Morgunblaðið - 21.12.1975, Síða 17

Morgunblaðið - 21.12.1975, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. DESEMBER 1975 17 i 'r'Í£M Sifll é, H - ' ; ; ewis ir*i • •;v ' tti &••: V'1 rSNfN X S ■\' v —... ',vj d*œm* JF& VI KIRKJUR Margar fagrar kirkjur eru í New York, fjölmargar greinar mótmælenda, kaþólskar, hebreskar, o.fl. Allt er þetta einn Guð, þó að siðirnir séu ólíkir. Skammt frá gistihúsinu þar sem ég dvaldi var episcopal kirkja, kennd við heilagan Bartólómeus, grein af lúterska meiðinum. Þangað lagði ég leið mína og hlýddi á morgunmessu annan sunnudaginn, sem égvar i borginni. Þetta var fremur stór kirkja, tvö ölturu, annað til hliðar og hitt fyrir stafni, björt og háreist. Tveir prestar þjónuðu við messuna, báðir í hvítu rykkilfni með iöngum flaksandi rauðum borðum, stole. Sá yngri byrjaði athöfnina með því að Iesa upp frá hliðaraltari tilkynningar viðkomandi safnaðarlífinu. Þá hófst söngurinn stóð söngfólkið innst við kórinn, karlar til hægri og konur til vinstri, allt í hvítum skikkjum og með fer- strendar, svartar húfur á höfði. Reis söfnuðurinn úr sætum sfn- um og söng með. Eftir sönginn las eldri prest- urinn ritningarorð frá altari, aftur var sungið standandi, les- ið, sungið og síðan flutti prest- urinn stutta ræðu og aftur sungið. Þá var leikið lágt á orgel og tveir menn g“ng’! um með fórn- arskálar, annar til vinstri og hinn til hægri. Mér brá þegar ég sá seðlahrúguna á fatinu, en kom þá f hug skildingur fátæku ekkjunnar og huggaði mig við það. Mennirnir gengu upp að altarinu, þar sem tekið var á móti fórninni og blessað yfir. Þá var staðið upp og sungið, síðan gekk presturinn út i broddi fylkingar, á eftir honum söngfólkið og sfðan söfnuður- inn. Úti fyrir kirkjudyrum stóð presturinn og heilsaði fólki um leið og það gekk framhjá. Síðar um daginn rölti ég upp Fimmtu trö' áleiðis að St. Patricks dómkirkjunni, veg- legasta guðshúsi borgarinnar og þó víðar væri leitað. Á leið minni rakst ég á fremur litla en fallega kirkju og dáðist einkum að stórum og litfögrum rósa- glugga. Ekki stóð yfir guðs- þjónusta i St. Patricks. en eitt sinn fyrir löngu hafði ég hlýtt — Svipmyndir Framhald af bls. 16 vegfaranda. ÖSKAR stendur þar gullnum og grænum stöf- um, lítill kaffibar fremst, en innar dálítill matsalur. Síðustu dagana mína i New York fékk ég mér morgun- kaffið þarna, appelsinusafa, ristað brauð og kaffi, egg var of mikill lúxus eins og á stóð með gjaldeyrinn. Reyndar borðaði ég lítið fyrstu dagana af ótta við að aurarnir myndu ekki endast, en nú sá ég fram á að ég gæti leyft mér almennilegt kaffi. Það var bjart og vinalegt þarna inni og morgunsólin gægðist inn um gluggann. Við hlið mér sat kona, ljós- hærð og vel klædd, eitthvað yfir miðjan aldur á að gizka. Við röbbuðum um daginn og veginn litla stund, þar til hún renndi sér niður af kollunni um leið og hún sagði: Ég er að hugsa um að fara í langa sjóferð. Já, það er gaman að ferðast á sjó. Mér varð litið á hana. Hún horfði niður fyrir sig, ólýsanlegur tregi í álútu andlit- inu. Einmana sál, þrátt fyrir gnægð góðra hluta. þar á aftansöng á jólanótt í miklu mannhafi og ljósadýrð. Margt fólk var á gangi um alla kirkjuna, leikið á hljóð- færi, bjart og hlýlegt. Ég gekk inn eftir hliðargangi, hægra megin og blasti þar við mér stór skáhöll grind með ótal kerta- Ijósum, voru kertin nokkuð gild, en stutt og fest í málm- hólka. Gekk fólk um og kveikti á einu og einu kerti í minningu horfinna ástvina. Neðst í grind- inni var lítil rifa og smeygðu menn í hana smágjöfum um leið og þeir kveiktu. Þetta minnti mig á Notre Dame dómkirkjuna í París, en þar eru kertin mislöng og standa á stalli fyrir framan styttu heilagrar guðsmóður. Þessar tvær kirkjur minna hvor á aðra um margt, en í Notre Dame er birtan rökkurkennd og mystisk, en þarna var skínandi bjart um allt. Ég kveikti á einu kerti og hélt göngunni áfram, við hvert fótmál styttur, ölturu, og steindir gluggar, forkunnar- fagrir, yrði of langt mál að lýsa öllum þeim dásemdum, sem kirkjan hýsir og læt ég hér staðar numið. Á útleið nam ég staðar við lítinn krók nálægt dyrum. Þar voru til sölu dýrlingamyndir smárit o.fl., þar á meðal örlitlar plastbækur, sem hægt var að stinga í vestisvasa. í hólfum innanverðum var dýrlinga- mynd úr einhvers konar málm- þynnu, t.v., en bæn, sem viðkomandi dýrlingur hafði samið t.h. Ég valdi Frans, en á ferð minni um Italíu heimsótti ég klausturkirkju hans og kapelluna, þar sem bein hans hvila (sjá PlLAGRÍMSFÖR og ferðaþættir). Fer hér á eftir bæn hans i lauslegri þýðingu: BÆN ST. FRANCIS FRÁ ASSISI HERRA, gerðu mig að verkfæri friðar þins; þar sem er hatur, láttu mig sá elsku; þar serri eru sár, fyrirgefningu; þar sem er efi, trú; þar sem er örvænting, von; þar sem er myrkur, ljós; og þar sem er harmur, gleði. „Ö Guðdómlegi Meistari, gefðu að ég sækist ekki eins eftir að vera huggaður og að hugga; og að ég skilji þá; að vera elskaður, og að e;lska; þvi að með því að gefa öðlumst við, með því að fyrirgefa, fáum við fyrirgefningu, og í dauðanum fæðumst við til eilífs lífs.“ Mættum við öll hafa i huga bæn heilags Frans i önn og amstri daganna. lx>rMSrf' Amailðttir Rúll ragapeysur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.