Morgunblaðið - 12.12.1975, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1975
23
Tónleikar Ora-
tóríukórs Dóm-
kirkjunnar
ORATÓRtUKÓR Dómkirkjunnar
stendur fyrir tónleikum í Dóm-
kirkjunni sunnudaginn 14.
desember n.k. kl. 10 sd. Auk
kórsins koma fram Manuela
Wiesler, sem leikur ein-
leikssónötu fyrir flautu eftir C.
Ph. Emanuel Bach, Sigurður
Snorrason, sem ieikur þátt úr
klarinettkonsert í a-dúr eftir
Mozart, Gústaf Jóhannesson
organleikari, sem leikur með söng
kórsins og Ragnar Björnsson
dómorganisti, sem leikur choral í
a-moll eftir Cesar Franch.
Tónleikunum lýkur á söng
Óratóríukórsins, sem flytur
sálmalög úr tveimur fyrstu þátt-
um Jólaóratóríu J.S. Bachs ásamt
tónverki fyrir kór og orgel eftir
söngstjórann Ragnar Björnsson
við texta Jóhanns Jónssonar,
„Þeir hringdu hljómþungum
klukkum“.
Oratóriukórinn tekur nú upp þá
nýbreytni að bjóða nemendum úr
skólum Reykjavíkur á vissa tón-
leika kórsins og að þessu sinni
verður 100 nemendum úr
Menntaskóla Reykjavíkur boðið á
tónleikana. Aðgöngumiðar munu
kosta kr. 300.— og verða til sölu
við innganginn.
Stefán Sigurkarlsson
lyfsali á Akranesi
FRÁ ÞVl er skýrt í Lögbirtinga-
blaðinu að forseti Islands hafi að
tillögu heilbrigðis- og trygginga-
málaráðherra veitt Stefáni Sigur-
karlssyni lyfsöluleyfið á Akranesi
frá 1. janúar 1976.
Snorri P. Snorrason
settur prófessor
SNORRI P. Snorrason dósent
hefur verið settur prófessor við
læknadeild Háskóla Islands um
eins árs skeið frá 15. september
1975 að telja, í stað Sigurðar
Samúelssonar, prófessors, sem
veitt hefur verið leyfi frá
kennslustörfum umrætt tímabil.
AOtiI.ÝSINGASÍMINN EH:
22480
JEANS
ÞU ERT
NÆSTUR
Howard Murphet
Sai Baba —
maður
kraftaverkanna
Hér er sagt frá einum áhrifa-
mesta kraftaverkamanni,
sem fram hefur komið um
aldaraðir. Kraftaverkum
þessa undramanns er líkt
við kraftaverk Krists og
samfara þeim fer sú ást og
umhyggja, sem Kristur hlýt-
ur einnig að hafa búið yfir,
og auk þess vitneskjan um
Guð, sem opnar dyrnar að
nýrri lífssýn. Bókin um Sai
Baba er stórkostleg og hrif-
andi.
V . “ " - *
Hér er bókin til skemmtunar og fróðleiks
Ólafur Tryggvason
Á jörðu hér
,,Hverjum þeim, sem við erf-
iðleika á að stríða, munu
bækur hans örugg hjálp.
Það kann að vera að manni
sem lífið leikur við, sé ekki
nauðsynlegt að lesa þær, en
færi svo að lífið hætti leik
sínum, væri gott að vita, að
þessar bækur eru til." Þetta
hefur Kristján frá Djúpalæk
að segja um bækur Ólafs.
— Það er eins og hulinn
kraftur og máttur læknandi
orku þessa mikla mannvinar
fylli hverja síðu þessarar
bókar.
Skuggsjá-Bókabúð Olivers Steins-Sími 50045