Morgunblaðið - 13.01.1976, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JANÚAR 1976
Pétur Thorsteinsson til Bonn í dag:
Ákaflega vel tekið í
Osló og Kaupmannah.
MBL. ræddi við Pétur
Thorsteinsson ráðuneytis-
stjóra í utanríkisráðuneyt-
inu í gær, en hann var þá
staddur í Kaupmannahöfn.
Þangað kom hann frá Ósló
í gær:
— Ég ræddi við Fryden-
lund utanríkisráðherra og
Fostervold varnamálaráð-
herra í Ósló í gær. Ég
skýrði fyrir þeim málstað
okkar Islendinga, en á
þessu stigi er ekkerl sér-
stakt af þeim viðræðum að
frétta. Sama er að segja um
fund okkar K.B. Andersen.
utanríkisráðherra, og Orla
Möller, varnamálaráó-
herra, hér í Kaupmanna-
höfn í dag. Þetta er éins og
maður bjóst við, manni er
tekið ákaflega vel og þeir
eru allir af vilja gerðir, en
það er ekki hægt að tala
um neinar ákveðnar að-
gerðir í hili. Aðalatriðið er
náttúrlega það, aö maöur
útskýri málið eins vel og
mögulegt er, sagði Pétur
Thorsteinsson. Hann
kvaðst halda til Bonn í dag,
en síðan til Rómar, Aþenu
og Ankara.
Rætt við verzlunar-
menn á sáttafundi
SAMNINGANKFNDIR launþesa
og vinnuveitenda voru á fundi
mei) sáttasemjara ríkisins í gær.
Fvrst komu saman til fundar
Þotan bilaði:
Nefndarmenn
siija í Glasgow
BOEING-þota Flugfélags ís-
lands, sem var ad koma frá
Kaupmannahöfn til Keflavík-
ur f gærkvöldi meö millilend-
ingu í Glasgow, varð aö vera
þar í nótt vegna smábilunar.
Varahlutur f vélina var ekki
til í Glasgow, og varð að fá
hann frá Kaupmannahöfn.
Meðal farþega í vélinni voru
flestir þeirra er eiga sæti í
dómnefnd bókmenntaverð-
launa Norðurlandaráðs, en
fundur í nefndinni átti að
hefjast í Revkjavík árdegis í
dag. Samkvæmt upplýsingum
Friðjóns Sigurðssonar, skrif-
stofustjóra Alþingis, er gert
ráð fvrir, að fundurinn hefjist
strax og nefndarmenn eru
komnir til Revkjavíkur, en á
fundinum verður tekin
ákvörðun um hver fær verð-
launin að þessu sinni. — Gert
var ráð fvrir, að þotan gæti
lagt af stað frá Glasgow
snemma f morgun.
fulltrúar vinnuveitenda og
Verzlunarmannafélags Revkja-
víkur en síðan var fundur með
almennu samninganefndunum.
Snerust viðræðurnar einkum um
ýmis skipulagsatriði samninga-
viðræðnanna, en sérnefndir og
undirnefndir eru þegar teknar til
starfa í nokkrum tilfellum.
Fundurinn í gær stóð fram und-
ir kvöldverðarleytið. í dag hefur
verið boðaður fundur kl. 10 með
fulltrúum Vinnuveitendasam-
bandsins og Vinnumálasambands
Samvinnufélaga annars vegar og
Verkamannasambandsins hins
vegar um kauptryggingamálin.
Eiinnig verður í dag fundur í Sam-
bandi fiskvinnslustöðvanna
(vinnuveitenda) og einnig í
stjórn Vinnuveitendasambands-
ins.
Samkvæmt gögnum sem
Morgunblaðinu hafa borizt frá
Vinnuveitendasambandinu um
atriði, sem samkomulag virðist
vera um milli ASÍ og VSl og
mögulegt er að taka upp sameig-
inlga i viðræðum við ríkisstjórn-
ina eru þau fólgin í því að tryggð
verði full atvinna, verðbólgunni
verði haldið í skefjum, sérstakt
kapp verði lagt á að auka út-
flutningsframleiðslu og fram-
leiðslu er sparar erlendan gjald-
eyri. Einnig að dregið verði úr
ríkisútgjöldum en samstaða er
ekki um það hvort samningsaðilar
eigi sjálfir að gera ákveðnar til-
Framhald á bls. 35
„Eftir langan eltingarleik og ítrekaðar tilraunir tókst varðskipinu að sigla á hina
veikb.vggðu freigátu.“
Olíusjóður:
Trilla þurfti að greiða
867 krónur fyrir lítrann
TriIIuhátaeigendur á Bakkafirði komu saman til fund-
ar skömmu fyrir áramót, þar sem fjallað var um
grásleppuveiðar og sölu á grásleppuhrognum. Gerði
fundurinn nokkrar samþykktir um þessi mál. Meðal
annars mótmælti fundurinn harðlega þeim áformum,
sem nú eru uppi um að taka hundraðshluta af út-
flutningsverðmæti grásleppuhrogna í aflatryggingasjóð.
Þá krefjast Bakkfirðingarnir söltunar um borð i fiskibátum
þess, að alls ekki verði veitt eins og átti sér stað á s.l. vori.
vinnsluleyfi til grásleppuhrogna- „Slíkar leyfisveitingar eru stórt
Réðust á mann og
rændu um miðjanótt
spor afturábak í islenzkum fisk-
iðnaði auk þess sem mönnum er
mjög mismunað hvað snertir kröf-
ur um aðbúnað við vinnslu. Telj-
um við að hreinlæti og allur að-
búnaður um borð í litlum trillu-
Framhald á bls. 35
250 þúsundum
stolið í Iðnó
INNBROT var framið í Iðnó að-
fararnótt s.l. sunnudags. Lagði
þjófurinn leið sina í skrifstofu
Leikfélags Reykjavíkur og hirti
þaðan 250 þúsund krónur í reiðu-
fé úr peningaskáp.
MAÐUR nokkur var sleginn
niður.og rændur á Njálsgötunni í
fvrrinótt. Hann var að koma heim
til sfn og ætlaði að fara að opna
útidvrnar þegar skyndilega var
ráðizt á hann og hann laminn í
höfuðið með einhverju barefli og
var veski mannsins sfðan tekið.
Veskið fannst á Grettisgötu f gær
og var þá búið að hirða alla
peninga úr þvf. Maður sá, sem
fvrir árásinni varð, er með
stærðar glóðarauga og er auk þcss
Framhald á bls. 35
Þá var einnig stolið nýju ávís-
anahefti á aðalbanka IJtvegsbank-
ans. Heftið er á hlaupareikning
og eru númer eyðublaðanna
106351-106400. Rannsókn málsins
er í fullum gangi en þjófurinn eða
þjófarnir eru ófundnir.
Vegartálmi við Stokksnesstöðina:
AÐGERÐIRNAR HAFA NÁÐ
TILGANGISÍNUM í BILI
— segja Suðurnesjamenn
ÚTGERÐARMENN og sjómenn á
Höfn I Hornafirði lokuðu veginum
að radarstöðinni á Stokksnesi um
kl. 13 f gær, og var vegurinn enn
lokaður í gærkvöldi. Á laugardag
lokuðu útgerðarmenn og sjómenn
í Grindavík veginum að fjarskipta-
stöð varnarliðsins f Grindavík og
var vegurinn ekki opnaður aftur
fyrr en um miðnætti í fyrrinótt.
Aðilar, sem vinna við sjávarútveg-
inn í Keflavík, lokuðu veginum að
ratsjárstöðinni f Rockville um kl.
15 á sunnudag, en opnuðu veginn
aftur eftir tvo tfma. Þessar að-
gerðir beinast allar gegn
núverandi ástandi og ágangi Breta
á íslandsmiðum.
Það var síðdegis á laugardag, sem
fjöldi Grindvíkinga safnaðist saman
á veginum að fjarskiptastöðinni þar.
Þegar flest var voru um 1 50 manns
þar og í förinni var fjöldi bíla, sem
látnir voru loka veginum. Síðan var
grjót sett á veginn, þannig að ekki
var hægt að komast til eða frá stöð-
inni nema fótgangandi Stóð allt við
það sama þangað til á miðnætti í
fyrrinótt, er sjómenn og útgerðar-
menn opnuðu veginn aftur. Við
Rockville safnaðist saman hópur 40
útgerðarmanna og sjómanna á
sunnudaginn kl. 1 5. Voru þeir á 20
bílum, sem þeir notuðu til að loka
veginum. Á báðum þessum stöðum,
Grindavík og Rockville, var yfir-
mönnum stöðvanna afhent bréf, er
þeir voru beðnir að koma áleiðis til
yfirmanns Varnarliðsins
Gunnlaugur Karlsson útgerðar-
maður í Keflavík sagði er Morgun-
blaðið ræddi við hann, að þessar
aðgerðir hefðu verið gerðar til
áréttingar á bréfi, sem sent hefði
verið til stjórnvalda í desember s.l.
Aðgerðirnar beindust eingöngu
gegn stjórn NATO og þá sérstaklega
gegn Bretum sem aðildar-þjóð en
ekki gegn bandarískum borgurum á
Keflavíkurflugvelli. Ef ekkert breytt-
ist á íslandsmiðum til hins betra
hygðu menn á róttækari aðgerðir
þannig að öruggt væri að ástandið
batni
— Sjálfur hef ég alltaf álitið að
þessar aðgerðir væru styrkur fyrir
ríkisstjórnina, sagði Gunnlaugur að
lokum
Eðvarð Júliusson i Grindavik
sagði, að núna ættu menn helzt að
óska sér að Bretar yrðu reknir úr
NATO. — En ég er viss um, að við
værum ekki komnir þetta langt i
landhelgismálum okkar, ef við vær-
um ekki i NATO og hefðum varnar-
liðið hér Hinu er hins vegar ekki að
neita, að samningar okkar við NATO
og varnadiðið eru stórgallaðir
Samninginn við varnarliðið þarf að
endurskoða þannig, að það taki að
sér að verja 200 milurnar. Þá finnst
okkur hér að samningarnir við Þjóð-
verja séu ekki nógu vel gerðir, þar
sem við vitum ekkert hvaða afstóðu
Framhald á bls. 35
Búió að !oka veginum út í RockviIIe Ljósm. Heimir Stígsson
Grjóti mokaó á veginn við fjarskiptastöðina í Grindavík.
Ljósm. Guðfinnur