Morgunblaðið - 28.12.1975, Síða 15

Morgunblaðið - 28.12.1975, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. DESEMBER 1975 15 þegar úrslitastundin kemur ... verður umheimurinn oftast forviða." DAGSKRÁ sovézka flokks- þingsins sýnir vissulega, að Brezhnev er fastákveðinn að halda völdunum, en það hefur aldrei farið á milli mála. Það, sem atburðir ársins hafa leitt í Ijós, er, að veikindi Brezhnevs hafa orðið til. þess að margir hugsanlegir keppinautar hans hafa boðið honum byrginn, ógnað völdum hans og sett sig upp á móti stefnu hans, og að hann hefur veitt þeim viðnám. Þeirri spurningu er ósvarað, hvaða árangur hefur orðið af viðnámi hans gegn þessum þrýstingi og hve varanlegur hann verður. I nýbirtri dagskrá þingsins i febrúar er tekið fram, að Brezhnev haldi aðalræðuna, og í henni kemur fátt á óvart. Þar sem hann er aðalritari flokksins er það hlutverk hans að flytja þinginu ,,skýrslu mið- stjórnar“. Skýrslan er venju- 'ega flutt í formi ræðu, sem itendur í um fimm tíma. Það er þreytandi að standa í slíku og fyrr á þessu ári var óvíst hvort Brezhnev hefði heilsu til þess, og í fyrstu tilkynningunni um þingið, sem var birt í aprfl, var ekki tekið fram, að hann flytti aðalræðuna. Síðan hefur Brezhnev fengið rækilega læknismeðferð og hann er líka hættur að reykja eftir margar misheppnaðar til- raunir, sem hann hefur áður gert til þess, að þessu sinni fyrir fullt og allt að þvi er virð- ist. Ef ekki hefði verið tekið fram í tilkynningunni um dag- skrána að hann flytti aðalræð- una á þinginu, hefði vissulega verið ljóst, að það þreytandi verk væri heilsu hans ofviða, og að hann væri því kannski ekki nógu heilsuhraustur til að halda starfi sínu áfram og verj- ast pólitískum atlögum, sem hann hefur orðið fyrir. Tíu ára valdatíma hans væri sama sem lokið. En hið gagnstæða þarf ekki endilega að vera rétt, og þótt það sé staðreynd að heilsa hans er nógu góð til þess að hann getur haldið ræðuna, táknar það ekki að hann hafi unnið endanlegan sigur í valdabarátt- Veikur Brezhnev íveikri stöðu unni. Hann hefur aðeins unnið eina orrustu. Hann hefur tapað eða er að tapa mörgum öðrum orrustum og þegar allt er tínt til sést að staða hans hefur veikzt veru- lega. Flestar þessar orrustur geisa langt á bak við tjöldin og utan- aðkomandi verða því ekki alltaf varir við þær. Svo þegar úrslita- stundin kemur, til dæmis þegar Krúsjev var settur af, verður umheimurinn oftast forviða. Frá sjónarmiði Brezhnevs hefur barátta hans fyrir því að halda völdunum og vera í for- sæti á 25. þinginu grundvallazt á þeim metnaði hans að tryggja sér þann sess í sögunni að hafa verið sá maður, sem loksins leiddi Sovétrikin út úr eyði- mörk stalinisma og vísaði þjóð- inni veginn til gósenslands kommúnismans, þar sem smjör drýpur af hverju strái. Hann hefur ætlað að reisa sér stórbrotið sögulegt minnis- merki, nýja 15 ára áætlun, sem hann sagði i fyrra að yrði kunn- gerð á 25. þinginu og mundi sýna „hvernig við viljum að verði umhorfs í landi okkar í lok aldarinnar". Brezhnev sagði, að enn væri of snemmt að nefna ákveðnar tölur, en unnið væri að áætlunum og þingið yrði beðið að samþykkja „skjöl, sem hafa sannarlega stefnu- markandi þýðingu, sem verða mikilvægir áfangar á leiðinni til uppbyggingar kommúnism- ans.“ En þá þegar var Ijóst, að ekki vildu allir sovézkir forystu- menn skuldbinda sig til að styðja framtíðarsýn Brezhnevs — og nú þegar dagskrá þingsins hefur verið birt er ljóst, að þeir hafa unnið þá orrustu. 1 dagskránni er sér- staklega tekið fram, að lögð verði fram ný fimm ára áætlun, en ekki minnzt á 15-ára áætlun. Kosygin forsætisráðherra á að leggja fimm-ára áætlunina fyrir þingið, en það sem Brezhnev lýsti fjálglega sem „allsherjar lang-tíma áætlun til eflingar þjóðarhag“ hefur aug- ljóslega verið lagt á hilluna. 1 mesta lagi er hugsanlegt, að Brezhnev reyni að gera þinginu grein fyrir framtíðarsýn sinni, en ekkert bólar á því efnis- mikla, vandvirknislega skjali, sem átti að reisa Brezhnev minnismerki og visa al- menningi leiðina til fyrirheitna landsins. Annar meginþáttur minnis- Framhald á bls. 16 ráðherra geta tekið undir með Matthiasi Á. Mathiesen, er nú sit- ur í því ráðherraembætti, er hann við þriðju og siðustu umræðu fjárlaga sagði: „Því er ekki að neita, að efni fjárlagaumræð- urtnar er yfirleitt þannig, að ætla mætti að fjármálaráðherra væri svipað innanbrjósts og Páli Ólafssyni, þegar hann segir: „Á þessum tímamótum mér mál er við að standa umhverfis því augað sér ekkert nema vanda.“ Vandi fjármálaráðherra er jafnan mikill, en ekki sízt nú hin síðustu ár, er óðaverðbólgan hef- ur geysað taumlausari en nokkru sinni fyrr. Sú óheillaþróun hefur ekki sízt sett svip sinn á fjármál hins opinbera, enda óhjákvæmi- legt að verðbólgunnar sjái stað i fjármálum ríkis og sveitarfélaga um leið og þess ber að gæta, að það getur haft úrslitaáhrif á verð- bólguvöxtinn, hvernig haldið er á fjármálum ríkissjóðs og hinna stærri sveitarfélaga. Á árunum 1974 og 1975 nam verðbólgu- vöxturinn hvort árið um sig um og yfir 50%. Þegar núverandi ríkisstjórn tók við völdum í lok ágústmánaðar 1974 var undirbún- ingur að fjárlagafrv. fyrir árið 1975 langt kominn og sú ríkis- stjórn, sem við tók hafði afar tak- markað svigrúm til þess að móta það fjárlagafrv. skv. sinni stefnu. Niðurstaðan varð sú, að fjárlögin voru afgreidd frá Alþingi fyrir einu ári með rúmlega 60% út- gjaldaaukningu miðað við fjárlög þess árs. Allt þetta ár hefur mönnum verið ljóst, að þessi háu fjárlög hlutu að verka eins og olía á eld á verðbólguna í landinu og þess vegna skipti höfuðmáli, hvernig staðið yrði að framkvæmd þeirra og hvernig fyrstu raunverulegu fjárlög núverandi ríkisstjórnar yrðu, þ.e. það fjárlagafrv. sem lagt var fram á Alþingi í október sl. Það liggur nú ljóst fyrir, að greiðsluhalli á ríkissjóð á þessu ári mun nema um 3500 milljónum króna. Þrátt fyrir niðurskurð á útgjöldum fyrr á árinu og ráðstafanir til tekjuöflunar. Sú afkoma er ekki glæsileg og var raunar ekki við þvi að búast en þá skiptir þeim mun meira máli, hvernig tekst til um fjármál rikis- ins á næsta ári. Fjárlagafrv. það, sem ríkisstjórnin lagði fram sl. haust gerði ráð fyrir 21,5% út- gjaldaaukningu á næsta ári. Þar sem verðbólguvöxturinn nemur yfir 50% á þessu ári var þegar ljóst i októbermánuði sl„ að ríkis- stjórnin stefndi að verulegum samdrætti I framkvæmdum og þjónustu hins opinbera, sem lið i baráttunni gegn verðbólgunni. Þegar þetta fjárlagafrv. kom fram lét Morgunblaðið í ljós þá skoðun, að öllu máli skipti nú, hversu til tækist um meðferð Alþingis á þessu frv. Niðurstaða þess liggur nú fyrir. Fjárlögin voru afgreidd frá Alþingi skömmu fyrir jól með 24,7% útgjaldaaukningu. Þótt hér sé um nokkra aukningu útgjalda að ræða, frá því, sem ríkisstjórnin gerði ráð fyrir, er hún lagði frv. sitt fram í haust, verður ekki annað sagt, en að Alþingi hafi staðið við sitt og að fjárlögum rfkisins hafi verið haldið innan þeirra marka, að þau verði á næsta ári áhrifaríkt vopn í viður- eigninni við verðbólguna í stað þess að vera beinlínis verðbólgu- hvetjandi eins og þau hafa verið hin síðustu ár. Útgjaldaaukning fjárlaga er mjög svipuð og gert er ráð fyrir í því frumvarpi að fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar, sem lögð hef- ur verið fram í borgarstjórn Reykjavíkur. Óneitanlega hlýtur þvi bjartsýni manna að fara vax- andi um að takast megi að ná verðbólguvextinum mjög veru- lega niður á næsta ári. Og þar við bætist að skv. lánsfjáráætlun þeirri, sem nú hefur verið gerð í fyrsta skipti er gert ráð fyrir, að stórlega , verði dregið úr útlánaaukningu fjárfestingarlánasjóða á næsta ári. Sú útlánaaukning virð- ist hafa verið næsta stjórn- laus á þessu ári og numið um 60% en gert er ráð fyrir, að hún nemi aðeins um 13% á næsta ári og mun sú stefna einnig eiga sinn þátt í því að draga úr verðbólgu- vextinum á árinu 1976. Að sjálf- sögðu er hér byggt á þvi, að í framkvæmd takist að halda út- gjöldum ríkissjóðs og sveitarsjóða innan þeirra marka, sem fjárlög og fjárhagsáætlanir segja til um og að útlán fjárfestingarlánasjóð- anna reynizt í framkvæmd innan þess ramma, sem settur hefur verið með lánsfjáráætluninni. Almannatrygging- ar og vörugjald Við afgreiðslu fjárlaga tókst ríkisstjórninni ekki að framfylgja tveimur stefnuyfirlýsingum, sem gefnar voru, er fjárlagafrv. var lagt fram í októbermánuði. 1 fyrsta lagi tókst ekki að ná fram umtalsverðum sparnaði á al- mannatryggingum og í öðru lagi tókst ekki að fella niður vöru- gjaldið um áramót. Um almannatryggingarnar er það að segja, að það hefur sjálf- sagt verið of mikil bjartsýni að ætla, að á svo stuttum tima, sem til stefnu var, mætti tákast að ná fram verulegum sparnaði i trygg- ingakerfinu. En þótt það hafi ekki tekizt nú verður að ætlast til þess, að ötullega verði unnið að því verkefni á næsta ári. Tölur, sem fram hafa komið í þessum umræðum sýna, áð útgjöld vegna sjúkratrygginga hafa vaxið risa- skrefum á allra síðustu árum. Áður voru lífeyristryggingar mun stærri útgjaldaliður en sjúkra- tryggingar en þetta hefur ger- breyzt á örfáum árum og nú eru sjúkratryggingar mun stærri út- gjaldaliður. Enginn vill spara svo á sjúkratryggingum, að dregið sé úr þeirri þjónustu, sem heilsu- gæzlukerfið veitir sjúklingum. En vafalaust er það á þessu sviði sem öðrum að koma má við meiri hag- kvæmni í rekstri. Það þarf að grandskoða á næstu mánuðum og leggja fram tillögur um slíkan sparnað við afgreiðslu fjárlaga á næsta ári. Til bráðabirgða og þar til slíkar tillögur liggja fyrir, hefur ríkisstjórnin fengið sam- þykki Alþingis við því að hækka nokkuð greiðslur vegna lyfja- og sérfræðiþjónustu og að leggja sér- stakt gjald á brúttótekjur skatt- greiþenda, sem renna á til sjúkra- samlaga til þess að standa að hluta undir kostnaði við sjúkra- tryggingar. Að sjálfsögðu hefur þetta verið gagnrýnt af stjórnar- andstæðingum en hver hefur þeirra afstaða verið? Þeir gagn- rýndu það harðlega, að gera ætti tilraun til að spara á trygginga- kerfinu. Þegar fallið er frá því og í þess stað ákveðið að afla fjár til að halda uppi þeirri þjónustu, sem byggð hefur verið upp undanfarin ár, skammast þeir einnig! Hvernig er hægt að taka mark á slíkum málflutningi? Það var að sjálfsögðu slæmt, að ekki skyldi takast að fella niður vörugjaldið um áramót eins og lýst hafði verið yfir. Sannleikur- inn er sá, að fjölmargir einstakl- ingar og viðskiptaaðilar hafa miðað fjárhagslegar ákvarðanir siðustu mánuði við, að vöru- gjaldið yrði fellt niður, eins og ríkisstjórnin hafði lýst yfir, fyrst í sumar og svo aftur í októbermán- uði, þegar fjárlagafrv. var lagt fram. En ríkisstjórn og Alþingi stóðu frammi fyrir þeirri staðreynd, að ekki mundi takast að ná endum saman við fjárlagaafgreiðslu nema með því að framlengja vörugjaldið ellegar fella það niður en leggja á annan nýjan skatt í þess stað. Frammi fyrir tveimur vondum kostum tóku þessir aðilar ákvörðun um að framlengja vörugjaldið nokkuð, lækka það að vísu um áramót og aftur næsta haust. Það sem mælti með þessari leið var einfaldlega, að hér var um að ræða skatt, sem kominn var á. Framlenging hans mundi engri röskun valda á verð- lagskerfinu í landinu og ekki er hægt að horfa fram hjá því, að vörugjaldið hamlar gegn inn- flutningi og þarf ekki að skýra það út fyrir neinum, að land með neikvæðan gjaldeyrisvarasjóð þarf að halda innflutningi í skefj- um. Þótt þannig megi ýmislegt gagnrýna í sambandi við fjárlaga- afgreiðsluna er ljóst, að í megin- dráttum hefur tekizt að fram- fylgja því stefnumarki, að fjármál ríkisins á næsta ári verði fremur verðbólguletjandi en verðbólgu- hvetjandi og það skiptir mestu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.