Morgunblaðið - 30.09.1975, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 30.09.1975, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1975 35 - 40% 5';rhr“ sagöi að Kanadamenn myndu halda áfram aö hafa eftirlit með veiðum erlendu skipanna og loka kanadískum höfnum fyrir þeim þjóðum sem ekki virtu samkomulagið. Hann sagði ennfremur að þetta sam- komulag mundi ekki á neinn hátt draga úr viðleitni Kanada- manna til að ná 200 mílna fisk- veiðilögsögu. — Síld Framhald af bls. 36 bjarnarson, sem fékk 50 lestir. Þá fékk Vörður 5 tonn á sömu slóðum 1 fyrrinótt, en skipið varð fyrir því óláni að nótin rifnaði og var því elíki hægt að kasta aftur. Síldin, sem fékkst við Bjarnarey, var faileg Suður- landssfld, 20% feit og rösklega 30 cm löng. Sveinn Sveinbjörnsson fiski- fræðingur, leiðangursstjóri á Árna Friðrikssyni, sagði, að í gær hefðu þeir á Arna leitað austur með landinu í átt frá Eyjum. Um miðjan dag var Árni Friðriksson kominn á móts við Pétursey og hafði fundið talsvert af fallegum torfum á lciðinni. Voru þær v 15—25 faðma þykkar og kol- svartar á pappír leitartækj- anna, þannig að torfurnar hafa verið vel þéttar. Kvað Sveinn þá hafa tekið eitt sýni úr torfu, sem var 13 sjómflur austur af Bjarnarey. Var sú sfld 21—23 sm að stærð og 45% sfldanna voru 22 cm. Ekki hafði gefist tóm til að taka sýni á fleiri stöðum, en reyna átti að kanna útbreiðslu smásíldarinnar. Sveinn Sveinbjörnsson sagði, að þeir hefðu ekkert frekar átt von á svo miklu sfldarmagni á þessum slóðum, en ef hér væri eingöngu um smásfld að ræða, þýddi ekkert fyrir skipin að kasta, þvf bannað væri að hirða sfld undir 27 cm. — Gunnar Framhald af bls. 36 venjast, varðandi Suðurlandssíld. Við mótmæltum þessu algjörlega og sögðum að það væri ekkert að marka eitt og eitt sýnishorn," sagði Gunnar. Þá sagði Gunnar: „Eins og ástandið er núna er mjög óliklegt að samningar náist við Svía.“ Að lokum sagði Gunnar Flóvenz, að íslenzka samninga- nefndin vildi gjarnan, að frétta- menn norskra fjölmiðla á íslandi létu það berast til Noregs, að norskir útflytjendur væru að bjóða sfld, af þessum stærðum, á allt að 50% Iægra verði en þörf væri á, ef samstaða væri milli þeirra landa, sem bjóða síldina. — Hættir Wilson Framhald af bls. 1 ins, að fá stuðning yfirgnæfandi meirihluta þingfulltrúa við hina umdeildu stefnu stjórnarinnar í baráttunni við verðbólguna. I áskorun sinni til þingsins brýndi Foot raust sina og barði f púltið og sagði að andspænis 27% verð- bólgu og 1,250.000 atvinnuleys- ingjum gæti Bretland ekki orðið sósíalískt ríki fyrr en því tækist að komast upp úr feni efnahags- vandans. Þá samþykkti fram- kvæmdanefnd flokksins að hvetja til innflutningshafta á vissum sviðum, þar sem ekki gæti orðið von á hefndaraðgerðum annarra landa. — Verða fleiri Framhald af bls. 1 annað kvöld. £ Ríkisstjórnir, stjórnmála- menn, verkalýðssamtök og al- menningur um vfða veröld hafa lýst andúð á aftökunum. Hið rót- gróna samband Páfagarðs og Spánar, sem er eitt elzta róm- versk-kaþólska rfki heims, virðist vera að rofna, að því er góðar heimildir f Róm herma. Spánar- stjórn kallaði sendiherra sinn f Páfagarði heim eftir gagnrýni páfa á aftökunum, og óvíst er hvort sendiherra Páfagarðs á Spáni muni snúa þangað aftur. Franski sendiherrann hefur fengið fyrirmæli um að snúa ekki aftur. Austurrfkisstjórn hefur f h.vggju að kalla sendiherra sinn heim og sama er að segja um Sviss. Þegar hafa ríkisstjórnir Bretlands, Vestur- og Austur- Þýzkalands, Hollands, Noregs, Danmerkur, Belgfu, Svfþjóðar og Italíu kallað sendiherra sfna heim. Og samband grannrfkjanna Portúgais og Spánar virtist vera f alvarlegri hættu eftir að ráðist hafði verið á sendiráð Spánar og ræðismannsskrifstofu f Lissabon og ræðismannskrifstofuna f Oporto um helgina, þar sem mót- mælendurnir brenndu alla innan- stokksmuni hennar á götum úti. Næstum allt sendiráðsstarfsfólk Spánar f Portúgal flaug heim til Madrid á laugardag. Portúgalska ríkisstjórnin, sem fær mikið af vatni og rafmagni frá Spáni, hef- ur harmað þessa atburði, og lofað að bæta skaðann. En umferð um spænsku landamærin hefur þegar verið takmörkuð, og Spánarbanki hefur fyrirskipað bönkum þar í landi að hætta að skipta portúgalska gjaldmiðlinum. Leiðtogar spænsku stjórnarand- stöðunnar sögðu í dag, að aðeins væri um tvennt að ræða fyrir þjóðina á meðan Franco er enn við völd: áframhaldandi ofbeldi eða valdarán hersins. Einn af for- ingjum sósialista sagði að „eina vonin“ væri afsögn Francos og Juan Carlos prins tæki við. Á því væru hins vegar litlar líkur, og því væri þörf á að sannfæra herinn um að seta núverandi stjórnar skaðaði hagsmuni Spánar. Hið áhrifamikla málgagn kaþólskra, Ya, sagði i óvenju Hreinskilnum og harðorðum leið- ara í dag að krafan væri „djúp- stæð og róttæk ummyndun á nú- verandi stjórnmálakerfi ... á öllum stigum“. Eina morgun- blaðið í Madrid Hoya del Lunes sagði hins vegar að Spánn væri „einskis lands nýlenda“ og gagn- rýndi „brjálæði Evrópu". Einnig sakar blaðið Pál páfa um að taka stjórnmál fram yfir kærleika. Dæmi um önnur viðbrögð: % Bandarfkin: Fyrstu viðbrögð Fords Bandaríkjaforseta við af- tökunum á laugardag komu fram f yfirlýsingu Nessens, blaðafull- trúa hans í dag, þar sem forsetinn segist harma hina almennu of- beldisöldu sem leitt hefði til svo hörmulegrar niðurstöðu. Nessen neitaði þvi að hið almenna orða- lag stæði I sambandi við yfir- standandi viðræður Bandaríkja- manna og Spánverja um framtið bandarískra herstöðva á Spáni. Hann taldi ekki lfklegt að sendi- herra Bandarfkjanna í Madrid yrði kvaddur heim. 0 Sovétríkin: Fyrstu opinberu ummælin í Sovétríkjunum um af- tökurnar birtust í dagblaði stjórn- arinnar Izvestia, og sagði þar að þær hefðu „skekið allan hinn sið- menntaða heim“. „Sovézka þjóðin lýsir samhug sínum með baráttu spænsku þjóðarinnar fyrir lýð- ræði og gegn hinni afturhalds- sömu fasistastjórn. Hún krefst þess að hætt verði að refsa föður- landsvinum og pólitískir fangar verði látnir lausir." 0 Sameinuðu þjóðirnar: Luis Echeverria Alvarez, forseti Mexico skrifaði Kurt Waldheim, framkvæmdastjóra S.Þ., bréf um helgina þar sem aftökunum er mótmælt og krafizt brottreksturs Spánar frá Sameinuðu þjóðunum, ásamt algjörri einangrun lands- ins. Sendiherra Spánar hjá samtökunum mótmælti þessu br^ji í dag. Gaston Thorn, nýkjör- inn forseti Allsherjarþingsins, lýsti harmi sínum yfir aftökunum í dag, og er talið líklegt að hann muni tjá óánægju sfna með því að fara af þingi er spænski utan- rikisráðherrann ávarpar það á morgun. Búist er við að sendi- nefndir allmargra ríkja muni gera slíkt hið sama. 0 Frakkland: Lögregla beitti táragasi í kvöld til að leysa upp mótmælafund, sem í tóku þátt um 50.000 manns. I forystu fyrir fundinum voru Francois Mitterand, leiðtogi sósfalista, Georges Marchais, leiðtogi kommúnista, og ýmsir verkalýðs- leiðtogar. Ýmiss konar skemmdarverk voru unnin í ólátum sem fylgdu í kjölfar fundarins. Þá hættu milljónir franskra verkamanna vinnu stutta stund í dag í til að minnast hinna látnu Spánverja. 0 Bretland: A ársþingi brezka Verkamannaflokksins var krafizt viðskiptalegrar og diplómatískrar einangrunar Spánar. M.a. þeirra sem hvöttu til slíks var James Callaghan utanríkisráðherra. Yfirstjórn brezka alþýðu- sambandsins skoraði á verka- menn að stöðva eða seinka afgreiðslu spænskra vara og neita að afgreiða póst og símtöl til og frá Spáni. 0 Norðurlönd: Haínarverka- menn f Kaupmannahöfn neituðu að afgreiða spænskt flutninga- skip. Olof Palme forsætisráðherra Svíþjóðar, kallaði Spánarstjórn „djöfullega morðingja“. Mótmæli voru við spænsku og bandarisku sendiráðin í Stokkhólmi og bæði fengu sprengjuhótanir. Aðsúgur var gerður að spænska sendiráð- inu f Osló, Ýmsar ferðaskrifstofur á Norðurlöndum hafa einnig i hyggju að taka Spánarferðir sínar til endurskoðunar. — Flokksþing Framhald af bls. 34 En þessar aðgerðir hefur Wilson fengið í gegn, og sam- þykkt - verkalýðsforystunnar um að takmarka kauphækkanir við 6 sterlingspund á viku við næstu samninga er mikill sigur fyrir Wilson og hafa margir lýst undrun sinni yfir þvf hve vel honum hefur tekizt að ná fylgi verkalýðsforustunnar. — Hjörtur Hjartarson Framhald af bls. 3 I öðru lagi má nefna, að vegna óhagstæðrar verðlags- þróunar innanlands, þróun- ar stöðu Verðjöfnunarsjóðs fiskiðnaðarins og versnandi viðskiptakjara á erlendum mörkuðum hlýtur það að verða erfiðleikum bundið að ákveða nýtt fiskverð eftir áramótin, snúist þróunin okkur ekki verulega í hag. I þriðja lagi, og ekki sízt, eru samningar við verka- lýðsfélögin Iausir um áramót og það er með öllu óvíst hve mikið tillit verkalýðshreyf- ingin tekur til efnahags- aðstæðna í kröfugerð sinni.“ I ræðu sinni vék Hjörtur að því, hversu aukin umsvif ríkisins eru orðin í þjóðar- búskapnum. Um þetta sagði Hjörtur aðspurður: „Umsvif ríkisins hafa stöðugt aukizt á undanförn- um árum. Sem dæmi má nefna, að hlutur ríkisút- gjalda af þjóðarframleiðsl- unni hefur aukizt úr 23% 1970 i 36% 1974. Það er og alvarlegur hlutur hverníg fjármál ríkisins eru rekin með greiðsluhalla og þannig látin auka þensluna í þjóð- félaginu jafnframt þvi, sem hið opinbera hefur verið í harðri samkeppni um vinnu- aflið við atvinnuvegina. Um það, hvort ákveða eigi upp- hæð fjárlaga fyrirfram eða ákveða útgjöld ríkisins, sem ákveðið hlutfall þjóðarfram- leiðslu, sagði Hjörtur: „Það er augljóst að stemma verður stigu við skefjalaus- um vexti ríkisins á kostnað atvinnuveganna. Hins vegar væri það fjarstæða að láta ríkisútgjöldin sveiflast með hagsveiflunni. Bezt væri, ef okkur tækist að láta sveiflurnar í ríkisútgjöldun- um ganga öfugt við hag- sveifluna. Þannig væri komið tæki sem mætti nota lfkt og verðjöfnunarsjóði fiskiðnaðarins til þess að draga úr sveiflunum í efna- hagslífinu og auka stöðug- leika þess.“ Hjörtur sagði, að það væri ótækt öllu lengur að rikissjóður gæti að því er virtist endalaust feng- ið fjármagnsfyrirgreiðslu hjá Seðlabankanum. „Taka verður upp annað fyrir- komulag, sem knýr rikis- stjórnina til þess að taka eig- in fjáfmál fastari tökum en um mánaðamótin júli *-ágúst voru t.d. skuldir rikissjóðs og ríkisstofnana nettó við Seðlabankann rétt rúmir 9 milljarðar króna. Sú hugmynd hefur verið rædd innan Verzlunarráðs Islands og fengið góðar und- irtektir, að breyta þyrfti gerð fjárlaga þannig, að fyrst væri ákveðinn greiðsluafgangur eða greiðsluhalli fjárlaga og hve há sú upphæð ætti að vera. Siðan réðist hæð fjárlaga af þeim tekjum, sem tekju- stofnar rikisins skila. Síðan ákvæðu þingmenn skipting- ar þeirrar upphæðar, sem til ráðstofunar væri á einstaka málafIokka,“ sagði Hjörtur að lokum. — Guðmundur H. Garðarsson Framhald af bls. 3 hana vænlegasta til að bæta lífskjör þjóðarinnar og styrkja lýðræðislega stjórnarháttu. Kvaðst hann vona að til þess kæmi ekki að Island hætti að vera aðili að þessum samtökum. — Ræða Einars Framhald af bls. 21 fiskstofninn á íslandsmiðum, þorskurinn, nær nú aðeins að hrygna einu sinni. Og meðalaldur á veiddum fiski er nú miklu lægri en nokkru sinni fyrr. Sóknin í dag er tvisvar sinnum meiri en hún var fyrir tuttugu árum, en aflinn jafnvel minni nú. Segir það sína sögu. I fjórða lagi er svo það, að íslenski fiskiskipaflotinn er nú fullfær um að hagnýta leyfilegan hámarksafla á svæðinu. Sérstök nefnd Alþjóða Haf- rannsóknaráðsins og Norðvestur Atl- antshafs fiskveiðinefndarinnar hefir talið að 50% samdráttur i sóknar- mætti á Norður-Atlantshafssvæðinu myndi ekki minnka heildarafla. Dánartala fiskanna á Islandssvæðinu verður að stórlækka til þess að náð verði æskilegri hagnýtingu. Með hliðsjón af öllum þessum stað- reyndum, ákvað ríkisstjórn Islands að gera nauðsynlegar ráðstafanir í ljósi þeirrar þróunar í þjóðarétti, sem sam- staða hefur náðst um og fram kemur í störfum Hafréttarráðstefnunnar. Við ákváðum að nota ekki að svo stöddu hugtakið efnahagslögsögu vegna þess að sum atriði þess eru ekki enn full unnin. Við ákváðum að setja ekki reglur varð- andi landhelgi, mengun, vlsindalegar ráðstafanir eða afmörkun landgrunnsins af sömu ástæðu. Ekki var ætlunin heldur, að hefta á nokkurn hátt alþjóð- legar siglingar. En að þvi er varðar hið eina , stóra lífshagsmunamál — fisk- veiðar erlendra manna — var ekki hægt að fresta nauðsynlegum aðgerðum lengur. Af þessum sökum var ný reglugerð, gefin út hinn 15. júlí 1975 um útfærslu íslensku fiskveiðimarkanna I 200 sjó- mílur. Þar sem fjarlægðin milli Islands og annarra rikja er minni en 400 sjómíl- ur, er miðað við miðlínu eða jafnfjar- lægð. Hinar nýju reglur munu ganga í gildi hinn 15. október 1975. Jafnframt er unnið að áætlun um vísindalega stjórn- un og mun hún fela i sér miklar tak- markanir fyrir Islenska fiskveiðiflotann jafnvel eftir að veiðum erlendra fiski- manna er lokið. Tilgangur áætlunar- innar er að tryggja hámarksafla til lang- frama undir vísindalegri stjórn. Er þar um að ræða algera endurskoðun á fyrri stjórnunaráætlunum, sem hingað til hafa alltaf orðið fyrir barðinu á þvi, að erlendar veiðar trufluðu stjórnunina. Stjórnunaráætlun þessi verður byggð á visindalegum verndarsjónarmiðum. Þær ráðstafanir, sem rikisstjórn Is- lands hefur gert eru í samræmi við þá samstöðu, sem fram hefur komið á Haf- réttarráðstefnunni þess efnis að strand- rikið geti ákveðið leyfilegan hámarks- afla innan 200 mílna fjarlægðar og einnig ákveðið möguleika sina til að hag- nýta hann. Þar sem strandríkið hefur ekki möguleika á að hagnýta leyfilegan hámarksafla að öllu leyti á það að gefa öðrum rikjum aðgang að því sem um- fram er. Þessar meginreglur, sem fram koma I 50. og 51. grein annars kafla heildarfrumvarpsins frá ráðstefnunni, njóta örugglega stuðnings yfirgnæfandi meirihluta þeirra ríkja, sem þátt taka í störfum Hafréttarráðstefnunnar. Það er auðvitað einnig ljóst, að sum ríki berjast enn gegn þeirri lausn sem nú var lýst, þar sem þeim mundi henta að halda áfram fyrri stefnu sinni og senda stóra togaraflota til þess að hag- nýta sér fiskimið annarra þjóða án þeirra samþykkis. En nú er tími til þess kominn, að horfast í augu við þá stað- reynd að yfirgnæfandi meirihluti rikjanna í hinu alþjóðlega samfélagi er andvígur slíku hátterni og að það kerfi, sem það er byggt á er úrelt og algjörlega óaðgengilegt fyrir þær þjóðir, sem ríki þau er fiskveiðar stunda á fjarlægum miðum vilja svifta auðlindum með þess- um hætti. I stað þess að berjast gegn hugtakinu um efnahagslögsögu, ættu þessi riki að láta sér nægja, ef þau þurfa ekki að greiða skaðabætur fyrir þau geysilegu auðævi, sem þau hafa tekið úr þessum auðlindum hingað til. Að þvf er mitt land varðar, hafa þessar úreltu aðfarir oft áður stofnað efnahagslegri afkomu okkar í hættu og við getum ekki þolað slikar aðgerðir lengur. andvíg þvi, að veita sanngjarna aðlögun til bráðabirgða til þess að koma í veg fyrir efnahagslega örðugleika erlendra fiskimanna, en þá verður að hafa í huga tvær mikilsverðar forsendur. Annars vegar er það, að stefna okkar í þessum málum hefur verið alkunna i nærri því 30 ár og getur ekki komið neinum að óvörum — allra sist þeim þjóðum, sem erlendir fiskimenn á okkar miðum eru frá. Og hins vegar, munum við ekki láta undan efnahagslegum þrýstingi svo sem þeim, sem okkur hefur verið sýndur af Sambandslýðveldinu Þýskalandi og hef- ur lýst sér í löndunarbanni fyrir íslenska togara i þýskum höfnum og í þvf að koma i veg fyrir að tollalækkanir i Efna- hagsbandalaginu kæmu til fram- kvæmda. Við væntum þess, að hinar nýju reglur okkar verði virtar af öllum þeim sem hlut eiga að máli og að okkur muni auðnast að nota auðlindir okkar í sam- ræmi við þær meginreglur, sem hafa stuðning yfirgnæfandi meirihluta á Haf- réttarráðstefnunni. Þetta er það sem við ætlum að gera og þetta er það sem við munum gera. Því hefur verið haldið fram af sumum aðilum að rikisstjórn íslands hefði átt að bíða eftir þvi að störfum Hafréttarráð- stefnunnar yrði lokié og að störf ráð- stefnunnar verði torveldari viðfangs vegna þess að ráðstöfunum þessum var ekki frestað. Ríkisstjórn tslands er ekki sammála þessu sjónarmiði. Þvert á móti hefur ríkisstjórn Islands með þvi að halda í heiðri þær meginreglur, sem njóta yfirgnæfandi stuðnings á ráðstefn- unni lagt áherslu á virðingu sína fyrir ráðstefnunni og við erum sannfærðir um, að ráðstafanir okkar og sambæri- legar ráðstafanir af hálfu annarra ríkja munu ekki hefta störf ráðstefnunnar heldur stuðla að árangri i störfum hennar í náinni framtið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.