóðanna til að finna lausn á þeim meginvanda, sem fólginn er í þvi að koma á afvopnun og framkvæmd eftirlits með vopnabúnaði, þá hefur slíkt reynst árangurslítið. Framleiðsla vopna og birgðasöfnun þeirra, samfara alþjóðaverzlun með vopn, hefur færst svo í vöxt að ógnvekj- andi má teljast, og er ekki unnt að koma auga á að úr þessu muni draga. Auk hinnar hörmulegu sóunar verðmæta, jafnframt viðurkenningu á rétti sér- hvers ríkis í þessum heimshluta til að búa við trygg og viðurkennd landamæri. Gæslulið Sameinuðu þjóðanna hefur afar þýðingarmiklu hlutverki að gegna við friðargæslustörf I Mið-austurlöndum og án þess hefði reynst miklum erfið- leikum bundið að koma á því vopnahléi, sem nú rikir þar um slóðir. Ennþá er Kýpurdeilan óleyst, en við vonum að þær samningaumleitanir, sem hafnar hafa verið að frumkvæði aðal- framkvæmdastjórans, geti haldið áfram, þar sem við erum þeirrar skoðunar að viðræður milli fulltrúa hinna tveggja þjóðarbrota undir traustri og öruggri leiðsögn hans, sé besta leiðin til þess að finna fullnægjandi frambúðarlausn á þessari erfiðu deilu. Enn einu sinni er málefni Kóreu til umræðu á dagskrá allsherjarþingsins. Ef þetta mikilvæga mál á að þokast nær viðunandi lausn verða bæði ríki Kóreu að sýna í verki einlægan samningsvilja, þvi án þess virðist allsherjarþingið harla litið geta gert til að ná árangri í þessu Ræða Einars Agústssonar utanríkisráðherra á 30. allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í gær jafní mannlegra sem efnahagslegra, í heimi þar sem milljónir manna búa við skelfilegustu eymd og örbyrgð stofnar vopnakapphlaupið framtíð mannkynsins í beinan háska. Samtök Sameinuðu þjóðanna voru stofnuð um það leyti, sem mestu eyði- leggingarstyrjöld í sögu mannkynsins var að Ijúka og við upphaf kjarnorku- aldar. Allt frá þeim tíma hefur veröldin mátt lifa í skugga kjarnorkuvopna og annarra gjöreyðingartækja. Á vegum Sameinuðu þjóðanna hefur tekist að ná samkomulagi um nokkrar mikilvægar alþjóðasamþykktir á sviði kjarnorku og vopnabúnaðar. Hins vegar hefur samþykktin um takmörkun kjarn- orkuvopna, sem meir en 90 lönd hafa gerst aðilar að, borið takmarkaðan árangur, og við verðum að horfast í augu við þá staðreynd að hættan á aukningu kjarnorkuvopnabúnaðar fer vaxandi. Þetta ætti að vera okkur öllum mikið alvörumál, og ég vonast til þess að alls- herjarþingið muni þegar á þessu þingi taka þau almennu vandamál, er lúta að eftirliti með vopnabúnaði og afvopnun, til gaumgæfilegrar íhugunar, og þá einkanlega nauðsyn þess að dregið verði úr þeirri hættu, sem samfara er aukn- ingu kjarnorkuvopnabúnaðar. Sendinefnd mín fagnar þeim aukna árangri, sem náðst hefur við að veita fyrrverandi nýlendum i Afríku sjálf- stæði, en skýrasta dæmi þessa eru þau þrjú lönd í Afríku, sem nú á þessu þingi hafa hlotið aðild að Sameinuðu þjóð- unum, og bráðlega bætist Angóla f hóp- inn. Sendinefnd Islands á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna hefur ávallt stutt baráttu þjóða Suður-Afríku fyrir rétti sínum til sjálfsákvörðunar og sjálf- stæðis. Þrátt fyrir skelegga afstöðu og viðleitni þessarar stofnunar gegnum árin rikir enn misrétti kynþátta i sumum landshlutum Suður-Afríku. Við verðum að halda áfram að beita eins miklum þrýstingi og unnt er uns grundvallar mannréttindi og sjálfsákvörðunarréttur hefur verið tryggður til handa íbúum þessara landssvæða. Brot á mannréttindum eru ekki bundin neinum tilteknum heimshluta, og slíkt verður að fordæma hvar sem það kann að ejga sér stað. Baráttan til að tryggja öllum mönnum grundvallar mannréttindi og mannvirðingu hlýtur því framvegis sem hingað til að njóta forgangs, öðrum málum fremur, á veg- um Sameinuðu þjóðanna. I þessu sambandi vildi ég því mega lýsa ánægju minni yfir því hve þeim atriðum, er varða mannúðarmál og mannleg samskipti almennt, er gert hátt undir höfði í endanlegri samþykkt ráð- stefnunnar um öryggi og samvinnu í Evrópu, sem undirrituð var af leiðtogum 35 þjóða í Helsingfors fyrir tveimur mánuðum. Á þessu afmælisári Sameinuðu þjóð- anna er svo komið, að heita má að nær allar fullvalda þjóðir heims hafi fengið aðild að samtökunum. Fjöldi þeirra nem- ur nú 141, og taka þær til meir en 95 hundraðshluta allra íbúa jarðar. Þess má vænta að innan skamms getum við boðið nokkrar þjóðir enn velkomnar í þennan hóp. Ég vildi hér með mega staðfesta enn á ný það álit ríkisstjórnar minnar, að allar þjóðir heims eigi rétt á því að öðlast aðild að samtökum Sameinuðu þjóðanna. Samkvæmt þessari grundvallarstefnu mun íslenska sendinefndin andmæla hverri tilraun, sem kann að verða gerð til þess að útiloka eitthvert ríki frá aðild að samtökunum, eða vikja aðildarríki úr þeim, með einhverjum þeim hætti, sem ekki er í fullkomnu samræmi við ákvæði sáttmála Sameinuðu þjóðanna. Á sama hátt mun stjórn mín snúast gegn hverri tilraun, sem beinist að því að takmarka réttindi einhvers rikis sem aðila að Sam- einuðu þjóðunum eða einhverri sér- stofnun þeirra. Við lítum svo á að sérhver sllk tilraun hljóti að verða til óþurftar og geti dregið úr eða jafnvel eyðilagt áhrifavald Sameinuðu þjóðanna til eflingar friði I heiminum. Bráðabirgðasamkomulag það, sem nýverið var gert milli Egyptalands og Israel ber sannarlega vott um ánægju- lega og jákvæða þróun, er við lítum á sem mikilvægt skref til lausnar þeim alvarlegu deilum og þvl hættuástandi, sem á undanförnum árum hefur ríkt I Mið-Austurlöndum. Við óskum öllum þeim, sem átt hafa hlut að því að þetta samkomulag náðist, til hamingju með árangurinn og teljum störf þeirra bera vott um stjórnvisku, hyggindi og áræði. Það er von okkar og ósk að sá árangur, sem þannig hefur nú náðst til lausnar þeim margslungnu og erfiðu vandamál- um, sem við er að etja I þessum heims- hluta, glatist ekki heldur leiði til varan- legs friðar meðal þeirra þjóða, sem hér eiga hlut að máli. Þetta er á engan hátt auðvelt verkefni, en við hvetjum til þess að þjóðir þær, sem byggja þennan hluta heims, sýni þolinmæði og einlægan vilja til þess að starfa saman að réttlátri lausn þeirra deilna, er milli þeirra hafa ríkt, þar eð að öðrum kosti má búast við að úr verði nýtt ófriðarbál, er stofnað geti heims- friðinum I alvarlega hættu. Heildarsamkomulag um málefni Mið- Austurlanda hlýtur að fela I sér viður- kenningu á réttindum Palestlnumanna, máli. Þar sem sameining Kóreu með friðsamlegum hætti er yfirlýst stefnu- mið ríkisstjórna beggja rlkjanna hljót- um við að vonast til þess að unnt verði að skapa aðstæður og grundvöll fyrir því, að ríkisstjórnir þessar geti á ný hafið samningaviðræður með þetta markmið I huga. Herra forseti, Rlkisstjórn Islands hefir fylgst með störfum Hafréttarráðstefnunnar af mikilli athygli og mun halda áfram að leggja mikið upp úr þeim umræðum, sem þar fara fram. Á ráðstefnunni hefur talsverður árangur náðst á ýmsum sviðum og víð- tæk samstaða hefur komið I ljós. Hins vegar er talsvert starf óunnið I sumum málaflokkum, t.d. varðandi hið alþjóð- lega hafsbotnssvæði. Ríkisstjórn tslands hefur fylgst með þessum viðræðum af miklum áhuga og mun halda áfram að styðja ráðstefnuna I þvi, að hún geti náð heillavænlegum árangri. Að loknum þriðja fundi ráðstefn- unnar, sem haldinn var I Genf á timabil- inu 17. mars til 9. maí 1975, hlaut rikis- stjórn Islands að meta stö.ðuna I heild. Fyrir lá þá heildarfrumvarp að samn- ingstexta frá formönnum hinna þriggja aðalnefnda og verður það lagt til grund- vallar störfum fjórða fundarins I New York I mars/maí 1976. Hugsanlegt er, að einn eða fleiri fundir verði haldnir eftir það áður en ráðstefnan getur Iokið sín- um störfum. Þegar þannig stóð á, varð rlkisstjórn tslands að horfast i augu við eftirfarandi staðreyndir: I fyrsta lagi eru fiskstofnar á Islands- miðum enn grundvöllur efnahags þjóðarinnar — lífshagsmunamál þjóðarinnar ! öðru lagi er það staðreynd, að nærri helmingur heildarafla boln- lægra fisktegunda á svæðinu, er enn veiddur af erlendum fiskimönnum frá þjóðum, sem stunda veiðar á fjar- lægum miðum — einkum frá Bretlandi og Sambandslýðveldinu Þýskalandi. Vegna veiða breskra skipa á smáfiski, verður að telja að meira en helmingur af veiddum fiski hafi verið veiddur af erlendum fiski- mönnum. Skip þau, sem þessar veiðar stunda njóta ríkulegs styrks með ýmsum hætti frá hlutaðeigandi ríkis- stjórnum. í þriðja lagi fara fram síváxandi veiðar á ókynþroska fiski af hálfu erlendra fiskimanna, þannig að endurnýjun fiskstofnanna er í sívax- andi hættu. Þetta er t.d. ljóst þegar þess er gætt aö þýðingarmesti Framhald á bls. 35

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.