Morgunblaðið - 11.10.1975, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 11.10.1975, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. OKTOBER 1975 19 Afmœliskveðja: Guðrún Sigvaldadóttir Mosfetii — Systurkveðja Þótt nú séu liðin fimmtán ár siðan ég varð hálfgerður hraun- búi hér syðra hvarflar þó hugur- inn oft norður um heiðar og upp rifjast minningar löngu liðinna ára. Nú á þessu hausti hafa minn- ingarnar verið áleitnari en stund- um áður og þá stefnir hugurinn að Mosfelli, blómlegu býli í vest- anverðum Svínadal í Húnaþingi. Þar hafa um hálfrar aldar skeið búið heiðurshjónin Guðrún Sig- valdadóttir og Július Jónsson frá Brekku í Þingi. Það var fyrir fjörutiu og fimm árum að ég kom þar fyrst, þá var systir mín nýlega orðin húsfreyja þar. Reisn býlisins var ekki mikil. Jörðin var illa hýst og túnskækill- inn mjög lítill. En ungu hjónin voru framgjörn og stórhuga og hófust strax handa um ræktun og uppbyggingu og nú er Mosfell orðið eitt af bezt setnu býlum í héraðinu. Hvorugt hjónanna hef- ur heldur sparað sinn vinnudag ellegar metið verkalaun í krónum að kveldi hvers dags. Lífsánægja þeirra hefur verið að hlynna að lífgrösum vallarins og breyta gráum karga í græna teiga. Þau hjón hafa ekki átt börn saman en tekið að sér þrjú fóstur- börn og umvafið þau fullkomn- ustu foreldraástúð, enda þetta Sjötug barnauppeldi fært þeim mikla gleði. Meðan börnin mín voru á upp- vaxtarárum áttum við öll fjölskyldan yndislegt athvarf á Mosfelli margt sumar og reyndar hvenær sem við þurftum á að halda. Guðrún og Júlíus hafa búið saman í hjónabandi 51 ár. Það er farið að halla á ævidaginn en glaðværð þeirra og gestrisni er enn i engu áfátt. Það er siðbúin afmæliskveðjan til þin systir min, en lífsreynsla sjötiu ára hefur án efa kennt þér það, að í önn hversdagsins verða stundum lykkjuföll, svo að seinna gengur en til er ætlast. Ósk mín á þessum tímamótum ævi þinnar er sú, að hinn góði andi, sem fylgt hefur heimili þínu verði I framtíðinni i fylgd með börnum ykkar og barnabörnum. Það hefur verið bjart yfir æviskeiði ykkar. Nú gengur sól til vesturs, ylgeislar hennar leika um hvítar hærur. En úr brosandi barnsaugum skin við ykkur morgunbjarmi framtíðarinnar á Mosfelii. Ólína. ŒjJricícwsa^lúMfuri na Dansað \r Félagsheimili HREYFILS i kvöld kl. 9—2. (gengið inn frá Grensásvegi.) Fjórir félagar leika Aðgöngumiðar i sima 85520 eftir kl. 8. ■o Diskó — Restaurant — Diskó — Restaurant — 3> SESAR tA Q> c ! Rest ErSendur Magnússon ! í velur lögin í kvöid o í-' 'O Opið alla daga frá kl. 8 e.h. nema miðvikudaga. o Q Gestir athugið: Snyrtilegur klæðnaður. 1 X í ■ Rest — Diskó — Rest -— Diskó — Rest — Diskó — Rest Guðrún Á. Simonar skemmtir í kvöld. Dixelandhljómsveit Árna ísleifs sér-um fjörið til kl. 2. Munið okkar Ijúffenga kalda borð i hádegi. HÓTEL BORG co < o o -J o > I (!) < O O JUDAS - HVOLL - JUDAS Júdas að Hvoll í kvöld Sætaferðir frá B.S.Í. Munið nafnskírteini HVOLL - JÚDAS - HVOLL - JÚDAS — HVOLL - JÚDAS - HVOLL — JÚDAS X < O r c. O ö > (!) X < o r r VIÐ BYGGJUM LEIKHÚSI SIÖASTA SYIMING vegna þess að BESSI BJARNASÓN er á förum til útlanda SIÐASTA SYNING Skemmtið ykkur og hjálpið okkur að byggja leikhús. Miðnætursýning Austurbæjarbíói í kvöld kl. 23.30 Aðgöngumiðasalan í Austurbæjarbíói er opin frá kl. 1 6.00 í dag. Sími 11 384. VIÐ BYGGJUM LEIKHUS

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.