Morgunblaðið - 12.12.1975, Side 30

Morgunblaðið - 12.12.1975, Side 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12, DESEMBER 1975 Mikil barátta - minni handknatt- leiknr hjá Leikni og Breiðabliki MIKIL barátta en minni hand- knattleikur var f leik Leiknis ok Breiðabliks I 2. deildar keppni Islandsmótsins f handknattleik sem fram fór f Laugardalshöll- inni f fyrrakvöld. Sanngjörn úr- slit leiksins voru jafntefli 19—19, en Breiðabliksmenn veru þó sigri nær, eftir að hafa haft forystu allan leikinn, allt upp f 4 mörk. Með meiri yfirvegun hefði liðið átt að ná báðum stigunum, en Leiknismenn höfðu heppnina með sér og tókst að jafna þegar skammt vartil leiksloka. Sem fyrr greinir var handknatt- leikur liðanna heldur óburðugur. Mistök á mistök ofan, skot úr von- litlum færum og vitlausar talning- ar 1 vörninni. Sjálfsagt hefur það haft töluvert að segja til hins verra hjá Leiknismönnum að þeir Halldór Björnsson, Hafliði Pét- ursson og ögmundur Kristinsson sem verið hafa fastamenn hjá því f vetur voru ekki með að þessu sinni — hafa að sögn ekki mætt á æfingar. Breiðabliksliðið er sennilega öllu slakara en það var í fyrra, sérstaklega að því leyti að það skortir nú meiri skyttur en það. Vörn liðsins er hins vegar greini- lega að lagast og markvarzlan hjá Gissur Ágústssyni var með ágæt- um í leiknum. Var hann bezti maður Breiðabliksliðsins, ásamt Danfel Þórissyni sem skoraði oft- sinnis með fallegum skotum. 1 Leiknisliðinu bar Hermann Gunnarsson greinilega af og sýndi að enn búa 1 honum þeir „taktar“ sem gerðu hann að landsliðsmanni fyrir nokkrum ár- um. Hermann er fljótur að átta sig á hlutunum, en tók stundum of mikla áhættu I skotum sinum í þessum leik. Mörk Leiknis: Hermann Gunn- arsson 10 (lv) Guðmundur Vig- fússon 3, Ðiðrik Ölafsson 2, Árni Jóhannesson 2, örn Guðmunds- son 1, Halldór Sigurðsson 1. Mörk Breiðabliks: Daniel Þórisson 8, Kristján Gunnarsson 4, Magnús Steinþórsson 4(3v) og Bjarni Bjarnason 3. Maður leiksins: Hermann Gunnarsson, Leikni. Dómarar voru Kjartan Stein- bech og Ólafur Steingrímsson. Þeir leyfðu allt of mikil átök í leiknum, en voru vel samkvæmir sjálfum sér i dómunum sem vitan- lega er jafnan fyrir miklu. —stjl. Hilmar Björnsson gerir tilraun til marksskots f leik KR og IBK f fyrrakvöld, en Þorsteinn Ólafsson (nr. 10) nær að hindra hann. Þorsteinn átti góðan leik f vörninni, auk þess sem hann skoraði 9 mörk Barátta IBK færði liðinn óvæntan signr vfir KK Ágúst til Svíþjóðar? MEÐFYLGJANDI mynd sýnir hinn snjalla leikmann IR-Iiðsins Ágúst Svavarsson skora eitt marka sinna f leik IR og Fylkis f 2. deildar keppni tslandsmótsins f fyrrakvöld. Agúst hefur fengið tilboð frá sænsku 1. deildar félagi að koma utan og leika með þvf a.m.k. það sem eftir er vetrar. — Það er óneitanlega freistandi að fara sagði Ágúst, — þeir bjóða það vel, auk þess sem ég þacf ekki að binda mig hjá þeim nema fram til vorsins. Agúst sagði, að ef af þvf yrði að hann færi til sænska Iiðsins, sem væri sennilegt, þá myndi hann fara utan nú um áramótin. Vissulega mun það veikja IR-Iiðið verulega ef Ágúst hættir að leika með þvf, en staða þess f 2. deildinni er hins vegar þegar orðin svo góð, að 1. deildar sætið næsta vetur ætti að vera nokkuð öruggt. ALLT FRAM til miðvikudags- kvöldsins hafði 2. deildin f Is- landsmótinu í handknattleik ekki verið vettvangur óvæntra við- burða. Þar hafði allt gengið að mestu samkvæmt formúlunni um að lið IR, KA og KR væru bezt. En á miðvikudagskvöldið voru það Keflvfkingar sem settu strik f reikninginn hjá einu þessara liða, KR-ingum, sem eiga nú mun minni von um að verða f toppbar- áttu f deildinni f vetur en áður. (Jrslit leiksins urðu Keflavfkur- sigur 26—25, eftir að KR-ingar höfðu haft fimm marka forvstu f hálfleik, 14—9. Var næsta furðulegt að fylgjast með þvi hvernig liðið sem varð í öðru sæti á Reykjavíkurmótinu f haust lék í seinni hálfleik en þá var tæpast heil brú í leik liðsins og fyrst og fremst vegna þess að samvinna miili leikmanna var engin. Þetta er þó ekki sagt til þess að gera lítið úr frammistöðu Keflvíkinga. Þvert á móti. Kefl- víkingarnir léku á köflum skyn- samlega og baráttugleðin var furðulega mikil. Jafnvel eftir að KR-ingar höfðu náð slikri forystu I leiknum að segja mátti að sigur þeirra væri bókaður börðust Kefl- víkingarnir eins og staðan væri jafntefli. Leikur KR-inga var sönnun þess hversu vanmáttugt knattlið getur orðið, þegar einstaklingar þess ná ekki að vinna saman. Það heyrði nánast til undantekninga að KR-ingarnir reyndu að hjálpa hvorir öðrum i vörninni, og í sóknarleiknum var mest gert upp á einsdæmi viðkomandi leik- manna. Meðan ástandið er slíkt hjá liöinu þarf það ekki að vænta árangurs. Langbeztu menn Keflavíkur- liðsins í þessum leik voru Þor- steinn Ólafsson, sem KR-ingarnir réðu hreinlega ekkert við, jafnvel þótt þeir reyndu að taka hann úr umferð, Benedikt Jóhannsson markvörður sem varði ágætlega allan leikinn og Sævar Halldórs- son sem er hættulegur horna- maður og teygði jafnan mikið á KR-vörninni. 1 heild átti Kefla- víkurliðið ágætan leik. Hilmar Björnsson var að venju bezti leikmaður KR en gerði eins og félagar hans allir mörg mistök i leiknum og sum afdrifarík. Mörk KR skoruðu. Hilmar Björnsson 6, Símon Unndórsson 4, Kristinn Ingason 3, Ævar Sigurðsson 3, Ingi Steinn Björg- vinsson 3, Sigurður P. Óskarsson 2, Haukur Geirmundsson 2, Þor- varður Guðmundsson 2. Mörk Keflavfkur: Þorsteinn Ólafsson 9 (1 vítakast), Helgi Ragnarsson 6, Sævar Halldórsson 5, Grétar Grétarsson 3, Guð- mundur Jóhannesson 2, Rúnar Georgsson 1. Maður leiksins var Þorsteinn Ólafsson, IBK. —stjl. IR LET SER 14 MMA SIGIJR MGJA EINS og vænta mátti reyndist Árbæjarliðið Fylkir ekki mikil hindrun fyrir iR-inga á leið þeirra upp í 1. deild í handknatt- leiknum. I fyrrakvöld, er liðin mættust í Laugardalshöllinni sigruðu ÍR-ingar með 14 marka mun, eða 26—12. Sá munur hefði ugglaust getað orðið nokkuð stærri hefðu iR-ingar haft á því mikinn áhuga, þar sem Fylkis- menn skoruðu flest marka sinna undir lok leiksins. Staðan í hálf- leik var 12—3 fyrir IR, og hafði liðið skorað niu mörk, áður en Fylkismenn náðu að bæta sínu öðru marki við. Lék IR vörnin ágætlega í fyrri hálfleiknum, en þyngst á metunum var þó frammi- staða Jens Einarssonar í IR- markinu sem varði mjög vel, hvort sem um var að ræða skot af línu eða að utan. Var markið hjá honum lokað langtímunum saman. Um miðjan seinni hálf- leikinn var Jens visað af velli í 2 mínútur og kom ekki inná eftir það, enda var stórsigur ÍR-inga þá þegar i höfn, og markvarzlan hjá varamarkverði liðsins bærileg. Að því hefur áður verið vikið í umsögnum um leiki iR-inga í 2. deild að þeir hafi nú sizt slakara liði á að skipa en mörg félögin í 1. deild og er hver leikurinn eftir annan hjá liðinu staðfesting á því. Hefur IR-Iiðið sennilega ekki verið betra í annan tíma, sérstak- lega þó ekki vörn þess og mark- varzla. Sókn lið ,ins er einnig ágæt. Vallarbr' ddin notuð og línumenn og útispilarar jafnan á góðri hreyfingu auk þess sem IR- ingar hafa það fram yfir mörg önnur lið að vera ekki endalaust að slá knettinum niður á milli sendinga. Beztu rnenn ÍR-liðsins í leiknum voru þeir Jens, Agúst og Brynjólf- ur, en einnig mætti nefna til Hörð Hákonarson sem greinilega er mjög vaxandi leikmaður. Hjá Fylki stóð tæpast nokkur upp úr meðalmennskunni. Helzt var það þó Einar Ágústsson. Mörk IR skoruðu: Ágúst Svavarsson 8 (2 víti), Brynjólfur Markússon 7 (1 v), Hörður Hákonarson 5, Siguröur Svavarsson 3 (1 v), Sigurður Á. Sigurðsson 2, Gunnlaugur Hjálmarsson 1. Mörk Fylkis: Einar Ágústsson 5 (2 v), Steinar Birgisson 3, Halldór Sigurðsson 2, Sigurður Símonarson 1, Guðmundur Sigur- björnsson 1. Maður leiksins: Jens G. Einars- son, IR. t Dómarar: Jón Hermannsson og örn Guðmundsson og dæmdu þeir sæmilega. — stjl. STAÐAN Staðan I 2. deild Islandsmóts- ins i handknattleik er nú þessi: IR 7 7 0 0 187:105 14 KA 5 4 0 1 108:91 8 Leiknir 7 3 13 139:152 7 KR 6 3 0 3 135:127 6 Fylkir 5 2 0 3 78:98 4 IBK 6 2 0 4 109:132 4 Þór 5 10 4 108:114 2 UBK 5 0 14 75:120 1 Markhæstir Marhæstu leikmenn eru eftir taldir: Hermann Gunnarsson, Leikni 49 Brynjólfur Markússon. ÍR 46 Ágúst Svavarsson, ÍR 41 Hilmar Björnsson, KR 39 Simon Unndórsson KR 35 Hafliði Pétursson, Leikni 34 Einar Ágústsson, Fylki 24 Grétar Grétarsson, ÍBK 24 Sigtryggur Guðlaugsson, Þór 23 Þorsteinn Ólafsson, ÍBK 22 Hörður Hákonarson, ÍR 21 Þorleifur Ananiasson, KA 21 Ármann Sverrisson. KA 20 I gefið... ísleiuko hljómplötu i jólogjöf ódgr og góó gjöf - Si II

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.