Morgunblaðið - 12.12.1975, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 12.12.1975, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1975 27 og var Hörður foringi fyrir sveit- inni. Þar náði sveitin ágætum ár- angri, varð í 3. sæti á fjölmennu móti með sama stigafjölda og sveit nr. 2 og einu stigi á eítir sigurvegurunum. Þennan árang- ur þakka ég Herði fyrst og fremst, þó ekki vegna þess að hann væri betri bridge-spilari en við hinir, heldur vegna þess hæfileika að láta menn vinna saman, engar óánægjuraddir, stefna allir að einu marki, þá kom árangurinn. Við hverja máltíð var hann glaður og reifur, uppfullur af smellnum sögum, sem hann sagði á sinn skemmtilega hátt svo unun var á að hlýða. Frá þessum tíma tókst sú vinátta með okkur Herði, að vart leið sá dagur að við hitt- umst ekki eða ræddum saman í síma um það sem við bar. Hörður var sonur hins þjóð- kunn'a læknis Þórðar Sveinssonar og konu hans Ellenar Sveinsson, sem var af dönskum ættum. Systkini hans eru mörg og mun ég ekki telja þau upp hér, þau eru öll hin mætustu og þjóðkunn. Hörður var fæddur 11. des. 1909. Hann varð stúdent 17 ára árið 1927, og lögfræðingur frá Háskóla Islands árið 1933. Starf- aði um hríð hjá Landsbanka ís- lands, en tók við forstöðu Spari- sjóðs Reykjavíkur og nágrennis árið 1942 og gegndi því með sæmd til dauðadags. Hann hafði aldrei í hug að Sparisjóðurinn yrði neitt stór- veldi á stuttum tíma, hann vissi sem var að sígandi lukka er best. Hann sagði mér að hann hefði verið gæfumaður í einkalffi sínu. Hann giftist konu sinni Ingi- björgu Oddsdóttur árið 1934 og unni henni hugástum til dauða- dags. Þau eignuðust tvö mann- vænleg börn, dr. Þórð, sérfræðing í hjartasjúkdómum, hann er að ljúka framhaldsnámi 1 Banda- ríkjunum, kvæntur Sólrúnu R. Jensdóttur, og önnu, sem gift er Leif Dungal lækni sem nú er við framhaldsnám í Kanada. Það hafa sagt mér vitrari menn að handan þessa lífs sé annað, þar sem menn eru dæmdir eftir verkum sfnum. Sé svo þarf Hörður engu að kvíða, hann var réttlátur, orðvar og vildi öllum málum koma til betri vegar. Ég kveð Hörð með söknuði, en þó er ég guði mfnum þakklátur fyrir að hafa átt tryggð hans og vináttu i áraraðir. Kæra Ingibjörg við hér í Bjarmalandi 1 sendum þér og börnum þfnum okkar samúðar- kveðjur. Kristinn Bergþórsson. Nú er leiðir skilja vil ég þakka Herði Þórðarsyni vini mínum samfylgdina, en fundum okkar bar fyrst saman fyrir rúmum fjörutíu árum. Hörður var einn af stofnendum Electric h.f., en seldi hlut sinn, þegar hann tók við starfi í Spari- sjóði Reykjavíkur og nágrennis. Endurskoðandi fyrirtækisins var hann þó æ síðan Ég mun aldrei gleyma þeirri miklu og óeigingjörnu hjálp, sem hann veitti mér með hollum ráðum og ábendingum. Hörður var drengskaparmaður og vinur vina sinna, svo mikill að fáum hefi ég kynnst slíkum. Hrein- skilni hans, samviskusemi og ótta- Ieysi við að segja hug sinn allan snart mig og kenndi mér að meta hann flestum fremur. Gáfur hans og raunsæi voru með ágætum og hafði hann þó frábært skopskyn í hópi góðra félaga og á vinafundum. Hörður var ekki allra maður, en þeir sem þekktu hann vissu að hann var tilfinningamaður. og hafði samúð með öllu sem hann taldi satt og rétt. Hann var maður sann- leikans. Við hjónin vottum Ingi- björgu konu hans, börnum þeirra Þórði og Önnu og öðru skylduliði samúð okkar. Ólafur Jónsson. Góður rækjuafli Vestfjarðabáta RÆKJUAFLI Vestfjarðabáta hefir yfirleitt verið góður sfðan rækjuveiðar hófust f haust. I nóvember stunduðu 58 bátar rækjuveiðar frá Vestfjörðum, og varð heildaraflinn f mánuðinum 593 lestir, en í fyrra var aflinn f nóvember 840 lestir. Þá stunduðu hins vegar 82 bátar veiðar. Frá Bildudal hafa róið 7 bátar og var afli þeirra i nóvember 45 lestir, en í fyrra var afli 14 báta frá Bildudal 68 lestir. Aflahæstir nú voru Vísir með 10.5 lestir og Dröfn með 9.6 lestir. Frá verstöðvunum við Isa- fjarðardjúp reru nú 37 bátar og öfluðu 435 lestir, en í fyrra var aflinn hjá 55 bátum í nóvember 474 lestir. Aflahæstu bátarnir nú voru Sigurður Þorkelsson með 22,0 lestir, Halldór Sigurðsson 19,8 lestir og Gissur hviti með 18,0 lestir. Frá Hólmavík og Drangsnesi reru nú 14 bátar, og var afli þeirra 113 lestir, en i fyrra var aflinn hjá 13 bátum 298 lestir. Aflahæstu bátarnir nú voru flest- ir með tæpar 9 lestir i mánuð- inum. Minning: Jens Jónsson skipstjóri Fæddur: 22. janúar 1927 Dáinn: 7. desember 1975. „Öruggt var þeirra áralag engum skeikaði vissa takið.“ Mér koma þessar ljóðlínur Jakobs Thorarensen í hug, er mér verður hugsað til Jens Jónssonar, skipstjóra, sem í dag verður bor- inn til hinztu hvildar aðeins tæp- lega 49 ára að aldri. Jens var fæddur að Háagerði Skagaströnd, 22. janúar 1927. Sonur hjónanna Þorbjargar Halldórsdóttur og Jóns Sölva- sonar, útvegsbónda þar. Jens var yngstur þriggja bræðra, og mun snemma hafa hafið sjóróðra með föður sínum og bræðrum frá Skaga. Eins og mörgum er títt, var Jens oft efst í huga bernsku- stöðvar sínar og uppvaxtarár. Sagði hann mér all oft frá erfið- leikum þeirra ára norður á Skaga. Fljótlega mun Jens hafa hugsað sér að gera sjósókn að ævistarfi sínu. Hann fluttist ungur suður til Reykjavíkur og hóf störf á róðra- bátum suður með sjó. Var Jens jafnan eftirsóttur sjómaður vegna afburða dugnaðar og drenglyndis. Var ætíð sótzt eftir að vinna í návist hans vegna léttleika og jafnaðargeðs. Fáir munu hafa vitað yfir hverju heljarafli Jens átti yfir að búa ef með þurfti, en alla jafna var hann þó tregur á að sýna þann aflsmun. Við Jens kynntumst fyrst í Sjó- mannaskólanum, en þaðan út- skrifaðist hgnn vorið 1952, síðan lágu leiðir hans eingöngu á togur- um. Stuttu seinna eða í ágúst 1953 giftist Jens eftirjifandi konu sinni Hlín Kristíansen. Hún reyndist manni sínum ávallt hinn innilegasti förunautur. Hún bjó manni sínum ætíð yndislegt heimili og nú síðast að Álftamýri 56, Reykjavík. Börn þeirra hjóna eru Katrín, gift Vali Sigurðssyni, Þorbjörn kvæntur Guðrúnu Kristinsdóttur, og Arna, sem er yngst þeirra barna og dvelst nú í föðurhúsum, eru barnabörn þeirra þrjú. Sam- búð þeirra hjóna var alltaf með ágætum og heimili þeirra með glæsibrag. Eftir að Jens útskrifaðist úr Sjómannaskólanum fór hann sem stýrimaður á b/v (Jranus. Árið 1958 varð hann síðan skip- stjóri b/v Pétri Ilalldórssyni til ársins 1960, er hann tók við skip- stjórn b/v Röðuls allt til áramóta 1970, en þá mun Jens hafa kennt þess meins, er varð til þess að hann fór til skurðstofnunar Dr. Bush í Kaupmannahöfn og var gerð þar á honum mikil höfuðað- gerð. Með ótrúlegum viljastyrk og karlmennsku, þegar Jens hafði náð sér eftir þá aðgerð, fór hann á sjóinn aftur, nú sem skipstjóri og stýrimaður á b/v Hvalbak frá Breiðdalsvík, sem hann einnig sótti til Japan. En fljótlega mun hafa farið á verri veginn, því hann varð tví- vegis aftur að ganga undir miklar höfuðaðgerðir í Reykjavik. Og enn stóð Jens upp og með ótrú- legu þreki hóf hann störf á ný. Nú síðustu árin starfaði Jens í landi, og mun hann hafa lengst af starf- að hjá Hampiðjunni. í raun og veru var Jens aldrei hættur á sjónum, þvf þar var hug- ur hans allur, sem sannaðist bezt er kunningjar heimsóttu hann á heimili þeirra hjóna. Voru þar oft rifiaðir udd atburðir liðinna ára af sjónum, af togaranum Röðli, en þar var ég undirritaður lengst af með Jens, bæði sem stýrimanni og skipstjóra. Nú er Jens allur — þar fór góður drengur. Vil ég að endingu votta eiginkonu hans og börnum mfna dýpstu samúð. Axel Schiöth. — Minning Steinn Framhald af bls. 24 ingabúðum, þar var hvorki hátt til lofts né vítt til veggja, en hjartahlýja húsráðenda bætti upp húsakynnin. Á s.l. ári fluttust Guðrún og Steinn svo til Reykja- víkur og festu kaup á indælli íbúð að Hraunbæ 118, og hygg ég að Steinn hafi hugsað sér gott til glóðarinnar að geta sinnt þar söfnum sínum og skrifum í næði f ellinni, en til þess bar hann ekki gæfu, þvi að f nóvember var hann fluttur á sjúkrahús til rann- sóknar, og andaðist á Landakots- spftala hinn 3. des. eftir örstutta legu. Þegar ég nú enda þessi fáu minningarorð mín um minn elskulega vin, Stein Emilsson, finnst svo ótalmargt ósagt, svo ótalmargt, sem gaman hefði verið að. rifja upp, minningar, sem leita nú á hugann máski sterkar en oft áður, þegar hann nú er allur. En þess er enginn kostur í stuttri minningargrein. Fólk verður þá helzt að lesa á milli línanna þá virðingu, sem ég bar fyrir Steini, um þá vináttu, sem á milli okkar ríkti. Efst í huga mér nú á þessari skilnaðarstundu er þakklæti. Þakklæti fyrir samveruna, fyrir viðkynninguna við góðan dreng, heilsteyptan persónuleika, sem mér mun aldrei úr minni líða. Þegar Guðlaug frá Sólvangi, amma konu minnar, dvaldist ' vestra hjá okkur, urðu þau miklir vinir, hún og Steinn, ljóðuðu hvort á annað, enda bæði skáld- mælt. Guðlaug orti margar vísur til Steins, og hann svaraði með ljóðabréfi, sem birtist í bók hennar „Veikir þræðir“, og þetta ljóðabréf endaði Steinn á þessa leið, og getur það jafnframt verið niðurlag þessarar greinar: „Allir vilja áfram halda. Eignast skaltu þúsundfalda, ósk um gleði og gæfuspor. Við hittumst kannski hinum megin og höldum bæði upp sama veginn. — Það er sagt, að þar sé vor. —“ Að lokum, innilegar samúðar- kveðjur til Guðrúnar og til barn- anna frá mér og minni fjölskyldu. Friðrik Sigurbjörnsson. (II.YSIN(,ASIMIXN EH: 22480 JRorjjimblabiþ Gunnar M. Magnúss Sœti númer sex Bókin hefst á því er Ásgeir Ás- geirsson kemur 29 ára gamall i framboð f Vestur ísafjarðarsýslu og berst þar um þingsætið við hinn gamla þingkappa Guðjón Guðlaugsson. Ferill Ásgeirs er rakinn i héraði. sagt frá baráttu hans og sigrum og hvernig leið hans lá inn á þing og að lokum i forsetastólinn. Þessi frásögn er afburðasnjöll og mun lengi lifa. — Gunnar rekur síðan hinn póli- tiska æviþráð sinn, fer eftir hon- um í „sæti númer sex" á Alþingi og situr þar hundrað daga. Hér koma margir við sögu og þetta er „ismeygilega vel skrifuð bók, sem Gunnar sendir frá sér". Hann dregur upp ógleymanlegar myndir af mönnum og málefnum og bók- inni lýkur með palladómum um samþingsmenn hans. Pétur Eggerz Hvað varstu að gera öll þessi ár? Pétur Eggerz hefur i starfi sinu gengið meðal þeirra, sem leitað hafa fjár og frama, þeirra manna, sem máttur valdsins hefur freist- að. En hvers virði er valdið, féð og frægðin? Er lifshamingjuna þar að finna? Þessum og öðrum álíka spurningum leitast þessi snjalli höfundur við að svara i bók sinni, sem er skopleg lýsing hins Ijúfa lifs, háð og spé um þá lifsblekk ingu sem aðeins virðist eftirsókn eftir vindi. Pétur gagnrýnir „kerf- ið" í þessari bók, dregur dár að þvi, sem þar fer aflaga, setur gæðamat þjóðfélagsins undir smásjá og sér i gegnum blekk- ingavefinn. Enn sem fyrr hittir hann beint i mark, undan hár- beittum penna hans sviður. Gunnar M. Magnúss Hér er bókin til skemmtunar og fróöleiks Skuggsjá-Bókabúö Olivers Steins-Sími 50045

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.