Morgunblaðið - 12.12.1975, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 12.12.1975, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1975 3 ísl. flugst jórnarsvæðið verður þrefalt stærra UM NÆSTU áramót tekur flug- stjórnarmiöstöóin f Reykjavfk við stjórn flugumferðar f efra loftrými Sönderstromflug- stjórnarsvæðisins, en það nær yfir Grænland og allt upp að norðurheimskauti. tslenzka flug- stjórnarsvæðið verður við þessa breytingu þrefalt stærra en nú er. Þessi breyting fylgir í kjölfar at- hugunar sérstakrar nefndar á veg um alþjóðaflugmálastofnunar- innar, en nefnd þessi hafði áður gert úttekt á alþjóðaflugþjónustu á tslandi og kannað hvort hennar yrði áfram þörf á næstu árum. Við þessa breytingu fjölgar starfsmönnum alþjóðaflugþjón- ustunnar hér á landi um 5. þjónustunni á tslandi og sér um samskipti við ICAO. tsland greiðir um 7% af heildarkostnaði við alþjóðaflug- þjónustuna, en afgangurinn er greiddur af hinum ríkjunum í hlutfalli við flug á þeirra vegum yfir N-Atlantshafið. Eftirfarandi tafla sýnir áætlaðan kostnað við rekstur alþjóðaflugþjónustunnar á tslandi árið 1976, svo og þann fjölda starfsmanna, sem vinna hjá alþjóðaflugþjónustunni: Árið 1974 fóru samtals 34.109 flugvélar um íslenzka úthafs- flugstjórnarsvæðið, en af þeim voru um 80% þotur. Búizt er við að heildarfjöldinn i ár verði svipaður. aBili ot bjónusta rtillj.kr t starfsliB Oufunos, fjarskiptastöB 133,1 29,8 48 RjúpnahasB, sondistöB 2Q,6 6,6 12 Vík, LORiK-stöB 27,2 6,1 10 VoBurþjónusta fyrir millilandafluy 81,1 18,1 30 Roykjavík, flurstjómamiBstöB 103,6 23,2 30 Loi?a £ sæstron- (SCOTICS/lCECMí) 72,5 16,2 - Samtals: 4Ö7.1 100,0 130 Kort þetta sýnir flug- stjórnarsvæði og flug- upplýsingaþjónustu umhverfis tsland og Grænland. A gefur til kynna flugupplýs- inga- og viðbúnaðar- þjónustu fyrir neðan FI 195, en sú þjónusta er veitt af flugupplýs- ingamiðstöðinni í Syðra-Straumsfirði. B bendir á flugstjórnar-, flugupplýsinga- og við- búnaðarþjónustu fyrir ofan FL 195, sem veitt er af flugstjórnarmið- stöðinni í Reykjavík. C táknar svæði fyrir ofan FL 195, en þjón- usta á þvf svæði er veitt frá flugstjórnar- stöðinni í Gander. Bandaríski flugherinn, sem tii þessa hefur annazt alla flugum- ferðarstjórn á Söndrestrom- svæðinú í umboði danskra stjórn- valda, tilkynnnti fyrir tveim ár- um, að hann myndi hætta þeirri þjónustu um mitt árið 1975, eða í síðasta lagi í árslok 1975. Þar sem danska flugmálastjórnin taldi óhagstætt að reka sérstaka flug- stjórnarmiðstöð á Grænlandi, leit- aði hún í ársbyrjun 1974 til flug- málastjórna íslands og Kanada með það fyrir augum að annað- hvort ríkið eða þau sameiginlega tækju að sér flugumferðarstjórn á svæðinu. Mál þetta var jafn- framt sent til athugunar hjá sér- stakri nefnd á vegum alþjóðaflug- málastofnunarinnar (ICAO), en í nefndinni hafði árið áður verið falið að gera úttekt á alþjóðaflug- þjónustunni á Islandi, og kanna hvort hennar yrði áfram þörf á næstu árum. Að loknum rækilegum athugun- um á öllum tæknilegum og fjár- hagslegum þáttum þessara mála varð niðurstaða nefndarinnar sú, að alþjóðaflugþjónustan á íslandi yrði starfrækt 1 núverandi mynd, og jafnframt yrði islandi falið að annast flugumferðarstjórn í efra loftrými Söndrestrom-svæðisins frá og með 1. janúar 1976. Kanada mun áfram annast hliðstæða þjón- ustu yfir suðurodda Grænlands, en danska flugmálastjórnin mun reka flugupplýsingamiðstöð i Syðra-Straumsfirði, einkum vegna þarfa innanlandsflugsins á Grænlandi. Samkomulag um þessi mál var staðfest af danska og islenzka utanríkisráðuneytinu 10. september. Bætt verður við 5 flugumferð- arstjórum í flugstjórnarmiðstöð- inni í Reykjavík, þannig að frá og með n.k. áramótum fjölgar starfs- liði á vegum alþjóðaflugþjónust- unnar úr 25 í 30. Fjarskiptastöð- inni á Gufunesi og Rjúpnahæð er ætlað að annast stuttbylgju- flugfjarskipti á Söndrestrom- svæðinu, en til vara verða einnig notaðar hliðstæðar fjarskipta- stöðvar i Kanada og í Syðra Straumfirði. Ef islenzka fjarskiptaþjónustan reynist fullnægjandi á þessu stór- aukna svæði, kæmi síðar til álita að draga úr rekstri fjarskipta- stöðvarinnar í Syðra-Straumfirði, eða jafnvel leggja hana niður. Að alþjóðaflugþjónustunni á Is- landi standa 20 aðildarriki ICAO, en eftirlit með framkvæmd henn ar er á vegum ICAO. Þrjár islenzkar ríkisstofnanir annast framkvæmd þjópustunnar hér á landi, þ.e. póst- og simamála- stjórn, sem rekur flugfjarskipta- stöðvarnar á Gufunesi og Rjúpna- hæð, svo og LORAN-stöðina við Vik, Veðurstofa Islands annast veðurþjónustu fyrir millilanda- flug, og flugmálastjórnin starf- rækir flugstjórnarmiðstöðina í Reykjavik, og annast jafnframt heildarumsjón með alþjóðaflug- FAST M.A. HJA: Revkjavfk. Patreksf jörður ólafsfirði Amatörverzlunin Verzlun Laufeyjar Verzlunin Valberg. Laugaveg 55 Filmur og vélar. Tálknafjörður Akureyri Skólavörðustíg 41. Bókáverzlun Filmuhusið, Fókus, Lækjargötu 6B Olafs Magnussonar Hafnarstræti 104. Hans Petersen. Isaf jörður Húsavfk Bankastræti og Clæsibæ Bókaverzlun Kaupfélag Þingeyinga. Myndiðjan Ástþór, Jðnasar Tómassonar Vestmannaeyjar Hafnarstræti. Akranes. Blönduós Verzlunin Kjarni Verzlunin Miðhús. Bókaverzlun Kaupfélag Húnvetninga Keflavfk Andrésar Nielssonar, Sauðárkrókur Stapafell Borgarnes Bókaverzlun Kr. Blöndal. Víkurbær Kaupfélag Borgfirðinga. Slglufjörður Hafnarfirði Flateyri Aðalbuðin Ljósmynda og gjafavörur, Kaupfélag Húnvetninga. Verzl. Gests Fanndal Reykjavikurveg 64. ! • i • . . Heíldsölubirgöir MYNDIR HF ■ Austurstræti 17 S 30150 Polaroíd kynnir SX-70 myndavélina POLAROID SX-70 myndavélin er árangur djörfustu og dýr- ustu áætlunar sem ráð- ist hefur verið í á sviði ljðs- myndatækni. Það kostaði yfir 40 milljaðra króna að hanna þessa einu mynda- vél með tilheyrandi filmu. Frá upphafi hefur nafn POLAROID verið sveipað ljóma ævintýralegra tækni- framfara í ljósmyndun SX-70 er meistaraverkið — mynda- vélin sem markar þáttaskil. Enginn sem sér og reynir SX- 70 getur verið ósnortinn. Hin nýja POLAROID SX-70 er fullkom- in gegnumsjáandi (single lens refles) myndavél Hún hefur sjálfvirka ljös og hraðastillingu og myndin sjálf skýst fram úr vélinni með sjálfvirkum út- búnaði, aðeins 1,5 sek. eftir að smellt hefur verið af. Fyrst þegar myndin kemur út úr vélinni sér aðeins á föl- grænan flöt. Eftir andartak byrja lita- skil að koma í ljós og hefur birtan umhverfis myndina engin áhrif á fram- köllunina. Hún heldur áfram að skýr- ast í nokkrar mfnútur þar til hún hefur náð litum og skýrleika sem engu öðru stendur að baki.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.