Morgunblaðið - 30.09.1975, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1975
7
r
Hús verzlunar
Á fimmtudag f sfðustu
viku birtist rammaklausa f
Tfmanum um lóðaút-
hlutanir og fjárframlög til
Sjálfstæðishússins þar
sem m.a. mátti lesa eftir-
farandi: „Þess er skammt
að minnast, að Hús verzl-
unarinnar, sem áformað
er að reisa í nýja miðbæn-
um þarf ekki að greiða
nema 23 milljónir i gatna-
gerðargjöld þótt gjaldskrá
heimilaði 40 milljónir.
Hafa einhverjir þeirra sem
hlut eiga að þvi húsi
„gefið" fé i húsbygginga-
sjóðinn?"
Þarna er átt við hús-
byggingarsjóð Sjálf-
stæðisflokksins. Svo vill
til, að daginn áður en
klausan birtist, var
borgarstjórinn i Reykjavik
spurður um þetta mál á
almennum blaðamanna-
fundi og þar var m.a.
staddur blaðamaður frá
Timanum. í frásögn hans
af blaðamannafundinum
var hins vegar ekki að
finna eitt einasta orð um
þau svör, sem borgarstjóri
gaf við fyrirspurninni um
hús verzlunarinnar. Þau
svör voru i stuttu máli á
þann veg, að hús verzl-
unarinnar væri ekki byggt
af einstökum fyrirtækjum,
heldur hagsmuna
samtökum verzlunar-
innar, bæði launþega-
samtökum og vinnuveit-
endum. Aðilar að bygg-
ingu hússins eru Verzl-
unarráðið, Kaupmanna-
samtökin, Félag islenzkra
stórkaupmanna, Bil-
greinasambandið, Verzl-
unarbankinn, Lífeyrissjóð-
ur verslunarmanna og
Verzlunarmannafélag
Reykjavíkur. Hins vegar
sagði borgarstjóri, að það
hefði ekki ráðið ákvörðun
um gatnagerðargjöld, að
hús þetta væri byggt af
félagssamtökum verzl-
unarinnar, heldur væri
ákvörðun um gatna-
gerðargjöld vegna þessa
tiltekna húss i hinum nýja
miðbæ stefnumörkun af
hálfu borgarinnar varð-
andi gatnagerðargjöld af
lóðum á nýja miðbæjar-
svæðinu. Þannig myndu
fieiri fyrirtæki njóta sömu
kjara um gatnagerðar-
gjöld, eins og t.d. KRON.
Ástæðan fyrir þessari
ákvörðun gatnagerðar-
gjalda væri sú, að ýmsar
sérstakar kvaðir væru á
byggjendum i nýja mið-
bænum varðandi bila-
stæði, sameiginlegar
umferðaræðar o.fl. og
með þessu væri stefnt að
þvi að hvetja fyrirtæki til
að byggja i nýja miðbæn-
um frekar en að leita eftir
lóðum annars staðar F
borginni þar sem e.t.v.
væri ódýrara að byggja.
Þessar upplýsingar fékk
blaðamaður Timans á
blaðamannaf undi borgar
stjórans i Reykjavik á
miðvikudag i siðustu viku.
Samt birti þetta sama
blað daginn eftir þá
klausu, sem vitnað var til
hér að framan, en vék
ekki einu orði að skýringu
borgarstjóra á blaða-
mannafundinum. Á hvaða
stig er blaðamennsku á
Islandi að komast?
Olíukaup
frá Noregi
í sunnudagsþönkum
sínum í Timanum í fyrra-
dag víkur Þórarinn
Þórarinnsson að þeim
sjónarmiðum varðandi
olíukaup frá Noregi, sem
sett voru fram i forystu-
--------------------------(
grein i Morgunblaðinu i
síðustu viku og segir:
„Þvi hefur verið fleygt til
stuðnings oliukaupum frá
Noregi að við greiðum
Rússum nú meira fyrir oli-
una en þeir fyrir vörur
sem þeir kaupa af okkur.
Þvi sé nú halli á viðskipt-
um við þá. Þess vegna
megi draga úroliukaupum
frá Sovétrikjunum sem
þessum halla nemur og
færa þau til Noregs En
hvernig er háttað verzlun
okkar við Noreg? Er ekki
þegar halli á henni og er
nokkuð betra að skulda
Norðmönnum en Rúss-
um? Sá er hins vegar
munurinn að vonir geta
staðið til að hægt sé að
auka fisksöluna til Sovét-
rikjanna en litil eða engin
von um að Norðmenn
auki fiskkaup héðan."
Hér virðist Þórarinn
Þórarihsson missa sjónir
af kjarna þessa máls. Við-
skiptahallann við Sovét-
rikin þurfum við alla vega
að greiða í hörðum gjald-
eyri. Ef Sovétmönnum er
það kappsmál að selja
okkur alla olíu ættu
nokkur oliukaup frá
Noregi að ýta undir aukin
fiskkaup af þeirra hálfu til
að ná viðskiptunum
öllum. En augljós hætta er
i þvi fólgin að kaupa
mikilvæga vörutegund frá
aðeins einni þjóð. Við eig-
um þess vegna að tryggja
eigin hagsmuni með þvi
að beina hluta þessara
viðskipta til Noregs.
(?
spurt&
(---------------------A
Hringið í síma 10100
milli kl. 16 og 17 frá
mánudegi til föstudags
og spyrjið um
Lesendaþjónustu
Morgunblaðsins.
v_____________________y
HVAÐ KOSTAÐI
REKSTUR
SINFÓNÍUHLJÓM-
SVEITARINNAR
ARIÐ 1974?
Fijinur Sigurjónsson, Hátúni
10, Reykjavík spyr:
„Hvaö mikið kostaði rekstur
Sinfóníuhljómsveitar Islands
árið 1974 og hvað kom mikið
inn fyrir greidda aðgöngumiða.
Hvað fékk Sinfóniuhljómsveit-
in í greiðslur fyrir hljómlistar-
flutning í Ríkisútvarpinu þetta
sama ár?“
Gunnar Guðmundsson,
framkvæmdastjóri Sinfóníu-
hljómsveitarinnar, svarar:
„Reksturkostnaður Sinfónfu-
hljómsveitarinnar árið 1974
nam krónum 84,3 milljónum.
Tekjur af greiddum aðgöngu-
miðum urðu 4,1 milljón krónur.
Hljómsveitin fær ekki sérstak-
ar greiðslur frá Ríkisútvarpinu
fyrir hljómlistarflutning, þvi
Ríkisútvarpið er aðili að Sin-
fóníuhljómsveitinni og tekur
þátt i rekstrarkostnaði hennar
að hluta og greiddi árið 1974
21,9 milljónir króna en auk Rik-
isútvarpsins taka ríkissjóður og
Reykjavíkurborg þátt í rekst-
urskostnaði sveitarinnar. Ríkið
greiddi árið 1974 39,6 milljónir
en Reykjavikurborg 16,7 millj-
ónir. Þá fékk Sinfóníuhljóm-
sveitin 2 milljónir í greiðslur
fyrir útselda vinnu, s.s fyrir
tónlistarflutning í Þjóðleikhús-
inu og víðar.“
A EKKI AÐ
ENDURSKOÐA
UPPHÆÐ
BARNALÍFEYRIS
FYRR EN ARIÐ 1976?
Hulda Björnsdóttir, trabakka
6, Reykjavík spyr:
„Ég leyfi mér að varpa fram
eftirfarandi spurningi i fram-
haldi af spurningu Jóhönnu
Kristjánsdóttur í þættinum
fyrir skömmu, sem beint var til
heilbrigðis- og tryggingaráðu-
neytisins. Er það rétt skilið að
ekki eigi að fara fram endur-
skoðun á greiðsluupphæðum
barnalífeyris fyrr en árið
1976?“
Páll Sigurðsson, ráðuneytis-
stjóri f heilbrigðis- og trygg-
ingaráðuneytinu, svarar:
„Upphæð barnalífeyris eins
og annarra bóta almannatrygg-
inga er ákveðin með lögum og
breytist ekki nema með laga-
breytingum. Hins vegar er ráð-
herra skylt að breyta upphæð-
um bóta ef breytingar verða á
vikukaupi i almennri verka-
mannavinnu og skal þá breyt-
ing á bótum fara fram innan
sex mánaða.
1 bráðabirgðaákvæðum laga
nr. 13/1975 um launajöfnunar-
bætur, bætur almannatrygg-
inga og verðlagsmál er gert ráð
fyrir því að fyrir árslok sé lokið
könnun á framfærslukostnaði
barna einstæðra foreldra.
Bráðabirgðaákvæðin gera ráð
fyrir því að það sé höfð hliðsjón
af þessari könnun við ákvörðun
barnalffeyris.
Þar sem ekki er gert ráð fyrir
að könnun verði lokið fyrr en
um áramót er ekki sennilegt að
neinar lagabreytingar sem
byggjast á könnuninni komi
fram á haustþingi. Hins vegar
má vænta þess að gefi könnun-
in tilefni til lagabreytinga verði
þær bornar fram strax í byrjun
næsta árs.
Verði hi:is vegar breytingar á
vikukaupi í almennri verka-
mannavinnu á næstu mánuðum
má gera ráð fyrir þvi að bætur
almannatrygginga hækki að
tm ww ii inM*ir>f >nT wamiieii i tmmtt twktw*
sama skapi þvi ráðherra hefur
undanfarandi ákveðið þær
hækkanir bóta einum mánuði
eftir að launahækkanir hafa
orðið."
AF HVERJU ER EKKI
STARFANDI HÉR
UMFERÐAR-
DÓMSTÓLL?
Lára Eðvarðsdóttir,
Hlfðarvegi 38, Kópavogi, spyr:
„Hvernig stendur á þvi, að
hér á landi er ekki starfandi
sérstakur umferðardómstóll
heldur er það i valdi trygginga-
félaganna að ákveða hvort tjón
eru bótaskyld eða ekki?“
Ólafur Walter Stefánsson,
skrifstofustjóri f dómsmála-
ráðuneytinu, svarar:
Það, hvort tjón af völdum
umferðarslyss sé bótaskylt, er
að formi til mál milli tjónvalds
og tjónþola. Vátryggingafélög
taka síðan að sér uppgjör tjóna
í umboði aðila. Agreiningur um
bótaskyldu er því í raun eigi
einungis ágreiningur tjónþola
og válreyggingafélags tjón-
valds. Vátryggingafélag tjón-
þola og tjónvaldur sjálfur koma
þar við sögu. Ef þessir aðilar
eru eigi sammála um það eins
og hvern annan ágreining
manna á milli. Vátrygginga-
félög eiga þar eigi síðasta orðið.
Dómstólum er ætlað að leysa
úr ágreiningi manna. Alkunna
er meðferð mála fyrir dómstól-
um er oft timaferk, m.a. vegna
gagnaöflunar. Áður er leitað er
til dómstóla er hins vegar kost-
ur annarra úrræða. Ein leið er
gerðardómur. Slík leið er oft
notuð erlendis í málumervarða
sakarskiptingu. Hefur verið á
það bent, að æskilegt væri að sú
leið væri hagnýtt meir en gert
hefur verið, enda má með þeim
hætti fljótlega fá niðurstöðu
annaðhvort bindandi fyrir aðila
eða til leiðbeiningar. Koma
mætti á fastri skipan slíks gerð-
ardóms, t.d. með samkomulagi
vátryggingafélaga og samtaka
bifreiðaeigenda. Hins vegar
hefur eigi þótt grundvöllur til
stofnunar sérstaks umferðar-
dómstóls, er starfi við hlið al-
mennra dómstóla.“
DALE
CARNEGIE
NflMSKEIÐIÐ
í ræðumennsku og
mannlegum samskipt-
um er að hefjast. —
Námskeiðið mun hjálpa þér að.
-Á Öðlast hugrekki og sjálfstraust.
h Bæta minni þitt á nöfn, andlit og stað-
reyndir.
Láta í Ijósi skoðanir þínar af meiri sannfær-
ingarkrafti í samræðum og á fundum.
Stækka vinahóp þinn, ávinna þérvirðingu
og viðurkenningu.
Talið er að 85% af velgengni þinni sé
komin undir því, hvernig þér tekst að
umgangast aðra.
Starfa af meiri lífskrafti — heima og á
vinnustað.
Halda áhyggjum í skefjum og draga úi
kvíða.
Verða hæfari að taka við meiri ábyrgð án
óþarfa spennu og kvíða.
Okkar ráðlegging er því: Taktu þátt í Dale
Carnegie námskeiðinu.
FJÁRFESTING í MENNTUN GEFUR ÞÉR
ARÐ ÆVILANGT.
Innritun og upplýsingar í síma
8241 1
Stjórnunarskólinn
Konráð Adolphsson.
I NÝJU HÚSNÆDI
AÐ
LAUGAVEGI 66
I sama huslvlð
hllðlna a verzlun
okkar
Lótið ekki |
happ
úr hendi
sleppa
Otrúlegt
vöruúrval
á frábærlega góðu
verði!!!!
Q Terelyne & ullarbuxur í miklu úrvali
| j Föt með vesti Pils og kjólar
Q Bolir Q] Stakir kvenjakkar
[]] UFO flauelisbuxur.
Nú er hægt að
gera reyfarakaup
Laugavegi 66, sími 28155