Morgunblaðið - 26.11.1975, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 26.11.1975, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. NÖVEMBER 1975 HIN ÞEKKTA danska postu- línsverksmiðja Bing & Griin- dahl hefur fyrir nokkru sent frá sér fyrstu eintökin af nýj- um veggmyndum og bökkum með teikningum íslenzku lista- konunnar Rúnu, en hennar rétta nafn er Sigrún Guðjðns- dóttir. Er ráð fyrir þvf gert að þessir munir verði seldir um allan heim. Þegar Bing & Grön- dahl hófu framleiðslu fyrir 125 árum var fyrsta verkefnið gerð diska með upphleyptum mynd- um eftir Bertil Thorvaldsen, en hann var sem kunnugt er fs- lenzkur I föðurætt. Er ekki vit- að til að listamaður af íslenzk- um ættum hafi hannað list- muni fyrir þessa þekktu postu- línsverksmiðju fyrr en nú, að Sigrúnu voru falin þessi verk- efni. Verksmiðjan hefur nú í athugun skissur sem Sigrún sendi utan og mun vera afráðið að framleiddir verði diskar af sérstakri gerð með myndum Sigrúnar og fleira mun fram- leiðsluráð verksmiðjunnar hafa I athugun. Hin nýju verk Sigrúnar sem Bing & Gröndahl hafa sent frá sér verða á næstu dögum til sýnis hjá umboðs- manni verksmiðjunnar, Karli K. Karlssyni, Tjarnargötu ÍOA, og þar verður einnig útflutn- ingsstjóri verksmiðjunnar, Preben Hansen, til viðtals. Karl K. Karlsson efndi til blaðamannafundar I gær til að kynna nýju veggmyndirnar og borðbakkana, en þar voru m.a. viðstödd listakonan Sigrún Guðjónsdóttir og Preben Han- sen útflutningsstjóri Bing & Gröndahls. Sigrún útskýrði þar verk sín, en veggmyndirnar eru þannig gerðar, að teikningarn- ar eru silkiprentaðar á veggflís- ar og eru sex flísar saman í tréramma og mynda þær saman eina skreytingu. Tegundir eru þrjár og bera heitin Jónas í hvalnum Pomona og Marbend ill. Litafbrigði eru þrjú og vegg- myndirnar því alls níu að tölu. Litameðferð er með svipuðum hætti og á þjóðhátíðarplöttum Sigrúnar en þeir voru fram- leiddir hjá Bing & Gröndahl. Á bökkunum eru aftur á móti fjórar mismunandi teikningar og þar eru einnig mismunandi litir. Danskur listamaður, Bo Bonfils, hefur hannað bakkana og gert teikningar ásamt Sig- rúnu. Bakkarnir eru ný fram- leiðsla hjá Bing & Gröndahl alveg eins og veggmyndirnar. Kallar verksmiðjan bakkana „alt mulig“-bakka og sam- kvæmt því ætti notagildi þeirra að vera mikið. Á fundinum í gær hafði um- boðsmaðurinn Karl K. Karls- son, á reiðum höndum ýmsar upplýsingar og hér á eftir fer sumt af því sem kom fram hjá Karli: Eins og alkunna er, efndi þjóðhátíðarnefnd 1974 til sam- Karl K. Karlsson, umboðsmaður, Preben Hansen, útflutningsstjóri, og danski sendiherrann á fslandi, Sven Age Nielsen, virða fyrir sér framleiðslu Bing & Gröndals. Bing og Gröndahl hefur haft mikið samstarf við Island og Islendinga frá fornu fari og má geta þess að fyrirtækið gaf út stóran og fallegan veggskjöld 1907 í tilefni af konungskom- unni, en sá platti er að sjálf- sögðu löngu uppseldur og í háu verði. Síðan hefur fyrirtækið gefið út nokkra veggskildi aðra í sambandi við Island og nú slðast veggskjöld, sem Thor- valdsensfélagið gaf út I tilefni af 100 ára afmæli sínu og teiknaður var af Halldóri Péturssyni. Fjölmargir listamenn hafa unnið á vegum Bing & Gröndahls í langri og merkri sögu fyrirtækisins og hafa þeir komið hvaðanæfa að úr heimin- um og til að mynda vinna nú grænlenzkir listamenn að fram- leiðslu fyrirtækisins auk ýmissa annarra. Má þar nefna Björn Wienblad, Karl- Harry-Staalhane, Henning Koppel og fleiri. Sigrún sýnir blaðamönnum og fleiri gestum borðbakkana með teikningum hennar. keppni um þjóðhátíðarplatta, sem út kæmu í tilefni af ellefu- hundrað ára afmæli Islands- byggðar. Sérstök nefnd, sem skipuð var af þessu tilefni veitti frú Sigrúnu Guðjónsdótt- ur fyrstu verðlaun fyrir vegg- skildi hennar, þrjá að tölu, og voru þeir síðan framleiddir hjá einu helzta postulínsfyrirtæki í heiminum, Bing & Gröndahl postulínsverksmiðjunni í Kaup- mannahöfn, ásamt öskubakka þjóðhátíðarnefndar, sem löngu er uppseldur, en hann var með merki nefndarinnar eins og kunnugt er. Forráðamenn Bing & Gröndahls lýstu því yfir að islenzku þjóðhátíðarplattarnir væru upphaf að nýrri fram- leiðslu á nýrri gerð veggskjalda á vegum fyrirtækisins og vöktu plattar Sigrúnar mikla athygli, ekki einungis á tslandi heldur einnig víðar, ekki sízt f Dan- mörku. Með þessum plöttum var brotið blað í gamalli og fastri erfðavenju Bing & Gröndahls í gerð veggskjalda og var íslenzka listamanninum boðið til verksmiðjunnar á því skyni að starfa í nánum tengsl- Bing & Gröndahl sendir á markað ný verk með teikn■ ingum Sigrúnar Guðjónsdóttur Verkin verða til sgnis á nœstunni um við forráðamenn hennar að nýrri listframleiðslu á vegum Bing & Gröndahls. Við aðalstöðvar fyrirtækisins í Kaupmannahöfn er sérstakt vinnusvæði fyrir listamenn þar sem þeir hafa öll skilyrði til þess að vinna að hugmyndum sínum og starfaói Sigrún Guðjónsdóttir þar um nokkurra mánaða skeið, eftir að þjóð- hátiðarplattarnir voru fram- leiddir og hefur verið boðið þangað æ ofan i æ síðan og nú síðast i sumar sem leið. Allt hefur þetta samstarf Sigrúnar, eða Rúnu eins og hún kallar sig, eða eins og hún skrifar á postulínsverk sín, leitt til þess að henni hafa nú verið falin fjölmörg verkefni á veg- um þessarar heimsfrægu postu- linsverksmiðju og var fram- leiðsla á verkum hennar hafin í byrjun þessa árs. Ýmis verka hennar á vegum Bing & Gröndahls hafa verið sett á markað, bæði veggmynd- ir úr postulíni og borðbakkar ýmiskonar. Allar eru þessar myndir RtJNU með svipuðu handbragði og er á þjóðhátíðar- plöttunum: Persónuleg ein- kenni listamannsins Ieyna sér ekki. Það þykir mikill heiður hverjum Iistamanni að fá slík verkefni á vegum svo frægrar og rótgróinnar postulínsverk- smiðju sem Bing & Gröndahl er og þegar veggmyndir íslenzka listamannsins og borðbakkar voru á sýningu i Danmörku fyrr á þessu ári var þeim vel tekið af fjölmiðlum og vöktu athygli. Það var vel skrifað um þá i blöð og mun ráðgert að RÚNA fái áfram verkefni á vegum Bing & Gröndahls, svo góðar sem viðtökurnar hafa verið. Þess má geta að af hverri veggmynd er ákveðið upplag eins og af allri framleiðslu Bing & Gröndahls og á það sama að sjálfsögðu við um borðbakkana. Bing og Gröndahl gefur út upplýsingarit á vegum fyrir- tækisins sem nefnist Dialog og i ágústhefti þess er mynd af Sig- rúnu Guðjónsdóttur að störfum hjá fyrirtækinu og skýrt frá starfi hennar hjá Bing og Gröndahl. Þar segir meðal annars að Rúna sé alhliða lista- maður, fædd i Reykjavík 15. nóvember 1926 þar sem hún menntaði sig í listiðnaði. Siðar lagði hún stund á listnám við Konunglegu akademíuna i Kaupmannahöfn. Þá er þess getið að hún hafi kennt við ýmsa skóla i Reykjavík. Sýnt keramík, málverk og högg- myndir ásamt eiginmanni sín- um Gesti Þorgrímssyni auk þess sem hún hafi skreytt barnabækur og teiknað bóka- kápur. Loks er þess getið með hverjum hætti samstarf hennar og Bing & Gröndahls hófst. Þá er að sjálfsögðu minnzt á þjóð- hátíðarplattana 1974: „Vegg- skildirnir voru framleiddir hjá Bing & Gröndahl,“ segir I greininni, „þar sem mögu- leikarnir í hinum skemmtilega stfl Rúnu fóru ekki framhjá neinum og var hún beðin um hugmyndir í nokkrar vegg- myndir." Þessi ósk Bing & Gröndahls um að fá veggmynd- ir byggðist á löngun fyrirtækis- ins til að auka fjölbreytni í heimilisprýði. Keramík á síauknum vinsældum að fagna sem málamiðlun milli endur- prentana og málverka segir í fyrrnefndri grein í Dialog. Rúna lagði fram röð af skissum með hugmyndum sem Bing & Gröndahl hélt síðan áfram að Sigrún Guðjónsdóttir við veggmynd sfna Jónas 1 hvalnum. vinna. Niðurstaðan eru fyrrnefndar þrjár myndir í fleiri litum: Jónas í hvalnum, Pomona og Marbendill. Nú í haust komu á markaðinn þrjú ný stell frá fyrirtækinu, Delfi, Korinth og Troja. Ungur, enskur teiknari, Martin Hunt, hannaði formin, en skreyt- ingar á Korinth og Delfi hannaði Karl-Harry Stálhane, sem er heimskunnur hönnuður. Ensk listakona, Cynthia Scrace, teiknaði skreytinguna á Troja. Verksmiðjan ábyrgist, að hægt verður að kaupa einstaka hluti í þessi stell næstu 25 árin, sem og í önnur stell sem framleidd eru. 1 haust komu á markaðinn styttur eftir þrjá Grænlend- inga, sem allir eiga heima i Godtháb, þá bræðurna Simon og Karl Kristoffersen og Mathias Lövström. Þeir byggja á gamalli hefð Grænlendinga, sem hafa frá ómunatíð unnið forkunnarfagra hluti i hval- tennur og tálgustein, og aðhæfa listamennirnir myndir sinar postulininu á skemmtilegan hátt. 1 stuttu samtali við Morgun- blaðið I gær sagði Sigrún Guð- jónsdóttir að hún hefði haft mikla ánægju af starfi sínu fyrir Bing & Gröndahl. Þetta hefði verið svo ólíkt öllu þvi Framhald á bls. 31.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.