Morgunblaðið - 12.12.1975, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1975
DMIR MORBIJ EINS MiRKS SIGIJR
— Gífurlegur kraftur og baráttugleði okkar manua,
sagði Axel Sigurðsson, fararstjóri liðsins
við Sjálandsúrvalið á þriðjudags-
kvöldið. Sagði Axel Sigurðsson að
þau meiðsli væru ekki alvarleg.
— Ég fór með Viggó í myndatöku
í dag, sagði Axel, — og kom þá í
ljós að blætt hafði inn á lið. Taldi
læknirinn að Viggó gæti ekki ver-
ið með í handknattleik í næstu 10
daga, þannig að óvíst er hvort
hann getur tekið þátt í leiknum
við Júgóslava.
Óli Ben átti góðan leik
Axel sagði, að erfitt væri að
nefna einn íslenzkan leikmann
öðrum betri í þessum leik. Aðall
liðsins hefði verið baráttugleði og
dugnaður og þar hefðu allir átt
jafnan hlut að máli. — Því er þó
ekki að neita, að ýmis mistök
sáust, en slíkt er ef til vill ekki
nema eðlilegt í svona leik. Axel
kvaðst þó verða að geta sérstak-
lega um frammistöðu Ólafs Bene-
diktssonar markvarðar sem var f
markinu allan leikinn og varði oft
frábærlega vel. Ölafur Jónsson
átti mjög góðan leik að venju, en
hann var í erfiðu hlutverki í vörn-
inni. Bezti leikmaður danska liðs-
ins, Flemming Hansen, reyndi
mikið að „keyra" inn á miðjuna
þar sem Ólafur var til varnar, en
svo vel tókst Ólafi að gæta hans að
Hansen skoraði ekki eitt einasta
mark í leiknum nema úr vítakasti.
Má geta þess til gamans að
Flemming Hansen skoraði hvorki
meira né minna en 10 mörk í
landsleik Dana og Svía á dögun-
um.
Axel sagði að íslendingarnir
hefðu að mestu leikið flata vörn í
leiknum, en síðan hlaupið fram f
Danina og reynt að stöðva þá áður
en þeir fengu tíma til þess að
koma sér f skotstellingar. Er mjög
líklegt að sömu varnarleikaðferð
verði beitt í leiknum við
Júgóslava, og þvf þessi leikur
mjög ákjósanleg æfing fyrir út-
færslu þessarar varnar og sam-
vinnu leikmanna í henni.
Sveita-
keppni
JSÍ
SVEITAKEPPNI Júdósambands
tslands verður háð f Iþróttahús-
inu f Njarðvfk föstudaginn 12.
desember og hefst kl. 20.00. Hér
er um að ræða Islandsmeistara-
mót í sveitakeppni, en það var f
fyrsta sinn haldið í fyrra, og sigr-
aði þá A-sveit Júdófélags Reykja-
vfkur. Sveitakeppni er mjög
vinsælt keppnisform f júdó og á
vaxandi athygli að fagna hér á
iandi sem erlendis. Keppt er f 5
manna sveitum, þ.e. hver sveit er
skipuð mönnum úr öllum
þyngdarflokkum.
Sú sveit, sem sigrar S þessu
móti, öðlast rétt tii að taka þátt f
Evrópubikarkeppni meistara-
sveita á næsta ári.
Saga í forgstu
Saga hefur nú forystu í dönsku
1. deildar keppninni f handknatt-
leik og er liðið með 17 stig eftir
11 leikí. I öðru sæti er Helsingör
með 16 stíg eftir 10 leiki, en sfðan
koma Fredericia KFUM með 15
stig eftir 8 leiki, Stjernen með 15
stig eftir 10 leiki, Árhus KFUM
með 13 stig eftir 10 leiki, FIF
með 10 stig eftir 11 leiki, Efter-
slægten með 9 stig eftir 9 leiki,
Nöriem með 9 stig eftir 11 leiki,
AGF með 6 stig eftir 11 leiki,
Stadion með 5 stig eftír 11 leiki,
HG með 5 stig eftir 11 leiki og á
botninum er Tarup með 4 stig
eftir 11 leiki.
— ÞETTA er einn bezti lands-
leikur sem ég hef séð íslenzkt
handknattleikslið leika fyrr og
sfðar, sagði Axel Sigurðsson,
fararstjóri fslenzka landsliðsins f
keppnis- og æfingaferð þess tii
Danmerkur, um Iandsleik liðsins
við Dani f Árósum f gærkvöldi. —
Og það var sárt að tapa þessum
leik, sagði Axel, — eftir alla þá
baráttu og þann góða handknatt-
leik sem liðið sýndi hefði það
verðskuldað a.m.k. jafntefli, ef
ekki sigur.
Úrslit Ieiksins í gærkvöldi urðu
17—16 fyrir Dani, eftir að staðan
hafði verið 8—7 þeim í vil í hálf-
leik. Allt frá fyrstu mínútu til
hinnar síðustu var gífurleg bar-
átta í leiknum og liðin jöfn.
Mestur varð munurinn skömmu
fyrir lok fyrri hálfleiksins en þá
náðu Danir þriggja marka forystu
er staðan var 8—5. Tvö síðustu
mörk hálfleiksins skoruðu svo ís-
lendingar, og voru reyndar
óheppnir að jafna ekki, fengu til
þess gott tækifæri sem ekki nýtt-
ist.
Úrslit þessa leiks auka verulega
vonir um að íslenzka liðið megni
að veita Júgóslövum verulega
keppni í leiknum í Laugardals-
höllinni 18. desember n.k. Danska
liðið vann nýlega sigur yfir
sænska landsliðinu 18—14 en
sænska liðið vann svo norska
Jón Karlsson átti góðan leik með fslenzka liðinu f gærkvöidi og var
markhæstur leikmanna með 5 mörk. Myndin sýnir hann skora f
landsleik við Luxemburgara á dögunum.
landsliðið skömmu síðar. Virðist
eftir þessu að landslið Norður-
landanna séu nú mjög áþekk að
styrkleika.
Gangur leiksins
Gangur leiksins í Arósum I gær-
kvöldi var í stuttu máli sá, að
Danir skoruðu fyrsta mark leiks-
ins og höfðu eftir það forystu
allan fyrri hálfleikinn. Virtist
staða þeirra vera orðin nokkuð
góð, er þriggja marka forystu var
náð, 8—5, en íslenzka liðið gaf
ekkert eftir og náði að minnka
muninn í eitt mark áður en flaut-
að var til leikhlés. I hálfleiknum
slepptu dómararnir Axel Wester
og Kristen Bromann frá Svíþjóð
tveimur augljósum vítaköstum á
stemming var í húsinu á lokamín-
útunum og bæði liðin fengu tæki-
færi til þess að breyta stöðunni.
Það var svo ekki fyrr en örfáar
sekúndur voru til leiksloka að Ax-
el Axelssyni tókst að stinga sér
inn f dönsku vörnina og skora 16.
mark Islendinga.
Mörkin
Mörk Islendinganna skoruðu:
Jón Karlsson 5 (2 víti), Axel Ax-
elsson 3, Stefán Gunnarsson 2,
Gunnar Einarsson 2, Ólafur H.
Jónsson 2, Árni Indriðason 1 og
Páll Björgvinsson 1. Þeir, sem
ekki léku með liðinu I gærkvöldi
voru þeir Ingimar Haraldsson og
Viggó Sigurðsson, en Viggó varð
fyrir meiðslum í leik landsliðsins
Ólafur Benediktsson stóð allan
tfmann f markinu og varði mjög
vel.
Danina og munaði um minna í svo
jöfnum leik.
I seinni hálfleiknum var staðan
10—9 á 40. mínútu, 10—10 á 43.
mínútu, 12—11 á 48. mínútu,
13—12 á 51. mfnútu, 14—13 á 52.
mínútu, 16—15 á 55. mínútu og
þegar aðeins þrjár mínútur voru
til leiksloka tókst Dönum loks að
ná tveggja marka forystu og var
staðan þá 17—15. Gifurleg
Ólafur H. Jónsson hafði erfitt hlutverk f leiknum en hann gaf
Flemming Hansen ekkert eftir og skoraði þessi markakóngur danska
handknattleiksins ekkert mark nema úr vftakasti.
\ír maður tekínn víð Gróttn
Gonnar hættnr - Þórarinn Raparsson ráðinn þjálfari
Gunnar Kjartansson hefur nú hætt þjálfara-
störfum hjá 1. deildarliði Gróttu í handknattleik.
Við starfi hans hjá Gróttu tekur Þórarinn Ragnars-
son, FH-ingur, og var hann með sína fyrstu æfingu
hjá félaginu í gærkvöldi.
Ástæðan fyrir því að Gunnar
hætti mun fyrst og fremst vera
sú að Gunnar mun hafa naum-
an tíma til þjálfarastarfa eftir
áramót vegna starfs síns. Þá
nun hann heldur ekki hafa
'erið sérlega ánægður með æf-
'ngasókn Gróttumanna og
hugaleysi leikmanna liðsins.
Gunnar tók við þjálfun liðsins haustið 1974 og tókst að halda
þessu unga félagi af Seltjarnarnesi í 1. deildinni og lagði Grótta í
fyrravetur m.a. að velli mörg toppliðanna í deildinni, en ýmsir
töldu fyrirfram að Gróttuliðið væri dauðadæmt f 1. deildinni.
Þórarinn Ragnarsson kom á sínum tíma liði Gróttu upp í 1.
deild og ekki er ólíklegt að nýr maður geti hrist upp meðal
leikmanna liðsins. Verkefni Þórarins verður þó erfitt því að fyrri
umferðinni lokinni hvílir Grótta í botnsæti 1. deildarinnar í
handknattleik með fjögur stig. Ármann og Þróttur hafa 5 stig og
Framliðið 6 stig, þannig að barátta Gróttumanna er langt frá því
að vera vonlaus. Þeir geta reyndar ef þeir spjara sig f seinni
umferðinni skotizt upp á meðal efstu liðanna i deildinni. —áij.
Félögin leita
af krafti að
nýjum þjálfurum
KNATTSPYRNUFÉLÖGIN
vinna flest að því þessa dagana
að ganga frá ráðningum
þjálfara fyrir lið sfn þessa dag-
ana. Lítið hefur verið ritað um
nýjar ráðningar undanfarið og
þess er varla að vænta að veru-
legur skriður komist á þessi
mái fyrr en upp úr áramótun-
um þegar liðin byrja æfingar af
krafti á nýjan leik og aðalfund-
ir knattspyrnudeilda félaganna
hafa farið fram.
Úr 1. deildinni eru línurnar
mjög óskýrar. Ljóst er að
Þorsteinn Friðþjófsson og Sölvi
Helgason verða með nýliðana í
1. deildinni — Breiðablik og
Þrótt. Líklegt er að Framararn-
ir endurráði Jóhannes Atlason
og Guðmund Jónsson og endur-
Norðfirðingar
vilja fá
Magnús
Jónatansson f
staðinn fyrir
Magnús
Jónatansson.
tsfirðingar
hafa boðið
Gylfa Þ.Gfsla-
syni starf.
heimti auk þess Sigurberg Sig-
steinsson og Asgeir Eliasson.
Hvað hin liðin i 1. deildinni
gera er ekki vitað, en trúlega
munu þau öll reyna fyrir sér
með erlenda þjálfara.
Úr 2. deildinni eru þær
fréttir að Árni Njálsson verður
mjög sennilega með Selfyssing-
ana áfram og Hólmbert
Friðjónsson með lið Ármanns.
Ekki er ljóst hvað Vestmanney-
ingar gera, en þeir munu hafa
boðið Viktor Helgasyni
þjálfarastarfið. Einar Helgason
hefur þegar verið ráðinn
þjálfari KA á Akureyri, en
aðrar fréttir höfum við ekki
enn sem komið er af liðunum í
2. deild.
Úr þriðju deildinni er það
helzt að frétta að tvö af ,,stóru“
liðunum þar hafa þegar boðið
tveimur ungum knattspyrnu-
þjálfurum starf næsta sumar.
Eru það Isfirðingar, sem vilja
fá Gylfa Þ. Gíslason frá Sel-
fossi til sín, og Norðfirðingar,
sem vilja fá Magnús Jónatans-
son frá Eskifirði í staðinn fyrir
Magnús Jónatansson frá Akur-
eyri. Ekki hafa þessi lið gengið
frá sfnum málum enn sem
komið er. — áij.