Morgunblaðið - 13.01.1976, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 13.01.1976, Blaðsíða 14
14: MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JANUAR 1976 Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn og afgreiðsla Aðalstræti 6. simi 10 100. Auglýsingar Aðalstræti 6, sími22 4 80. Áskriftargjald 800,00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 40,00 kr. eintakið. r Ilandhelgisdeilu okk- ar við Breta er ákaf- lega mikilvægt að við reyn- um að gera okkur grein fyrir, hver tilgangur and- stæðinga okkar er meó þeim baráttuaðferðum, sem þeir hafa beitt til þessa. Því er ekki að leyna, að frá því að í ljós kom, hvernig Bretar héldu á samningaviðræðum af sinni hálfu í september, október og nóvember hef- ur maður spurt mann, hvert sé raunverulega markmið Breta með þeirri furðulegu stífni og óraun- sæju afstöðu, sem þeir tóku í þeim samningavið- ræðum. Þeirri afstöðu hafa þeir fylgt eftir með ótrú- Iegum bolabrögðum á fiski- miðunum við landið og sú spurning verður stöðugt áleitnari, hvað raunveru- lega vaki fyrir þeim með þessum baráttuaðferðum. Að sjálfsögðu verður ekkert fullyrt um það hver tilgangur þeirra er, en þó geta menn reynt að gera sér einhverjar hugmyndir þar um. Hugsanlegt e.r, að yfirgangur og ofbeldi Breta á fiskimiðunum við landið hafi þann tilgang að skapa svo óþolandi ástand á fiskimiðunum, að aðilar verði knúnir til þess að taka upp samningaviðræð- ur á ný, m.ö.o. að Bretar láti sér til hugar koma, að þeir geti með valdbeitingu á fiskimiðunum knúið ís- lendinga að samningaborð- inu og til þess að gera samninga, sem við ekki vorum reiðubúnir til þess að gera fyrir 13. nóvember. Þetta er oft markmið stór- þjóðar, sem beitir valdi sínu gegn smáþjóð. Ef þetta er tilgangur Breta er nauðsynlegt, að þeir geri sér skýra grein fyrir því, að þeir ná aldrei samning- um við íslendinga með valdbeitingu. 1 fyrsta lagi vegna þess, að eðli íslend- inga er slíkt, að þeir láta ekki neyða sig til samninga og i öðru lagi af þeirri ein- földu ástæðu, að ástand fiskstofnanna við ísland og þá ekki sizt þorskstofnsins er nú orðið svo alvarlegt, að engin íslenzk ríkisstjórn og raunar enginn íslend- ingur getur gert samninga á þeim grundvelli, sem Bretar hafa boðið upp á. Það er afar nauðsynlegt að brezka ríkisstjórnin geri sér grein fyrir því, að samningar á þeim grund- velli, sem Bretar sjálfir hafa talað um, eru svo ger- samlega útilokaðir af hálfu íslendinga, að engu skiptir hvaða ríkisstjórn situr við völd eða hvaða þingmenn sitja á Alþingi eða hvað kann að gerast í þessari deilu héðan í frá; samning- ar á þeim grundvelli, sem Bretar hafa boðið upp á, eru útilokaðir af hálfu Is- lendinga. Þá er einnig hugsanlegt, að með aðgerðum sínum á fiskimiðunum stefni Bret- ar að því að skapa sundr- ung og úlfúð hér innan- lands. Þeir segi sem svo, að með ofbeldisaðgerðum þessum, sem íslendingar augljóslega hafa ekki bol- magn til að svara, geti þeir eflt sundrungu meðal ís- lendinga innbyrðis vegna þess, að í kjölfar ofbeldis- ins komi fram kröfur um svokallaðar ,,róttækar“ ráðstafanir, sem ekkert vit er í, engin skynsemi er í og engum tilgangi þjóni og að á þann hátt geti þeir komið upp ágreiningi meðal ís- lendinga innbyrðis og þannig sundrað andstæð- ingi sínum. Það hefur verið meginregla í allri utanrík- isstefnu Breta um aldir að deila og drottna eins og allir vita, sem hafa fylgzt með utanríkisstefnu þeirra og þá ekki sízt, hvernig þeir hafa beitt þessari gull- vægu reglu í samskiptum sínum við þjóðirnar á meg- inlandi Evrópu í gegnum aldir. Það er kannski ekki sízt þessi hugsanlegi tilgangur ofbeldisaðgerðanna á fiski- miðunum, sem við Islend- ingar ættum að gæta okkar á. Við vitum það sjálfir, að þjóðin er gjörn á að deila innbyrðis og að fyrr á öld- um hefur sundurlyndið orðið til þess, að erlent vald hefur komizt hér til áhrifa. Þess vegna ríður á miklu, að almenningur geri sér Ijósa grein fyrir því, að það kann að vera eitt af markmiðum Breta með að- gerðum þeirra á fiskimið- unum hér að skapa óánægju, úlfúð, sundrung og ágreining í hinu litla íslenzka samfélagi, sem geri þeim kleift að deila og drottna og auðveldi þeim að fást við íslendinga í landhelgisdeilunni. Það er hyggilegt fyrir okkur að hugleiða þessar hugsanlegu skýringar á baráttuaðferðum Breta og hafa í huga, að þær kunna að vera nærri lagi og haga afstöðu okkar og athöfnum í samræmi við það. Ekkert er líklegra til þess að leiða til þess, að landhelgisdeil- an dragist á langinn og að sigurinn verði langsóttari en við nú gerum okkur vonir um, en einmitt það, ef Bretum tækist að sá fræ- kornum sundurlyndis með- al þjóðarinnar og egna til óskynsamlegra aðgerða, sem á engan hátt þjóna hagsmunum íslendinga, hvorki í bráð né lengd. Hvað ætlast Bretar fyrir? THE OBSERVER Moskva t SKRIFUM sovéskra blaða og tímarita um utanríkismál hefur verið þrástagazt á einu atriði. Það er: — Gera þarf sérstakan Helsinki-sáttmála fyrir Asíu. Er hér bersýnilega um að ræða tilraun til að tengja hinar árangursríku niðurstöður Öryggisráðstefnu Evrópu við ráðagerðir Rússa um varnar- kerfi Asíuríkja. Það er langt frá því, að ráða- gerðir þessar séu komnar á framkvæmdastig. Hins vegar hefur því verið lýst yfir af opin- berri hálfu í Washington, að SEATO, öryggisbandalag Suð- austur-Asíuríkja, verði lagt nið- ur, og eru því Rússar bjartsýnir á, að tillögur þeirra sjálfra nái fram að ganga. Ennfremur er þeim mikið í mun, að ráðstafan- ir verði gerðar til að stemma stigu fyrir sívaxandi áhrifum Kínverja í Suðaustur-Asíu. Það er ef til vill af þessari ástæðu sem megináherzla hef- ur verið lögð á eina hlið varnar- kerfisins, en hún er Rússum mikið hagsmunamál. Það er friðhelgi landamæra gagnvart innrásaröflum. Með því að nefna f sömu and- rá áætlanir um öryggiskerfi Asiuríkja og niðurstöður Hels- inki-ráðstefnunnar, er athygl- inni stöðugt beint að ákvæði í niðurstöðunum, þar sem þátt- tökuríkjum er gert, að „gera ekki tilkall til né hertaka eða innlima hluta af landsvæði eða allt land annars aðildarríkis." I sama mund benda þeir á þann hlut yfirlýsingarinnar, sem fjallar um landamæri milli rfkja. Þnr segir að landamær- um „sé unnt að breyta sam- kvæmt alþjóðalögum, með frið- úSSife. THE OBSEKVER samlegum aðgerðum og með samningum.“ Það er ekki út í bláinn, að Rússar leggja áherzlu á þetta atriði. Kínverjar gera tilkall til svæða innan landamæra Sovét- ríkjann^a. Ef ákvæði eins og vís- að er til úr Helsinkiyfirlýsing- unni, yrði samþykkt í öryggis- sáttmála Asíuríkja, sem Kín- verjar yrðu að eiga aðild að, ef hann ætti að verða marktækur, myndu kröfur þessar væntan- lega hljóðna. Yrði þá minni hætta en hingað til á landa- mæraskærum þessara tveggja kommúnisku risavelda. Flestum Asíurfkjum yrði mikill hagur í því, ef landa- mæri þeirra yrðu tryggð með marktækum samningum. Ástæðurnar eru mjög margvís- legar. Sumum ríkjum stendur greinilega stuggur af ásælni Kínverja eftir auknu landrými. Þrátt fyrir skoðanir margra sér- fræðinga á Vesturlöndum, eru menn f þessum rfkjum engan veginn öruggir um, að Kínverj- ar hafi engar ráðagerðir að prjónunum um að sölsa undir sig lönd þeirra. Þá er landa- mæraágreiningur mjög al- mennur í Asíu og samníngur, sem kæmi í veg fyrir að slíkar IHE OBSERVER deilur og erjur yrðu leystar með vopnavaldi, hefði tvímæla- laust mikið gildi í álfunni. Aróðursbragð Rússa er snjallt. Þeir hamra á því, hvílík þörf sé fyrir öryggisráðstefnu f Asfu, og leggja á það áherzlu, að Kínverjar séu eina þjóðin í álfunni, sem sé gersamlega andvíg öllum tilburðum f því skyni. Tilgangurinn með þessu er að koma Kínverjum í erfiða aðstöðu og jafnframt að ala á grunsemdum grannþjóða þeirra um, að þeir séu að brugga þeim vélráð. Ríkjum, sem gera landakröf- ur á hendur öðrum, mun vita- skuld finnast það súrt í broti að þurfa að skuldbinda sig til þess að beita ekki vopnavaldi. Á hinn bóginn hefðu þau þann varnagla, að breyta mætti Jandamærum með samþykki og samningaviðræðum. Enda þótt Helsinki-yfirlýsingin virðist fyrst og fremst miða við óbreytt ástand, gerir hún þó ráð fyrir ýmsum leiðum til að leysa landamæraþrætur. Annað atriði f öryggiskerf- inu, sem Rússar leggja mikla áherzlu á, er ákvæðið um, að vopnavaldi skuli ekki beitt í alþjóðlegum deilumálum. Þeir *2i& THE OBSERVER Eftir Dev Murarka segja, að Asíumenn hafi rfka tilhneigingu til þess að grípa til vopna að minnsta tilefni, og geri þetta að verkum, að sam- komulagið sé afar skrykkjótt, tengslin á milii ríkjanna óstöð- ug, og smárfkjum stafi ótti af stóru ríkjunum. Rússar lfta einnig á þetta atr- iði í stærra samhengi. Þeim er mjög f mun að koma á góðu sambandi við öll Asíuríki, en það er hægara sagt en gert, þegar rfkin elda stöðugt grátt silfur saman. Fyrr eða síðar þyrftu þeir að taka afstöðu í þessum deilum, afstöðu sem kæmi öðrum deiluaðilanum vel, en hinum miður. Er Rússum fremur ógeðfellt að taka afstöðu f nábúakrytum Asfulanda. Að þeirra mati er lausnin sú að gerast hvatamenn að samkomulagi, sem löndin gætu komizt að f sameiningu, og koma þannig í veg fyrir, að þau grípi til vopna. Að áliti Rússa myndi viðtækur öryggis- THE OBSERVER sáttmáli Asíuríkja stuðla ein- dregið að þessu. Menn hafa velt því fyrir sér, hvernig f ósköpunum Rússum muni takast að koma af stað umræðum um þessar áætlanir, hvað þá meira, þar sem Kín- verjar séu þeim bersýnilega mjög mótfallnir. Að þessu leyti eru sovéskir sérfræðingar furðu bjartsýnir. Þeir vonasttil þess að geta kveðið niður þær yfirlýsingar Kínverja, að varn- arkerfi Asíuríkja miði einung- is, að því að klekkja á þeim. Þeir segja að enda þótt varnar- kerfið muni Ijóslega halda aftur af Kínverjum, muni það einnig hafa í för með sér svip- aðar afleiðingar varðandi sjálf Sovétríkin, Bandaríkin og Jap- an. Umfram allt vonast Rússar til að geta sannfært leiðtoga Asfu- ríkja um raunverulegt gildi til- lögu sinnar. Ætti það að verða auðveldara en ella vegna þess, hversu vel tókst til með Öryggis- ráðstefnu Evrópurikja f Hels- inki. Þeir búa yfir þeirri von, að Kínverjar muni hugsa sig tvisvar um, áður en þeir vísi tillögunum á bug af ótta við að einangrast, og fallist um síðir á þátttöku eða verði til þess knúðir, ekki af þeim sjálfum heldur af öðrum Asiuþjóðum. Og ef til vill hafa Rússar ærna ástæðu til bjartsýni. Stað- reyndin er nefnilega sú, að ekk- 'ert Asfuríki fyrir utan Kín- verska alþýðulýðveldið hefur sett sig upp á móti tillögu þeirra í grundvallar atriðum. Þetta álíta þeir verulega dipló- matískan sigur fyrir Sovétríkin og traustan grunn, sem unnt verði að byggja vel á næstu árin. Rússar stefna að örygg- isráðstefnu fyrir Asíu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.