Morgunblaðið - 30.09.1975, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1975
27
Minning:
Einar Guðnason
Hafnarhrði
Fæddur 18/5 1908,
Dáinn 19/9 1975.
„Af eilífðar Ijósi bjarma ber,
sem brautina þungu greiðir.
Vort líf, sem svo stutt og stopult er,
það stefnir á æðri leiðir.
Og upphiminn fegri' en auga sér
mót öllum oss faðminn breiðir.“
Einar Guðnason bifreiðastjóri
hjá Rafveitu Hafnarfjarðar er lát-
inn. Hann var fæddur i Hafnar-
firði 18. maí 1908, sonur hjónanna
Kristrúnar Einarsdóttur og
Guðna Benedikstsonar sjómanns,
sem þar áttu heima. Foreldrar
Kristrúnar voru Jóhanna örnólfs-
dóttir, ættuð af Vatnsleysuströnd
og Einar Einarsson frá Þverá á
Síðu, en foreldrar Guðna þau
Benedikt Jóhannesson frá Breiða-
bólsstað í Vesturhópi og Kristín
Guðnadóttir. önnur börn þeirra
Kristrúnar og Guðna voru Jó-
hanna Eina, sem látin er fyrir
nokkrum árum, hún var gift
Matthíasi Kjartanssyni í Kópa-
vogi, Benedikt, sem kvæntur er
Þuríði Guðjónsdóttur búsettur í
Hafnarfirði, og Laufey, gift Þor-
steini Eyjólfssyni í Hafnarfirði.
Þeir Einar og Benedikt voru tví-
burar. Guðni, faðir Einars,
drukknaði árið 1912, er Geir fórst
með allri áhöfn. Stóð þá Kristrún
ein uppi með börnin sín 4 korn-
ung, hið yngsta á öðru ári. Það
væri þess vert að rekja hvernig
hún lét hvergi bugast i þessu mót-
Iæti, en kom börnum sínum til
manns með mikilli prýði á þeim
tímum, sem félagsleg aðstoð á
okkar mælikvarða var ekki fyrir
hendi. Sú saga veróur þó eigi sögð
hér. Kristrúnu bauðst að senda
annan son sinn til fósturs aö Kald-
árholti í Holtum og varð það að
ráði, að Einar fór þangað og ólst
þar upp á mannmörgu heimili við
venjuleg sveitastörf. 18 ára flyzt
hann svo lil Hafnarfjarðar og
næstu árin stundaði hann ýmsa
vinnu til sjós og lands, togarasjó-
mennsku, kaupavinnu á sumrum
og bifreiðaakstur. En síðustu 30
ár ævi sinnar var hann bifreiða-
stjóri hjá Rafveitu Hafnarfjarðar,
og hygg ég að í hugum margra
Hafnfirðinga séu þeir Einar og
rafveitubíllinn ein af sterku og
sjálfsögðu myndunum úr bæjar-
lifinu. Einar var samviskusamur
starfsmaður, gekk glaður til verks
og bar því á siðustu mánuðum, er
heilsu hrakaði ugg í brjósti um,
að hann yrði að ljúka starfsævi
sinni /fyrr en skyldi og una við
minni umsvif i framtíðinni. Hon-
um gafst það nú að falla frá mitt i
dagsins önn og hygg ég að þau
málalok hafa verið honum mjög
að skapi.
Einar naut ekki skólamenntun-
ar umfram venjulega barna-
fræðslu þeirra tíma. Mun þó hug-
ur hans hafa staðið til frekara
náms þótt aðstæður leyfðu eigi,
enda var hann bráðgreindur.
Hann bætti sér þetta upp eftir
föngum með sjálfsmenntun, las
feiknin öll og átti sjálfur góðar
bækur. Islendingasögur gat hann
vitnað í hvar sem var og haft yfir
heila kafla úr þeim af munni
fram. Einnig hafði hann mikið
yndi af ljóðum lærði þau og var
sjálfur ágætlega hagmæltur, þótt
hann væri mjög dult með það.
Einar var ekki maður sundur-
gerðar né prjáls og bar ekki til-
finningar sínar á torg. 011 sýndar-
mennska var honum andstyggð.
En hann var hinn ágætasti félagi
og gulltryggur vinum sínum.
Hann tók virkan þátt í starfi
Bridgefélags Hafnarfjarðar og
Stangaveiðifélags Hafnarfjarðar
og veiðiskapur og ferðalög voru
hans helzta yndi, enda var hann
mikill náttúruunnandi. Fyrir
nokkrum árum vorum við ferða-
félagar norður Sprengisand og
suður Kjöl. Þessi ferð er ekki sist
ógleymanleg vegna samfylgdar-
innar við Einar, sem þekkti ör-
nefni, staði og sögu hvers áfanga
og miðlaði okkur honurn. Ég
minnist hans f tjaldstað við Seyð-
isá, þar sem árnar Beljandi og
Þegjandi falla hvor sínu megin og
ég get enn heyrt hann raula þar
fyrir munni sér vísuna:
Langt til veggja heiðið hátt
hugann eggja bröttu sporin.
Hefði ég tveggja manna mátt
mundi ég leggjast út á vorin.
Einar giftist ekki og eignaðist
ekki börn. En seint verður metin
til fulls sú vinátta er hann sýndi
sonum Laufeyjar systur sinnar,
en á heimili hennar átti hann
löngum athvarf. Síðar nutu son-
arbörn hennar þessarar sömu um-
hyggju. Það er margur vandinn
stór í barnshuganum, þótt hinum
fullorðnu þyki um hégóma að
ræða. En alltaf var hægt að leita
til Einars frænda, sem leysti eftir
getu úr hverjum vanda, hvort sem
vantaði spýtu i dúfnakofa eða hjól
undir bíl. Marga áramótabrenn-
una hlóð hann með börnunum
mínum, er þau voru í bernskn
sonum mínum kenndi hann að
kasta fyrir silung og marga ferð-
ina fóru þau i bílnum hans Einars
frænda eða til að heimsækja
hann. Aldrei minnist ég þess að
óþólinmæði gætti hjá honum yfir
öllu þeirra kvabbi og öll þeirra
vandamál voru einnig hans. Fyrir
alla vináttu hans við mig og mína
vil ég að leiðarlokum þakka.
„Og allt það bezta er um þig
verður sagt í einni setning: Þú
varst góður maður.“
Ragnheiður Sveinbjörnsdóttir.
Dr. Hallgrfmur Helgason
Örn og örlygur hafa gef-
ið út Kennslubók í Tón-
fræði eftir dr. Hallgrím
Helgason, tónskáld. I for-
— Áður var það
Framhald af bls. 12
Persónulega tel ég bæjar-
stjórann ekki geta gefið út slík-
ar yfirlýsingar. Það er ekki
hans að ákveða neitt í þeim
efnum. Hann er ekki kjörinn
fulltrúi bæjarbúa. Það er bæj-
arstjórnar og bæjarbúa að taka
slíkar ákvarðanir.
Hins vegar má það rétt
vera að ekki sé „hagkvæmt" að
reisa fullkomna slysavarðstofu
í Hafnarfirði á borð við slysa-
varðstofu Borgarspítalans. Þess
vegna vil ég skjóta fram þeirri
hugmynd, hvort ekki sé unnt að
fara eins konar meðalveg,
a.m.k. fyrst um sinn, koma á fót
sjúkraskýli þar sem unnt er að
fá aðstoð í minniháttar tilfell-
um og ekki er þörf sjúkrahús-
vistar. Sllku sjúkraskýli má
hugsanlega koma fyrir I St. Jós-
efsspítala, sem nú hefur veríð
mála segir höfundur m.a.:
„Þessi stutta handbók er
hugsuð sem fyrsti leiðar-
vísir til þess að. nema mál
tóna og gefa um leið örlít-
inn forsmekk að æskilegu
framhaldi.“
Tónfræði dr. Hallgríms byrjar á
frumatriðum um nótnakerfi,
segir frá mótum, lyklum, tónhæð,
tónlengd, tónstyrk, takti, hljóð-
falli og hrynjandi.
Mikil áherzla er lögð á skipun
tónbila til að geta lesið nótur og
sungið þær beint frá blaði.
Nokkrir kaflar bókarinnar eru
hér á landi alger nýjung. Má þar
nefna atriði eins og „eiginleikar
tóntegunda", og „sérlegt gildi
tónbila", sem fjalla um sérblæ og
innihald tóntegunda og tónbila.
stækkaður verulega, eða I Sól-
vangi, sem rekinn er af bæjar-
félaginu. Slíkt sjúkraskýli kall-
ar að sjálfsögðu á starfslið, en
ef til vill væri unnt að veita
vaktlæknum aðstöðu þar I stað
þess að þeir verða nú af hafast
við i slökkvistöðinni.
Þótt slíkt sjúkraskýli og
rekstur þess kosti mikið fé, þá
mun koma þar á móti mikill
sparnaður við akstur til og frá
Reykjavík (leigubill fram og
aftur kostar um 2 þús. kr.), auk
fyrirhafnarinnar, ekki aðeins í
eitt skipti, heldur einnig vegna
framhaldsmeðferðar. Þótt Ieið-
in sé aðeins 10 km þá vita allir,
hversu þung umferðin er á
þessari leið og á vetrum er oft
illfært ef ekki ófært þennan 10
km spöl. Það er þvi mikið hags-
munamál Hafnfirðinga, ef ekki
öryggismál, að unnt sé að fá
slysaþjónustu í bænum sjálf-
um.
Nýstárlegur er ennfremur kafli
um lagmyndun, þar sem gerð er
grein fyrir byggingu laga, og ís-
lenzk lög tekin til skýringar.
Loks er sérstakur kafli um tón-
listarlif almennt, en þar er skýrt
frá tónlist sem uppeldislegri
nauðsyn, margvíslegri músikiðk-
un á breiðum grundvelli, þar sem
allir geta orðið virkir þátttak-
endur.
Bókin er sett og prentuð hjá
Prentsmiðjunni Odda hf. Hún er
filmuð hjá Korpus hf. og bundin
hjá Sveinabókbandinu hf. Kápu-
teikningu gerði Hilmar Helgason.
Örn og örlygur hafa einnig tek-
ið að sér dreifingu Sögu tónlistar-
innar eftir Sigrid Rasmussen í
þýðingu dr. Hallgríms Helga-
sonar. Bókin kom út árið 1946 og
hlaut hún þá þegar hina beztu
dóma. Þannig skrifaði Björgvin
Guðmundsson tónskáld mjög lof-
samlega um bókina og sagði m.a.:
„Þá er hin ágæta þýðing Hall-
gríms á Tónlistarsögu Sigrid Ras-
mussen, en það er sú prýðilegasta
bók sinnar tegundar, sem ég hef
lesið.“
Báðar þessar bækur, Kennslu-
bók I Tónfræði og Saga tónlistar-
innar, eiga mikið erindi til þeirra
sem leggja stund á tónmenntir.
, Ef bæjarstjórn vex kostnaður
við slikt sjúkraskýli I augum,
má kanna hvort Garðhrepping-
ar og Alftnesingar eru reiðu-
búnir að taka þátt í rekstrinum.
Bæjarmálaflokkunum í Hafn-
arfirði til brýningar í málinu
skal þeim bent á, að stærsti og
valdamesti flokkurinn missti
áhrif sín í bæjarstjórn, þegar
svo var komið að ekki var unnt
að fá vatn í heilu bæjarhverf-
unum, hvorki til matar né
þvotta, og upp úr því öngþveiti
spratt bæjarmálahreyfing, sem
er áhrifamikil enn í dag.
Þurfi Hafnfirðingar að leita
til annars bæjarfélags með sár
sín áfram kann svo að fara að
þeir neyðist til að láta hendur
standa fram úr ermum enn á ný
til að tryggja lágmarksþjónustu
af hálfu þess bæjarfélags, sem
þeir bera kostnaðinn af. Áður
var það vatnið — nú blæðandi
sár.
blákaldur
sannleikur um
ELCOLD frystikistur
'
Það er ótrúlegt en satt. Við höfum ekki getað
útvegað Elcold frystikistur fyrr en nú, — þrátt fyrir
ítrekaðar tilraunir. Eftirspurnin hefur verið svo
gífurleg erlendis, enda eru gæði Elcold
og verð mjög hagstæð.
Til að byrja með bjóðum við þrjár stærðir:
220, 275 og 400 I. með Ijósi, lás og hraðfrystihólfi.
ÁLKLÆDDAR AÐ INNAN
DANFOSS FRYSTIKERFI
Komið og skoðið Elcold frystikisturnar.
Sannleikurinn er sá, að þær standast allan
samanburð
® FlcaldL
Gunnar Ásgeirsson hf
Suöurlandsbraut 16 Reykjavík
sími 35 2 00
Glerárgötu 20 Akureyri
Kennslubók í tón-
fræði komin út
eftir dr. Hallgrím Helgason