Morgunblaðið - 21.12.1975, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 21.12.1975, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. DESEMBER 1975 11 Hér er bókin til skemmtunar og fróðleiks MaiJnua Ma^nilBson RÁDHERRAR ÍSLANDS 1904 - 1071 Magnús Magnússon RÁÐHERRAR ÍSLANDS 1904— 1971 Magnús Stormur, höfundur þessarar bókar, er lands- kunnur fyrir ritstörf og blaðamennsku og fyrir þa5, a5 vera ömyrkur I mili. tala tæpitungulaust. Hann segir ! formála bókarinnar: ... . . ég vil taka fram að ég einn ber alla ábyrgð á þvi, sem sagt er ráðherrunum til lofs eða lasts. nema þar sem ummaeli annarra eru tilfærð." Og hann biður menn að hafa í huga, að þetta eru aðeins svipmyndir og þv! hvergi um alhliða lýsingu að ræða, en segir jafnframt að hann telji sig hafa góða aðstöðu til að geta lýst ráðherrunum með nokkrum sannindum, „þvl ég hef séð þá alla. talað við flesta. kynnzt mörgum þeirra mikið og sumum allnáið." — Allir, sem þekkja Magnús Storm og skrif hans, vita að hér er bók sem þeir verða að eignast HALLDÓR PJETURSSON DRAUMAR, SÝNIR OG DULRÆNA Stórmerkar sagnir af draum- spöku og dulrænu fólki, fjöldi merkra drauma, frásagnir af furðulegum sýnum og sér- stæðar sagnir af óvenjulegum miðilsfundum. Hér er t.d. veigamikil frásögn af Þórunni grasakonu Gísladóttur og ætt- fólki hennar, en sonur hennar var hinn landskunni grasa- læknir Erlingur Filippusson. HALLDÓR PJETURBBON draumar sýnir dulrmna INGÓLFUR JÓNSSON FRÁ PRESTSBAKKA jöíkqftt ^ágtiir INGÓLFUR JÓNSSON FRÁ PRESTSBAKKA ÞJÓÐLEGAR SAGNIR Þetta seinna bindi Þjóðlegra sagna hefur að geyma stutt- orðar og gagnorðar sagnir, margar bráðsnjallar og ýmsar stórfyndnar. Þær eru skráðar á kjarngóðu máli og sem fyrr hefur Ingólfur fyrst og fremst leitað fanga hjá alþýðu manna, þvi þar finnst honum viðmótið bezt, frásögnin einlægust og sagnaheimurinn stærstur. — Þetta er þjóðleg bók, góður viðauki við fyrri sagnasöfn. HOWARD MURPHET SAI BABA — MAÐUR KRAFTA- VERKANNA Hér er sagt frá einum áhrifa- mesta kraftaverkamanni, sem fram hefur komið um aldaraðir. Kraftaverkum þessa undramanns er l!kt við krafta- verk Krists og samfara þeim fer sú ást og umhyggja. sem Kristur hlýtur einnig að hafa búið yfir, og auk þess vit- neskjan um Guð, sem opnar dyrnar að nýrri llfssýn. Bókin um Sai Baba er stórkostleg og hrifandi. tíunnar M. Matfnúss GUNNARM MAGNUSS SÆTINÚMERSEX Bókin hefst á þv! er Ásgeir Ásgeirsson kemur 29 ára gamall I framboð i Vestur-ísafjarðarsýslu og berst þar um þingsætið við hinn gamla þingkappa Guðjón Guðlaugsson. Ferill Ás- geirs er rakinn i héraði, sagt frá baráttu hans og sigrum og hvernig leið hans lá inn á þing og að lokum i forsetastólinn. Þessi frásögn er afburða- snjöll og mun lengi lifa. — Gunnar rekur slðan hinn pólitlska æviþráð sinn, fer eftir honum i „sæti númer sex" á Alþingi og situr þar hundrað daga. Hér koma margir við sögu og þetta er „ismeygilega vel skrifuð bók, sem Gunnar sendir frá sér". Hann dregur upp ógleymanlegar myndir af mönnum og málefnum og bókinni lýkur með palla- dómum um samþingsmenn hans, ~~ og fær þar hver kappinn sinn skammt ómældan. STEINAR BRflUÐINU JON helgason JÓN HELGASON STEINAR í BRAUÐINU Rithöfundareinkenni Jóns Helgasonar eru fyrst og fremst fagurt mál, frásagnarlist og stilsnilld. Þessi bók hans ber öll þessi glæstu merki. Hún er leikur að máli og lifsmyndum, mikilúðlegur skáldskapur, sem vekja mun athygli allra, sem fögrum bókmenntum unna. Þessar sögur hans eru svo vel sagðar að til tiðinda mun verða talið þegar bókmenntauppskera þessa árs verður gerð upp. SKOI..I GUÐjÓNSSON UÓTUNNAUSTÖDiJM SKÚLI GUÐJÓNSSON LJÓTUNNARSTÖÐUM SVO HLEYPUR ÆSKAN UNGA Minningabrot frá bernsku höf- undarins, þar sem hann segir frá persónulegri reynslu sinni og bregður upp skemmtilegum svipmyndum af mönnum, sem honum urðu minnisstæðir. Hann segir frá „Guðfræðinámi I hænsnakofa", ræðir „Um gesti og gestakomur" og „Fornar ástir og þjóðlegt klám", frásagnir, sem hafa sér- stakt heimildargildi um þau — viðhorf, sem óðum eru að gleymast. í þeim birtist e.t.v. bezt hin sérstæða frásagnarsnilld höfundarins og hæfileiki hans til að skynja samtíð sina og breytta menningarstrauma. WOLFGANG LOTZ KAMPAVÍNS- NJÓSNARINN Þessi bók er hrikalega spennandi, hún er skjalfest og sönn frásögn af viðburðariku og æsilega ævintýralegu lifi, ótrúlegasta njósnasaga sem skrifuð hefur verið. Lotz starf- aði sem israelskur njósnari i Egyptalandi, varð trúnaðar- vinur hershöfðingja, ráðherra og leyniþjónustuforingja og þýzka nýlendan I Katró bauð hann sérstaklega velkominn. En upp komast svik um slðir, og Lotz var handtekinn og ekkert virtist blða hans annað en snaran. Sexdagastríðið varð honum til bjargar. — Þetta er æsispennandi og ótrúleg bók, en hvert orð er skjalfest og satt. ' N10SNARINN DR. JAKOB JÓNSSON LÍF VIÐ DAUÐANS DYR LIF VIÐ DAUÐANS DYR Dr. Jakob segir hér frá reynslu sinni sem sjúkrahússprestur. Hann fjallar um mótlætið, heilsuleysið og sjúkrahúsið, um dauðann og þá einnig hinn umdeilda dauða, um heim- sækjendur, sorg og huggun og loks um heilbrigðina og Iffs- hamingjuna. Þessi bók fjallar um vandamál, sem snerta hvern einasta mann, hvort heldur er sjúkan og sorg- mæddan eða geislandi af lífs- fjöri og krafti. Þetta eru hugleiðingar manns mikillar reynslu, manns, sem segir hispurslaust frá, vekur t hugsunar og skilnings á miklu vandamáli. Jakob Jóns- son SALTFISKUR OG SÖNGLIST HARALDUR GUÐNASON SALTFISKUR OG SÖNGLIST Hér er sagt frá Skarðsselsbræðrum, Berg- steini á Yrjum, Hreiðari i Hvammi og Jóni i Skarðsseli og afkomendur þeirra raktir. „Djöfullinn I helvíti gefi þér tóbak" heitir þáttur um séra Loft á Krossi og þáttur er um Erlend Helgason I Heysholti, sem varð þjóðsagnapersóna þegar i lifanda lifi. Saltmengaðar frásagnir eru af nckkrum gamalkunnum Vest- mannaeyingum: Matthlasi Finnbogasyni, Guðmundi Ög- mundssyni, fyrsta vitaverði í Eyjum, Lauga i Mandal, Þórði formanni Stefánssyni, Jóhanni i Stighúsi, Friðrik i Bataviu, Hannesi Hreinssyni og loks Helga Jónssyni taktor i Garðin- um. PÉTUR EGGERZ HVAÐ VARSTU AÐ GERA ÖLL ÞESSIÁR? Pétur Eggerz hefur i starfi sinu gengið meðal þeirra, sem leitað hafa fjár og frama, þeirra manna, sem máttur valdsins hefur freist- að. En hvers virði er valdið, féð og frægðin? Er lífs- hamingjuna þar að finna? Þessum og öðrum álika spurningum leitast þessi snjalti höfundur við að svara i bók sinni, sem er skopleg lýsing hins Ijúfa lífs, háð og spé um þá lifsblekkingu sem aðeins virðist eftir sókn eftir vindi. Pétur gagnrýnir „kerfið" i þessari bók, dregur dár að þvi, sem þar fer aflaga, setur gæðamat þjóðfélagsins undir smásjá og sér i gegnum blekkingavefinn. Enn sem fyrr hittir hann beint I mark, undan hárbeittum penna hans svtður. ÓLAFURTRYGGVASON Á JÖRÐU HÉR „Hverjum þeim, sem við erfið- leika á að stríða, munu bækur hans örugg hjálp. Það kann að vera að manni sem Jífið leikur við, sé ekki nauðsynlegt að lesa þær, en færi svo að lifið hætti leik sinum, væri gott að vita, að þessar bækur eru til." Þetta hefur Kristján frá Djúpa- læk að segja um bækur Ólafs. — Það er eins og hulinn kraftur og máttur læknandi orku þessa mikla mannvinar fylli hverja síðu þessarar bókar. (sarrlancl ýíáog Metnaður BARBARA GARTLAND ÁST OG METNAÐUR Brora lávarður er vanur að stjórna og ráða ferðinni og þvi verður hann fyrst og fremst reiður, þegar fegurðardisin Melia Melchester slitur trú- lofun þeirra. Og þegar hann hittir hina ungu Jane Mac Leod. sem svipað er ástatt fyrir fær lávarðurinn eina af slnum stórsnjöllu hugmyndum. Stór- skemmtileg og eldfjörug ástar- saga. THERESA CHARLES ERFÐASKRÁIN Ný og spennandi ástarsaga eft- ir metsöluhöfundinn vinsæla. — Það var nánast tilviljun að Nixy Warren gerðist hjúkrunar- kona og það voru einnig til- viljanir að hún hafði tvivegis orðið ástfangin af röngum karl- mönnum — og slíkt var hún ákveðin í að láta ekki endur- taka sig. En svo kom Harvey Mayfield, ungur og glæsilegur, og lifið er sannarlega fullt af æsispennandi tilviljunum. :á\n FAÐIRMINN —BÓNDINN GÍSLI KRISTJÁNSSON RITSTÝROI. Fjórtán þættir um stórbrotna og á ýmsan hátt fyrirferðar mikla bændahöfðingja, skráðir af börnum þeirra: Guðmundur Þorbjarnarson, Stóra-Hofi, eftir Hákon Gbðmundsson — Bjarni Jensson. Ásgarði eftir Torfa Bjarna- son — Kristinn Guðlaugsson. Núpi, eftir Unni Kristinsdóttur — Gisli Jónsson, Hofi, eftir Gunnlaug Gíslason — Þórarinn Jónsson, Hjaltabakka, eftir Hjalta Þórarinsson — Friðrik Sæmundsson, Efri-Hólum, eftir Sæmund Friðriksson — Þ Magnús Þorláksson, Blikastoðum, eftir Helgu Magnúsdóttur -— Jón Konráðsson, Bæ. eftir Bjöm Jónsson — Guðbjartur Kristjánsson, Hjarðarfelli, eftir Gunnar Guðbjartsson Bjöm Þorkeisson, Hnefils- dal, eftir Þorkel Björnsson — Jakob H. Lindal, Lækja- móti eftir Sigurð Llndal — Sverrir Gislason, Hvammi, eftir Ólaf Sverrisson — Jón Sigutðsson, Yztafelli, eftir Jónas Jónsson — Helgi Jónsson, Seglbúðum. eftir Jón Helgason. — Allir voru þessir bændur braut- ryðjendur, hver með sinum sérstæða hætti, og allir voru þeir héraðshöfðingjar, kraftmiklir kjarnakarlar sem settu sterkan svip á samtið sina. Skuggsjá-Bókabúð Olivers Steins-Sími 50045

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.