Morgunblaðið - 11.10.1975, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 11.10.1975, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. OKT0BER 1975 Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar, sonur og bróðir, HÖRÐURJÓNASSON, Rauðagerði 1 6, Reykjavik, lézt að heimili slnu þann 9. október. Fyr,r hönd aðstandenda. Kristin B Arnadóttir< Bjarni Harðarson, Matthildur Halldórsdóttir, Hildur Harðardóttir, Guðjón Kristinsson, Halldóra Harðardóttir, Lárus Kjartansson. Móðir okkar, + AÐALHEIÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR. frá ísafirði andaðist þann 10. þessa mánaðar. Börn hinnar látnu. t Eiginmaður minn og faðir okkar, MAGNÚS H. VALDIMARSSON. fyrrverandi framkvæmdastjóri, lézt í Landakotsspitala 10 október Margrét Jónsdóttir, Erla M. Magnúsdóttir, Valdimar J. Magnússon. t Kveðjuathöfn um eiginmann minn, fósturföður og afa okkar, GUÐJÓN HJÖRLEIFSSON frá Norðfirði, fer fram frá Dómkirkjunni mánudaginn 1 3. október kl. 1 3.30. Jarðsett verður í Neskaupstað _ .. . ^ . r . Friðrikka Sveinsdottir, Marfa Möller, Sigurður Sívertsson og börn. t Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og útför MARGRÉTAR GUÐNADÓTTUR, Aðstandendur. t Þökkum auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa ANDERSBERGESEN frá Vestmannaeyjum Sólveig Ólafsdóttir \ dætur, tengdasynir og barnabörn. t Þökkum af alhug auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför INGIBJARGAR PÁLSDÓTTUR Norðurbrún 1, Sigrún Sigurðardóttir, Guðmundur Guðmundsson Bergljót Jónatansdóttir, Jón Sigurðsson, Guðrún Jónsdóttir, Páll Sigurðsson. t Þökkum sýnda samúð og hlýhug við fráfall og útför JÓNS ÞÓRARINSSONAR, lyfsala, Gunnlaug Hannesdóttir, Ástrlður Hannesdóttir. Anna Kristrún Jónsdóttir, Þorvaldur Gunnlaugsson, Hannes Jónsson. t Þökkum af alhug auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför GÍSLA GUÐMUNDSSONAR bifreiðarstjóra Nesbala 27 Fjóla Guðmundsdóttir Ragnheiður Gísladóttir Eggert Björnsson Þurtður Gísladóttir Jósep Helgason Sigriður Gisladóttir Þórarinn Pálsson. Guðni Ingvason bryti—Minning Fæddur 17. júlf 1901 Dáinn 5. október 1975 Guöni Ingvarsson leit fyrst dagsins ljós undir A-Eyjafjöllum 17. júlí 1901. Hann andaðist á Borgarsjúkrahúsinu í Reykjavík 5. október 1975. Losaði því aldur hans 74 ár. Faðir Guðna var Ingvar Einars- son frá Hellnhól. Móðir hans var Ragnhildur Þórðardóttir, ættuð úr Skaftárþingi. Með henni ólst hann upp. Fyrstu bernskuár hans voru í Skarðshlíð undir A-Eyjafjöllum. Til Vestmannaeyja flytur hann á sjöunda ári með móður sinni, til móðursystur sinnar, Guðrúnar Þórðardóttur, og Magnúsar Magnússonar útgerðarmanns og formanns um langt skeið í Eyjum. Þar var heimili Guðna til 13 ára aldurs. Hjónin á Felli voru miklar gæða- og mannkostamanneskjur. Heimili Þeirra stóð um þjóðbraut þvera. Þar réðu kærleikur og vin- semd. Þarna mótaðist Guðni og fékk gott atlæti Qg veganesti, sem hann mat ávallt Þarna lágu leiðir Guðbjargar Magnúsdóttur og Guðna saman. Urðu þau systra- börn sem alsystkini upp frá því og hélst það ævina út. Það vekur því ekki furðu, að löngum var Guðni kenndur við Fell. Þegar Guðni var 13 ára eign- aðist hann stjúpföður. Bjarni Sveínsson frá Melhól í Meðallandi giftist þá Ragnhildi Þórðardóttur. Stóð heimili þeirra fyrst hjá Guðbjörgu og Kristjáni á Hvann- eyri í Eyjum, síðar hjá Ingveldi og Ágústi að Ásnesi. Eftir það byggðu þau Vesturveg 21 og stóð heimilið þar ávallt síðan. Framan af stundaði Bjarni út- gerð og formennsku. Guðni var þegar um fermingu orðinn beitu- maður á vetrarvertíð. Þannig var æviferill hans, mikið bundinn við sjó og sjómennsku. Ungur lagði hann leið sína á Austurland. Eftir það réðst hann á „Maí“ til Sig- fúsar Scheving til síldveiða norðanlands og var þar mat- sveinn. Þegar flaggskip Eyjamanna, „Fylkir“, kom nýtt frá Svíþjóð árið 1929, undir stjórn valmennis- ins og aflakóngsins Sigurðar Bjarnasonar frá Hlaðbæ, þá var Guðni yfir í eldhúsi. Þaðan lá leið Guðna á Skaftfelling, með Kristjáni Kristjánssyni skipstjóra. Þegar Slysavarnafélag íslands eignaðist „Sæbjörgu", varð Guðni bryti þar um borð. Síðar lá leiðin á Arctic, varðskipið Ægi og Esju. Þegar Eyjamenn hófu bæjarútgerð sína, þá var Guðni um borð í Elliðaey, undir skipstjórn Ásmundar Friðriks- sonar frá Löndum. Þaðan fór Guðni á Matstofu Einars Sigurðs- sonar við Hraðfrystistöð Vest- mannaeyja og stjórnaði þar störf- um um meira en fimmtung aldar. Um þessa starfsögu Guðna sem er bæði löng og merk, mætti rita langt mál. Stiklað er á stóru. öllum var Ijóst að Guðni var mjög fær í starfi sínu. Heiðarlegur, trúr og stundvís. Einstaklega tryggur og mikill vinur vina sinna. Ekki kastaði Guðni sér í sælu hjónabandsins, var nægjanlega sæll með sitt hlutskipti. Fyrir utan eigið heimili fannst manni hann eiga fleiri heimili sem heimamaður. Fremst stóð þar heimilið að Haukabergi og svo að Grundarbrekku í Eyjum. En hér í borg stóðu honum sérlga opnar dyr hjá Jónu og Páli Einarssyni, Guðlaugu og Ragnari Elíassyni og Eggert og Sigurlaugu að Sæbraut 5. En þar dvaldist hann lengst eftir gosið í Eyjum. Síðast bjó Guðni að Síðumúla 21. Þar undi Guðni sér vel með gömlum vinum og nágrönnum úr Eyjum. Guðni var með hærri mönnum, vel limaður og karlmannlega vax- inn. Bragðnæmur á andlega fæðu var hann með einsdæmum. Hljómlistareyra hafði hann ná- kvæmt og gott, enda lék hann á mörg hljóðfæri og var organ- leikari Betelsafnaðarins í Eyjum um tugi ára. Þegar norski trúboðinn Erik Asbö kom til Eyja í júlímánuði 1921 stóð Guðni á tvítugu. Þá var Guðni meðal fyrstu manna, sém tóku jákvæða afstöðu til boðskap- ar hvftasunnumanna. Er hann andaðist var hann einn af þremur brautryðjendunum er upp úr stóðu. Hin eru Halldóra Þórólfs- dóttir og Kristín J. Þorsteinsdótt- ir. Þrátt fyrir útileg.ur og oft erfið lífsskilyrði átti Guðni einlæga trú á endurlausn Jesú Krists. Þar komst ekkert fram yfir. I því stóð hann lffið í gegn og kvaddi lífíð sem kristinn maður. Slíkra er gott að minnast. Við leiðcirlok er systkinum hans og öllum skyldmennum og ástvin- um fluttar kveðjur þakklætis og samúðar. Einar J. Gíslason, Sigurjón Jónsson —Minningarorð Fæddur 3. marz 1947 Dáinn 30. septembcr 1975 Sigurjón Jónsson hefur kvatt sitt jarðvistarlíf. Hann var Keflvíkingur, sonur hjónanna Mörtu Hólmkelsdóttur og Jóns Benediktssonar, sem lézt 9. febrúar síðastliðinn. Sigurjón eða Diddi eins og hann var alltaf kallaður fór snemma úr foreldra- húsum, aðeins 18 ára gamall. Leiðin lá norður til Akureyrar þar sem hann réðst til Togaraút- gerðar Akureyrar og var háseti + Konan min MARGRÉT LILJA SIGURÐARDÓTTIR. Framnesveg 55. lést 9. okt Sigurður Gunnarsson. Öllum sem vottuðu okkur samúð og sýndu vinarhug við andlát og jarðarför GUNNARS JÓHANNESSONAR, Freyjugötu 1 9, Sauðérkróki færum við hugheilar þakkir. Vandamenn. þar á togurum um nokkurra ára skeið. Eftir að Sigurjón hætti sjó- mennsku fór hann að vinna í landi, réðst hann þá til gler- verksmiðjunnar Ispan þar sem hann vann til dauðadags. Áður en Sigurjón hélt norður til Akureyr- ar hafði hann starfað f Keflavík og nágrenni, meðal annars hjá Steypustöð Suðurnesja og f frysti- húsum og fleiri stöðum. Árið 1969 gekk Sigurjón að eiga Margréti Njálsdóttur frá Akur' eyri og eignuðust þau vistlegt heimili að Víðilundi 18 á Akur- eyri. Margrét og Sigurjón eign- uðust einn son, sem heitir Sigurður Einar. Eftir að Margrét og Sigurjón höfðu slitið samvist- um síðar meir hélt Sigurjón til að Skarðshlíð 29, þar leigði hann sér herbergi, sem hann var í til dauðadags. Avallt þegar Sigurjón kom til Keflavíkur vann hann hug og hylli allra sinna vina, sem hann alltaf heimsótti þegar hann kom suður og er alveg hægt að full- yrða, að hann var sannur vinur sinna vina. Aldrei varð ég var við nein veikleikamerki á Sigurjóni þegar hann kom suður, alltaf jafn kátur, vingjarnlegur og hraustur. Ég get varla trúað þvf að þetta hafi verið í síðasta skiptið, sem Diddi kom suður til Keflavíkur en þá var hann að fylgja föður sínum til Útfaraskreylingar blómouol Groðurhusið v/Sigtun simi 36770 hinztu hvflu, aðeins tæplega 7 mánuðir síðan. Á sínum yngri árum var Sigur- jón hneigður fyrir knattspyrnu og alltaf voru samræður okkar í þá áttina þegar við tókum tal saman en það var bæði fyrir norðan og sunnan en aðallega hér fyrir sunnan vegna þess að hann kom oftar í heimsókn hingað suður en ég til Akureyrar. Ég gleymi seint gestrisni hans fyrir nokkrum árum er ég og unnusta mín komum til Akur- eyrar á ferðalagi. Þegar við hittumst örlitlu seinna niðri á tjaldstæði var hann nýkominn af knattspyrnuæfingu með sínum vinnufélögum, og bauð okkur þá í þrftugsafmæli vinnufélaga síns. Sigurjón var þriðji elztur sex systkina, aðeins 28 ára gamall þegar hann kveður þennan heim. Það er erfitt að sætta sig við frá- fall ungs manns, er eitt sinn skal hver deyja og stundum getur verið stutt á milli lífs og dauða. Ég votta móður hans mína innilegustu hluttekningu, syni hans Sigurði Einari, fyrrverandi eiginkonu, systkinum hans, frændum og vinum. Hólmkell Gunnarsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.