Morgunblaðið - 21.12.1975, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. DESEMBER 1975
5
Miklar annir
í innanlands-
flugi um jólin
100% aukning hjá Vængjum
SÉRSTÖK jólaáætlun var sett
upp fyrir innanlandsflug Flug-
félags íslands og gildir hún frá
17. — 24. desember. Samkvæmt
þessari áætlun verða flognar rúm-
lega 30 aukaferðir til viðkomu-
staða Flugfélags Island. víðs-
vegar á landinu. Þann 17. des-
ember hófust aukaferðirnar jafn-
hliða áætlunarfluginu, en mesta
annríkið mun verða frá föstudeg-
inum 19. desember til þriðjudags
23. desember, Þorláksmessu.
Á aðfangadag verður flogið til
eftirtalinna staða: Akureyrar,
Vestmannaeyja, Isafjarðar,
Patreksfjarðar, Húsavíkur, Egils-
staða og Sauðárkróks. Þess skal
getið, að á aðfangadag verður
flugferðum til Egilsstaða og Sauð-
árkróks flýtt frá venjulegri áætl-
un. Síðasta brottför frá Reykjavík
fyrir jól verður kl. 15.00. Á jóla-
dag verður ekkert flogið innan-
lands, en 26. desember, annan dag
jóla verður svo flogið samkvæmt
'aætlun. A nýársdag verður ekkert
flug flogið innanlands, en frá og
með 2. janúar samkvæmt áætlun.
Einnig munu verða flognar auka-
ferðir til nokkurra staða.
Hjá Flugfélaginu Vængjum er
einnig mikil aukning á ferðum
um hátíðirnar, eða um 100%, og
er bæði um að ræða farþega og
vöruflutninga víða um land. Flug
hefur gengið nokkuð eðlilega
fyrir sig og veður hefur lítið tafið.
Kveikt á
jólatré í
Kópavogi
I DAG, sunnudag, kl. 5, verður
kveikt á stóru jólatré í Kópavogi,
en tréð er gjöf til Kópavogs frá
Nordkjöping í Svíþjóð. Sænski
sendiherrann, Olav Kaiser, af-
hendir tréð en við því tekur Jó-
hann, H. Jónsson forseti bæjar-
stjórnar. Skólahljómsveit Kópa-
vogs mun leika við athöfnina.
Jólasveinarnir
á Austurvelli
ASKASLEIKIR og slangur af öðr-
um jólasveinum verða á Austur-
velli í dag kl 4 og munu þeir verða
í horninu hjá bókaverzlun Isa-
foldar. Jólasveinarnir munu
syngja þar og leika og gera ýmis-
legt skemmtilegt eins og þeirra er
von og vísa.
„Séra Pétur”
þrotinn
hjá forlaginu
NÝJASTA skáldsaga Guðmundar
G. Hagalfn, Segið nú amen séra
Pétur, sem kom út hjá Almenna
bókafélaginu í nóvember er nú
uppseld hjá forlaginu. Baldvin
Tryggvason framkvæmdastjóri
Almenna bókafélagsins kvað
bókina hafa selzt mjög vel en
Baldvin kvað þetta aðra bókina
sem hefði komið út á árinu hjá
Almenna bókafélaginu, hin fyrri
var Ijóðabókin Dagur ei meir eftir
Matthías Johannessen skáld og
ritstjóra.
peysur — kjoi
blússur — pils
gallabuxur —
kúrekastígvél
TIZKUVERZLUN UNGA FOLKSINS ^
KARNABÆR
AUSTURSTR/ETI 22
LAUGAVEG66 LAUGAVEG20a
SÍMI FRA SKIPTIBORÐI 28155