Morgunblaðið - 05.11.1975, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. NÖVEMBER 1975
Keflavíkurflugvöllur:
Framkvæmdir
19751535 m.kr.
Áætlaðar framkvæmdir 1976 2530 — 2890 millj. kr.
ISLENZK fyrirtæki munu á
þessu ári vinna fyrir 1535 m.kr. á
Keflavíkurflugvelli (efni og
vinna) — 270 fjölskyldur varnar-
iiðsmanna og erlends starfsliðs á
Keflavfkurflugvelli búa nú utan
vamarsvæðisins — eða jafnmarg-
ar og á árinu 1974. Á varnar-
svæðinu eru nú 3007 hermenn
eða 310 færri en f fyrra. A launa-
spurn Gils Guðmundssonar um
þetta efni.
Búseta utan varnarsvæðis.
Varnarliðið hefur heimild til að
hafa 270 fjölskyldur búsettar
utan varnarsvæðis. Samkvæmt
upplýsingum ráðherra skiptist sú
búseta sem hér segir árin 1974 og
1975:
I þessum tölum eru ekki taldar
rúmlega 30 fjölskyldur, þar sem
annar hvor makinn er fslenzkur
ríkisborgari og á skv. lögum rétt
til búsetu hér á landi.
Islendingar, sem starfa f
þjónustu varnarliðs
Fyrirspurn um fjölda íslend-
inga, er voru við störf á Kefla-
skrá hjá varnarliðinu eru 218
óbreyttir borgarar, aðallega
konur og aðstandendur varnar-
liðsmanna. Hinn 1. október sl.
voru 121 bandarfkjamaður á verk-
samningi við varnarliðið, sér-
fræðingar f tækjabúnaði,
kennarar, starfsfólk Rauða-kross
og annað sérhæft fólk. Þetta kom
fram f svari Einars Agústssonar
utanrfkisráðherra f sameinuðu
þingi f gær, er hann svaraði fyrir-
Keflavík ...........1974
Njarðvík ...........1974
Sandgerði ..........1974
Hafnarfjörður ......1974
Reykjavík ..........1974
Vogar...............1974
Hafnir .............1974
Kópavogur ..........1974
Garðahreppur .......1974
Samtals
166 fjölsk. 1975 166 fjölsk.
74 fjölsk. 1975 74 fjölsk.
6 fjölsk. 1975 10 fjölsk.
5 fjölsk. 1975 9 fjölsk.
9 fjölsk. 1975 5 fjölsk.
2 fjölsk. 1975 3 fjölsk.
4 fjölsk. 1975 2 fjölsk.
2 fjölsk. 1975 1 fjölsk.
2 fjölsk. 1975 0 fjölsk.
270 fjölsk. 270 fjölsk.
Teeny flip
Teeny flip Slip
Doreen
Poesie decor V
Poesie extra soft
Jane Set
Pony H
Sloggi mini
Amor teen 1111 Fabienne
Amor teen 1112 Fabienne Slip
Amor teenlllS Amourette click
Amor teen V Jolly cotton
Butterfly FT ____
Butterfly V
Trhimflh
AGUST ARMANN hf.
UMBOÐS- OG HEILDVERZLUN - SUNDABORG - REYKJAVÍK
Einar Agústsson
utanrfkisráðherra.
víkurflugvelli í október 1974 og á
sama tíma 1975, svaraði ráð-
herrann þannig:
„Miðað við 1. október 1974
störfuðu alls 1094 fslendingar
ýmist í þjónustu varnarliðsins
sjáifs eða aðila, sem unnu fyrir
varnarliðið samkvæmt verk-
samningum. Sambærileg tala 1.
október 1975 var 1422. Aukning á
einu ári því 328 manns. Fyrst og
fremst vegna aukinna byggingar-
umsvifa. Hér eru ekki taldir með
þeir sem að hluta vinna fyrir
varnarliðið með ýmsum hætti svo
sem t.d. starfsmenn flugfélaga,
skipafélaga, opinberir starfs-
menn o.þ.h.“
Bandarfkjamenn sem starfa á
Keflavfkurflugvelli.
Fyrirspurn um fjölda banda-
ríkjamanna, hermanna og
annarra, er störfuðu á varnar-
svæðinu í október 1974 og á sama
tíma 1975 svaraði ráðherrann
þannig:
„Hermenn voru 1. október 1974
alls 3.317. Þeir voru 3.007, 1.
október s.l. Hefur þeim því
fækkað á einu ári um 310.
Á launaskrá hjá varnarliðinu
voru 218 óbreýttir borgarar 1.
október 1974. Þeir voru 205 ári
síðar.
Langstærsti hópur þessa fólks
eru konur og aðrir aðstandendur
varnarliðsmanna.
Hinn 1. október 1974 voru sam-
tals 113 bandaríkjamenn á sér-
stökum verksamningum við
varnarliðið. Þeir voru 121 nú 1.
október s.l.
Hér er um að ræða tæknimenn
eða sérfræðinga í hvers konar
tækjabúnaði, kennara, Rauða-
kross starfsfólk og annað sérhæft
fólk.“
Verktakafyrirtæki og fram-
kvæmdir á Keflavfkurflugvelli.
Fyrirspurn um fjárhæð kostn-
aðar við framkvæmdir á varnar-
svæðinu á árunum 1975 og 1976
(áætlað) og íslenzk verktakafyrir-
tæki var svarað sem hér segir:
„Ég mun svara þessum tveim
liðum fyrirspurnarinnar I einu
lagi vegna þess að þetta fer
saman. íslenskir Aðalverktakar
annast allar nýbyggingar fyrir
varnarliðið, og Keflavíkurverk-
takar annast viðhaldsvinnuna.
Varnarliðið sjálft annast aðeins
daglegt viðhald og viðgerðir, sem
unnar eru af föstum starfsmönn-
um þess, auk allskonar annarra
þjónustustarfa. Gert er ráð fyrir
því, og má það teljast nokkuð
ábyggileg tala, að fyrirtækin
muni á þessu ári vinna fyrir u.þ.b.
1.535 milljónir króna. Af þessari
upphæð má telja efniskostnað
nema um þriðjungí, þannig að
rúmlega einn milljarður króna af
þessari upphæð verða greiðsla
vinnulauna á einn eða annan hátt.
Að því er árið 1976 varðar er
erfitt að koma með nákvæmar
tölur af ýmsum ástæðum. T.d. er
þjóðþing Bandaríkjanna ekki enn
búið að samþykkja allar fjárveit-
ingar fyrir þetta tímabil. Einnig
geta erfiðleikar við efnisútvegun
tafið framkvæmdir. Því er gert
ráð fyrir að framkvæmdir á árinu
1976 verði einhversstaðar á bilinu
milli 2.530 og 2.890 milljónir
króna. Er þá miðað við núverandi
gengi á Bandaríkjadollar. Gert er
ráð fyrir að efniskostnaður verði
svipaður hundraðshluti og áður
eða %. Ættu þá vinnulaun á einn
eða annan hátt af starfsemi
þessara tveggja verktakafyrir-
tækja að nema frá 1.690 — 1.930
milljónum króna. Atvinnuástand-
ið á umræddu svæði gæti einnig
haft áhrif á framkvæmdir þær er
hér um ræðir“
„Alþingi skipi nefnd”:
A ð greiða til
baka hálfa milljón
Ragnar Arnalds (K) mælti í
gær fyrir tillögu til þingsálykt-
unar þess efnis að Alþingi
„skipi 5 manna nefnd“ til að
rannsaka fjárreiður stjórn-
málaflokka og semja frumvarp
til laga um starfsemi þeirra.
Taldi hann frumvarp Eyjólfs
K. Jónssonar um bókhalds- og
framtalsskyldu stjórnmála-
flokka og að hluta til skattfrelsi
framlaga til starfsemi þeirra
fela það I sér m.a., að Ármanns-
fell fengi endurgreitt meir en
hálfa milljón af þegar inntu
framlagi til Sjálfstæðisflokks-
ins. Ekki veitti félaginu af, þar
sem skattskyldar tekjur þess
hefðu verið um 240 þús. krón-
ur!
Eyjólfur Konráð Jónsson (S)
taldi hérhallað verulega réttu
máli. I fyrsta lagi gerði frum-
varpið ráð fyrir þvi, að skatt-
frjáls framlög einstaklinga
gætu aldrei orðið yfir 5% af
nettótekium. Að sögn R.A.
væru nettótekjur Ármanns-
fells, sem raunar kæmu frum-
varpi sínu ekkert við, 240 þús.
5% af þeirri upphæð væri um
12 þús. kr. og skattur af þeirri
fjárhæð þaðan af minni. Hér
væri þvi ýkt og ósatt sagt um
nokkur þúsund prósent. I öðru
lagi mætti benda á það, að þál.
RA fjallaði um, að Alþingi
„skipaði nefnd“ o.s.frv. Hver á
að skipa nefndina, spurði þing-
maðurinn, forseti Alþingis,
skrifstofustjóri eða sendillinn?
Tillaga hans og málflutningur-
inn væri því í samræmi hvort
við annað. — Frumvörp sín
miðuðu efnislega að þvf að
setja heilbrigða löggjöf um
fjárreiður stjórnmálaflokka.
Um þetta efni ættu að fara
fram ábyrgar og málefnalegar
umræður, en ekki af því tagi,
sem Ragnar Arnalds iðkaði.
Nokkrar umræður urðu um
tillöguna. Forseti neðri deildar.
Ragnhildur Helgadótt-
ir, flutti þar athyglisverðar
ábendingar um hugsanlega lög-
gjöf um starf og stöðu stjórn-
málaflokka í lýðræðisþjóðfé-
lagi, sem verða gerð ítarleg skil
á þingsfðu Mbl. síðar.
AIMAGI
■
/