Morgunblaðið - 12.12.1975, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1975
p!i0f0iiunplliípiip
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Fréttastjóri
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavik.
Haraldur Sveinsson.
Matthias Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson.
Björn Jóhannsson.
Árni Garðar Kristinsson.
Ofbeldi Breta og
umheimurinn
Eftir framkomu Breta á
miðunum við ísland i gær,
þegar dráttarbátar gerðu at-
lögu að íslenzku varðskipi inn-
an fjögurra mílna landhelgi ís-
lands sem viðurkennd er af
öllum þjóðum, er það hárrétt
afstaða ríkisstjórnar íslands að
kæra málið til Öryggisráðsins
og Atlantshafsráðsins. Fram-
koma Breta og ofbeldi við ís-
land hefur aldrei fyrr gengið
svo langt, að íslendingar hafi
talið sig tilneydda til að gripa til
svo róttækra ráðstafana. En nú
er mælirinn fullur. Svæðið, þar
sem Bretarnir gerðu atlöguna
að Þór er eins óvefengjanlega
islenzkt yfirráðasvæði eins og
landið sjálft. Með það í huga er
hér um svo einstæða og harð-
svíraða árás að ræða, að ekkert
dugar nema hörðustu við-
brögð Öll íslenzka þjóðin
stendur að baki þeirri ákvörð-
un, sem islenzka ríkisstjórnin
hefur nú tekið Á kvöldfundi i
utanrikismálanefnd Alþingis i
gær var algjör einhugur i mál-
inu.
Geir Hallgrimsson, forsætis-
ráðherra, sagði í samtali við
Morgunblaðið, að hér væri um
„óvenjulega alvarlegan atburð
að ræða og er þá mikið sagt",
eins og ráðherrann komst að
orði, „þegar haft er i huga
framferði Breta hér við land
Það er ótvírætt að dráttarbát-
arnir voru innan fjögurra mílna
landhelgí íslands, þar sem (s-
lendingar hafa óvefengjanlega
lögsögu og Bretar geta ekki
borið fyrir sig, að þeir viður-
kenni ekki þessi alþjóðalög"
Forsætisráðherra benti enn-
fremur á, að Bretar hafa ótvi-
rætt framið ásiglingar sinar og
ofbeldi innan íslenzks yfirráða-
svæðis og sýni þetta, „með
hvíliku offorsi og ofbeldi Bretar
reka mál sitt og virðingarleysi
þeirra fyrir lögum og rétti."
Allt er þetta brot á sáttmála
S.Þ. og vitaskuld ber rikisstjórn
Breta alla ábyrgðina á ofbeld-
inu, þar sem það er framið í
skjóli hennar. Hún hefur sent
herskip, hjálparskip og dráttar-
báta á íslandsmið í þvi skyni að
fremja lögbrot á íslendingum
og jafnvel gefið skipherrum
hennar hátignar, að því er frétt-
ir herma, heimild til að hefja
skothrið á íslenzk löggæzlu-
skip. Morgunblaðið hefur i for-
ystugrein nýlega bent á, hve
þessi afstaða brezku stjórnar-
innar er hættuleg og má þakka
fyrir, meðan hún leiðir ekki til
stórslysa á miðunum. í gær
skall hurð nærri hælum. Má
raunar þakka þá mildi, að
brezkt herskip skyldi ekki vera
nærri, þegar atlagan var gerð
að Þór, því að óvist er til hverra
aðgerða taugaveiklaður brezk-
ur skipherra hefði gripið undir
þeim kringumstæðum.
Það er svo sannarlega
kominn timi til, að brezka
stjórnin fari að átta sig á því
hvert glórulaus stefna hennar
getur leitt, úr því sem komið er.
Ef atburðirnir á miðunum i gær
gætu orðið til þess að opna
augu brezkra ráðamanna fyrir
hættunni og stjórn Wilsons
breytti um stefnu, þá mætti
kannski segja, að fátt sé svo
með öllu illt, að ekki boði
nokkuð gott. En viðbrögð
Breta, bæði heima og í Brussel,
virðast því miður ekki benda til
þess, að þeir hyggist neitt ætla
að læra af atburðunum i gær.
Af þeim sökum ekki sízt er
komið að því að kæra framferði
þeirra og lögbrot fyrir þeim
öflugustu samtökum, sem ís-
lendingar eiga aðild að,
Atlantshafsbandalaginu og
Öryggisráði S.Þ Verður fróð-
legt að fylgjast með vörn veiði-
þjófanna á alþjóðavettvangi
Það var rétt hjá forsætisráð-
herra íslands, þegarhann benti
á það í gær, að við ættum við
þetta og önnur tækifæri að
sýna umheiminum ofbeldi
Breta á íslandsmiðum Slit
stjórnmálasambands verður að
hafa aðdraganda og ef til þeirra
kemur, skulum við taka af
skarið, eftir að við höfum sann-
fært bandamenn okkar og vini
um allan heim um það, hvers-
konar ofbeldisaðgerðir Bretar
stunda við ísland i skjóli öflugs
flota og vopnavalds, sem litil
þjóð eins og íslendingar eru
hefur ekki bolmagn til að brjóta
ein á bak aftur. Með aðstoð
vina okkar munum við reka
andstæðínginn af höndum
okkar. En við þurfum að sýna
sem þjóð sömu eiginleika og
vaskir varðskipsmenn sýna
alltaf þegar á reynir: stillingu
og ákveðni.
Það er rétt sem Luns, fram-
kvæmdastjóri NATO, segir í
samtali við Mbl., að „brezku
herskipin gera lausn erfiðari —
ef ekki ógerlega". Hann bætti
þvi við, að aðildarríki Atlants-
hafsbandalagsins hörmuðu
þorskastríðið og kvaðst vera
reiðubúinn til að láta málið til
sín taka, ef hann gæti orðið að
einhverju gagni. Hann kvaðst
vona, að fundin yrði lausn, sem
íslendingar gætu fallizt á, eins
og hann komst að orði. En sú
lausn verður a.m.k. ekkí fólgin
í þvi, að Bretum verði á
nokkurn hátt gert kleift að
stunda ofveiði við ísland eins
og þeir virðast helzt hafa
áhuga á. íslendingar ætlast
nú til mikils af bandamönn-
um sínum í NATO og vonast til
þess, að bandalaginu auðnist
að lækka rostann i Bretum,
koma vitinu fyrir þá og láta þá
hætta að beita smáþjóð of-
beldi. Sá tími ætti að vera
liðinn. Það var uppörvandi sem
utanrikisráðherra V-Þjóðverja
Genscher sagði á fundi Atlants-
hafsbandalagsins í gær, að
hann skora'ði á Callaghan,
utanríkisráðherra Breta, að fara
að dæmi V-Þjóðverja og láta
Breta draga úr kröfum sínum á
hendur íslendingum.
Atlantshafsbandalagið hefur
áður veitt okkur ómetanlega
aðstoð í þorskastríði — og við
væntum þess, að bandalaginu
og S.Þ, takist að bægja frá
þeirri hættu, sem fylgir í kjölfar
ofbeldis Breta á íslandsmiðum
Mannslíf geta nú verið í veði,
hvenær sem er.
„ÞETTA ER
HLUTVERK
DRÁTTAR-
BÁTANNA Á
ÍSLANDS-
MIÐUM"
— segir Pétur Sigurðs-
son, forstjóri Landhelgis
gæzlunnar, um atburðint
í mynni Seyðisfjarðar
„VIÐ GERUM ráð fyrir því að
varðskipið Þðr verði ferðafært
strax í kvöld,“ sagði Pétur Sig-
urðsson, forstjóri Landhelgis-
gæzlunnar, f viðtali við Morgun-
blaðið f gærkveldi. „Eftir ásigl-
ingarnar kom rifa fvrir ofan sjó-
Ifnu á skammdekk, en áhöfnin er
nú að gera við skemmdirnar og
logsjóða í þessa rffu, svo að skip-
ið, sem nú liggur f vari, verður
ferðafært f kvöld.“
Þrfr dráttarbátar, Lloydsman,
Star Aquarius og Star Polaris,
gerðu laust eftir hádegi í gær árás
á varðskipið Þór, sem var að koma
út frá Seyðisfirði, þar sem það
hafði verið að grennslast eftir
duflum, sem þar hofðu fundizt á
reki. Dráttarbátarnir voru aðeins
rúmlega eina mílu frá landi og
þvf f landhelgi Islands. Taug var f
milli Star Aquarius og Lloyds-
man og sigldu báðir dráttarbát-
arnir á Þór, Star Aquarius
fyrst en Lloydsman sfðan tvisvar.
Eftir fyrri ásiglingu Lloydsman
skaut varðskipið Þór viðvörunar-
skoti, en þegar dráttarbáturinn
sinnti ekki viðvöruninni og lagði
aftur til atlögu við Þór, skaut
varðskipið f Lloydsman kúluskoti
og fór kúlan f bóg dráttarbátsins.
Þar með lauk viðureigninni og
dráttarbátarnir héldu til hafs f
kjölfar Star Polaris, sem þegar í
upphafi fór á haf út.
Morgunblaðinu barst f gær
fréttatilkynning frá Landhelgis-
gæzlunni þar sem segir m.a. að 1
gærmorgun hafi henni borizt upp-
lýsingar um að 3 brezkir dráttar-
bátar væru grunnt undan Iandi í
mynni Seyðisfjarðar og var gæzlu-
flugvélinni SÝR stefnt á staðinn,
en einnig var varðskipið Þór beð-
ið að fara á vettvang til þess að
grennslast fyrir um gerðir drátt-
arbátanna.
• ÞRJAR ASIGLINGAR
Þór fór á vettvang og fann drátt-
Ljósm.: Baldur Sveinsson.
Þetta er fyrri ásigling Lloydsman. Skipið næst er Star Aquarius, sem stefnir á haf út. Þá sést
varðskipið Þór og ef grannt er skoðað hallast það verulega á stjórnborða, en bak við varðskipið,
bakborðsmegin aftantil,er Lloydsman og af kjölfarinu má sjá, hvernig hann beygir inn á bakborðssfðu
varðskipsins. Ekki verður greint kjölfar Þórs, enda var varðskipið á Iftilli sem engri ferð. Eftir þessa
ásiglingu, sem myndin sýnir — skaut varðskipið púðurskoti til viðvörunar dráttarbátnum. 1 baksýn
sést Dalatangi.
Fyrri árekstur Lloydsman, sem brunar á fullri ferð á bakborðssfðu varðskipsins Þórs, sem að öllum
Ifkindum eftir þvf sem myndin sýnir er rétt byrjaður að sigla aftur á bak til þess að forðast árekstur.
Fjær er Star Aquarius á leið á haf út. Varðskipið var á eftir Aquarius, en taldi Lloydsman bilaðan og
uggði ekki að sér, fyrr en um seinan.