Morgunblaðið - 28.12.1975, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 28.12.1975, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. DESEMBER 1975 „ Og nœstur er." „Randian handleggjalausi. Cr kvikm.vnd- inni „Freaks“ „Robert Earl Hughes, 25 ára gamall. Ferlíki, sem vó 324 1932.“ kíló.“ „Lionel, Ljónmaðurinn. Var sýningarstjarna um sfðustu aldamót." Enska orðið „freak“ merkir duttlungur, uppátæki, (kynleg) hugmynd. I vissri merkingu, nánar tiltekið „freak of nature", eiginl. duttlungar náttúrunnar, táknar það afskræmi manns, dýrs eða plöntu. Það er kynleg tvíræð merking að láta afskræmi og óskapnað gerast fyrir duttlunga náttúrunnar. Hinar vansköpuðu manneskjur, sem forðum daga voru kynntar sem mannlegar ófreskjur og við- undur á hinum árlegu mörkuðum og sirkusum, eru nú löngu gleymdar — að ósekju, því að enda þótt þær væru á sínum tima ekkert annað en hégómlegir sýningargripir gegn aðgangseyri, verður þvi ekki á móti mælt, að mannleg forynja og ófreskja snertir skoðandann á sama hátt og hinar hræðilegu furðumyndir í skáldskap og myndlist — skrímsli, ferlíki og svo framvegis. En hvað sjá menn svo í mann- legri ófreskju? Eitt er víst: Við getum ekki fengið að sjá þær lengur á sama hátt og áhorfend- urnir forðum daga, því að þær hafa horfið af hinu opinbera sjónarsviði. Þau áhrif, sem ásýnd þeirra hafði í andrúmslofti skemmtistaðanna, sirkusanna og sýningarskálanna, verða ekki endurvakin. Hinir listrænu hæfileikar þeirra og öll látbrögð og fram- koma og yfirleitt áhrifin af hinum afbrigðilegu líkamseinkennum þeirra verða ekki skynjuð né skilin nema á staðnum. Myndir og textar eru aðeins daufar og ógreinilegar eftirlíkingar. Hin lifandi afskræmi og við- undur tiiheyrðu „flökkuþjóðinni" sem sýningargripir. Og frá miðöldum fram á 19. öld hafa sýningarnar á þeim varla breytzt neitt. Sérstaklega sóttu flökku- hóparnir til þeirra borga, sem héldu árlega meiri háttar markaði og kaupsteínur, því að þar voru leyfðar lengri dvalir og þar var von flestra áhorfenda. Varðandi Bartholomeusar- markaðinn í London, sem senni- lega er elzti árlegi markaðurinn, en til hans var stofnað á 12. öld, er þó fyrst minnzt á slíkar sýningar á 17. öld. En í Þýzkalandi var kaupstefnan i Leibzig, sem tekið var að halda á 16. öld, um langan aldur frægasti vettvangur þess háttar sýninga. Októberhátíðin í Múnchen hófst ekki fyrr en 1810 og aðrar frægar hátíðir og kaup- stefnur síðar. Fyrsti skemmtigarðurinn, sem var opinn allt árið, var Wiener Prater, stofnaður 1766 — leikvöll- ur manna og dýra, vettvangur furðufyrirbæra og auðvitað sýninga á ófreskjum og ósköpnuð- um, en til þess háttar sýninga hafði fram að því ekki verið tekið neitt tillit f menningarsögum. En nú hefur Hans Scheugl gefið út safn Felix Adonos (Verlag M. DMont Schauberg) í ritverki, sem gefur nýja innsýn í lif og þjóð- félagsaðstöðu þeirra, sem þóttu vera á mörkum þess að vera mennskir. Cr „Well am Sonntag". — svá — þýddi. „Lloyd Skelton. Humar- maðurinn. 75 beinbrot.“ „Peter Spanner, Augsburg, 1875. Húðina á hálsinum setti hann yfir höfuðið.44 „Ekkjan Dimanche. Ennishornið var ekki skorið af henni, fyrr en hún var 84 ára.“ Á hinum árlegu mörkuðum um alda- raðir var margt gert til að vekja forvitni og furðu fólks, en sérstaka athygli vöktu ávallt þær manneskjur, sem hafð- ar voru til sýnis eða komu fram á sýningum og kalla mátti af- skræmi, ófreskjur, for- ynjur, óskapnaði, við- undur. Og þótt kynlegt kunni að virðast, fær vart nokkur varizt ein- kennilegri aðdáun, þegar hann skoðar hið mannlega skrfpasafn, sem getur að Ifta f nýút- kominni þýzkri bók. „Lazaro Colleredo, Genúa, 1617. Viti firrtur snfkjubróðir.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.