Morgunblaðið - 13.01.1976, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 13.01.1976, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUÐAGUR 13. JANUAR 1976 17 Eknr uni á Moskwich og hlnstar á sígilda tónlist Oleg Blochin hlaut gullskó Franee Football SOVÉZKI knattspyrnumaðurinn Oleg Blochin, sem margir Islenzk- ir knattspyrnuunnendur muna vel eftir frá leikjum sovézka meistaraliðsins Dvnamo Kiev við Akurnesinga s.l. haust, var valinn „Knattspyrnumaður ársins 1975“ f Evrðpu og hlaut fvrir það eftir- sóknarverðustu verðlaun sem knattspvrnumanni getur hlotnazt „Gullna knöttinn". Það eru knattspyrnusérfræð- ingar frá flestum löndum Evrópu sem standa að vali knattspyrnu- manns ársins, en framkvæmdaað- ili er hið þekkta franska tímarit „France Football". Þetta er i ann- að sinn sem sovézkur knatt- spyrnumaður hlýtur umrædd verðlaun. Markvörðurinn Lev Jashin hlaut verðlaunin fyrir 12 árum en þá var hann frægasti knattspyrnumaður Sovétríkjanna og þótti framúrskarandi i sinni stöðu. — Ég er ekki hissa á því að Blochin skyldi hljóta þessi verð- laun nú, sagði Jashin, þegar hann frétti um útnefningu landa síns. — Hin stórkostlegu mörk sem hann hefur skorað á árinu eru ein út af fyrir sig þess virði að hann hljóti verðlaunin. Ég er feginn að Oleg Blochin var ekki leikmaður meðan ég var og hét. Oleg Blochin, sem er 23 ára, er skráður nemandi við háskólann í Kiev. Hann skoraði 18 mörk í so- vézku 1. deildar keppninni í ár og var þar með markhæsti leikmað- urinn — fjórða árið í röð, og fyrir skömmu var hann valinn „Knatt- spyrnumaður ársins" i Sovétríkj- unum og var það í þriðja skiptið í röð. Margir knattspyrnuþjálfarar, þeirra á meðal Dettmar Cramer, þjálfari Bayern Múnchen, segja Blochin bezta knattspyrnumann heimsins. — Hann er fljótur, hreyfanlegur á vellinum, skjótur að taka ákvarðanir og hefur frá- bærar staðsetningar, sagði Cram- er. Sjálfur segir Oleg Blochin ekki mikið. Hann er mjög vingjarnleg- Oftast brosandi innan vallar og utan — Oleg Blochin handhafi hinna eftirsóknarverðu verðlauna „France Football 1975.“ Góð ferð UMFN til Luxemburgar KÖRFUKNATTLEIKSLIÐ Ung- mennafélags Njarðvfkur dvaldi milli jóla og nýárs f Luxemburg. Keppti liðið fjóra leiki f ferðinni og voru leikmenn liðsins mjög ánægðir með ferð þessa, sem auk þess að vera góð æfing þjappaði mannskapnum saman. Konur leikmanna voru með í ferðinni og fvrir þær — körfuknattleiksekkj- urnar — var ferð þessi ágæt upp- bót á þær fórnir sem þær leggja á sig fyrir fþróttina. Auk UMFN tóku 2 lið frá Luxemburg og eitt frá Frakklandi þátt í hraðmóti 28. desember. Var mótið með hraðkeppnisfyrir- komulagi og leiktími 2x15 mínút- ur. Urðu Njarðvíkingar í þriðja sæti, töpuðu fyrir Frökkunum og lakara liði Luxemburgara, en unnu svo meistara Luxemborgar, liðið Racing Toshiba, sem bauð UMFN út. Var sá leikur sérlega jafn og skemmtilegur og þurfti framlengingu til að fá úrslit, 36:34. Þess má geta að banda- rískur blökkumaður leikur með Racing og er það mjög algengt meðal liðanna í Luxemburg. Varð lið UMFN í þriðja sæti i mótinu. Kristbjörn Albertsson dómari úr Njarðvíkum dæmdi þrjá leiki f mótinu og fékk þann sérstakar þakkir fyrir góða frammistöðu. Þá lék UMFN gegn liðinu Ami- cale, en það lið er annað bezta lið Luxemburgar. Var nú leikinn fullur leiktími og báru Njarð- víkingar öruggan sigur úr býtum. Úrslitin urðu 83:70 og var haft á orði að leiknum loknum að ef UMFN hefði náð eins frábærum leikjum í hraðmótinu þá hefði liðið örugglega sigrað í mótinu en ekki orðið í 3ja sæti. í þessum leik voru þeir Kári, Jónas og Þor- steinn sterkastir Njarðvíkinga og var einkum ánægjulegt fyrir UMFN-liðið hve Kári átti góðan leik, en hann hefur ekki áður leikið betur með UMFN. ur og vinsæll meðal blaðamanna sem hann gefur sér jafnan tíma til þess að spjalla við. — Ég á ekki langt að sækja það að vera fljótur að hlaupa, hefur hann sagt, móðir mfn var einn bezti spretthlaupari í Sovétrfkj- unum á sínum tíma. Það voru henni mikil vonbrigði að égskyldi ekki feta í fótspor hennar og fara í frjálsar íþróttir, en nú hefur hún hins vegar sætt sig við það að ég tók knattspyrnuna fram yfir, og er ánægð með hvernig gengur hjá mér. Hún huggar sig við það, að ég hleyp hraðar en flestir and- stæðingar mínir. Sagt er, að Oleg Blochin sé rík- asti knattspyrnumaðurinn f Sovétríkjunum. Hann segist hafa um 1000 rúblur í laun á mánuði. — Ég er mjög ánægður með það, hefur Blochin sagt, — ég veit reyndar, að knattspyrnumenn í Vestur-Evrópu hafa miklu meiri laun, en ég öfunda þá ekki. Oleg Blochin tilheyrir yfirstétt- inni f Sovétríkjunum og hefur það betra en flestir aðrir. Hann er ókvæntur og býr heima hjá for- eldrum sínum. Sjálfur segist hann hafa mikinn áhuga á að eignast einbýlishús þegar fram líða stundir. Eini munaðurinn sem Blochin leyfir sér um þessar mundir er að aka um á Moskwich- fólksbifreið. Á því er enginn vafi að Blochín er stjarnan í hinu annars frábæra liði sem hann leikur með, Dyna- mo Kiev, og Sovétmenn hafa hald- ið honum á loft sem fyrirmyndar knattspyrnumanni. Þeir segja að hann hlaupi and- stæðinga sína af sér, en þurfi ekki að sparka undan þeim fótunum. — Ég finn ekkert að þvf þótt leikurinn sé harður, hefur Bloc- hin látið hafa eftir sér, — en finni ég til þess að andstæðingurinn reynir að meiða mig viljandi, og dómarinn skiptir sér ekki af því þá verð ég æfur og verð að taka á honum stóra mínum til þess að sparka ekki á móti. Hingað til hefur mér gengið sæmilega að hefna mín með því að skora eitt eða tvö mörk í staðinn. Olec Blochin hefur mikið yndi af sfgildri tónlist og eyðir flestum tómstundum sínum í nánd við plötuspilarann sinn. Sjálfur seg- ist hann mundu hafa valið Franz Becekenbauer eða Uli Höness sem knattspyrnumann ársins 1975. — Þetta eru stórkostlegir leikménn, sagði hann, — og einn- ig má bæta við júgóslavneska leikmanninum Dragan Dzajic, Oleg Blochin f baráttu við Georg Schwarzenback f „Super-Evrópu“ úrslitaleiknum f knattspyrnu milli Dynamo Kiev og Bayern Miinchen. Þá leiki vann Kiev-liðið, 2—0 f Miinchen og 1—0 f Moskvu og skoraði Oleg Blochin öll mörkin. sem hefur einstaka hæfileika til að leysa hinar erfiðustu þrautir á svo auðveldan hátt að þær virðast leikur einn. Blochin var aðeins 19 ára þegar hann lék sinn fyrsta landsleik með Sovétmönnum og þá í úrslita- keppni Olympíuleikanna. Hann kom, sá og sigraði — skoraði 6 mörk í sjö leikjum. Blochin vonast eftir að komandi ár færi honum Ólympíugull. Það er æðsta ósk hans. Þar skammt á eftir fara þrjár óskir: Að vinna með Sovétmönnum Evrópubikar- keppni landsliða, að vinna Evr- ópubikar meistaraliða með Dyna- mo Kiev og'verða betri knatt- spyrnumaður. Yfirgáfn sæluna Tveir leikmenn ungverska knattspyrnuliðsins Ujpest Dozsa, Jozsef Horvat og Laslo Harsanayi hafa beðið hælis f Sviss sem pólitfskir flóttamenn. Báðir eru þessir leikmenn þekktir knattspyrnumenn, og þó sérstaklega Horvat sem talinn var einn bezti knattspyrnumaður Ungverjalands og hefur vcrið fyrirliði ungverska knattspyrnulands- liðsins. Báðir komu þeir félagar til Sviss með ungverska knattspyrnu- landsliðinu s.l. haust, og fengu sfðan leyfi yfirvalda til þess að fara þangað f jólalejði með fjölskyldum sfnum, skömmu fyrir jólin. Svissnesk stj&nvöld höfðu f gær beiðni félaganna til athugunar, en mjög lfklegt vérður að teljast að orðið verði við henni. Ungverskar frétfastofnanir nafa verið fáorðar um atburð þennan — hafa einungis sagt að umræddn- knattspyrnumenn hafi farið f leyfi til Sviss, en ekki komið aftur. I ið aftu Blaklandsliðið valið Hélt til Ítalíu í rnorgun I MORGUN hélt fslenzka lands- liðið í blaki til ltalfu, en þar mun Unglingamót TBR MILLI jóla og nýjárs fór fram f KR-húsinu jólamót TBR f ungl- ingaflokki. Mikill áhugi virðist vera rfkjandi meðal unga fólksins á badmintonfþróttinni og voru keppendur í mótinu alls um 60 talsins. Helztu úrslit urðu sem hér segir: í hnokkaflokki, þar sem kepp- endur eru 12 ára drengir og yngri sigraði Þorsteinn P. Hængsson, TBR Þorvald borsteinsson, KR í úrslitaleik 11:8 og 11:3. I sveinaflokki, þar sem kepp- endur eru 12—14 ára kepptu Guö- mundur Adolfsson, TBR og Gunnar Jónatansson, Val til úr- slita og sigraði Guðmundur 11:8 og 11:7. I meyjaflokki, þar sem kepp- endur eru 12—14 ára sigraði Arna Steinsen, KR Kristínu Magnúsdóttur í úrslitaleik: 6:11, 11:7 og 11:7. I drengjaflokki, 14—16 ára kepptu til úrslita félagarnir úr TBR þeir Jóhann Kjartansson og Jóhann Möller og bar sá fyrr- nefndi sigur úr býtum: 7:11, 11:9 og 12:10. I piltaflokki, 16—18 ára sigraði Vfðir Bragason, IA Guðmund Sæmundsson, UMFN í úrslitaleik 15:8 og 15:4 og i stúlknaflokki 16—18 ára sigraði Kristín B. Kristjánsdóttir, TBR hlaupa- drottninguna Ragnhildi Páls- dóttur, TBR i úrslitaleik 11:1 og 11:4. það taká þátt f forkeppni Ölympfulefkanna f blaki. Þátt- tökuþjóðirnar f forkeppninni verða 18 að\tölu og keppa þær f 4 riðlum f uijdanrásum, en sfðan efstu þjóðirnar f hverjum riðli um rétt til þátttöku f lokakeppni Ólvmpíuleikanna. Þegar hafa 10 þjóðir unnið sér rétt til keppni f Montreal og tvær munu bætast f hóp þeirra eftir forkeppnina á Italfu. \ I undankeppninni verða ts- lendingár* í riðli með ítalíu, Venezúela, Grikklandi og Indó- nesíu. tslenzka landsliðið sem fer til Italfu verður þannig skipað: Halldór Jónsson, fyrirliði Guðmundur E. Pálsson, Valdemar Jónasson, Tómas Jónsson, Páll Ólafsson, Óskar Hallgrímsson, Gunnar Árnason, Leifur Harðarson. Þjálfari og liðsstjóri verður Geir Humberset frá Noregi. Eftir forkeppnina á Italiu heldur fslenzka landsliðið til Eng- lands og leikur þar tvo landsleiki við Englendinga, en þeir komu, eins og kunnugt er, til Islands s.l. haust og léku þá tvo landsleiki við Islendinga. Landsliðið f blaki hefur æft af kappi að undanförnu fyrir for- keppnina á ítalíu undir hand- leiðslu Geirs Humbersets frá Noregi. Auk þess sem hann hefur þjálfað landsliðið hefur hann mætt á æfingar hjá félögum i Reykjavík, Laugarvatni og Akur- eyri. Happdrætti BLÍ Dregið hefur verið í Happ- dræiti BLl og hlutu eftirtalin númer vinning: 7158, 10840, 18030, 16945, 16344. (Vinnings- númerin eru birt án ábyrgðar). Næst verður dregið í happdrætti BLl 15. janúar n.k.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.