Morgunblaðið - 11.10.1975, Síða 5

Morgunblaðið - 11.10.1975, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. OKTOBER 1975 Hausthappdrœtti Sjálfstœðisflokksins Fjáröflun til flokksstarfsins Dregið 15. nóvember VINNINGAR 1. PASSAT L 2JA DYRA ARGERD 1975 .KR: 1J70 000 00 FLOKK/IN/ . 2.-3, 4 KANARlEYJAFEROIfl, 2 vtnnlngar.. KR: 220.000.00 4.-12. ANltA VASATÖI VUR ...... KR; 128.000.00 VEftÐ Kfl 300 HEILDARVERÐMÆTI VINNINGA KR. 1.718.000.00 DREGIÐ 15. NÖVEMBER 1975 UPPLÝSINGAR i SIMA 1/100 MlOlNN ER ÓGILDUR FftA 15. NÓVEMBER 1976 SJALFSTÆÐISFLOKKUR- INN er um þetta leyti að hrinda af stokkunum haust- happdrætti I fjáröflunarskyni og er verið að ganga frá út- sendingu á happdrættismiðum til stuðningsmanna flokksins. Vinningar verða að þessu sinni 12 talsins — Passat L fólksbif- reið og auk þess fjórar Kanarf- eyjaferðir og tólf vasatölvur, samtals að verðmæti kr. 1.718.000,00. I bréfi formanns, varafor- manns og framkvæmdastjóra flokksins, sem látið er fylgja til þeirra, sem fá senda miða, segir: „Um þessar mundir reynir mjög á starf og styrkleika Sjálf- stæðisflokksins. Andstæðingar flokksins veitast hart að honum. Því riður á, að sjálf- stæðismenn sýni árvekni, herði baráttuna og efli samtök sín. I 45 ár hefur Sjálfstæðis- flokkurinn verið fjölmennasti stjórnmálaflokkur landsins og kjölfestan í íslenzku þjóðlífi. En það hefur verið með sam- eiginlegum áhuga og gagn- kvæmum skilningi sem sjálf- stæðismenn hafa gert flokk sinn að sterkasta og traustasta aflinu i islenzkum stjórn- málum. "S 300 Nú sem fyrr þarf á fé að halda til reksturs flokksins og flokksstarfsins alis. Sjálfstæðis- flokkurinn leyfir sér því sem oftar að leita til stuðnings- manna sinna með því að senda þeim tiltekna tölu happdrættis- miða, sem hver og einn standi síðan skil á eftir því sem að- stæður leyfa. Við verðum að ætlast til mik- ils hvert af öðru og biðjum þig þvi að athuga þetta erindi með vinsemd og skilningi. Við treystum á samhug og samhjálp þeirra sem til er leit- að og ætíð hafa sýnt fullan skilning á nauðsyn styrks Sjálfstæðisflokks. Með samstilltum huga sækist leiðin að settu marki — betra og traustara þjóðfélagi — frelsi og framtið Islands.“ Ákveðið er, að dráttur fari fram 15. nóvember næstkom- andi. Hér er þess vegna um skyndihappdrætti að ræða og því mikils um vert, að þeir, sem fá miða heimsenda, geri vin- samlegast skil sem allra fyrst og auðveldi þar með skrifstofu happdrættisins það mikla starf, sem þar þarf að vinna. Skrif- stofan er að Laufásvegi 46, sfmi 17100. BOSCH frystikistur MEIRA MAGN - MINNA FE Hagkvæmt heimilishald er ekki síst undir gó6ri frystikistu komió Vondid valið - veljið BOSCH mSsm 'VW.AI. !.i. Verðlagsstjóri: Verðlagsskrifstofunni ekki kunnugt um að ákvæðisvinnutaxtar væru ofreiknaðir MORGUNBLAÐIÐ hafði í gær samband við Georg Olafsson verð- lagsstjóra og bar undir hann ummæli Gunnars Björnssonar formanns Meistarasambands byggingamanna f frétt f Mbl. f gær. 1 viðtalinu við Gunnar kom m.a. fram, að byggingameistarar hefðu vitað um að ákvæðisvinnu- taxtar væru ofreiknaðir og hefði bæði núverandi og fyrrverandi verðlagsstjóri vitað af þessu. Georg Ólafsson verðlagsstjóri sagði: 1. Hvorki núverandi eða fyrrv. verðlagsstjóra, né nokkrum starfsmanni á verðlagsskrifstof- unni, var kunnugt um það fyrr en nú í sumar, að byggingameistarar hefðu ofreiknað launatengd gjöld í ákvæðisvinnu. Þá kom í ljós við athugun á útreikningum þeirra ýmislegt sem benti til þess, að ákvæðisvinnutaxtar væru ekki rétt reiknaðir. Athugun á töxtum hefur verið haldið áfram síðan og eins og fram kom í fréttatilkynningu verðlagsstjóra í gær, er henni ekki að fullu lokið ennþá. Málið var hinsvegar komið á það stig að verðlagsstjóri taldi tímabært að leggja það fyrir fund verðlags- nefndar 1. okt. s.l. 2. I viðtali blaðsins við Gunnar Björnsson kemur einnig fram að núverandi og fyrrverandi verð- lagsstjóri „hefðu ekki talið ástæðu til að leiðrétta þessa útreikninga og lagfæra álagn- ingartölur miðað við þær leiðrétt- ingar, þrátt fyrir að meistara- sambandið hefði farið fram á að slíkt væri gert“. Þetta er alrangt. Hið rétta er, að þegar verðlagsskrifstofan hafði fengið staðfestan grun sinn nú í sumar, var vakin athygli meistarasambandsins á því, að útreikningar á ákvæðisvinnunni væru rangir. Þá fyrst taldi meistarasambandið ástæðu til að Norræn ráðstefna við- skiptafræðinema hafin FÉLAG viðskiptafræðinema mun standa fyrir norrænu þingi við- skipta- og hagfræðinema hérlend- is um þessa helgi og fram til miðvikudags, en á þvf verður fjallað um verðbólguna, helztu áhrif hennar og nýjustu hug- myndir til lausnar. Haldnir verða sjö fyrirlestrar á ráðstefnunni. Dr. Guðmundur Magnússon, prófessor, fjallar um verðbólguna, dr. Gylfi Þ. Gísla- son, prófessor, mun fjalla um sér- einkenni islenzkrar verðbólgu, Jónas Haralz, bankastjóri, mun fjalla um áhrif verðbólgu á 13 verkfallsfundir BSRB um helgina MORGUNBLAÐINU hefur borizt eftirfarandi fréttatilkynning frá BSRB: Fundarsókn á verkfallsréttar- fundum BSRB og aðildarfélaga þess hefur verið mjög góð. Á fimmtudagskvöld var lokið 40 fundum, og á þeim mættu 2500 manns. Um helgina verða 13 fundir og hafði verið áformað, að funda- höldunum lyki með fundi Starfs- mannafélags rikisstofnana á senda skrifstofu verðlagsstjóra erindi þar sem óskað er eftir hærri álagningu til jafns við það, sem það hafði áður tekið sér, enda Framhald á bls. 31 Aðalsafnaðarfundur Dómkirkjusafnaðarins í Reykjavík verður haldinn í Dómkirkjunni miðvikudaginn 15. október, kl. 20.30 Dagskrá: Venjuleg aðal- fundarstörf Sóknarnefndin bankakerfið, Ásmundur Stefáns- son, hagfræðingur, og Brynjólfur Bjarnason, hagfræðingur, munu slðan fjalla um áhrif verðbólg- unnar á atvinnulífið. Dr. Þráinn Eggertsson, lektor, fjallar um peningamálastjórn við verðbólgu- aðstæður og Sigurgeir Jónsson, aðstoðarseðlabankastjóri, fjallar um vísitölubindingu fjárskuld- bindinga. Fastir þátttakendur verða um 30, þar af um 20 frá hinum Norðurlöndunum. Ráðstefnan mun fara fram í húsi lagadeildar, Lögbergi, stofu 101. Hótel Esju. En þar sem sýnilegt er að það húsnæði verður alltof lftið og vegna þess að fjölmargir gátu ekki mætt á fundum í sfnu félagi, hefur verið ákveðið að ljúka fundahöldunum um verk- fallsréttarmálið með sameiginleg- um fundi fyrir alla félagsmenn bandalagsfélaga í Súlnasal Hótel Sögu mánudagskvöld 13. okt. kl. 20.30. Kemur fundur þessi i stað hins áður auglýsta fundar á Hótel Esju. BOSChLÍ BOSCHJ

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.