Morgunblaðið - 05.11.1975, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. NOVEMBER 1975
11
ÞU AUGLYSIR UM
ALLT LAND ÞEGAR
ÞÚ AUGLÝSIR í
MORGUNBLAÐINU
Jósep Stalfn
Ævisaga
Stalíns
komin út
ÆVISAGA Jóseps Stalfns eftir
J.T. Murphy er komin út í ís-
lenzkri þýðingu Sverris KristJ-
ánssonar. Formála skrifa Sir
Stafford Cripps og höfundur.
„I bók þessari rekur höfundur-
inn ævi Stalíns frá bernsku hans í
þorpinu Gorí í Georgíu allt til
loka síðari heimsstyrjaldar,“ seg-
ir á kápusíðu. „Sagt er frá náms-
árum hans á prestaskóla í Tíflis
og brottrekstri hans úr skólanum
vegna byltingaráróðurs. Hermt er
frá fyrstu árum hans í stjórnmála-
baráttunni, útlegð hans I Sfberíu
og flótta hans úr fangavistinni,
fyrstu kynnum hans af Lenin og
leynistarfi hans fyrir flokkinn,
hruni keisaraveldisins 1917, til-
raun Kerenskís til að koma á
borgaralegri stjórn og valdatöku
bolsévíka...“
Bókin er 337 bls. að stærð. Út-
gefandi er Kristján Júlfusson,
Reykjavík.
Félög með skipulagðar skíðaferðir til Evrópu
A skíðum
í hlíóum Alpafjalla
Eins og síöastliöinn vetur bjóöum viö nú viku og
tveggja vikna skíðaferðir til Kitzbuhel og St. Anton
í Austurríki á veröi frá 41.700 og 50.600 krónum.
í Kitzbuhel og St. Anton eru jafnt brekkur fyrir
byrjendur, sem þá bestu. Þar er verið á skíöum í
sól og góðu veöri allan daginn, og þegar heim er
komið, bíður gufubaö og hvíld, góöur kvöldmatur og
rólegt kvöld viö arineld, - eöa upplyfting á
skemmtistað ef fólk vill heldur.
Morguninn eftir, snemma, er stigið á skíöin og
haldiö beint upp í brekkur - svona gengur þetta
dag eftir dag eftir dag, meöan á dvölinni stendur.
Sem sagt, dýröleg dvöl í alþjóðlegu andrúmslofti
meö fullkomnu ”apré ski”.
Þeir sem velja tveggja vikna feröir, geta dvalið
viku á hvorum staö ef þeir kjósa heldur.
Skíðafólk leitið upplýsinga hjá söluskrifstofum
okkar, ferðaskrifstofunum og umboösmönnum.
FLUGFÉLAG LOFTLEIDIR
ÍSLAJVDS
Uppblæstri o g sandf oki
má verjast með plastkvoðu
23,5% aukning á freðfísk-
framleiðslu SIS frystihúsa
Komið er út á vegum Rann-
sóknarstöðvarinnar Áss f Hvera-
gerði rit um rannsóknir á meia-
og sandjarðvegi, þegar plast-
kvoðu er sprautað á eftir sáningu.
Rannsóknirnar höfðu á hendi dr.
L. Steubing prófessor og U.
Kneiding, Dipl. Bil., frá Grasa-
fræðideild Justus Liebing-
háksólans f Giessen f Þýzkalandi,
og rita þeir um niðurstöður sfnar.
Ritið greinir frá tilraunum til
að græða upp melajarðveg f Efri-
hreppi I Skorradaishreppi, og fok-
sandjarðveg I Þorlákshöfn.
Sprautað var á jarðveginn plast-
kvoðuupplausn til að verjast fræ-,
áburðar- og jarðvegsfoki. Sam-
eiginlegt með þessum tveimur til-
raunastöðum var skortur á nær-
ingarefnum I efstu jarðvegslögum
og lega þeirra er opin fyrir vind-
uppblæstri.
Til að binda jarðveginn voru
notuð tvö efnasambönd. Sáð var I
tilraunareiti grasfræblöndu og
einnig snarrótarpunti og tilraunir
bornar saman.
Við tilraunirnar kom m.a. fram,
að áburður og agrosiláburður
bæta mela- og sandjarðveg, sem
hefur lítil jarðvegsefnaskipti og
lélega loftun og nftrun. Einnig að
við áburðargjöf og sérstaklega að
viðbættu agrosil-efni jókst fóður-
gildi grasanna, einkanlega
hækkaði próteininnihaldið tals-
vert meir en annað hráefnisinni-
hald. Gróðurhúsatilraunir sýndu
að þegar jarðvegshitinn lækkaði,
þá minnkaði fosforuppsog gras-
anna og þarmeð næringargildi
þeirra. Þegar næringarefnaskort-
ur er í jarðvegi komu fram alveg
sérstaklega ofangreind áhrif.
Niðurstöður þessara tilrauna á
bersvæði og í gróðurhúsi sýna að
hægt er að rækta gras með hjálp
ólfkra efnasambands á vindsöm-
um og uppblásnum jarðvegi, segir
f skýrslunni, og einnig á eldfjalla-
ösku, með því að sá grasfræi, bera
áburð á og sprauta plastkvoðu-
upplausn yfir til að verjast upp-
blæstri og uppgufun úr jarðvegi
og jarðvegsfoki líkt þvf sem á sér
stað í Þorlákshöfn.
VERULEG aukning hefur orðið á
freðfiskframleiðslu Sambands-
frystihúsa á þessu ári. Um sfðustu
mánaðamót var framleiðsia á
frystum bolfiski og flatfiski orðin
16,700 festir, en var 13.500 festir á
sama tfma f fyrra. Aukningin er
23,5%
Þessar upplýsingar eru hafðar
eftir Sigurði Markússyni framkv.
stj. sjávarafurðadeildar SlS f
Sambandsfréttum fyrir nokkru.
Hjá Sigurði kemur einnig fram,
að í þessum mánuði verður vænt-
anlega lokið afskipunum á freð-
fiski upp f samninga þessa árs við
Sovétmenn og á næstu mánuð-
um verður einnig lokið við að
afgreiða upp f samninga við
Tékka. Til Sovétríkjanna vara f ár
23.000 lestir, sem skiptist í 17.000
lestir af flökum og 6.000 lestir af
heilfrystu. Til Tékkóslóvakíu fara
3.000 lestir og er meginhluti þess
magns 2.700 lestir, ufsaflök. Að
vanda eru þetta sameiginlegir
samningar Sjávarafurðadeildar
og Sölumiðstöðvar hraðfrystihús-
anna.
Sigurður Markússon gat þess
sérstaklega, að freðfiskútflutn-
ingurinn til Sovétrfkjanna væri
verulega meiri í ár en verið hefði
síðustu árin. Þannig hefði hann
verið um 16 þúsund lestir á s.l.
ári, en aðeins 12 þúsund lestir á
árinu 1973.
Al'Ol.YSINO.lSIMINN KR:
JRarfltinhlabib