Morgunblaðið - 21.12.1975, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. DESEMBER 1975
11
Hér er bókin til skemmtunar og fróðleiks
MaiJnua Ma^nilBson
RÁDHERRAR
ÍSLANDS
1904 - 1071
Magnús Magnússon
RÁÐHERRAR
ÍSLANDS
1904— 1971
Magnús Stormur, höfundur
þessarar bókar, er lands-
kunnur fyrir ritstörf og
blaðamennsku og fyrir þa5,
a5 vera ömyrkur I mili. tala
tæpitungulaust. Hann segir
! formála bókarinnar: ... . .
ég vil taka fram að ég einn
ber alla ábyrgð á þvi, sem
sagt er ráðherrunum til lofs
eða lasts. nema þar sem
ummaeli annarra eru
tilfærð."
Og hann biður menn að hafa í huga, að þetta eru aðeins
svipmyndir og þv! hvergi um alhliða lýsingu að ræða, en
segir jafnframt að hann telji sig hafa góða aðstöðu til að geta
lýst ráðherrunum með nokkrum sannindum, „þvl ég hef séð
þá alla. talað við flesta. kynnzt mörgum þeirra mikið og
sumum allnáið." — Allir, sem þekkja Magnús Storm og
skrif hans, vita að hér er bók sem þeir verða að eignast
HALLDÓR PJETURSSON
DRAUMAR, SÝNIR
OG DULRÆNA
Stórmerkar sagnir af draum-
spöku og dulrænu fólki, fjöldi
merkra drauma, frásagnir af
furðulegum sýnum og sér-
stæðar sagnir af óvenjulegum
miðilsfundum. Hér er t.d.
veigamikil frásögn af Þórunni
grasakonu Gísladóttur og ætt-
fólki hennar, en sonur hennar
var hinn landskunni grasa-
læknir Erlingur Filippusson.
HALLDÓR PJETURBBON
draumar
sýnir
dulrmna
INGÓLFUR JÓNSSON
FRÁ PRESTSBAKKA
jöíkqftt
^ágtiir
INGÓLFUR JÓNSSON FRÁ
PRESTSBAKKA
ÞJÓÐLEGAR
SAGNIR
Þetta seinna bindi Þjóðlegra
sagna hefur að geyma stutt-
orðar og gagnorðar sagnir,
margar bráðsnjallar og ýmsar
stórfyndnar. Þær eru skráðar á
kjarngóðu máli og sem fyrr
hefur Ingólfur fyrst og fremst
leitað fanga hjá alþýðu manna,
þvi þar finnst honum viðmótið
bezt, frásögnin einlægust og
sagnaheimurinn stærstur. —
Þetta er þjóðleg bók, góður
viðauki við fyrri sagnasöfn.
HOWARD MURPHET
SAI BABA —
MAÐUR KRAFTA-
VERKANNA
Hér er sagt frá einum áhrifa-
mesta kraftaverkamanni, sem
fram hefur komið um aldaraðir.
Kraftaverkum þessa
undramanns er l!kt við krafta-
verk Krists og samfara þeim
fer sú ást og umhyggja. sem
Kristur hlýtur einnig að hafa
búið yfir, og auk þess vit-
neskjan um Guð, sem opnar
dyrnar að nýrri llfssýn. Bókin
um Sai Baba er stórkostleg og
hrifandi.
tíunnar M. Matfnúss
GUNNARM MAGNUSS
SÆTINÚMERSEX
Bókin hefst á þv! er Ásgeir Ásgeirsson kemur 29 ára gamall I
framboð i Vestur-ísafjarðarsýslu og berst þar um þingsætið
við hinn gamla þingkappa Guðjón Guðlaugsson. Ferill Ás-
geirs er rakinn i héraði, sagt frá baráttu hans og sigrum og
hvernig leið hans lá inn á þing og að lokum i forsetastólinn.
Þessi frásögn er afburða-
snjöll og mun lengi lifa. —
Gunnar rekur slðan hinn
pólitlska æviþráð sinn, fer
eftir honum i „sæti númer
sex" á Alþingi og situr þar
hundrað daga. Hér koma
margir við sögu og þetta er
„ismeygilega vel skrifuð
bók, sem Gunnar sendir frá
sér". Hann dregur upp
ógleymanlegar myndir af
mönnum og málefnum og
bókinni lýkur með palla-
dómum um samþingsmenn
hans, ~~ og fær þar hver
kappinn sinn skammt
ómældan.
STEINAR BRflUÐINU
JON helgason
JÓN HELGASON
STEINAR
í BRAUÐINU
Rithöfundareinkenni Jóns
Helgasonar eru fyrst og fremst
fagurt mál, frásagnarlist og
stilsnilld. Þessi bók hans ber
öll þessi glæstu merki. Hún er
leikur að máli og lifsmyndum,
mikilúðlegur skáldskapur, sem
vekja mun athygli allra, sem
fögrum bókmenntum unna.
Þessar sögur hans eru svo vel
sagðar að til tiðinda mun verða
talið þegar bókmenntauppskera
þessa árs verður gerð upp.
SKOI..I GUÐjÓNSSON
UÓTUNNAUSTÖDiJM
SKÚLI GUÐJÓNSSON
LJÓTUNNARSTÖÐUM
SVO HLEYPUR
ÆSKAN UNGA
Minningabrot frá bernsku höf-
undarins, þar sem hann segir
frá persónulegri reynslu sinni
og bregður upp skemmtilegum
svipmyndum af mönnum, sem
honum urðu minnisstæðir.
Hann segir frá „Guðfræðinámi
I hænsnakofa", ræðir „Um
gesti og gestakomur" og
„Fornar ástir og þjóðlegt
klám", frásagnir, sem hafa sér-
stakt heimildargildi um þau —
viðhorf, sem óðum eru að gleymast. í þeim birtist e.t.v. bezt
hin sérstæða frásagnarsnilld höfundarins og hæfileiki hans
til að skynja samtíð sina og breytta menningarstrauma.
WOLFGANG LOTZ
KAMPAVÍNS-
NJÓSNARINN
Þessi bók er hrikalega
spennandi, hún er skjalfest og
sönn frásögn af viðburðariku
og æsilega ævintýralegu lifi,
ótrúlegasta njósnasaga sem
skrifuð hefur verið. Lotz starf-
aði sem israelskur njósnari i
Egyptalandi, varð trúnaðar-
vinur hershöfðingja, ráðherra
og leyniþjónustuforingja og
þýzka nýlendan I Katró bauð
hann sérstaklega velkominn.
En upp komast svik um slðir, og Lotz var handtekinn og
ekkert virtist blða hans annað en snaran. Sexdagastríðið
varð honum til bjargar. — Þetta er æsispennandi og ótrúleg
bók, en hvert orð er skjalfest og satt.
' N10SNARINN
DR. JAKOB JÓNSSON
LÍF VIÐ
DAUÐANS DYR
LIF
VIÐ
DAUÐANS
DYR
Dr. Jakob segir hér frá reynslu
sinni sem sjúkrahússprestur.
Hann fjallar um mótlætið,
heilsuleysið og sjúkrahúsið,
um dauðann og þá einnig hinn
umdeilda dauða, um heim-
sækjendur, sorg og huggun og
loks um heilbrigðina og Iffs-
hamingjuna. Þessi bók fjallar
um vandamál, sem snerta
hvern einasta mann, hvort
heldur er sjúkan og sorg-
mæddan eða geislandi af lífs-
fjöri og krafti. Þetta eru hugleiðingar manns mikillar
reynslu, manns, sem segir hispurslaust frá, vekur t
hugsunar og skilnings á miklu vandamáli.
Jakob
Jóns-
son
SALTFISKUR OG
SÖNGLIST
HARALDUR GUÐNASON
SALTFISKUR
OG SÖNGLIST
Hér er sagt frá
Skarðsselsbræðrum, Berg-
steini á Yrjum, Hreiðari i
Hvammi og Jóni i Skarðsseli
og afkomendur þeirra raktir.
„Djöfullinn I helvíti gefi þér
tóbak" heitir þáttur um séra
Loft á Krossi og þáttur er um
Erlend Helgason I Heysholti,
sem varð þjóðsagnapersóna
þegar i lifanda lifi.
Saltmengaðar frásagnir eru af nckkrum gamalkunnum Vest-
mannaeyingum: Matthlasi Finnbogasyni, Guðmundi Ög-
mundssyni, fyrsta vitaverði í Eyjum, Lauga i Mandal, Þórði
formanni Stefánssyni, Jóhanni i Stighúsi, Friðrik i Bataviu,
Hannesi Hreinssyni og loks Helga Jónssyni taktor i Garðin-
um.
PÉTUR EGGERZ
HVAÐ VARSTU
AÐ GERA ÖLL
ÞESSIÁR?
Pétur Eggerz hefur i starfi
sinu gengið meðal þeirra,
sem leitað hafa fjár og
frama, þeirra manna, sem
máttur valdsins hefur freist-
að. En hvers virði er valdið,
féð og frægðin? Er lífs-
hamingjuna þar að finna?
Þessum og öðrum álika
spurningum leitast þessi
snjalti höfundur við að
svara i bók sinni, sem er
skopleg lýsing hins Ijúfa
lífs, háð og spé um þá lifsblekkingu sem aðeins virðist eftir
sókn eftir vindi. Pétur gagnrýnir „kerfið" i þessari bók,
dregur dár að þvi, sem þar fer aflaga, setur gæðamat
þjóðfélagsins undir smásjá og sér i gegnum blekkingavefinn.
Enn sem fyrr hittir hann beint I mark, undan hárbeittum
penna hans svtður.
ÓLAFURTRYGGVASON
Á JÖRÐU HÉR
„Hverjum þeim, sem við erfið-
leika á að stríða, munu bækur
hans örugg hjálp. Það kann að
vera að manni sem Jífið leikur
við, sé ekki nauðsynlegt að
lesa þær, en færi svo að lifið
hætti leik sinum, væri gott að
vita, að þessar bækur eru til."
Þetta hefur Kristján frá Djúpa-
læk að segja um bækur Ólafs.
— Það er eins og hulinn
kraftur og máttur læknandi
orku þessa mikla mannvinar
fylli hverja síðu þessarar
bókar.
(sarrlancl
ýíáog
Metnaður
BARBARA GARTLAND
ÁST OG
METNAÐUR
Brora lávarður er vanur að
stjórna og ráða ferðinni og þvi
verður hann fyrst og fremst
reiður, þegar fegurðardisin
Melia Melchester slitur trú-
lofun þeirra. Og þegar hann
hittir hina ungu Jane Mac
Leod. sem svipað er ástatt fyrir
fær lávarðurinn eina af slnum
stórsnjöllu hugmyndum. Stór-
skemmtileg og eldfjörug ástar-
saga.
THERESA CHARLES
ERFÐASKRÁIN
Ný og spennandi ástarsaga eft-
ir metsöluhöfundinn vinsæla.
— Það var nánast tilviljun að
Nixy Warren gerðist hjúkrunar-
kona og það voru einnig til-
viljanir að hún hafði tvivegis
orðið ástfangin af röngum karl-
mönnum — og slíkt var hún
ákveðin í að láta ekki endur-
taka sig. En svo kom Harvey
Mayfield, ungur og glæsilegur,
og lifið er sannarlega fullt af
æsispennandi tilviljunum.
:á\n
FAÐIRMINN —BÓNDINN
GÍSLI KRISTJÁNSSON RITSTÝROI.
Fjórtán þættir um stórbrotna og á ýmsan hátt fyrirferðar
mikla bændahöfðingja, skráðir af börnum þeirra:
Guðmundur Þorbjarnarson, Stóra-Hofi, eftir Hákon
Gbðmundsson — Bjarni Jensson. Ásgarði eftir Torfa Bjarna-
son — Kristinn Guðlaugsson. Núpi, eftir Unni Kristinsdóttur
— Gisli Jónsson, Hofi, eftir Gunnlaug Gíslason — Þórarinn
Jónsson, Hjaltabakka, eftir Hjalta Þórarinsson — Friðrik
Sæmundsson, Efri-Hólum, eftir Sæmund Friðriksson — Þ
Magnús Þorláksson, Blikastoðum, eftir Helgu Magnúsdóttur
-— Jón Konráðsson, Bæ. eftir Bjöm Jónsson — Guðbjartur
Kristjánsson, Hjarðarfelli,
eftir Gunnar Guðbjartsson
Bjöm Þorkeisson, Hnefils-
dal, eftir Þorkel Björnsson
— Jakob H. Lindal, Lækja-
móti eftir Sigurð Llndal —
Sverrir Gislason, Hvammi,
eftir Ólaf Sverrisson — Jón
Sigutðsson, Yztafelli, eftir
Jónas Jónsson — Helgi
Jónsson, Seglbúðum. eftir
Jón Helgason. — Allir voru
þessir bændur braut-
ryðjendur, hver með sinum
sérstæða hætti, og allir
voru þeir héraðshöfðingjar,
kraftmiklir kjarnakarlar
sem settu sterkan svip á
samtið sina.
Skuggsjá-Bókabúð Olivers Steins-Sími 50045