Morgunblaðið - 30.09.1975, Síða 18

Morgunblaðið - 30.09.1975, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1975 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1975 19 Bayern, Joventus, Derby eða Rangers AÐ SJALFSÖGÐU rlkti mikil gleði í bún- ingsherbergjum Skagamanna að loknum leiknum við Kýpurbúana á sunnudaginn. Strax var farið að spá I það hvaða lið væri nú skemmtilegast að fá I annarri umferð keppninnar. Jón Gunnlaugsson sagði, að Englandsmeistararnir Derby eða Skot- landsmeistarar Glasgow Rangers yrðu vonandi mótherjar Skagamanna i annarri umferð. — Við hljótum að hafa heppnina með okkur einu sinni, sagði Jón, við höf- um fengið lið frá Kýpur og Möltu sem mótherja og ég trúi þvi ekki að við verðum enn einu sinni svo óheppnir. Það væri svo sem eftir öðru að við lentum á einhverju liði sem hefði ekkert nema kostnað I för með sér, t.d. liði frá A- Evrópu, sem auk þess að trekkja ekkert hér, er vonlaust að semja við, sagði Jón. George Kirby, þjálfari Skagamanna, sagði, að þegar dregið væri um það hvaða lið leika saman, þá hugsaði þjálfarinn um það að fá lið, sem möguleiki væri á að sigra. en leikmennirnir um að fá þekkt lið, sem hefðu frægar stjörnur innan sinna raða og forystumennirnir hugsuðu um það að fá lið, sem fengi fólk til að koma á völlinn og gæfi þar af leiðandi af sér peninga í aðra hönd. — Ætli það væri ekki bezt fyrir báða aðila að Akranes fengi Bayern Miinchen eða Derby I annarri umferðinni. Þá yrðu sennilega allir ánægðir, bæði Akurnesingar og hitt liðið, sem yrði þá að teljast öruggt um að komast I þriðju umferðina, sagði Kirby. Gunnar Sigurðsson, formaður Knatt- spyrnuráðs Akraness, leyfði sér þann munað að setjast niður og slappa af að leiknum loknum, en undanfarna daga hefur verið í mörgu að snúast hjá forystu- mönnum knattspyrnumála á Akranesi. — Það væri gaman að geta boðið fólki upp á frægt lið, eitthvert topplið, sagði Gunnar. — Juventus eða Derby eru örugglega lið, sem fólk kæmi til að sjá, jafnvel þó svo að leikið yrði á gamla Melavellinum i Iok október. Aðstaðan þar er víst ekki lélegri en á vellinum sem við Iékum á á Kýpur á dögunum. Ekki lengur í skngga gullliðsins GEORGE Kirby, þjálfarinn, sem gert hef- ur Skagamenn tvfvegis að íslandsmeistur- um, komið þeim tvisvar f úrslit bikar- keppninnar og nú f aðra umferð Evrópu- bikarkeppninnar á sunnudaginn, var tolleraður af Ieikmönnum lA-liðsins að leiknum loknum. Hann hélt utan f gær- morgun til Englands, en kemur væntan- lega aftur hingað til Iands nokkru áður en Skagamenn leika f annarri umferðinni. Hvort Kirby verður hér á landi næsta sumar er enn ekki vitað. Lftið hefur verið rætt um þau mál og mörgum spurningum er ósvarað f þeim efnum. — Ég er að sjálfsögðu ánægður með sigurinn f þessum leik, þvf ég held að allir hafi séð að Kýpurbúarnir kunna talsvert fyrir sér f knattspyrnu, sagði Kirby eftir leikinn. — Ég held ekki að veðrið hafi haft slæm áhrif á Kýpurbúana, en hins vegar náðu þeir ekki sínu venjulega spili á þungum vellinum. Akranesliðið hefur lifað f skugga „Gullaldarliðsins" hefur mér virzt. Nú tel ég þó að þeir hafi jafnað metin og hafi sýnt það að það lið sem f A á f dag þarf ekki á nokkurn hátt að hafa minnimáttarkennd gagnvart gömlu mönn- unum. Vandaði mig of mikio MATTHÍAS Hallgrfmsson skoraði tvö gullfalleg mörk f leiknum við Omonia og hefði með smáheppni getað bætt þriðja markinu við. Þá komst hann einn inn fyrir vörn Kýpurliðsins, en skot hans var frekar laust og markvörðurinn varði lag- lega. — Ég ætlaði mér að leggja knöttinn örugglega f hornið, en hef sennilega vand- að mig of mikið og skotið var ekki sérlega fast, sagði Matthfas. — Það hefðu þó ekki ailir náð að verja þetta. — Jú, það er rétt, ég er á leiðinni til Noregs, svaraði Matthfas aðspurður. Ég ætla fyrst og fremst að mennta mig meira í mfnu fagi, rafvirkjun, en einnig er mein- ingin að leika knattspyrnu með félaginu Brann frá Bergen. Hvenær ég fer er þó ekki enn ákveðið, ég fer sennilega ekkert út fyrr en þátttöku okkar f Evrópukeppn- inni er lokið, hvenær sem það verður. Um leikinn við Kýpurbúana hafði Matthfas það að segja að það hefði verið greinilegt að Kýpurbúarnir hefðu ekki kunnað við sig á grasvellinum. Þeir væru vanir hörðum malarvöllum, á þvf hefðu þeir unnið leikinn á Kýpur, en aftur á móti tapað f Laugardalnum. — Þeim tókst aldreí að ná sfnu malarspili f seinni leiknum, en er leið á leikinn tókst okkur hins vegar að ná laglegum sóknarlotum. Bít á jaxlinn og held áíram ÞRÖSTUR Stefánsson hefur ekki mikið fengið að reyna sig í leikjum lA-liðsins seinni part sumars. Þessi 31 árs sterki leikmaður hefur þó hvergi slakað á við æfingar og ætlar sé heldur ekki að gera það, þó hann hafi þurft að verma vara- mannabekkina undanfarið. — Þó ekki væri vegna annars en fétagsskaparins og til að halda lfnunum heldur maður áfram f fótboltanum, sagði Þröstur að leiknum loknum. — Að sjálfsögðu er leiðinlegt að sitja á bekknum leik eftir leik, en góður árangur bætir þó úr og við þurfum ekki að kvarta Skagamennirnir. Það þýðir ekkert annað en að bfta á jaxlinn og halda þessu áfram. Um leikinn við Omonia sagði Þröstur að það hefðu verið of margir dauðir kaflar f Ieik Akranesliðsins, en mörkin hefðu öll verið gullfalleg. Kýpurliðið hefði leikið betur framan af en f leiknum á Kýpur. Þeir hefðu þó dalað eftir að þeir hefðu fengið á sig fyrsta markið og sennilega leikið undir getu f seinni hálfleiknum. Eínar hljóp í skarðið ÞAÐ sorglega slys varð á miðvikudaginn að dómarinn, sem dæma átti leik IA og Omonia, Jones frá Wales, lézt f bflslysi. Varð þvf að fá annan mann til að hlaupa f skarðið og var Reynolds, sá sem dæmdi, fenginn til verksins á síðustu stundu. Erfiðlega gekk fyrir hann og línuverði hans að komast til Iandsins vegna tafa á flugvelli ytra. Er hingað kom veiktist svo annar línuvörðurinn af heiftarlegri maga- kveisu og gat hann engan veginn staðið á Ifnunni f leiknum. Varð þvf að fá heimamann til að hlaupa f skarðið og varð Einar Hjartarson fyrir valinu. Stóð Einar sig f alla staði mjög vel í hlutverki sfnu á línunni og er ekkert út á frammistöðu hans að setja. Hins vegar vöknuðu þær spurningar hvort Einar hafi verið löglegur til starfans, en Einar hefur ekki milliríkjaréttindi sem dómari. Missti hann þau fyrir aldurs sakir sfðastliðið vor. Með þvf að gefa samþykki sitt fyrir þvf að Einar mætti dæma liggur ábyrgðin hjá KSf og ósennilegt er að Kýpurbúarnir geri nokkuð í málinu, enda geta þeir sennilega ekkert gert. Það hefði aðeins verið réttara að láta fslenzkan millirfkja- dómara vera á Ifnunni, ef eitthvað hefði komið upp á. — áij. Landsliðs- þjálfari hættir LEOPOLD Stastny, sem verið hef- ur þjálfari austurriska knatt- spyrnulandsliðsins sl. sex ár, Iét af störfum sl. laugardag, og var ástæðan sem knattspyrnusam- band Austurrikis gaf upp fyrir því sú að hann hefði sjálfur óskað eftir því að hætta sökum heilsu- leysis. Stastny hefur stjórnað austurríska landsiiðinu í rúmlega 50 landsleikjum, og að undan- förnu hefðu gætt vaxandi gagn- rýni á störf hans, og þó aldrei eins og eftir að Austurríki tapaði 2—1 fyrir Ungverjalandi í landsleik i Búdapest á dögunum. Óvænt jafntefli á Ítalíu ÞAÐ ERU fleiri en fslendingar sem komið hafa á óvart f knatt- spyrnu f Evrópu í sumar. Ef frá er skilinn sigurleikur fslendinga við Austur-Þjóðverja f vor, hafa engin úrslit komið eins á óvart og jafntefli Finna og ftala f leik í Evrópubikarkeppni landsliða f knattspyrnu sem fram fór á ftalfu á laugardaginn. Attu ítalskir á- horfendur, sem voru um 60 þús- und talsins, ákaflega erfitt með að sætta sig við þessi úrslit og ætluðu að gera aðsúg að sfnum mönnum er leiknum lauk. Lög- regiunni tókst þó að afstýra vand- ræðum, en táragasti varð hún að beita til þess að reka fólkið burtu. Finnarnir léku mjög ákveðinn varnarleik á Italíu, og gekk hvorki né rakhjá ítalska Iiðinu að komast gegnum varnarmúrinn. Einkum og sér í lagi gekk Finnun- um auðveldlega að kveða í kútinn hinn fræga leikmann Giuseppe Savoldi, en Napoli keypti nýlega þennan leikmann fyrir 2.000 milljónir líra. Finnarnir áttu beztu marktæki- færi Ieiksins er Paatelainen og Hamaliainen komúst í dauðafæri i fyrri hálfleik, en skutu framhjá og er Zoff varði stórkostlega frá Paatelainen og Jantunen í seinni hálfleiknum. Eftir leikinn á laugardaginn er staðan þannig í 5. riðfi Evropubik- arkeppninnar: Pólland 4 3 1 0 9-2 7 Holland 4 3 0 1 11-7 6 llalía 4 12 1 2-3 4 Finnland 6 0 1 5 3-13 1 MARKVÖRÐURfNN BEZTUR OMONfA-MANNA Bezti maður Omonia-liðsins var sennilega markvörðurinn D. Eleftheriades, sem með katt- lipurð sinni og ákveðni bjargaði oft fallega, en aldrei þó eins og er honum tókst að slá knöttinn yfir eftir að Árni Sveinsson hafði átt hörkuskot á markið^af stuttu færi. Þá sýndi markvörðurinn tilþrif sem jafnvel Gordon Banks myndi vera fullsæmdur af. Aðrir leikmenn Omonia sem voru mjög eftirtektarverðir voru hinn skapheiti bakvörður Kontogiorgis og leikmenn nr. 8 og 9. sem sýndu Iagleg tilþrif í sókninni. Kýpur- liðið var alls ekki verra en mörg lið sem hingað hafa komið í heim- sókn til Evrópuleikja. Munurinn var aðeins sá, að nú mætti til leiks betra fslenzkt lið en oftast hefur verið teflt fram til slíkra leikja, — lið sem sýndi öðru hverju svo góð tilþrif að engu var lfkara en um velþjálfað atvinnumannalið væri að ræða. Matthfas Hallgrfmsson, sem þarna á f baráttu við einn leikmanna Omonia, var sannkallaður ógnvaldur Kýpurliðsins f leiknum — skoraði tvö mörk, og átti nokkur góð tækifæri til þess að hafa þau fleiri. Skagamönnum tókst að leika vörn Kýpur- liðsins sundur og saman og skora 4 mörk en voru heppnir að halda marki sínu hreinu ÞEGAR loksins kom að þvf að fslenzkt lið sigraði f Evrópubikar- leik á heimavelli var það sigur sem um munaði. A sunnudaginn tryggðu Skagamenn sér rétt til þess að leika f 2. umferð keppni meistaraliða með þvf að sigra Kýpurliðið Omonia með miklum yfirburðum — fjórum mörkum gegn engu — f leik liðanna á Laugardalsvellinum. Fyrri leik- inn höfðu Kýpurbúarnir unnið með tveimur mörkum gegn einu, þannig að samanlögð markatala var 5—2 fyrir Skagamenn. Glæsi- leg útkoma, jafnvel þótt andstæð- ingurinn sé ekki talinn meðal hinna stóru f þessari keppni. Urslit fyrri leiks liðanna höfðu gefið þeim von um að Skagamenn sigruðu í seinni leiknum byr und- ir vængi, og það var ef til vill mest þess vegna sem 5.573 áhorfendur mættu á Laugardalsvöliinn á sunnudaginn. Og þrátt fyrir að hitamælirinn sýndi ekki nema nokkurra stiga hita, þurfti engum þeim sem fylgdist með leiknum að verða kalt. Æsileg augnablik uppi við bæði mörkin, skemmti- lega skipulagðar sóknarlotur og gullfalleg mörk, yljuðu viðstödd- um, og að leikslokum var mikill fögnuður á áhorfendapöllunum. Var Skagamönnum að vonum klappað lof í lófa, svo og þjálfara þeirra, George Kirby, sem var „tolleraður" af sínum mönnum í leikslok. Arangur Kirbys með Skagaliðið hefur verið mjög góður tvö síðustu árin, og sigur- inn á sunnudaginn var kóróna þess. Vafalaust verður róður Skagamanna i annarri umferð erfiður, þar sem við sterkari and- stæðinga verður þá að etja, og litlir sem engir möguleikar, á að þeir geti leikið heimaleik sinn hérlendis. Aðalvon þeirra verður örugglega að dragast á móti þannig andstæðingi, að þeir geti haft fjárhagslegan ávinning af viðureigninni við hann. KÝPURMENN KOMU A ÓVART Ef tekið er mið af því sem um fyrri leik fA og Omonia hefur verið sagt, verður ekki annað sagt en að Kýpurliðið hafi komið veru- iega á óvart í leiknum á sunnu- daginn. Það var ekki að sjá að kuldinn og þungur völlur hefðu veruleg áhrif á liðið, og áður en lauk voru það Skagamenn sem llllllllllllllilillil—M Texti: Steinar J. Lúðvíksson Myndir: Ragnar Axelsson. lágu í valnum fyrir sinadrættin- um. Kýpurbúarnir reyndu að leika knattspyrnu leikinn út, og það sem vakti hvað mesta furðu var að þeir skyldu ekki þegar í upphafi leiks freista þess að „pakka í vörn“ og halda sigri sín- um frá Kýpur. Má vera að leik- aðferð sú sem Skagamenn beittu í upphafi — að gefa þeim eftir hluta vallarins og teyma þá fram á völlinn hafi orðið þeim að falii. Alla vega sóttu þeir stundum nokkuð djarft, tókst hvað eftir annað að koma vörn Skagaliðsins í mikil vandræði, en hins vegar ekki að reka endahnútinn á sókn- ina hjá sér. Þegar svo meiri þungi fór að verða í sókn Akurnesinga freistuðu Kýpurbúarnir þess að bæta manni í vörnina hjá sér, en það kom fyrir ekki, einfaldlega af því að þegar Skagamenn skoruðu mörk sín í leiknum, tókst þeim einfaldlega að tæta i sundur vörn- ina með góðum leik og skipt- ingum. OÖRUGG VÖRN lA Hættulegustu færin sem Omonia fékk í leiknum komu flest meira fyrir mistök I vörn Skagamanna en að Kýpurbúun- um tækist að leika vel að mark- inu. Allan leikinn virkaði vörn lA heldur óörugg og stundum var hreint herfilegt að sjá hve illa var „dekkað“ upp. Sóknarleikmenn Kýpurliðsins voru nokkrum sinn- um algjörlega gæzlulausir innan vítateigs IA, og þegar þeir fengu sendingar í slík færi, sem reyndar var ekki oft, var það fyrir hreinan klaufaskap, eða góða markvörzlu Davíðs, að þeim tókst ekki að skora. Þarna áttu allir varnarleik- menn Akraness sök, en þetta var sannarlega ekki þeirra dagur. Kirby þjálfari gerði breytingu á vörninni, þegar í fyrri hálfleikn- um er hann skipti landsliðsmann- inum, Birni Lárussyni, inn fyrir Benedikt Valtýsson, sem gekk greinilega ekki heill til skógar, og skánaði vörn Akurnesinga nokkuð við það. Bezti varnarleik- maður Akranesliðsins í leiknum, og raunar sá eini sem gerði það sem við mátti búast var Jóhannes Guðjónsson, en Jóhannes hefur sýnt mjög miklar framfarir að undanförnu, og er að komast í „landsliðsform". Bjargaði hann oft með miklum ágætum, þegar önnur og hingað til stærri nöfn í Akranesliðinu, höfðu brugðizt. SKEMMTILEGAR SÖKNARLOTUR Sóknarleikur Akurnesinga hef- ur hins vegar ekki í annan tíma verið béittari og skemmtilegri en í þessum leik. Þar voru allir virk- ir, og samleikur með miklum ágætum. Þannig komu öll mörk Skagamanna eftir vel útfærðar sóknir, nema helzt fyrsta markið, þar sem einstaklingsframtakið var í fyrirrúmi. Atkvæðamestir sóknarmanna IA í leiknum voru þeir Teitur Þórðarson, Matthías Hallgrímsson og Karl Þórðarson. Hefur Teitur ekki komizt svo vel frá leik í langan tíma. Bæði var að hann barðist mjög vel um knött- inn og lét sig ekki fyrr en í síðustu lög. Sá hefur verið aðal- ókosturinn á leik Teits nú seinni hluta sumarsins, að hann hefur ekki lagt sig nóg fram í leiknum. Ekki sýnt þá fylgni sem sóknar- leikmanni er nauðsynleg, en leikurinn á sunnudaginn sýndi og sannaði að Teitur er sérlega hættulegur sóknarleikmaður þegar hann nær sínu bezta fram. Matthias var einnig stórhættu- legur I þessum leik, þótt honum brygðist reyndar stundum boga- listin, þegar komið var í gott færi. Annað mark hans í leiknum var stórglæsilegt, og ekki á allra færi að nýta svo vel möguleika sem hann gerði þá. Karl Þórðar- son gerði Kýpurbúunum greini- lega gramt í geði, og Iék sér oft í kringum þá. Hann átti og góðar og vandaðar sendingar og gaman var að honum skyldi takast að skora, en af því hefur hinn bráðefnilegi og skemmtilegi leikmaður ekki gert svo ýkja mikið af. Aðrir Skagamenn sem komust vel frá þessum leik voru þeir Har- aldur Sturlaugsson og Árni Sveinsson. Jóni Alfreðssyni mætti einnig hrósa fyrir einstök atvik í leiknum, en þegar á heild- ina er litið verður þó ekki sagt að þetta hafi verið hans dagur. Davíð Kristjánsson stóð sig með miklum ágætum í markinu, en á hann reyndi töluvert mikið f þessum leik. Fiögur falleg mörk FYRSTA mark leiks ÍA og Omon- ia á sunnudaginn kom á 16. mfn- útu. Eftir baráttu um knöttinn á vallarmiðjunni tókst Haraldi Sturlaugssyni að ná til hans og senda vel fram til Magnúsar Hallgrímssonar sem tókst að snúa vörn Omonia af sér og renna síð- an knettinum framhjá markverð- inum af miklu öryggi. Töldu Kýpurbúar að Matthías hefði ver- ið ranstæður er hann fékk knött- inn, en svo var augljóslega ekki. Á 21. mínútu fengu Skagamenn mjög gott marktækifæri en stór- kostleg markvarzla Eleftheriades í marki Omonia bjargaði. Eftir hornspyrnu fékk Árni Sveinsson knöttinn í sannkölluðu dauða- færi. Hann skaut föstu skoti á markið, en markverðinum tókst að slá yfir. Á 29. minútu komst Matthías f nákvæmlega eins færi og er hann skoraði mark sitt. Munurinn var aðeins sá, að nú var það Teitur Þórðarson sem vann knöttinn með harðfylgni og að Matthíasi brást illa bogalistin í skoti sínu og markvörðurinn átti auðvelt með að bjargá. Á 35. mínútu var dæmt mark af Skagamönnum. Þá hafði myndazt mikil mannþröng fyrir framan mark Omonia, en Árni Sveinsson náði að skalla knöttinn i boga yfir markvörðinn og í markhornið. Einar Hjartarson dæmdi hins veg- ar rangstæðu, sennilega á Teit Þórðarson, sem engin áhrif gat haft á leikinn. Það var ekki fyrr en í seinni hálfleiknum að Skagamenn náðu spili sínu verulega á strik og þá var heldur ekki lengi að bíða eftir mörkum. Á 50. mínútu léku þeir vörn Omonia sundur og saman, og lauk sókninni með því að Árni Sveinsson átti góða sendingu á Teit Þórðarson sem var kominn að markteigshorni Omonia. Færið var nokkuð þröngt, en Teitur nýtti það frábærlega vel og sendi knöttinn með hörku'skoti i mark Kýpurbúanna, 2:0. 3:0 kom á 61. mínútu og var það jafnframt fallegasta mark leiks- ins. Eftir að Karl Þórðarson hafði átt nákvæma þversendingu yfir völlinn á Jón Alfreðsson lék Jón upp undir endamörkin og sendi þaðan knöttinn vel fyrir markið til Matthíasar Hallgrimssonar sem skoraði með viðstöðulausu skoti, svo föstu að ekki var hægt að koma auga á knöttinn fyrr en hann lá í netinu. Á 79. mínútu innsigluðu svo Skagamenn stórsigur sinn. Þá var knötturinn látinn ganga frá manni til manns og endaði sóknin með skoti Karls Þórðarsonar af fremur stuttu færi. Skot Karls var ekki fast en hnitmiðar og báru örvæntingarfullar tilraunir mark- vörðs og bakvörðs til bjargar eng- an árangur. Annað mark Skagamanna að verða til. Teitur Þórðarson spyrnir hafnaði knötturinn í netinu. SIGUR SVO Austur-Þjóðverjar lögðu Belga á útivelli STAÐAN í sjöunda riðli Evrópu- bikarkeppni landsliða í knatt- spyrnu „opnaðist” mikið, er Belgíumenn töpuðu óvænt fyrir Austur-Þjóðverjum í leik liðanna sem fram fór f Briissel á laugar- daginn. Það eru því þrjú lönd sem enn eiga sigurmöguleika f riðlin- um: Belgfa, Austur-Þýzkaland og Frakkland, en óneitanlega stend- ur Belgfa bezt að vfgi — nægir jafntefli f leik sfnum við Frakka. Sigur í leiknum á laugardaginn hefði fært Belgíumönnum sigur í riðlinum, og hefðu þeir þar með verið fyrstir til þess að tryggja sér sæti f úrslitunum. Léku Belgíu- menn beittan sóknarleik í fyrri hálfleiknum, og fór þá leikurinn að mestu fram á vallarhelmingi Þjóðverjanna, en marktækifæri Belgíumannana voru hins vegar teljandi. Á 35. mínútu varð atburður sem virtist fara mjög í taugarnar á Belgíumönnum, en þá sýndi hinn rúmenski dómari leiksins, Nicolea Rainea, Ludo Coeck gula spjaldið fyrir að brjóta á Rein- hard Lauck, Ieikmanni A- Þjóðverja. Þjóðverjarnir urðu svo fyrri til að skora. Á 50. mínútu einlék Lauck í gegnum vörn Belgíu- mannanna og renndi síðan knettinum framhjá Christian Piot í belgíska markinu. Wilfried Puis jafnaði fyrir Belgíu skömmu síð- ar, og eftir að staðan var orðin 1—1 skiptust liðin á góðum sókn- um, en það voru Þjóðverjarnir sem skoruðu. Gerði Reinhard Höfner markið á 67. mínútu og mótmæltu Belgiumennirnir þvi ákaflega — töldu að hann hefði verið rangstæður. Eftir leikinn er staðan þannig í sjöunda riðli: Belgia 5 3 11 6—3 7 A-Þýzkaland 5 13 1 6—6 5 Frakkland 4 12 1 6—4 4 ísland 6 1 2 3 3—8 4 föstu skoti að marki Kýpurmanna og þrátt fyrir að þrfr væru til varnar UM MUNAÐI

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.