Morgunblaðið - 26.11.1975, Page 5

Morgunblaðið - 26.11.1975, Page 5
„Þróun mann- réttmda” á fundi lögfræðinga LÖGFRÆÐINGAFÉLAG Islands heldur fund í kvöld k!. 20.30 i Lögbergi, stofu 101. Að þessu sinni verður fundarefnið Þróun manrtréttinda. Frummælandi verður prófessor George Thomp- son frá Western New England College, nú gistiprófessor við lagadeild Háskólans. Fyrirlestur- inn verður fluttur á ensku. Tónlistarkynn- ing í M.T. TÓNLISTARKYNNING verður í Menntaskólanum við Tjörn- ina/Vogaskóla í kvöld og hefst kl. 8. Þar koma fram Spilverk þjóð- anna, sextett Einars Þ. Einars- sonar o.fl. Stálvík með 120 tonn Siglufirði 25. nóvember. SKUTTOGARINN Stálvík kom hingað i morgun með 110—120 tonn af göðum fiski, aðallega þorski, sem fór til vinnslu i frysti- húsinu hér. —mj. Jólastarfið hafið hjá Mæðrastyrks- nefnd Kópavogs MÆÐRASTYRKSNEFND Kópa- vogs hefur nú hafið jólastarfsemi sína og er gjöfum og fatnaði veitt móttaka i húsnæði nefndarinnar að Digranesvegi 12; kjallara, dag- ana 27.—28. nóvember, frá kl. 20—22. I fréttatilkynningu frá nefnd- inni segir, að eins og áður sé þörfin mest fyrir barna- og ungl- ingafatnað. Nefndin getur aðeins tekið á móti hreinum fatnaði. Sjálf fataúthlutunin fer fram að Digranesvegi 12 1.—6. desember n.k. frá kl. 17—19, nema laugar- daginn 6. des. frá kl. 14—18. Nefndarkonur munu veita mót- töku fjárframiögum bæði heima og úthlutunardagana. Upplýs- ingar veita: Gyða Stefánsdóttir, Sigríður Pétursdóttir og Hólm- friður Gestsdóttir. Húnvetningar sáu um messu í Skagafirði Mælifelli 25. nóvember SÍÐASTLIÐINN sunnudag komu séra Árni Sigurðsson á Blönduósi og kórar Undirfells- og Þingeyra- klausturskirkna og fluttu guðs- þjónustu á Mælifelli. Sigrún Grimsdóttir organisti í Saurbæ í Vatnsdal stýrði söngnum, sem heimamönnum hér þötti mikill og fagur. Fyrir tilviljun var annar húnvetnskur prestur, staddur á Mælifelli um heigina, séra Gísli H. Kolbeins á Melstað og þjónaði hann fyrir altari ásamt séra Árna, sem flutti minnisstæða prédikun og síðar um daginn ávarpsorð til sinna gömlu sýslunga og kunn- ingja í Skagafirði. Hríðarveður var á sunnudag, en Húnvetningar létu það hvergi aftra sér og eru þeim færðar al- úðarþakkir fyrir komuna. Séra Agúst. MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 1975 Jólaauglýsing nr. 1 Þaá eru aóeins QQ Kaupgarósdagar Til þess aö viöskiptavinir okkar megi njóta jólahátíöarinnar sem best, bendum viö vinsamlegast á eftirfarandi atriöi: Veljið sti'ax i jolamatinn Dragiö ekki matarkaupin fram á síöustu daga. Urvaliö í verzlun okkar hefur sjaldan veriö meira, en reynslan hefur kennt okkur aö vinsælustu vörurnar eiga þaö til aö seljast upp! Jélahreingemingar Viö erum búnir aö fá nægar birgöir af þvotta- og hreingerningarefnum til hvers konar jólahreinsana, — allt frá handsápu til klórefnis. Bakið tímanlega Hver hefur ekki þurft að eyö á siöustu stundu? Látiö þaö e hefur á boröstólum Verzlið í Timinn líöu Ef þiö fyrri hluta BYRJI / jólabakstur í ár. Kaupgaröur sinni fyrr. kaupin á valiö. ARÐI Kaupgarður Smiöjuvegi9 Kópavogi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.