Morgunblaðið - 11.10.1975, Síða 10

Morgunblaðið - 11.10.1975, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. OKT0BER 1975 Þorvaldur Garðar Kristjánsson í ræðu á Evrópuþinginu: Munum ekki láta undan efnahags- legum þvingunum frá Þjóðverjum Nokkrar umræður urðu um landhelgismál á þingi Evrópu- ráðsins sl. þriðjudag. Efnahags- málanefnd þingsins lagði fram tillögu til ályktunar við umræður um skýrslu EFTA og var tillagan svohljóðandi: Þingið harmar, að bókun nr. 6 við fríverzlunarsamninginn milli Islands og Efnahagsbandalagsins um fiskinnflutning til hins síðar- nefnda hefir ekki enn tekið gildi vegna ófullnægjandi lausnar á deilunum um hin íslenzku fisk- veiðitakmörk og sérstaklega milli Sambandslýðveldisins Þýzka- lands og Islands um fiskveiðirétt á, Islandsmiðum, og hvetur þessi tvö viðkomandi lönd til að na sam- komulagi um þetta mál í anda evrópskrar samstöðu og sam- vinnu. Þá var einnig lögð fram tillaga til ákvörðunar svohljóðandi: Þingið felur landbúnaðarnefnd- inni — ef nauðsyn krefur f sam- vinnu við laganefndina — að fylgjast með viðræðum Sam- bandslýðveldisins Þýzkalands og íslands um fiskveiðiréttindi og, ef tilhlýðilegt þykir, bjóða fram að- stoð sína. Báðar tillögurnar voru samþykktar samhljóöa F’ramsögumaður í þessum umræðum var Sven Stray, fyrr- verandi utanríkisráðherra Norð- manna. íslenzku fulltrúarnir á þinginu tóku allir þátt í umræð- um, þeir Ingvar Gfslason, Stefán Jónsson og Þorvaldur Garðar Kristjánsson, en ræða hins sfðast- nefnda fer hér á eftir: Herra forseti. Ég þakka og óska til hamingju framsögumanninum, mínum góða vini og félaga hr. Stray, fyrir hans ágæta nefndarálit. I 4. gr. tillögu til ályktunar, sem við nú ræðum, eru Sambandslýð- veldið Þýzkaland og Island hvött til að ná samkomulagi „í anda evrópskrar samstöðu". Ég vildi, hr. forseti, mega gera nokkrar stuttar athugasemdir. Bókun 6 við fríverzlunarsamn- „Biójið og yður mun gefast Leitið og þór munuð finna. Knýið á og fyrir yður mun upplokið verða.“ Fjallræðan. Þetta er eitt af boðorðum Krists til okkar mannanna, til þess að komast i samband við Drottin, verðum við að tala við Hann í bæn — grundvöllur hennar er trúin á almætti guðs og friðþægingar- og frelsunarstarf Jesú Krists hér á jörð öllu fólki til þegnréttar í.ríki guðs. Séra Hallgrímur Pétursson segir um bænina — „Lykill er hún að Drottins náð.“ Náðin er ein af hinum dýrmætustu gjöfum Guðs til okkar allra. Bænin til Drottins er lifandi orð. Hún nær yfir víðáttumikið svið, í lífi okkar manna og á vegum Guðs kraftar. Orð Guðs eru frækorn, af þeim blómstrar jörðin. Hjarta manns- ins er sáðland Drottins svo að fólkið blómstri I trú. En það getur ekki orðið, án þess að tala við Drottin í bæn. Ef svið bænarinnar er náið athugað, kemur margt í ljós. Bænir okkar verða að vera í samræmi við kenningu Krists. Ilann sagði að í sínu nafni ættum við að biðja föðurinn. Það væri skilyrði fyrir bænheyrslu. Það er raunar það að biðja í trú — vera ing Islands og Efnahagsbanda- lagsins veitir hverju einu hinna níu ríkja Efnahagsbandalagsins rétt til að beita neitunarvaldi gegn því, að samningurinn komi til framkvæmda að því er varðar fiskafurðir og þar af leiðandi tollalækkun á íslenzkum fiskinn- flutningi til landa Efnahags- bandalagsins. Þetta er einmitt það, sem ríkisstjórn Sambands- lýðveldisins Þýzkalands hefir gert, eina landið af hinum níu löndum Efnahagsbandalagsins, sem hefir fundið sig knúið til að beita slíkum efnahagslegum bola- brögðum gegn Islandi, samstarfs- aðila sínum í Evrópuráðinu. Þeir hafa reynt að réttlæta þessa harðýðgislegu framkomu með því að halda fram, að þetta hafi þeir gert vegna þess, að þeim hafi ekkí tekizt að ná viðunandi samkomulagi við tsland um veiði- rétt vestur-þýzkra togara innan 50 mílna fiskveiðilögsögunnar. Þetta er vissulega furðulegt, þegar haft er í huga, að íslenzku og brezku rikisstjórnunum tókst að ná sam- komulagi varðandi útfærslu fisk- veiðilögsögu okkar og sama er að segja um Island og Belgíu. Hér er um að ræða tvo samstarfsaðila í Evrópuráðinu, sem höfðu eins mikilla fiskveiðihagsmuna að gæta og Vestur-Þýzkaland á Norð- ur-Atlantshafssvæðinu. Afleiðing þessa er óhjákvæmi- lega sú, að það er ört vaxandi halli á verzlunarviðskiptum Islands við Efnahagsbandalagið. Þessi við- skiptahalli var nær fjórum sinnum meiri 1974 en árið áður. Og ef við líturn nánar á hinn vaxandi viðskiptahalla Islands við Efnahagsbandalagið Sjáum við, að hann var árið 1974 allt að 70% af heildarviðskiptahalla íslands það ár. Heldur er nú þetta ömurleg mynd af þróun viðskipta og áhrif- um ffíverzlunarsamnings Islands við Efnahagsbandalagið, ef við höfum í huga, að fríverzlunar- samningi þessum var ætlað að ná sem jöfnustum ábata fyrir báða aðila. Þetta kemur raunar ekki á óvart, þar sem báðir aðilar frí- verzlunarsamningsins voru sam- mála um við samningsgerðina, að kristinn. — Sá sem ekki á trúna, getur ekki notið gjafa bænar- innar. Hann á vissulega bágt, þótt hann ekki finni til þess —. Eitt boðorð Krists í fjallræðunni, er þetta: „Leitið fyrst ríkis Guðs og réttlætis og þá mun allt þetta veitast yður að auki“ (Allt sem við þurfum). Til þess að finna Guðs ríkið, þarf að fara bænar- innar leið. Hún liggur upp til Guðs. Ekkert vantar þjóðirnar frekar en almenna vakningu í trúnni, I orði Guðs. Til þess að öðlast hana, verður að biðja Drott- in. Ef nógu margir bæðu um vakninguna, mundi hún koma yf- ir fólkið, frá Guði. Bænin er okkur ávallt tiltæk, jafnvel í önnun daganna, þótt við njótum hennar best á kyrrum stundum. Þjóðirnar byggjast upp af fjöl- skyldum þeirra. Bænin er besta kjölfesta og viðhald hverrar fjöl- skyldu einkum þá beðið er sam- eiginlega í trú og lítillæti. Mörg mikilmenni sögunnar hafa þakkað heimanbúnaði, í trú og bæn, farsæld og gengi ævi sinnac — Bænin er mesti andlegur kraft ur sem við eigum völ á og ráð á. Hún veitir lífsorku og getur fyllt okkur lífsdygðum, sem Guði eru þóknanlegar. Bænin eflir góða Island væri ekki nægilegt að ein- skorða samkomulagið við iðnaðar- framleiðslu. Við vorum sammála um á þeim tíma, að það væri nauð- syn, að Efnahagsbandalagið lækk- aði tolla áíslenzkum fiskafurðum, svo náð yrði sanngjörnum jöfnuði í okkar tvfhliða viðskiptum. Þessi ofstopafulla og einstreng- ingslega framkoma af hálfu okkar vestur-þýzka samstarfsaðila í Evr- ópuráðinu hefir haft þær mjög svo alvarlegu afleiðingar að úti- loka raunverulega markaði i Efnahagsbandalaginu fyrir Is- land með sína einhliða efnahags- starfsemi, sem í utanríkisverzlun og gjaldeyrisöflun er háð fiski og fiskafurðum sem nemur 80— 90%. Með þessum hætti hefir Is- land verið neytt til þess að leita markaða annars staðar fyrir sinn útflutning einkum í Norður- Ameríku, Sovétríkjunum og öðr- um löndum Austur-Evrópu. Þetta getur naumast verið álitin heil- brigð þróun, hr. forseti, og áreið- anlega ekki „í anda evrópskrar samstöðu". Mér þykir miður, hr. forseti, ef það hljóðar sem endurtekning, en ekki verður of oft lögð áherzla á samvizku, sem er okkar fjár- sjóður á himnum og okkar vega nesti yfir á land lifenda —. Það hefir verið vandlega athugað í Bandaríkjunum, að trúað og kristilega bænrækið fólk, er heilsubetra og langlífara en fólk, sem er vantrúað og trúlaust. Syndugt líf eyðir lífsorkunni og manngildinu. Við þau vandræði losar bænin fólkið, ef það biður í trú á Drottin. Bænir til Drottins fjarlægja okkur syndir og allt sem illt er. Bænir til Drottins bæta andlag umhverfisins, bænir okkar fyrir öðru fólki bætir líf þess. Bænin leiðir til skilnings á því, hvað við erum vanmáttug, án hjálpar Guðs. Stöðugleg ástundun bæna til Guðs færir okkur nær og nær vizku Hans og vilja. Allt frá frumkristninni og til þessa dags, hafa verið uppi menn og konur, sem læknað hafa hina furðuleg- ustu sjúkdóma fólks með bæn til Guðs — samkvæmt ákvörðun að ofan —. Oft hefur fólk bjargast úr br.áðum háska með þvi að biðja Guð um hjálp. Með því að finna til vanmáttar okkar, án hjálpar Guðs, þóknumst við Honum í lítil- læti. Kristur ^sagði: „Hver sem ekki tekur á móti Guðsríki eins og barn, mun alls ekki inn í það koma“ (Mark 10:15) Barnshugur- inn er Iitillátur og hreinn. En Kristur varar okkur við að of- þyngja hugann með veraldlegum hugsunum. — Kristur sagði: „Komið til mín allir þér, sem erfiði og þunga eru hlaðnir og eg mun veita yður hvíld. Lærið af mér, því að ég er hógvær og af hjarta lítillátur og þá skuluð þér finna sálum yðar hvíld“ (Matt. 11. mikilvægi sjávarútvegsins fyrir efnahagslíf Islands. Af þessum ástæðum hefir íslenzka ríkis- stjórnin fylgst með og verið virk- ur þátttakandi í Hafréttarráð- stefnu Sameinuðu þjóðanna og bindur miklar vonir við störf hennar. Mikilvægur árangur hef- ir þegar náðst á þessari ráðstefnu á sumum sviðum og víðtæk sam- staða fengist. Meðan þessu hefir farið fram hefir ríkisstjórn Islands staðið frammi fyrir því ástandi, að fisk- stofnarnir á Islandsmiðum halda áfram að vera undirstaða efna- hagslífs okkar, — það er spurn- ingin um líf eða dauða fyrir þjóð okkar. Nær helmingur af heildar- aflamagninu á þessu hafsvæði er áfram tekinn af erlendum fiski- mönnum frá ríkjum, er stunda veiðar á fjarlægum miðum. Það eru sívaxandi veiðar á ókyn- þroska fiski af hálfu erlendra fiskimanna, svo að endurnýjun fiskstofnanna er i síaukinni hættu. Og íslenzki fiskiskipaflot- inn er nú fullkomlega fær um að hagnýta Ieyfilegan hámarksafla á þessu hafsvæði. Með tilliti til þessara stað- reynda ákvað rikisstjórn Islands að grípa til nauðsynlegra aðgerða með hliðsjón af þeirri þróun þjóð- arréttar, sem samstaða hefir náðst um og sýnt hefir sig í störf- um Hafréttarráðstefnunnar. Þess vegna var reglugerð gefin út 15. júlí s.I. um útfærslu fslenzku fisk- veiðimarkanna i 200 sjómflur. Hin nýja reglugerð gengur i gildi 15. október 1975 eða eftir nokkra daga. Jafnframt er unnið að því að koma á fót vísindalegri stjórn- un á fiskveiðunum, sem mun fela í sér takmarkanir fyrir íslenzka fiskveiðiflotann, jafnvel eftir að veiðum útlendinga linnir. Til- gangur þessa er að tryggja há- marksafla til langframa undir vís- indalegri stjórn. Aðgerðir íslenzku ríkisstjórnar- innar eru í samræmi við þá sam- stöðu, sem fram hefir komið á Hafréttarráðstefnunni þess efnis, að strandríkið geti ákveðið leyfi- legan hámarksafla innan 200 sjó- mílna og einnig ákveðið mögu- leika sina til að hagnýta hann. 29—30). Kristur er sú fyrirmynd sem við eigum að likjast — Krist- ur sagði: „Ef þér standið stöðugir í orði mínu, þá eruð þér sannar- lega lærisveinar minir og munuð þekkja sannleikann og sann- leikurinn mun gera yður frjálsa" (Jóh. 8. 31—32). Ef við næðum þessu marki og berum kærleik til sannleikans, þá hefir trúin náð tökum á okkur. En „án trúar er ómögulegt Guði að þóknast," segir í Guðsorði. Bænin er okkar hjálp til að ná þessari full- komnun. Guð hefir gefið okkur hæfileikann til að trúa. Hann er með okkur er við biðjum Hann. Þá er okkur borgið. Það hefir tfúaður maður sagt: „Það er unnt að leysa sérhvern vanda og leysa hann rétt, ef þú biður og bænin leysir úr læðingi orku, sem jákvæður árangur fylgir“. Það Þar sem strandrfkið hefir ekki möguleika til að hagnýta leyfileg- an hámarksafla að öllu leyti á það að gefa öðrum rikjum aðgang að því sem umfram er. Ríkisstjórn Islands er til með að gefa sanngjarnan umþóttunar- tíma til þess að létta efnahagslega örðugleika erlendra fiskjmanna. En þá ber að hafa I huga, að stefna okkar í þessum málum hef- ir verið alkunn í nær 30 ár og getur því ekki komið neinum að óvörum, að minnsta kosti ekki þeim þjóðum, sem sent hafa fiski- menn sína á íslandsmið. Þá er þess og að gæta, að við munum ekki láta undan efnahagslegum þvingunum, sem við höfum orðið fyrir frá Sambandslýðveldinu Þýzkalandi, sem hefir sett á lönd- unarbann fyrir togara okkar i þýzkum höfnum og beitt neitun- arvaldi sínu til að koma i veg fyrir, að tollalækkanir í Efna- hagsbandalaginu kæmu til fram- kvæmda. Það ber vissulega að harma framkomu þeirra, sem neita að viðurkenna bráða nauðsyn á að- gerðum til verndar og varðveizlu fiskuppeldisstöðva Islandsmiða, þessarar miklu liffræðilegu upp- sprettu Norður-Atlantshafsins. Og það er sérstaklega hryggilegt, þegar sum efnahagslega háþróuð og öflug ríki, þrátt fyrir tiltölu- lega óverulega þjóðarhagsmuni, stofna til hörkulegra refsiaðgerða gegn lítilli samstarfsþjóð fyrir að vera með verndaraðgerðum að leitast við að varðveita uppsprett- una að lífsmöguleíkum sínum i framtiðinni. Þetta er „í anda evr- ópskrar samstöðu“, eða hitt þó heldur. Um leið og ég greiði at- kvæði með ályktunartillögunni, sem nú liggur fyrir þessu þingi og ef til vill með ákvörðunartillög- unni, ef breytingartillaga nr. 2 verður samþykkt, vil ég skora á okkar vestur-þýsku félaga með þeim alvöruþunga, sem brýn nauðsyn krefur, að endurskoða afstöðu þeirra í þessum málum og gera íslandi mögulegt að taka upp á nýjan leik eðlileg verzlunarvið- skipti við allar níu þjóðirnar inn- an Efnahagsbandalagsins hið allra fyrsta. væri óframkvæmanlegt að skrá alla viðburði sem hægt væri að tína saman um kraft og verkanir bænarinnar í lífi fólksins frá önd verðu. Leyfi mér að birta hér, aðeins tvo viðburði, úr eigin lífi. Ungur var ég eitt ár fjárhirðir á sauðfjárræktarbúi í Noregi, sem var ríkisbú. Um sauðburðinn varð að vera hjá hverri rollu er hún bar. En ærnar voru 200 að tölu. Þetta tók hátt á þriðju viku. Ég hafði þriggja klukkutíma hvíld tvisvar á sólarhring og átti þá að sofa. En svo fór að ég tapaði svefninum alveg. Einn morgun, er ég hafði verið svefnlaus í 14 sólarhringa, fór ég ekki á fætur. Var þá búinn að tapa matarlyst og orðinn hálf undarlegur. Hús- bændur mínir komu að vitja mfn. En ég sagði þeim ekki hvernig þetta var með mig. Starfsfólk búsins hélt til í öðru húsi en bú- stjórinn, með sitt fólk. Ég hafði herbergi á efri hæð. Á neðri hæð bjuggu roskin hjón með syni sinum uppkomnum. Þeir feðgar unnu í þorpi þar skammt frá og svo á búinu, þegar þess þurfti með. Þau hétu Nellí og H. Nilsen. Hann kom inn til mín þennan morgun og tjáði ég honum hvernig þetta væri með mig. Hann varð grátklökkur og taldi mig búinn að vera. Ég man hann sagði, er hann fór út frá mér, „Du har vært en snille dreng Jón.“ Síðla þennan dag kom svo Nellí til mfn. — Ég vissi að hún var óvenjulega sterk trúkona. Það var eins og hún ætti i mér hvert bein. Hún sagði mjög fljótlega, „Nu skal við beðe,“ hún kraup á knén Framhald á bls. 11 Jón H. Þorbergsson: Bænin

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.