Morgunblaðið - 13.01.1976, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 13.01.1976, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JANUAR 1976 Tónleikar UNGIIR söngvari, Már Magnús- son, heldur tónleika í Félags- stofnun stúdenta við Hringbraut laugardaginn 17. janúar kl. 17.00. Hann hefur dvalizt undanfarin ár við söngpám í Vínarborg. Eru þetta fyrstu sjálfstæðu tónleikar hans. Á efnisskránni eru verk eft- ir Scarlatti, Gluck, Giordani, Beethoven, Schubert, Brahms, Verdi og íslenzk tónskáld. Aðgöngumiðar fást í bókabúð- um Lárusar Blöndals við skóla- vörðustig og i Vesturveri. SÍMI37010 Á INNRITUNARTÍMA INNRITUN á miðsvetrarnámskeið fer fram í skól- anum, Miðbæ, Háaleitisbraut, kl. 5—7 daglega, nema laugard. og sunnud. UPPLÝSINGAR veittar í síma á sama tíma. KENNSLA hefst 27. jan. og þessu námskeiði lýkur 1. apríl. FYRRI NEM- ENDUR, sem hyggjast halda áfram, hafi samband sem allra fyrst til að nota forgangsrétt sinn. Listaskáldin vondu LAUGARDAGINN 17. janúar kl. tvö e.h. flvtur hópur skálda, sem nefnir sig LISTASKALDIN VONDU, verk sín í Háskólahfói. í hópnum eru: ! Birgir Svan — Guðbergur Bergsson — Hrafn Gunnlaugsson — Megas — Pétur Gunnarsson — Sigurður Pálsson — Steinunn Sigurðardóttir — Þórarinn Eldjárn. Kynnir verður Sigurður Karls- son. Barnagæzla er í fordyri bíósins. Aðgangseyrir er kr. 250. Ókeypis fyrir börn og fólk á elli- launum. Dagskránni verður að vera lokið um fjögur þar sem kvik- myndasýning hefst í húsinu kl. 17 og er því hverjum upplesara markaður þröngur tími. Dag- skráin mun því hefjast stundvís- lega kl. 14 og eru menn beðnir að mæta tímanlega. Aðgöngumiðasala er hafin í Háskólabíói og eru miðar af- greiddir á venjulegum opnunar- tíma. gltarskdli Olafs gatiks INNRITUN HEFSTI Heilsugæzlustöð formlega opnuð í Borgarnesi Á LAUGARDAGINN tók form- annaðist raflögn og innanhúss- lega til starfa Heilsugæzlustöð I Borgarnesi. Athöfn fór fram í húsakynnum stöðvarinnar og hófst kl. 14. Snorri Þorsteinsson bauð gesti velkomna, Sr Leó Júlí- usson, prófastur, flutti bæn, Matthías Bjarnason, heilbrigðis- og tryggingaráðherra, flutti ávarp, Friðjón Sveinbjörnsson, sparisjóðsstjóri, formaður bvgg- inganefndar, lysti bvggingunni og rakti sögu framkvæmda, Guð- mundur Ingimundarson. oddviti, formaður stjórnar Heilsugæzlu- stöðvarinnar, veitti húsinu við- töku og Valgarð Björnsson, lækn- ir, gerði grein fyrir starfsemi stöðvarinnar eins og hún er fvrir- huguð og starfsliði hennar. Ávörp fluttu Asgeir Pétursson, sýslu- maður, og Halldór E. Sigurðsson, landbúnaðar- og samgönguráð- herra. Frú Soffia Agústsdóttir, Hvanneyri, formaður kvenfélags- ins 19. júnf i Andakíls- og Skorra- dalshreppi, færði stöðinni pen- ingagjöf frá félaginu til kaupa á lækningatækjum. Að athöfn lokinni skoðuðu gest- ir húsakynni og þágu veitingar í boði byggingarnefndar og stjórn- ar stöðvarinnar. Innkaupastofnun ríkisins bauð byggingu hússins út um áramótin 1971—1972 og var tekið tilboði Reynis Ásbergs, rafverktaka, Borgarnesi. Fyrsta skóflustunga var tekin 3. maí 1972. Húsið var uppsteypt í árslok 1972 og frá- gengið undir innréttingar síðari hluta árs 1974. Innréttingateikn- ingar voru tilbúnar í maí 1974 og voru innréttingar settar upp á ár- inu 1975 og því lokið i ágúst þ.á. Enn er þó ókomin lyfta og eftir er að ganga frá lóð. Húsgögn og lækningatæki komu síðari hluta árs 1975. Þó vantar enn röntgen- tæki, svæfingatæki og ýmis fyrir- huguð tæki til endurhæfingar. Læknamóttaka hófst í húsinu 15. október s.l. Arkitekt hússins er Ragnar Emilsson, Verkfræðistofa Sig- urðar Thoroddsen s/f sá um verk- fræðiteikningar og Ólafur Gísla- son, verkfræðingur, teiknaði raf- lögn. Undirverktakar, er sáu um einstaka þætti í byggingu hússins, voru: Jón Kr. Guðmundsson annaðist miðstöðvar- og vatns- lögn, Hailgrímur Magnússon sá um múrverk Einar Ingimundar- son um málningu. Rafblik h/f kerfi, Blikksmiðjan Vogur smfð- aði loftræstikerfi, Bygginga- félagið Smári smíðaði glugga og útihurðir, Loftorka s/f sá um grunnvinnu og steypu, Halldór Stefánsson lagði dúka, Akur h/f smíðaði og setti upp innihurðir og viðarþiljur á veggi. Smíði og uppsetning innréttinga var ekki innifalin í útboði og var um það samið við Akur h/f., Akranesi. Hús Heilsugæzlustöðvarinnar er tvær hæðir og frágenginn kjallari undir hluta, alls 2973 rúmm. Hvor hæð er 403 fm og kjallari 214 fm, gólfflötur alls 1020 fm. Við stöðina starfa þrír heilsu- gæzlulæknar, tannlæknir, þrjár hjúkrunarkonur, ljósmóðir, meinatæknir, læknaritari, mót- töku- og símastúlka og sjúkra- bílstjóri, sem jafnframt er hús- vörður, en stöðin sér um fram- kvæmd allra sjúkraflutninga í umdæminu. Garðar Halldórsson yfirarkitekt hjá húsameistara ríkisins BÁRÐUR Isleifsson vfirarkitekt lét af störfum við embætti húsa- meistara ríkisins hinn 1. janúar s.l. vegna aldurstakmarka opin- berra starfsmanna, en hjá em- bættinu hafði hann starfaö um 40 ára skeið. Frá og með 1. janúar 1976 hefir Garðar Halldósson. deildar- arkitekt, verið skipaður yfirarki- Heilsugæzlustöðin I Borgarnesi. Matthfas Bjarnason heilbrigðis- ráðherra flvtur ávarp við opnun heilsugæzlustöðvarinnar. Stjórn stöðvarinnar skipa: Guðmundur Ingimundarson, odd- viti, Borgarnesi, formaður, Haukur Sveinbjarnarson, oddviti, Snorrastöðum, Björn Jónsson, Deildartungu, Valgarð Björnsson, læknir, og Erla Ingadóttir, hjúkrunarkona. Til heilsugæzluumdæmis Borgarness teljast fimmtán hreppar með samtals um 3400 fbúum. Garðar Halldórsson tekt við embætti húsameistara ríkisins. EF ÞAÐ ER FRETT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU AUGLYSINGA- SÍMINN F,K: 22480 •skemmtilegt nám*géO dægradvöl* COSTA BLANCA — BENIDORM Ódýrar orlofsferöir til Spánar Páskaferö, brottför 9. apríl Kanaríeyjar Skíðaferðir til Austurríkis Glasgow, helgarferöir London, vikuferöir FERÐAMIÐSTÖÐIN HF.# Aðalstræti 9. Símar 28133, 11255, 12940.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.