Morgunblaðið - 12.12.1975, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1975
15
Friðrik og
Guðmundur
hefja einvígi
á laugardag
AKVEÐIÐ hefur verið að stór-
meistararnir Friðrik Ólafsson og
Guðmundur Sigurjónsson leiði
saman hesta sfna við einvígis-
borðið frá heimsmeistaraeinvfg-
inu 1972, næst komandi laugar-
dag. Teflt verður í afgreiðslusal
Samvinnubankans kl. 2—6 síð-
degis og gefst vegfarendum kost-
ur á að fylgjast með viðureign-
inni.
Þetta sama skákborð, sem
áritað er af þeim Fisher og
Spassky, er jafnframt aðalvinn-
ingur f afmælishappdrætti Skák-
sambands Islands, en það er
hálfrar aldar gamalt um þessar
mundir. Er borðið metið á 2,5
milljónir. Vandaðir taflmenn,
sem eru um 200 þúsund króna
virði, fylgja borðinu. Meðal
annarra vinninga eru málverk,
sólarlandaferðir og fleira.
Samþykkt Qðins:
Sendiherr-
ann heim -
ýtrustu
varkárni
á miðunum
Fimmtudaginn 4. des. var hald-
inn almennur félagsfundur f Mál-
fundafélaginu Óðni. Gunnar
Thoroddsen iðnaðarráðherra
ræddi orkumál og benti á, að
Kröfluvirkjun væri ekki of stór
og fljótlega yrði full þörf fyrir
alla þá orku, sem hún gæti fram-
leitt, ennfremur ræddi Gunnar
landhelgismálið og samningana
við Þjóðverja.
Samþykkt var svofelld tillaga
frá Ragnari Eðvarðssyni: Mál-
fundafélagið Óðinn skorar á ríkis-
stjórnina að kalla heim sendi-
herra sinn í London og mótmæla
með þeim hætti innrás brezka
flotans inn í íslenzka landhelgi.
Þá vill fundurinn lýsa aðdáun
sinni á framgöngu varðskips-
manna, en gæta verði ýtrustu var-
kárni á miðunum.
Kristján Guðbjartsson.
hafa að baki, munu þó greiða
meirihlutann til baka, þannig er
áætlað að læknar og tannlæknar
muni greiða um 80%. Hæst
verður endurgreiðsluhlutfallið
hjá þeim, sem hafa tiltölulega
stutt nám að baki en fá há laun,
t.d. er hlutfallið hjá vélstjórum og
stýrimönnum áætlað um 90%.
I útreikningum Kjarabaráttu-
nefndar er gert ráð fyrir, að
einstaklingur, sem hefur 700 þús.
kr. eða minna í tekjur borgi ekki
af láni og hjón með tvö börn borgi
ekki, ef tekjur verða undir 1400
þús. kr. Hins vegar ef miðað er
við að lánþegi hafi tekið fullt
námslán I 4 ár, 500 þús. kr. á ári
eða alls 2 millj. kr. þá er gert ráð
fyrir að einhleypingur sem hefur
1200 þús. kr. tekjur borgi 32.500
kr. árlega (miðað við 20 ára
endurgreiðslutíma) eða 32.5%.
Einhleypingur sem hefur 2.6
millj. kr. í tekjur á að borga 275
þús. kr. á ári eða 100%. Hjón með
3 börn, sem hafa 1650 þús. kr.
tekjur, munu borga 62,700
kr. á ári eða 3.8%, en ef tekjurnar
ná 2.8 millj. kr., þá 88.100 kr. á ári
eða88.1% af lánsupphæðinni.
1 tillögum Kjarabaráttunefndar
er gert ráð fyrir að námslánin
verði verðtryggð þannig, að upp-
hæð þeirra fylgi breytingum á
vísitölu framfærslukostnaðar.
Þessi verðtrygging skal verka á
útistandandi lán eins og það er á
hverjum tíma frá því að það er
greitt út, þar til það hefur verið
endurgreitt eða er orðin óaftur-
kræft.
Þá er lagt til að lánin verði
endurgreidd samhliða álagningu
skatta og skulu lánin innheimt á
sama hátt og skattar.
Námsmenn með nýjar tillögur lánasjóðsins:
A.m.k. 55% útlána
skili sér í raungildi
stór hluti lána skili sér frá hinum
ýmsu námsgreinum. Byggist það
annars vegar á þvf, að heildar-
skuldir lánþega verði misjafnar
eftir greinum -vegna mislengdar
náms. Lægsta endurgreiðsluhlut-
fallið verði í greinum, sem krefj-
ast langs náms, en gefa tiltölulega
lág laun að því loknu og fer það
niður i 31%, t.d. hjá guðfræðing-
um. Sumir þeirra, sem lengst nám
KJARABARATTUNEFND náms-
manna hefur lagt fram sfnar til-
lögur um framtíðarskipan Lána-
sjóðs fslenzkra námsmanna. Segir
þar, að samkvæmt þeim útreikn-
ingum sem nefndin hefur látið
gera muni a.m.k. 55% útlánaðs
fjár L.t.N. skila sér f raungildi,
en um þessar mundir mun ekkert
af þvf fé sem lánað er skila sér f
raungildi. 1 tillögunum kemur
fram, að sjónarmið kjarabaráttu-
nefndar varðandi endurgreiðslu-
kerfiðhafi frá upphafi verið skýr.
Langskólanám leiði yfirleitt af
sér hærri laun að námi loknu en
tfðkist meðal fólks, sem ekki er
langskólagengið. Hins vegar
hljóti það að vera óraunhæft að
ætla að endurheimta að fullu öll
námslán, þar sem launakjör
námsmanna að loknu námi séu
mjög misjöfn og sumir þeirra
verði aldrei borgunarmenn fyrir
allri skuld f raungildi.
Kjarabaráttumenn kynntu
blaðamönnum þessar tillögur í
gær og kom fram, að eðlilega
verði það nokkuð misjafnt hversu