Morgunblaðið - 12.12.1975, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 12.12.1975, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1975 Vitstola aðgerð „Vesturlönd mega ekki missa áhugann” — sagði Yelena Sakharova á blaðamannafundi í gær Fame, eftir að hafa setið f varð- haldi á Norðfirði. McPhee segir f frétt sinni, að Lloydsman hafi leitað vars til að fá nýjar birgðir úr Star Aquarius. Ekkert varðskip hafði sézt allan morguninn, en um klukkan 12,30 sást Þór nálgast og hafði hann þá uppi alþjóðlegt flagg, sem gaf til kynna skipun til Star Aquarius um að nema staðar. McPhee sagð- ist hafa séð vopnaða uppgöngu- sveit á dekki Þórs. Þeir voru við- búnir að setja út bát. Star Aquarius hélt beinni stefnu en varðskipið sigldi á hann. Lloyds- man sigldi þá á milli skipanna til verndar en Þór kom aftur og ann- ar árekstur varð, í þetta sinn við Lloydsman. Um tíma voru skipin föst sam- an. „Ég sá hvernig Lloydsman sargaði niður Þór að ofan. Þegar skipin losnuðu virtist loftventill og bóma á Þór hafa skemmzt, og á stjórnborðshlið hafði þyrluþilfar laskazt ilia. Enn ekki nóg með það, þvf eins og um vitstola að- gerð skipherra varðskipsins væri að ræða stefndi Þór aftur á Ósló, Moskvu 11. des. NTB.—AP. „ÉG HELD ég muni tæpast lenda f vandræðum þegar ég kem aftur til Sovétrfkjanna ef fólk á Vestur- löndum heldur áfram að láta sig örlög Sakharov-f jölskyldunnar nokkru varða. En ef það hættir að sýna áhuga geta komið upp vandamál," sagði Yelena Sakhar- aova á blaðamannafundi f ösió í dag. Hún sagði að Sakharov hefði enn ekki ákveðið hvernig hann hygðist verja verðlaunafénu sem hann fær sem friðarverðlauna- hafi Nóbels. „Það er hvort sem er móðir mfn sem er höfuð fjöl- skyldunnar og hún hefur loka- orðið,“ sagði frú Sakharova hlæj- andi. Hún sagði ennfremur, að höfuð- vandi andófsmanna í Sovétríkjun- um væri örlög barna þeirra. „Börnin lenda í vandræðum strax og þau komast á skólaaldur og þau geta sjaldan fengið þá mennt- un sem þau vilja. Fjölskylda mín hefur mörgum sinnum fengið hótanir. Tengdasonur minn mætti einu sinni KGB-manni á götunni. Maðurinn sagði að ef Sakharov hætti ekki iðju sinni myndi tengdasonur minn og sonur hans senn liggja á sorphaugunum." Frú Sakharova upplýsti að hús þeirra i Moskvu væri undir stöð- ugu eftirliti. „Ef eitthvað kemur fyrir einhvern úr fjölskyldunni ber KGB beina ábyrgð á því,“ sagði hún. Andrei Sakharov er sjálfur enn í Vilnius í Lithaugalandi þar sem hann reyndi f þriðja sinn að fá að vera viðstaddur réttarhöldin yfir vini sfnum, lfffræðingnum Sergei Kovalev, en honum var enn vfsað frá. Kovalev sagði í gær, að hann myndi fara f hungurverk- fall til að mótmæla því að yfirvöld meina vinum hans að vera við réttarhöldin. ÞAÐ VAR ekki nóg með að Þór sigidi á dráttarbátana Lloydsman og Star Aquarius heldur gerði hann sig Ifklegan tii að taka þann sfðarnefnda, segir í frétt, sem fréttamaður BBC um borð f Lloydsman sendi til Bretlands f gær. Fréttamaðurinn sem heitir Archi McPhee, er kunnur af frétt- um eftir að hann var handtekinn fvrir að hafa stigið ólöglega hér á land, þegar brezka eftirlitsskipið Miranda kom inn til Norðfjarðar f fyrri viku með slasaðan mann. Mike Smartt, fréttaritari Morgun- blaðsins í Hull sendi okkur frá- sögn af frétt McPhees, sem reynd- ar er meðal samstarfsmanna hjá BBC kallaður McPhee of Jail Lloydsman. Ég sá skipverja á varðskipinu miða fallbyssunni á brúna á Lloydsman. Skotið var lsusu skoti af stuttu færi og ég fann púðurlyktina, þegar reykur- inn fór yfir. Aftur rákust skipin saman og f þetta sinn virtist kinn- ungur Lloydsman hafa hitt varð- skipið undir sjávarmáli." McPhee hélt áfram með að segja að Þór hafi gert aðra atlögu áður en hleypt var af aftari byssu skipsins. Skotin annaðhvort geig- uðu eða um púðurskot var að ræða,“ sagði hann. Eftir nokkurn eltingarleik sneri Þór við og hvarf f éljarganginum. YELENA Sakharova heldur hér á verðlaunaskjali Friðarverðlauna Nóbelsnefndarinnar, sem hún veitti viðtöku fyrir hönd manns sfns. Að baki hennar sést formaður Friðarverðlaunanefndarinnar, Aase Lionaes. Afram unnið að rann- sókn Alþýðubankamálsins MÁLEFNI Sunnu voru enn til athugunar í samgönguráðuneyt- inu f gær. Leitað hafði verið eftir viðbótarupplýsingum til Guðna Þórðarsonar, sem fengust sam- dægurs, og að sögn Brynjólfs Ingólfssonar, ráðuneytisstjóra f samgönguráðuneytinu, má vænta þess að ráðherra felli f dag árdeg- is úrskurð um gildi þessara gagna varðandi það hvort Sunna fái að flytja farþega til Kanaríeyja fram til 10. janúar er ferðaskrif- stofuleyfið rennur endanlega út. — Kærðir Framhald af bls. 32 á fundinum um ákvörðun ríkis- stjórnarinnar en einnig hefði verið rætt um aðrar aðgerðir en ákvarðanír um þær yrðu ekki teknar fyrr- en utanríkisráðherra kemur heim á laugardag eða sunnudag. Sunna fyrirhugar næstu ferð til Kanarfeyja á morgun. Þegar Morgunblaðið hafði samband við Guðna f gær kvað hann allt tfð- indalftið eða „stund milli strfða“ eins og hann orðaði það. Hjá dr. Jóhannesi Nordal, bankastjóra Seðlabankans, fékk Morgunblaðið þær upplýsingar, að unnið væri kappsamlega að rannsókn lánamála Alþýðubank- ans bæði af hálfu bankans sjálfs og Seðlabankans. Hins vegar væru þetta ákaflega umfangs- mikil mál og tæki langan tíma að upplýsa þau og vinna úr öllum gögnum. Þá kom ennfremur fram hjá dr. Jóhannesi, að hann taldi Seðla- bankann á engan hátt hafa farið út fyrir starfssvið sitt er banka- eftirlitið veitti samgönguráðu- neytinu upplýsingar um fjárhags- stöðu Sunnu, éins og kom fram í blaðinu í gær, en á þeim upp- lýsingum var úrskurður ráðu- neytisins um að svipta Sunnu ferðaskrifstofuleyfi ekki sfzt byggður. Sagði dr. Jóhannes að Seðlabankinn hefði fyrst og fremst gert viðskiptaráðherra að- vart um þetta mál, eins og lög bankans gerðu ráð fyrir, en sam- gönguráðherra hefði fyrst haft fréttir af málinu frá Alþýðubank- anum sjálfum. Seðlabankinn hefði haft vitneskju um að sam- gönguráðherra hefði haft fregnir af þessu máli og afskipti Seðla- bankans af því hefðu verið á þá leið, að bankaeftirlitið hefði hringt til ráðuneytisstjórans til að spyrja hvort samgönguráðuneytið hefði gögn um Sunnu, þar sem ráðuneytið hefði átt að hafa undir höndum reikninga Sunnu. Það hefði komið í ljós að svo var ekki en samgönguráðuneytið í þess stað óskað eftir upplýsingum frá Seðlabankanum. Einnig ræddi Morgunblaðið við Hermann Guðmundsson, formann bankaráðs Alþýðubankans. Hann kvað öll viðskipti bankans ganga með eðlilegum hætti eftir allt um- stangið síðustu daga og hefðu þau raunar aldrei farið úr skorðum þótt mikið gengi á. Hefði út- streymi úr bankanum ekki verið meira en gerðist og gengi I desem- bermánuði og segði það sitt um þann skilning sem bankinn hefði átt að mæta á erfiðum tímum. Morgunblaðið spurði hversu lengi hann teldi að bankaráðið sjálft myndi fara með stjórn bankans og kvað hann þá skipan er nú ríkti vafalaust mundu gilda þar til niðurstöður þeirrar rann- sóknar er yfir stæði lægi fyrir og að öllum líkindum fram yfir aðal- fund bankans, en ákvörðunum hans yrði bankaráðið að hlíta í einu og öllu. Hermann sagði enn- fremur að nú yrði aðeins beðið eftir niðurstöðum þeirrar opin- beru rannsóknar er bankinn hefði óskað eftir og saksóknari hefði nú sent sakadómi til með- ferðar. Sagði Hermann að með þeirri ákvörðun að óska eftir rannsókninni hefði bankaráð Al- þýðubankans um leið sett sjálft sig undir þá rannsókn og hlítti því er út úr henni kæmi. Hjá Halldóri Þorbjörnssyni, yfirsakadómara, fékk Morgun- blaðið það staðfest, að honum hefði borizt erindi bankaráðs Al- þýðubankans í þessum efnum frá saksóknara ríkisins en athugun málsins væri enn á byrjunarstigi. Hins vegar hafði erindi Guðna Þórðarsonar um samskonar rann- sókn ekki borizt embættinu heldur kvaðst Halldór einungis hafa lesið yfirlýsingu Guðna Þórðarsonar þar að lútandi í blöðunum enn sem komið væri. — Fjaðrafok Framhald af bls. 1 strendur Islands og stofna lífi áhafna varðskipa okkar i hættu, eru ekki úr hinum volduga flota frá Kolaskaga. Þetta er skip úr brezka sjóhernum. Og andstæð- ingar Atlantshafsbandalagsins eru snöggir að benda á það að þessi sömu skip hafa verið eða verða hluti af herafla Nato. Og þetta eru sterk rök gegn Nato á Islandi í dag.“ Brezku stjórninni þykir leiðinlegt Callaghan hélt ræðu á eftir Einari og sagði hann að brezku stjórninni þætti leiðinlegt að vera flækt f deilu við Islendinga. Stefna brezku stjórnarinnar væri að finna lausn á málinu og að möguleiki væri á að finna lausn. Bilið á milli fslenzku og brezku rfkisstjórnanna væri 65 til 110 þúsund lestir, en að hann ætlaðist ekki til þess að samningamenn Breta byndu sig um of við 110 þúsund eða 100 þúsunda markið ef aftur kæmi til viðræðna við Islendinga. „Okkar markmið er að taka við- ræðurnar upp á ný og við erum reiðubúnir til þess hvenær sem er og á hvaða embættisstigi sem er. Eina krafa okkar er að íslenzka landhelgisgæzlan hætti að trufla brezka togara, þá verða herskipin kölluð út fyrir 200 mflna mörkin og samningaviðræður geta haldið áfram,“ sagði Callaghan. Einkafundur Einars og Callaghans Strax að loknum ráðherra- fundinum, klukkan 16.45 að íslenzkum tfma, hélt Einar Agústsson til brezka sendiráðsins f BrOssel, þar sem hann átti fund með Callaghan. Að ósk Callaghans var enginn aðstoðar- manna þeirra tveggja viðstaddur fundinn. Töluðu ráðherrarnir einslega saman í um hálfa klukkustund. Strax að loknum fundinum með Callaghan hélt Einar blaða- mannafund, þar sem um 150 blaðamenn voru mættir. Þar mót- mælti Einar þvf sjónarmiði Callaghans, að skilyrðið fyrir því að brezku herskipin færu út fyrir 200 mílurnar væri að fslenzk varð- skip hættu að stugga við brezkum togurum. „Við getum ekki hætt að stugga við togurunum," sagði Einar, „þvt þá höfum við jafn- framt gefið frá okkur 200 mflna fiskveiðilögsöguna.“ Þá sagði hann, að hann byggist ekki við því að eiga annan fund með Callaghan, og þegar hann var spurður hvort hann væri reiðu- búinn til að hefja á ný samninga- viðræður, svaraði hann stuttlega: „Nei, ég er það ekki.“ Sagði hann að í fyrsta lagi væri hann ekki til viðræðu á meðan brezkar freigátur væru innan við 200 mflna mörkin og f öðru lagi vegna þess að Bretar vildu fá að veiða allt of mikinn þorsk við Island. Gallaghan vill semja Þá sagði Einar á fundinum, að sér virtist Callaghan hafa einlæga löngun til að leysa deiluna, enda gerði hann sér það ljóst að núver- andi ástand milli tveggja banda- lagsríkja i Atlantshafsbandalag- inu gæti ekki varað. En hann bætti þvi við að Bretar yrðu að lækka boð sitt áður en raunhæfar viðræður gætu hafizt. Hann greindi frá því, að boð tslendinga um að Bretar fengju að veiða 65 þúsund lestir við Is- land, hefði verið harðlega gagn- rýnt á Islandi sem alltof rausnar- legt. Bretar hefðu viljað fá 110 eða 100 þúsund lestir. „Ef farið er fram á meira en 65.000 lestir hlýtur svarið að verða nei,“ sagði Einar. Þá skýrði hann frá því að auð- veldara hefði verið að semja við Vestur-Þjóðverja m.a. vegna þess hvað þeir legðu miklu minni áherzlu á þorsk í sínum afla. Hann var spurður um það af hverju Þór hefði skotið á brezku skipin i gær og svaraði: „Ef brezku dráttarskipin reyna að sigla á varðskipin eiga þau engra annarra kosta völ en að skjóta." Hann benti á það að atburðirnir hefðu átt sér stað innan 4 mílna landhelgi Islands og það hefðu verið brezku skipin, sem hófu árásirnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.