Morgunblaðið - 12.12.1975, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 12.12.1975, Blaðsíða 29
Rauða kross deild Borgar- neslæknis- héraðs stofnuð 20. J(JLl 1963 var stofnuð Rauða kross deild ( Borgarnesi. Á aðal- fundi deildarinnar f Borgarnesi 9. nóv. sl. kom fram að starfsemi deildarinnar vaeri of þröngur stakkur sniðinn þar sem þjón- ustusvæði hennar væri bundið við Borgarnes eingöngu. Var talin þörf á að starfsemi Rauða kross- ins næði einnig til nágrannasveit- anna. Þvf var samþvkkt að leggja niður Borgarnesdeildina og stofna aðra, Rauða kross deild Borgarnesslæknishéraðs. Var starfssvæði hinnar nýju deildar samræmt umdæmi heilsugæslu- stöðvarinnar í Borgarnesi en það nær vfir 5 hreppi í Snæfellsnes- sýslu, alls 15 hreppi. Fundarstjóri á fundinum var Guðmundur Sigurðsson, kennari, Borgarnesi. í stjórn voru kosin: Formaður Sigurþór Halldórsson, Borgarnesi, gjaldkeri Guðmund- ur Sigurðsson, ritari, Guðrún Broddadóttir, Borgarnesi, með- stjórnendur Leópold Jóhannes- son, Hreðavatnsskála, og Bjarni Guðráðsson, Nesi II, Reykholts- dal. Endurskoðendur eru Páll Guðbjartsson og Ásta Ragnars- dóttir, Borgarnesi. Fulltrúar Rauða kross Islands, Eggert Asgeirsson og Dóra Jak- obsdóttir, gerðu grein fyrir starfi RKI og deilda hans. Miklar um- ræður urðu um verkefni deildar- innar. Guðmundur Ingimundar- son, oddviti, Borgarnesi, gerði grein fyrir sjúkraflutningamálum á svæðinu. Fyrirhuguð eru kaup á nýjum sjúkrabíl og var f því sam- bandi rætt um rekstrarfyrirkomu- lag og námskeið fyrir sjúkraflutn- ingamenn. Einnig var rætt um svæðisfundi Rauða kross félaga um sjúkraflutninga og neyðar- varnir og gerð grein fyrir nám- skeiðum Rauða krossins f skyndi- hjálp og aðhlynningu sjúkra. Stofnfélagar hinnar nýju deild- ar teljast félagar eldri deildarinn- ar og nýir félagar, alls 125 talsins. Félagasöfnun verður haldið áfram og lagt kapp á að fá félaga sem víðast að á starfssvæði deild- arinnar. Vatnsmagn jókst við Laugaland VATNSMAGNIÐ í borholunni við Laugaland í Eyjafirði hefur haldið áfram að aukast frá því i fyrradag. Uppstreymið var mælt um hádegi í gær, miðvikudag, og reyndust þá koma 27 sekúndulftr- ar úr holunni. Rennslið hefur þannig vaxið um 4 sekúndulítra á einum sólarhring. Talið er víst að vatnsaukningin stafi af nýjum vatnsæðum milli berglaga, sem borinn hefur farið í gegnum sfðan f fyrradag. Þessi þróun mála hefur enn aukið á bjartsýni manna hér nyrðra um árangur borunarinnar. Hiti vatnsins var ekki mældur f gær, en talið er að hann hafi lftið breytzt og sé allt að 90 gráður. Sv.P. MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1975 29 TTmtnrrhrKh-JnrtfrT, •iTrp’mpTM- denini denimpils bölir — skó'i4 peysur — btó röndóttir so OPIÐ TIL KL. 10 I KVOLD /ÖdhÍi ráTuftji Jíjatfiujhiiiiinti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.