Morgunblaðið - 12.12.1975, Side 32
*
FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1975
SÉRVERSLUN
MEÐ
SVÍNAKJÖT
SÍLD & FISKUR
Ofbeldi Breta á miðunum:
Kærðir fyrir Oryggis-
ráðinu og NATO-ráðinu
RlKISSTJORNIN ákvað síðdcgis
f gær að kæra ásiglingar brezkra
dráttarbáta innan viðurkenndrar
NOKKRAR umræður hafa orðið
um það undanfarna daga f kjölfar
Alþýðubankamálsins hvort
bankastjðrarnir einir beri ábyrgð
á hinum óeðlilega miklu útlánum
til fárra aðila og bankaráðið, sem
nú hefur tekið við stjórn bank-
ans, sé undanskilið allri slfkri
ábyrgð. Vegna þessa sneri
Morgunblaðið sér m.a. til dr.
Jóhannesar Nordal, bankastjóra f
Seðlabankanum, og spurði hann
hvaða álit hann hefði á ábyrgð
bankaráðs Alþýðubankans.
Dr. Jóhannes svaraði því til, að
Alþýðubankinn væri hlutafélag
og bankaráðið væri stjórn þess
hlutafélags og bæri alla ábyrgð á
rekstri þess. Á þessu væri ekki
neinn vafi en hins vegar giltu
vafalaust innan Alþýðubankans
eins og annarra fyrirtækja reglur
landhelgi fyrir bæði öryggisráði
Sameinuðu þjóðanna og Atlants-
hafsráðinu. Var þessi ákvörðun
um það á hvaða hátt bankastjórn
og starfsmenn störfuðu í umboði
bankaráðsins.
Morgunblaðið spurði hvort
Seðlabankinn hefði þá enginn
afskipti af setu bankaráðs i banka
eins og Alþýðubankanum en dr.
Jóhannes endurtók, að Alþýðu-
bankinn væri hlutafélag og einka-
fyrirtæki. Bankaráðið bæri
ábyrgð gagnvart hluthöfunum
eða eigendum bankans en ekki
öðrum. Seðlabankinn eða banka-
eftirlitið hefði enga heimild til
þess að grípa inn j stjórn einka-
fyrirtækis og sagði að eftir því
sem hann vissi bezt hefði ráðu-
neytið það ekki heldur.
Sagði Jóhannes ennfremur, að
þetta fyrirkomulag væri á ýmsan
hátt öðru vísi varðandi verka-
skiptingu bankaráða og banka-
tekin að höfðu samráði við utan-
rfkismálanefnd, sem kölluð var
saman til fundar f gærkvöldi til
stjórnar í ríkisbönkunum, en þar
bæru bankastjórar vissa ábyrgð
beint.
Af þessum ummælum má draga
þá ályktun, að bankaráð einka-
banka á borð við Alþýðubankann
sé raunverulega valdameira en
bankaráð rfkisbankanna og því
beri ráðinu að hafa eftirlitsskyldu
gagnvart hluthafafundi og skuli
fylgjast með bankastjórninni.
Eins og fram kemur í annarri
frétt i blaðinu í dag hefur for-
maður bankaráðs Alþýðubankans
lýst þvf yfir að bankaráðið muni
annast stjórn bankans sjálft fram
yfir aðalfund og að hann líti svo á
að með því að óska eftir opinberri
rannsókn hafi bankaráðið sjálft
sett sig undir rannsókn hvað
snertir hin umdeildu viðskipti
bankans.
að fjalla um málið. Var þar algjör
samstaða um ákvörðun rfkis-
stjórnarinnar en jafnframt rætt
um aðrar aðgerðir sem teknar
verða ákvarðanir um þegar utan-
ríkisráðherra kemur heim frá
Briissel á morgun eða sunnudag.
Fréttatilkynningin frá forsætis-
ráðuneytinu er svohljóðandi:
Á ríkisstjórnarfundi síðdegis í
dag og í samráði vió utanríkis-
málanefnd Alþingis var í kvöld
tekin ákvörðun um það að kæra
ásiglingar brezkra dráttarbáta á
varðskipið Þór innan viður-
kenndrar landhelgi Islands 1,9
sjm. frá landi fyrir öryggisráði
Sameinuðu þjóðanna og Atlants-
hafsráðinu.
Einar Ágústsson, utanríkisráð-
herra, mun flytja þetta mái á
fundi Atlantshafsráðsins á
morgun. Þá mun Ingvi Ingvason
bera fram kæru í öryggisráðinu í
framhaldi orðsendingar um land-
helgismálið, sem hann afhenti
formanni ráðsins í dag.
Þá hafði Morgunblaðið sam-
band við Þórarin Þórarinsson,
formann utanrfkismálanefndar
Alþingis, skömmu eftir að fundi
nefndarinnar lauk á ellefta
tímanum í gærkveldi. Þórarinn
sagði að algjör samstaða hefði ríkt
Framhald á bls. 18
— Ljósm.: Friðgeir Olgeirsson
Stefni dráttarbátsins
Lloydsman er hér komið
upp að brúnni á varðskip-
inu Þór. Ef grannt er
skoðað til hægri undir Ijós-
kastaranum sést kjölfar
dráttarbátsins og hvernig
hann hefur beygt í þeim
tilgangi að sigla á Þór.
Myndin er af fyrri ásigl-
ingu Lloydsman á Þór.
Dýraríki
Gröndals
kemur ekki
út fyrir jól
BÓKIN Dýrarfki Islands, sem
hefur að geyma teikningar
Bencdikts Gröndals skálds, er
hann gerði á árunum 1874 til
1905 og átti að koma út hjá
bókaútgáfunni Erni og Örlygi
h.f. fyrir þessi jói, kemur ekki
út fyrr en á fyrri hluta næsta
árs. Astæða þess að útkoma
bókarinnar dregst er sú, að við
prentun hennar mistókst
prentun á nokkrum örkum og
ákváðu forráðamenn bókaút-
gáfunnar að láta prenta þessar
arkir á ný. Endurprentunin
tekur nokkurn tfma, þar sem
pappfr f bókinni er sérunninn.
örlygur Hálfdánarson hjá
bókaútgáfunni Erni og Örlygi
sagði, að við prentun bókar-
innar hefðu komið til tæknileg
vandkvæði og hefði prentun á
nokkrum örkum ekki tekizt
sem skyldi. Örlygur tók fram
að hér væri um mjög dýra bók
Framhald á bls. 31.
Bankaráð ber ábyrgð
og eftirlitsskyldu