Morgunblaðið - 11.10.1975, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. OKTOBER 1975
3
„EF ég hefði verið spurður f
upphafi hvaða fiugvélategund
Landheigisgæzlan ætti að
kaupa, þá hefði ég hiklaust
valið Orion- eða Neptune-
flugvél, sem sérstaklega eru
byggðar til eftirlitsflugs yfir
sjó. Hins vegar er Fokker
friendship vélin einnig mjög
gðð, og mikiu betri en þær smá-
vélar, sem margir hafa rætt
um,“ sagði Guðmundur
Kjærnested, skipherra á Ægi, f
samtali við Mbl. í gær, en þá
var haidinn blaðamannafundur
um borð í varðskipinu Tý í til-
efni af útfærslu fiskveiðilög-
sögunnar f 200 mílur eftir f jóra
daga.
Guðmundur sagði, að sér og
öðrum skipheiTum landhelgis-
gæzlunnar þættu íslenzku fjöl-
miðlarnir ekki eins jákvæðir nú
og þegar fært var út í 50 mílur
árið 1972. Hann tók fram, að
Beechcraft-vél eins og sumir
vildu að yrði keypt, gæti hreint
ekki borið öll þau tæki, sem
þyrfti að hafa um boð í flugvél-
um Landhelgisgæzlunnar, en
sjálfur á Guðmundur yfir 2000
flugtíma að baki sem skipherra
á Landhelgisgæzluflugvélun-
um.
Sagði Guðmundur, að um boð
í gæzluflugvél þyrftu að vera
öflug fjarskiptatæki, sem mörg
væru þung, góður kastari þyrfti
að vera á vélinni, en hann væri
reyndar ekki kominn á SÚ, þá
þyrfti að hafa margskonar
siglingatæki eins og Loran-C um
borð, ýmiss konar björgunar-
tæki, svo sem gúmmíbáta, sem
kasta mætti útbyrðis. Þá hefði
notagildi litlu vélanna komið
vel í ljós í Sjöstjörnuslysinu;
þær hefðu að vísu náð að fljúga
út yfir hafið í þeim slæmu
veðrum er þá geisuðu, en síðan
orðið að fljúga fljótlega til
lands, en stóru vélarnir eins og
Fokkerinn og Orion-vélarnar
frá Varnarliðinu hefðu ávallt
getað verið á lofti.
OtUMN 5rtin»
Þannig lftur myndin út á
skerminum. Miðpunkturinn er
Ægir, en hringirnir sýna skip á
ferð og hver stefna þeirra er.
Guðmundur Kjærnested skipherra t.h. og Jón Steindórsson, yfirloftskeytamaður við nýja tækið um borð f Tý f gær.
Ljósm. Mbl.: RAX.
Nýtt hjálpartæki um borð í Tý:
Jlefði helzt viljað Orion-eða
Neptunevél í gœzlmtarfið ’
segir Guðmundur Kjærnested
Um borð í Tý var kynnt nýtt
tæki fyrir blaðamönnum. Er
það svonefndur „anti-
Collision-radar" en þetta tæki
reiknar út hraða stefnu og yfir-
leitt allar hreyfingar skipa
innan 24ra sjómílna radiuss.
Þetta nýja tæki, sem var tekið i
notkun í sl. viku, er frá Sperry-
verksmiðjunni og er tengt við
annan radar skipsins, sem er
frá sama fyrirtæki. Tækið, sem
er tölvustýrt, er ætlað til þess
að hjálpa skipum við að forðast
árekstra og koma útreikningar
þess fram á myndskermi á ör-
skammri stundu. — Að sögn
Guðmundar Kjærnested reynd-
ist þetta tæki vel s.l. laugardag,
er Týr skar á báða togvíra v-
þýzks togara úti af Reykjanesi.
Týr kom þar að sex v-þýzkum
togurum, er þar voru að veið-
um. Gátu skipverjar Týs strax
séð á tækinu hvaða togarar
voru að hifa vörpuna, eða búnir
að því. Tækið sýndi, að einn
togari sá sem lengst var í burtu,
var enn með vörpuna í sjó, og
tókst þeim því að skera á hana.
Svona útreikninga geta skip-
stjórnarmenn reyndar gert, en
það tekur það Iangan tíma að
togarasjómenn gætu fyrir
löngu verið búnir að taka vörp-
una inn, áður en komið væri að
togaranum. Fram til þessa hafa
varðskipin yfirleitt haldið að
fremsta skipinu, eða því skipi,
sem talið er líklegt að enn sé
með vörpu úti, án þess að vera
fullvissir um það,
Pétur Sigurðsson, forstjóri
Landhelgisgæzlunnar, sagði i
gær, að á meðan Týr hefði verið
í byggingu hefðu þeir fregnað
af þessu nýja tæki frá Sperry.
Þeir hefðu strax sýnt þessu
áhuga, enda kæmi tækið að
ómetanlegu gagni I dimmviðri.
Hann hefði lagt til að tækið
yrði keypt og verð þess fellt í
sjálft skipsverðið og hefði það
verið samþykkt. Það hefði ekki
verið tilbúið er Týr var af-
hentur, en sett niður í síðustu
viku.
Mbl. spurði Pétur Sigurðsson
til hvaða aðgerða Landhelgis-
gæzlan gripi þegar fiskveiðilög-
sagan yrði færð út þann 15.
október n.k. Hann sagði; „Það
er heill mánuður til stefnu
gagnvart Bretum, sví samning-
urinn við þá rennur ekki út
fyrr en 13. nóvember n.k. Hins
vegar munum við sem fyrr
kljást við V-Þjóðverja eftir
beztu getu, en annarra þjóða
skip eru mjög lítið á Islands-
miðum á þessum árstíma.“
Þá var Pétur spurður að því,
hvort ekki kæmi til greina að
varðskipin brenndu svartolíu I
stað gasolíu. Hann sagði, að
ekkert mælti á móti því að vél-
arnar i t.d. Ægi og Tý brenndu
svartolíu, enda verið valdar
með tilliti til þess á sínum tima.
Hins vegar hefðu sérfræðingar
MAN-verksmiðjanna bent á,
að notkun varðskipanna væri
þannig, að svartoliunotkun
hentaði ekki, og þyrftu varð-
skipin því að vera með tvenns
konar olíu um borð. Siglingar
varðskipanna væru yfirleitt
frekar rykkjóttar. Siglt væri á
fullri ferð i smátima, en svo
jafnvel látið reka. Til þessa
hentaði svartolían ekki, hún
væri aftur á móti góð, þegar
siglt væri undir jöfnu álagi í
langan tima, eins og á milli
landa. Skip eins og Týr og Ægir
brenndu að sjálfsögðu nokkuð
miklu af olíu, árið 1969 hefði
olíunotkun Ægis verið 886 þús.
lítrar, en árið 1973 eyddi skipið
1.378 þús. lítrum, en þá hafði
skipið mörgum stórverkum að
sinna.
Pétur sagði, að íslenzka ríkis-
útvarpið þyrfti nauðsynlega að
gera eitthvað fyrir íslenzka sjó-
mannastétt. Sjónvarpið sæist
þvi sem næst aldrei á kvöldin
og á mörgltm stöðum úti fyrir
landinu heyrðist ekki heldur í
Framhald á bls. 31
Mynd nr. 1:
Aldursforseti Guðlaugur Gisla-
son í forsetastól. Honum á
hægri hönd Ellert B. Sehram.
Til vinstri fjórir ráðherranna
(talið frá hægri): Geir Hall-
grímsson, forsætisráðherra,
Ólafur Jóhannesson, dóms-
málaráðherra, Gunnar Thor-
oddsen, félagsmálaráðherra, og
Einar Agústsson, utanrikisráð-
herra.
Mynd nr. 2:
Ungir þingmenn til hægri og
vinstri. Vinstri þingmaðurinn
(til hægri á myndinni) er Vil-
borg Harðardóttir, sem var sá
eini mættra þingmanna, sem
ekki hefur áður setið á þingi.
Til vinstri á myndinni er
(hægri) — þingmaðurinn Guð-
mundur Garðarsson. A milli
þeirra er gamalreyndur þing-
Svipmyndir frá setn-
ingu Alþingis í gœr
maður, Steinþór Gestsson (sem
sést einnig lengst til vinstri á
myndinni — spegilmynd—).
Mynd nr. 3:
Erlendir gestir við þingsetn-
ingu: Til vinstri er kinverski
sendiherrann ásamt starfs-
manni sínum, til hægri sendi-
herra Svíþjóðar.
Mynd nr. 4:
Brosandi mæta þeir erfið-
leikunum framundan. Vil-
hjálmur Hjálmarsson, mennta-
málaráðherra, Gylfi Þ. Gísla-
son, formaður þingflokks Al-
þýðuflokksins, og Sverrir Her-
mannsson, 3. þingmaður Aust-
firðinga. Lengst til vinstri á
myndinni má sjá Matthías
Bjarnason, sjávarútvegsráð-
herra, og Garðar Sigurðsson,
einn af þingmönnum Sunnlend-
inga.