Morgunblaðið - 26.11.1975, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 26.11.1975, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 1975 25 + Styrktarfélag Landakots- spítala hefur á undanförnum árUm fært spftalanum ýmsar góðar gjafir svo sem leikstofu á barnadeild, tæki til barnadeild- ar og einnig tjöld og útvörp fyrir hvert sjúkrarúm spftalans. Nú í haust var afhent setustofa fyrir sjúklinga á fyrstu hæð. — Myndin er úr setustofunni. m feíauáy fct”. v< • 4*<®lí.Þ-w - l'. *Vi é , 1 + Við leyfum okkur hér með að kynna fyrir lesendum dálksins Bones Kah og Harley Davidson son hans. Mvndin er tekin á veitingahúsi f Osló ný- lega. Kjötfjallið Boens Kah er leiðtogi stórs hóps manna, sem stunda það helzt að þvælast um á mótorhjólum. Fasta atvinnu hefur Bones Kah enga, hann lifir á styrkjum, bótum og ýmiss konar- tryggingum frá hinu opinbera. Auk þess er hann snjall við að fá fólk til að gefa sér peninga. Þeir sem reynt hafa segja að það sé ótrú- Iega erfitt að segja nei við kappann þegar hann biður um nokkrar krónur — nema maður sé þá þeim mun fljótari á sprettinum. Það þarf varla að taka það fram að Bones Kah kallar son sinn Harley David- son eftir mótorhjólinu sínu. 05 + Súperstjarnan Liza Minelli — frægust fyrir frábæran leik í „Kabarett" — átti ekki aðeins móður sem var fræg. Faðir hennar er kunnur mjög og vel metinn leikstjóri og Liza hefur sagt að hún hafi óskað þess síðan hún var fimm ára að fá að Ieika f einni af myndum hans. Nú hefur henni loks orðið að ósk sinni og mótleikari hennar í þessari nýjustu mvnd Vincente Minelli verður eng- inn önnur en Ingrid Bergmann. Myndin á að bera nafnið „A Matter of Time“ og á Ingrid Bergmann að leika aldna greif- ynju, sem ásamt Lizu Minelli rifjar upp ævi sína á hótelher- bergi f Róm. Liza gefur hug- myndafluginu lausan tauminn í myndinni og setur sjálfa sig f spor greifynjunnar. Sölusýning á Hallveigarstööum Aðeins miðvikudag til sunnudagskvölds. Opið 2 —10. Nýtt á íslandi Alu Flex myndir. Ég bíð myndir framtíðarinnar á nútíma verði. Alu Flex myndir eru álmyndir tækniafrek útfært af tveimur tæknimenntuðum listamönnum. Einnig eftirprentanir. Myndir eftir frægum málverkum og vinsælum sama verð og á síðustu sýningu (Gylltir rammar). Nokkrar frábærar litljósmyndir teknar af Mats Wibe Lund, myndirnar eru stækkaðar í Noregi. Gott verð. VHmundur Jónsson. Svarta María Radionette Soundmaster 40 Cassettutækið i svörtum lit er nýtt glæsilegt stereotæki. í tækinu er sterkur stereo magnari, 2x20 Sinus Wött, sérstakir bassa og diskant stillar (sleiðarofar), sér styrkstillar fyrir sín hvora rás. Útvarpstæki með FM. lang-, og mið- bylgju. Ljósfærsla á kvarða Stereo Hl Fl cassettu upptæku og afspilunartæki fyrir bæði chrome og venjulegar cassett- ur. Magnarann má nota sem kallkerfi. Verð kr. 1 24.205 - Stórglæsilegt nýtisku tæki á góðu verði. Mjög góðir greiðsluskilmálar. EINAR FARESTVEIT & CO. HF. B ERGSTAÐASTRÆTI 10A Sími 1-69-95 Reykjavik J

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.