Morgunblaðið - 13.01.1976, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JANUAR 1976
15
Agúst bœtti
sig verulega
ÁGÍJST Ásgeirsson náði
mjög góðum árangri í 2000
metra hindrunarhlaupi á
innanhússmóti sem fram
fór í Cosford í Englandi
um helgina. Hljóp hann á
5:43,0 sek. sem er 4 sek.
betri tími en hann hefur
áður náð, og bendir þessi
árangur Ágústs til þess að
hann ætti að eiga næsta
auðvelt með að ná
Olympíulágmarkinu í 3000
metra hindrunarhlaupi, en
það er 8:52,0 mín. Svarar
tími Ágústs i hlaupinu í
Cosford til 8:35,0 mín. í
3000 metra hindrunar-
hlaupi.
— Ég er mjög bjartsýnn á að ég
nái Olympíulágmarkinu sagði
Agúst í viðtali við Morgunblaðið í
gær. — Það má a.m.k. koma eitt-
hvað sérstakt fyrir til þess að það
takist ekki. Agust sagði að í
hlaupinu í Cosford hefði hann
háð harða keppni við Dennis
Coats, sem er heimsmethafi í
þessari grein innanhúss. — Við
vorum jafnir þegar 400 metrar
voru eftir, og ég átti þá það mikið
eftir að ég var farinn að gera mér
vonir um sigur, sagði Agúst. —
En þá var ég óheppinn — hitti illa
á hindrun og missti taktinn, þann-
ig að hann seig frammúr og sigr-
aði á 5:39,0 mín.
Vilmundur Vilhjálmsson keppti
í 60 metra hlaupi á móti þessu og
komst f undanúrslit. Hljóp tvi-
vegis á 7,1 sek., en sat eftir i
startinu í undanúrslitahlaupinu,
eftir að hafa fyrst þjófstartað.
Næsta mót sem þeir félagar
taka þátt i er brezka meistaramót-
ið innanhúss sem fram fer eftir
hálfan mánuð.
Geir Humbersedt blakþjálfari
Reykjavfkurmelstarar Vals f Innanhðssknattspvrnu 1976.
Fram missti titilinn til Vals
þrátt fyrir 5:0 forystu
ÞÓ AÐ Framarar hefðu 5:1 forystu í leikhléi
úrslitaleiks Revkjavíkurmótsins í knattspvrnu
innanhúss gegn Val á sunnudaginn dugði það
liðinu ekki til sigurs f mótinu. 1 sfðari hálfleikn-
um fór allt f baklás hjá Fram á sama tfma og
Valsmenn léku snilldarvel með Hermann
Gunnarsson f broddi fvlkingar. Tókst Valsliðinu
að sigla fram úr og vinna leikinn 8:7.
Framarar höfðu unnið vfirburðasigur f sfnum
riðli, en með þeim léku þar Ármann, Fylkir,
Leiknir og Hrönn. 1 hinum riðlinum sigruðu
Valsmenn af álfka öryggi þó að mótherjarnir
væru mun sterkari — Vfkingur, KR og Þróttur.
í þriðja sæti f mótinu varð Vfkingur sem vann
Ármann f leik um þriðja sætið.
Enn jöfn staða hjá
Celtic og Rangers
LlNURNAR skýrðust Iftið í
skozku úrvalsdeildarkeppninni f
knattspvrnu á laugardaginn, þar
sem bæði liðin sem berjast þar
um sigurinn, Celtic og Rangers,
unnu góða sigra f leikjum sfnum.
Sigur Celtic var þó athvglisverð-
ari þar sem liðið átti f höggi við
eitt sterkasta liðið í Skotlandi,
Motherwell, og það á útivelli. Var
Blaklandsliðið sigraði
Blaklandsliðið sem hélt til itallu I
morgun, lék tvo æfingaleiki um helg-
ina og sigraði i þeim báðum. eftir
nokkuð jafna baráttu. Á laugardag-
inn lék liðið við úrvalslið frá Laugar-
vatni og sigraði 3:0, (15:10. 15:13
og 15:12). f þessum leik voru leiknar
tvær aukahrinur og vann landsliðið
aðra 15:8 en tapaði hinni 10:15. Á
sunnudaginn lék liðið svo við
Reykjavlkurúrval og sigraði 3:0.
(1 5:8, 1 5:9 og 16:14). Leikin var ein
aukahrina og hana vann landsliðið
16:14.
um yfirburðasigur Celtic í þess-
um Ieik að ræða, 3—1, og var það
Dixie Deans sem var hetja Celtie-
liðsins í leiknum, skoraði tvö fal-
leg mörk. Kennv Dalgleish skor-
aði þriðja mark Celtic, en Vic
Davidson, sem áður lék með Celt-
ic, skoraði eina mark Motherwell
f leiknum.
„Iþróttamaður ársins 1975“ á
Islandi Jóhannes Eðvaldsson átti
mjög góðan leik með Celtic-liðinu
að þessu sinni — eins og reyndar
oftast áður. Var klettur í vörninni
og átti þess utan drjúgan þátt i
hættulegustu sóknum Celtic-
liðsins.
Rangers átti við auðveldari and-
stæðing að etja þar sem var botn-
liðið St. Johnstone. Áttu Rangers-
menn ekki í erfiðleikum í leikn-
um og sigruðu 4—0. Fyrsta mark
þessa leiks skoraði Miller úr víta-
spyrnu á 33. mínútu, og stóð þann-
ig 1—0 í hálfleik. I seinni hálf-
leikrium bættu þeir Hamilton,
Johnstone og McKean mörkum
við fyrir Rangers.
Bæði Celtie og Rangers hafa nú
hlotið 28 stig í úrvalsdeiidar-
keppninni. Markahlutfall Celtic
er aðeins betra, eða 43—26, á móti
36—19 hjá Rangers. Hibernian er
i þriðja sæti með 26 stig, en síðan
koma Motherwell með 25 stig,
Aberdeen með 22 stig, Hearts
með 21 stig, Dundee með 20 stig,
Ayr United með 18 stig, Dundee
United með 14 stig og á botninum
er svo St. Johnstone sem virðist
dæmt til falls í 1. deild, en liðið
hefur aðeins hlotið 6 stig.
Af þessari upptalningu má ljóst
vera að keppnin um Skotlands-
meistaratitilinn kemur til með að
verða gífurlega hörð í ár. N.k.
laugardag á Celtic að leika við St.
Johnstone á útivelli, en þá mætir
Rangers Hibernian á heimavelli
og Motherwell á að leika við
Dundee United á útivelli.
í skozku 1. deildar keppninni
hefur Partic Thistle forystu með
32 stig eftir 21 leik, en Kil-
marnock er í öðru sæti með 30 stig
eftir jafnmarga leiki.
Aðdáunarvert hvað menn leygja sig fram
— sagði Geir Humbersedt þjálfari blaklandsliðsins
Landslið tslands f blaki
fer I dag til Italfu, þar
sem liðið tekur þátt I
undankeppni ÓL f blaki.
Til að undirbúa liðið var
fenginn hingað norskur
þjálfari, Geir Humber-
sedt að nafni, og kom
hann til landsins 27. des.
og hafa verið svo til dag-
legar æfingar og oftast
tvisvar á dag. Við ræddum
við Geir fyrir stuttu, og
spurðum hann hvort
hann sæi framfarir hjá
Islcndingum frá '74 og
frá þvf f fyrra. — Ég er
sannfærður um að bæði
einstaklingar og lið sem
heild hafa tekið miklum
framförum og þið hafið
greinilega lært á þvf að
fara á NM. Ég held ég
megi einnig fullvrða að
ykkar 6 beztu mönnum
hefur farið meira fram
en 6 beztu blakmönnun-
um I Noregi, svo þið eruð
stöðugt að vinna á.
Hafa íslendingar ein-
hverja möguleika gegn
þeim liðum sem eru í
riðli með þeim? — Mögu-
leikarnir eru minni en ég
hafði vonað, og er það
mikill skaði að margir af
beztu mönnum ykkar
verða að sitja heima. Þið
eruð með of litla menn f
liðinu. Meðalhæð leik-
manna er um 182 sm og
þó svo að leikmaður sem
er 180 sm stökkvi
100—110 sm, þá dugir
það ekki til, hann er of
iftill. Erlendis sérðu oft
uppspilara sem eru allt
að 190 sm á hæð. — Við
höfum einnig haft stutt-
an tfma til æfinga og
þetta hjálpast allt að og
minnkar möguleikana.
— Hér heima hefur
mikið verið rætt og ritað
um gildi þessarar ferðar
fyrir íslenzkt blak og að
fjármunum þeim sem f
hana fara væri betur
varið f uppbvggingar-
starfsemi, að fá t.d. er-
lendan þjálfara til lands-
ins f 4—5 mánuði.
Ég held að þar sem
blak er mjög ung fþrótt
hér á landi, þá hafi verið
rétt hjá ykkur að mynda
strax landslið og gefa þvf
færi á að sjá getu sfna
miðað við hin Norður-
löndin. Nú vitið þið hver
hún er, en t.þ.a. liðið öðl-
ist reynslu og taki fram-
förum, þá verður það að
fá að spreyta sig gegn
öðrum þjóðum, sjá og
læra nýtt. Ef nægiíegir
fjármunir eru fyrir
hendi þá er þetta hárrétt
hjá ykkur. Á Italfu getið
þið séð að hverju þið
þurfið að einbeita vkkur.
Vissulega væri það gott
að fá hingað erlendan
þjálfara til svo langs
tfma því hann gæti lagað
mörg tæknileg atriði f
leik ykkar, en það sem
landsliðsmenn vkkar
læra á æfingum, er alls
ekki ónýtt félögunum.
Þeir kvnnast nýjum
æfingum og öðlast meiri
getu og reynslu, sem þeir
svo geta notað við þjálfun
hjá félögum sfnum og
örvað áhuga innan þeirra
á blakinu. Svo að þessi
kostur, að fá þjálfara
aðeins fyrir landslið og f
þetta stuttan tfma, er
ekki svo miklu lakari en
hinn. — En þetta sem við
erum að gera núna, þ.e.
æfa alla daga og oft
tvisvar á dag, það gætum
við ekki gert f Noregi.
Ykkar menn eru svo
ákveðnir f að verða betri
og eru svo innstilltir á
blak að það er aðdáunar-
vert hvað þeir leggja sig
mikið fram.
— Hvað þurfa tslend-
ingar að leggja áherzlu á
við þjálfun?
Þið þurfið að æfa
meira með lóð, t.þ.a. fá
meiri stökkkraft, svo og
þrotlausar æfingar með
fleyg og fingurslag.
I Noregi bvrjum við í
maf að æfa með lóð, og
erum 3—4 sinnum f viku
fram í september, en
keppnistfmabilið hefst
hjá okkur um miðjan
október. Einníg er mikil-
vægt að leikmenn séu
ekki einnig þjálfarar lið-
anna, og höfum við
einnig haft við þetta
vandamál að strfða f
Noregi. Pól.