Morgunblaðið - 26.11.1975, Page 2

Morgunblaðið - 26.11.1975, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 1975 Vélskófla ók á síló Stjórnandinn látinn SÁ ATBURÐUR varð við sorp- eyðingarstöð Reykjavíkurborgar á Artúnshöfða skömmu fyrir há- degi f gær, að vélskðfla ók á töiu- verðri ferð á sflð og fór hús skófl- unnar af að mestu leyti. Stjórn- andi skóflunnar var eins fljótt og unnt reyndist fluttur á slysadeild Borgarspítalans en hann var lát- inn þegar þangað kom. Áverkar voru á líkinu, en lækn- ar treystu sér ekki til að skera úr um það hvort maðurinn hefði lát- izt af völdum áverkanna eða orðið bráðkvaddur undir stýri vélskófl- unnar. Maðurinn var 53 ára gam- all. Krufning mun væntanlega skera úr um dánarorsökina. Bjargaði 4 mönnum eftir að bátur þeirra sökk VÉLBÁTURINN Haukur SU 50 frá Djúpavogi sökk 22 sjómflur SA af Stokksnesi um kf. 20.30 f gærkvöldi. Fjórir menn voru á bátnum og komust þeir um borð f gúmbjögunarbát og var bjarg- að um borð f skuttogarann Skinn- ey frá Hornafirði fitlu síðar. Var Skinney væntanleg til Hafnar f Hornafirði um miðnæturleytið með skipbrotsmennina. „Björgun mannanna tókst ágæt- lega, þeir voru búnir að vera í gúmmíbátnum f um það bil hálfa klukkustund, þegar við komum að þeim,“ sagði Þorleifur Dagbjarts- son, skipstjóri á Skinney er Mbl. hafði samband við hann f gær- kvöldi. „Þeir voru fjórir í öðrum bátnum en hinn höfðu þeir bundið samsíða. Þegar við áttum eftir 8 mílur í Hauk sáum við hann á ratsjánni, en stuttu sfðar hvarf hann. Leið svo nokkur stund, en þá sáum við hvar flug- eldum var skotið á loft frá gúmmí- bátnum, og eftir það gekk allt vel." Hannes Hafstein framkvæmda- stjóri Slysavarnafélags Islands sagði að Tilkynningaskyldunni hefði borizt orðsending frá loft- skeytastöðinni á Höfn um að leki væri kominn að Hauki og var það um kl. 19.15 og var síðan haft Framhald á bls. 31. Sölustofnun lagmetisins: Birgðir umbúða nema 57,3 milljónum og uppskriftir keyptar fyrir 15 milljónir Starfsemi stofnunarinnar endurskóðuð frá grunni Alger sjálfhelda NlELS P. Sigurðsson, sendi- herra Islands f London, skýrði Mbl. frá því f gær, að um há- degishil f gær hefði hann átt hálfrar klukkustundar fund með Roy Hattersley aðstoðar- utanrfkisráðherra Breta um ástand í deilumáli þjóðanna. Roy Hattersley lýsti því við Nfels að hann væri tilbúinn að koma til viðræðna f Reykjavfk strax — ef fslenzk stjórnvöld vildu. Nfels P. Sigurðsson sagðist hafa skýrt Hattersley frá því að hann teldi gjörsamlega óhugsandi að Islendingar myndu taka f mál viðræður við Breta á meðan freigátur væru innan fiskveiðilögsögu ts- lands. Frumskilyrði viðræðna væri að flotinn yrði dreginn til baka og kallaður heim. Þegar Hattersley hafði fengið þetta svar, spurði hann sendiherra tslands að þvf, hvort fslenzka rfkisstjórnin væri tilbúin til að hætta áreitni sinni við brezka togara, gegn þvf að flot- inn hyrfi og viðræður gætu hafizt. Níels sagðist ekki hafa umboð til þess að segja neitt um þetta atriði eða gefa um það yfirlýsingu, að togvfra- klippingum yrði hætt. Þannig eru málin komin f sama horf og þau voru haustið 1973 — f algera sjálfheldu. STJÓRN Sölustofnunar lag- metisins, sem látið hefur gera sérstaka úttekt á stjórn og rekstri fyrirtækisins, hefur á grunni hennar mótað stofnuninni nýja stefnu í sölu- og markaðsmálum lagmetis. Stefna hinnar nýju stjórnar skiptist í þrjá höfuð- þætti, breytingu á innkaupa- málum stofnunarinnar, aukna áherzlu á markaðs- og sölumálum og könnun á nýjum leiðum til sölu á Bandarfkjamarkaði og loks að þróunarmál lagmetisiðnaðar- ins verði tekin skipulegri tökum. Hin nýja stjórn Sölustofnunar lagmetis sagði að henni hefði ekki þótt eðlilegt að ræða þessi mál opinberlega á meðan ekki hefði verið gerð úttekt á rekstri henn- ar og virkum framleiðendum hennar ekki skýrt frá niður- stöðum. Hinn 14. nóvember var síðan haldinn fundur með þessum aðilum og öllum viðkomandi hef- ur verið skýrt frá stöðu fyrir- tækisins og stefna nýrrar stjórnar hefur verið samþykkt. Fjárhags- staða stofnunarinnar er mjög erfið vegna mikils reksturs- kostnaðar, lítilla sölutekna og óeðlilega mikils umbúðalagers. Horfur eru slæmar á skjótum bata í markaðsmálum bæði í Evrópu, Japan og í Bandaríkjun- um. Stjórnin sagði í viðtali við Mbl. í gær, að hún teldi að svo alvarlega horfði í málefnum stofnunarinnar, að gerbreyta yrði starfsháttum og stefnu S.L., ef einhver von ætti að vera á því að 10 ára drengur á gjörgæzhideild eft- ir umferðaslys UMFERÐARSLYS varð á Bústaðavegi um hádegisbilið f gær. 10 ára drengur var á leið yfir götuna á merktri gagnbraut en varð þá fyrir fólksbifreið. Piftur- inn hlaut töluverða áverka á and- liti, mun hafa tvfkjálkabrotnað og hlotið fleiri meiðsli. Hann var fluttur á slysadeild Borgarspftalans og síðan á gjör- gæzludeild sömu stofnunar. Hann mun hafa misst meðvitund við slysið en var á batavegi í gær- kvöldi. Að sögn sjónarvotta var drengurinn að bíða eftir grænu ljósi á gagnbraut en hann mur. hafa farið út á götuna áður en ljósið kom og lenti þvf fyrir bíln- um. vinna bug á þeim erfiðleikum, sem stofnunin stæði frammi fyrir. Mikilvægast er að draga úr kostnaði við rekstur og skera „VEÐUR er gott og togararnir verða ekki fyrir áreitni varðskip- anna nú,“ sagði Davies eftirlits- maður brezka sjávarútvegsráðu- neytisins, sem er um borð f brezka verndarskipinu Star Aquarius á miðunum fyrir austan. Davies sagði að veiði tog- aranna væri mjög sæmileg og hann lét vel af ástandinu þar eystra. Freigátan Leopard var þá lagerhald umbúða niður í lág- mark, jafnframt þvf sem nauðsyn- legt er að veita meira fé til sjálfra sölumálanna, m.a. í Bandaríkjun- á hraðri Ieið til Star Aquarius, sem var ásamt nokkrum togurum norðaustur af Glettinganesi. Davies sagði að togararnir væru að veiðum, „sem þeim væri heim- ilt samkvæmt alþjððalögum. Við munum láta togurunum f té alla hugsanlega vernd, svo að þeir geti stundað veiðar sínar og brezku togaraskipstjórarnir eru stað- Framhald á bls. 31. um, ef von á að vera til þess að nýta þann stóra markað í náinni framtíð. Starfsmenn Sölustofnunar lag- metisins eru nú 7 á skrifstofu hennar, en að sögn stjórnar- manna voru starfsmenn þegar flest var 14 talsins, en þess ber þó að geta, að tveir þeirra voru hálfs- dagsmenn og þegar flest var voru mannaskipti á döfinni og einn starfsmaður um það bil að hætta. Því má raunverulega segja að flestir hafi starfsmenn verið 12. Sagði stjórnin að eftir sfnu mati hefði það verið allt og margt starfsfólk miðað við tekjur, en á þessum tíma var þó talsverð bjart- sýni um söluhorfur bæði á þessu ári og hinu næsta. Dreifingaraðilinn í Bandaríkj- unum, sem seldi afurðir S.L., reyndist ekki starfinu vaxinn. Hafði hann keypt af S.L. afurðir fyrir 1,5 milljón dollara, en sala þeirra í Bandaríkjunum gekk illa. Aðili þessi hefur starfað að dreif- Framhald á bls. 31. Ætluðu að kyrrsetja skipverja Othello Eggjum og grjóti kastað að þeim Neskaupstað 25. nóvember. MIKIL ólæti brutust út f Nes- kaupstað upp úr kl. 2 í dag, þegar brezka eftirlitsskipið Othello kom hingað með sjúkl- ing. Sjálfum gekk sjúklingnum greiðlega að komast á sjúkra- húsið, en fjórir sjómenn af Othello, sem fluttu hann f land, lentu f harðri eggjaskothrfð og grjótkasti. Fólkið ætlaði að stöðva lftinn bát, sem þeir komu á f land og kyrrsetja Bretana. Að lokum tókst lög- reglunni að stilla fólkið og komust þá Bretarnir út í Othello á ný, og hélt skipið þá þegar úr höfn. Othello kom hingað með sjúkan mann af dráttarbátnum Lloydsman, en þessi maður er Spánverji. Um svipað leyti og vart var við Othello var Ijóst, að mikil mótmælaalda myndi brjótast út f bænum. Um Ieið og skipið kom safnaðist saman mikill mannfjöldi á hafnarupp- fyllingunni, sennilega hátt í 300 manns og var stór hluti þessa fólks úr gagnfræða- skólanum. Héldu mótmæl- endur á ýmiskonar kröfu- spjöldum, sem á voru letruð slagorð á móti Bretum og ætluðu að standa kyrrir á meðan maðurinn færi f land. Fljótlega varð ljóst, að Bretarnir þorðu ekki að setja sjúklinginn á land við hafnar- bryggjuna og ákváðu að setja hann á land fyrir botni fjarðar- ins, norðan við flugbrautina, við nýju höfnina og var notaður til þess einn af skipsbátum Othello. Þegar mótmælendurn- ir sáu hvað verða vildi fóru þeir á f jölda bfla, þar á meðal þrem- ur rútum inn f fjarðarbotn og tóku þar á móti Bretunum. Hófi ust þar strax stympingar, þvf nokkrir vildu ekki sleppa skipsmönnum Othelfo út f skip sitt aftur. Var hent eggjum og grjóti að þeim og f bát þeirra en sjálfir vörðust þeir með árum. Var það ekki fyrr en eftir góða stund, að lögreglunni tókst að koma það mikilli ró á, að báturinn gat lagt frá landi. Fjöldi þeirra, sem tóku þátt f þessum aðgerðum, benti einna helzt til þess að allir bæjarbúar ættu frf. Sem betur fer skipti sér enginn af sjúklingnum og komst hann óáreittur f sjúkra- bflinn, sem flutti hann á sjúkrahúsið. Ekki mun Spán- verjinn vera neitt slasaður og er ekki kunnugt hvað að mann- inum amar. Othello hélt strax úr höfn og báturinn með skipverjunum var kominn um borð. Asgeir. „ Varðskipin áreita ekki togaranaf> — segir eftirlitsmaður sjávarútvegs- ráðuneytisins á miðunum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.