Morgunblaðið - 20.01.1976, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 20.01.1976, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. JANUAR 1976 7 Baráttan verður löng og ströng Vlsir segir nýverið I leið- ara: „Óiafur Jóhannes- son, dómsmálaráðherra. komst nýlega þannig að orði: „Baráttan við þá (Breta) verður trúlega löng og ströng og kann að krefjast margvlslegra fóma. Sú barátta er ekkert sport eða skop- sjónarspil. Ég hef alltaf sagt að hún verður ekki unnin með neinu leiftur- strlði. Hún verður heldur ekki unnin með orðum einum eða æsifregnum. Hún verður aðeins unnin með staðföstu úthaldi og óbifanlegri viljafestu. sem miðar allt við leikslok, en ekki við einstök vopnavið- skipti." „Þetta er skynsamleg afstaða. Það er rétt mat hjá dómsmálaráðherra að við vinnum ekki sigur á Bretum með einni leiftur- sókn. Engin ein aðgerð ræður úrslitum. Sá þrýst- ingur, sem við reynum nú að beita innan Atlants- hafsbandalagsins getur haft mikla þýðingu og fært okkur nær endanleg- um sigri..... Brezka verkamannaflokksstjórnin er dæmd til þess að tapa þessu striði. í Bretlandi fer gagnrýni á stefnu stjórnarinnar I þessu máli vaxandi. Við eigum bandamenn þar I landi eins og vlða annars staðar. Það er þvl óþarfi að örvænta." Sýnum reisn en ekkilágkúru1 Þá segir Vlsir: „i gær (sl. fimmtudag) gerðist ómerkilegur atburður I Reykjavlk, þegar nokkur ungmenni réðust inn I skrifstofu Upplýsinga- þjónustu Atlantshafs- bandalagsins. Prakkara- háttur af þessu tagi er ekki umtalsverður við venjulegar aðstæður. enda ekki mark á þeim takandi. sem að sllku standa. Fram hjá hinu verður hins vegar ekki unnt að Ifta, að þessi ómerkilega framkoma sýnir gleggst. hversu æsingar geta leitt okkur afvega I þeirri viðureign, sem við eigum nú I við Breta. Með þessu er verið að ala á sundrungu en ekki ein- ingu. Við eigum að sýna reisn en ekki lágkúru. Það er full ástæða til að harma atburði af þessu tagi. Það er afar mikilvægt að menn séu vel á verði gegn þvl að sllk öfl vaði uppi og rjúfi samstöðu þjóðar- innar. Þessi annars ómerkilegi atburður ætti þvl að vera viðvörun I þessu efni." Stjórnmálaslit Enn segir Vlsir: „Forsætisráðherra hefur nú greint frá þvl, að stjórnmálaslit við Breta komi til framkvæmda innan viku, hafi brezka rfkisstjórnin þá ekki kallað herskip sln út úr fiskveiðilögsögunni. Hér er um veigamikla yfirlýs- ingu að ræða, og Ijóst er. að samskipti rlkjanna eru nú endanlega undirorpin breyttri stefnu brezku verkamannaflokksstjórn arinnar. Stjórnmálaslit hafa legið I loftinu I nokkurn tlma, þar sem engin breyt- ing hefur verið sjáanleg á þvergirðingshætti brezku stjórnarinnar. Eðlilegt er að setja Bretum sllka úr- slitakosti eins og rfkis- stjórnin hefur nú gert I raun réttri. Hér er svipað staðið að málum eins og af hálfu vinstri stjórnar- innar 1973. nema hvað þá var óljósum orðum rætt um slit á stjórnmála- samskiptum. Nú er hins vegar skýrt kveðið á um stjórnmálaslit." Siðar segir Vlsir: „Atburðarásin hefur þvi verið miklu hraðari nú, eins og forsætisráðherra hefur bent á, enda aðeins tveir mánuðir frá þvl að flotafhlutun Breta hófst. Segja má, að Bretar hafi gengið fram af meiri hörku nú en áður. Með hliðsjón af þvi er eðlilegt að stiga þetta skref nú. — Hinu mega menn ekki gleyma. að baráttan getur orðið langvinn I þetta skipti sem hin fyrri. Láti Bretar ekki segjast á þessu stigi, verðum við að þreyja þorrann. Umfram allt megum við ekki láta Breta taka okkur á taug- um eins og þeir keppa að. Bretar eru dæmdir til þess að láta undan siga fyrr eða seinna Vegna viss- unnar þar um getum við gengið fram með gát, en þó af fullri hörku." BRIDGEFÉLAG KVENNA: Nú stendur yfir hraökeppni sveita, sem er undankeppni fyrir aöal- sveitarkeppni félagsins, spilað verður í fimm skipti/ eftir fyrstu umferö eru eftirtaldar sveitir efstar: Stig. Guörún Bergsdóttir 645 Hugborg Hjartardóttir 645 Gunnþórunn Erlingsdóttir 577 Sigríður Jónsdóttir 575 Alda Hansen 555 Guörún Einarsdóttir 544 Aldís Schram 541 Meðalskor: 540 stig. I hraðsveitakeppninni eru 14 sveitir, næsta umferð verður spiluð mánudaginn 19. janúar og hefst ki. 20 stundvíslega i Domus Medica. XXX Að tveimur umferðum lokn- um í meistarakeppni Bridgefé- lags Reykjavíkur hefur sveit Stefáns örugga forystu i meist- araflokki, en sveit Gylfa er efst i 1. flokki. Úrslit leikja í siðustu umferð voru þessi: Meistaraflokkur: Sveit Stefáns 19 — Sveit Alfreðs 1 Sveit Hjalta 15 — sveit Benedikts 5 Svei Einars 20 — sveit Birgis 0 Sveit Helga 10 — sveit Jóns 10 1. flokkur: Sveit Gylfa 19 — sveit Gísla 1 Sveit Sigurjóns 17 — sveit Þórðar 3 Sveit Gissurar 20 — sveit Estherar 2 Sveit Ólafs H. 18 — sveit Þóris 2 Staða efstu sveita í hvorum flokki er nú þessi: Meistaraflokkur: Sveit stig. Stefáns Guðjohnsen 38 Hjalta Elfassonar 28 Einars Guðjohnsen 25 Jóns Hjaltasonar 25 1. flokkur: Gylfa Baldurssonar 38 Gissurar Ingólfssonar 37 Ólafs H. Ólafssonar 25 Sigurjóns Helgasonar 20 Næsta umferð verður spiluð n.k. miðvikudagskvöld kl. 20 og spila þá saman m.a. sveitir Stef- áns og Benedikts og sveitir Hjalta og Einars. XXX Frá Bridgefélagi Suðurnesja J.G.P.-mótinu, sem er sveita- keppni, er nú lokið með stór- glæsilegum sigri Boggu Steins, sem hlaut 193 stig. Úrslit síðustu umferðar þessi: Sveit urðu Bogga Steins vann Þorleifs 20—4 Vals vann Óskars 20—4 Marons vann Haralds 20—2 Guðjons vann Guðmundar 16—4 Gests A. vann Sigurðar 20—0 Röð efstu sveita varð annars þessi: Sveit Guðmundar Ingólfssonar 134 Guðjóns Einarssonar 127 Vals Símonarsonar 119 Gests Rósinkranssonar 113 Eins og áður sagði sigraði sveit Boggu Steins örugglega en hverjir eru þessir félagar sem nefna sig svo og hvernig varð nafnið til? Við spurðum einn félaganna þessara spurn- inga og sagði hann að nafn sveitarinnar „hefði komið af himnum ofan“, þ.e.a.s. sveitin hefði bara verið skírð þessu nafni. Meðlimir Boggu Steins eru Helgi Jóhannsson, Logi Þormóðsson, Einar Jónsson og Jóhannes Sigurðsson. Með þessari keppni er stjórn- arári núverandi stjórnar lokið og verður aðalfundur félagsins haldinn á sunnudaginn kemur klukkan 14 í Tjarnarlundi. Fé- lagar eru hvattir til að fjöl- menna. Það mun koma i hlut hinnar nýju stjórnar að ákveða hvað verður spilað næst, en það verð- ur trúlega tvímenningur. XXX Frá Bridgedeild Breiðfirðinga- félagsins Aðeins þremur umferðum er nú ólokið i aðalsveitakeppni fé- lagsins og er hart barizt um efsta sætið. Staða efstu sveita: Sveit Ingibjargar Halldórsdóttur 172 Birgis Sigurðssonar 169 HansNielsens 165 Estherar Jakobsdóttur 155 Elísar R. Helgasonar 141 Magnúsar Björnssonar 111 Enda þótt þremur umferðum sé enn ólokið í sveitakeppninni er strax farið að undirbúa næstu keppni sem verður baro- meter og hefst skráning í þá keppni næsta fimmtudag. Kem- ur þetta m.a. til af mikillli að- sókn sl. ára og að barometer krefst nokkurs undirbúnings. Spilað er í Hreyfilshúsinu við Grensásveg á fimmtudögum. A.G.R. 3] Electrolux Eldavélar C.F. 750 (S.G. 160) 70 cm breið með 4 hellum og klukkuborði. 2 ofnar. Sá efri 54 Itr. með grillteini og grillmótor. Einnig hraðræsir og steikarmælir. í neðri ofninum er einnig hægt að baka. Fáanlegir í 3 litum. Brún kr. 115.400 — (áður 126.900) Græn kr. 101.200 — (áður 109.800) Hvit kr. 114.900 — (áður 126.200). Vörumarkaöurinn hf. 1 Armúla 1A. Húsgagna og heimilisd S 86-1 1 2 Matvorudeild Q 86-11 1, Vefnaðarv d S 86-1 1 3 Hvöt, félag sjálfstæðiskvenna heldur hádegisverðarfund í Kristalsal Hótel Loft- leiða, laugardaginn 24 janúar kl. 12. Fundar- efni: Elín Pálmadóttir, borgarfulltrúi, talar um Sameinuðu þjóðirnar. Allt sjálfstæðisfólk velkomið. Uppl. í síma 82729 milli 1 0 og 1 2. f.h. Stjórnin. Norðurland Vestra Alþingismennirnir Pálmi Jónsson og Eyjólfur Konráð Jónsson boða til aimennra stjórnmálafunda sem hér segir. Siglufjörður miðvikudaginn 21. jan. I Sjálfstæðishúsinu kl. 8.30 Sauðár- krókur fimmtudag 23. jan. kl. 9 i Sjálfstæðishúsinu. Hófsós föstudag 23. jan. i Félagsheimilinu kl. 2. Aðalfundur Fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík verður haldinn fimmtudaginn 22. janúar I Súlnasal Hótel SÓgu. Fundurion hefst kl. 20:30. Dagskrá: 1. Skýrsla stjórnar fyrir s.l. starfsár. 2. Kjör formanns og sex annarra fulltrúa i stjórn ráðsins. 3. Kjör fulltrúa í flokksráð Sjálfstæðisflokksins. 4. Önnur mál. Gunnar Thoroddsen, iðnaðar- og félagsmálaráðherra flytur framsögu- ræðu á aðalfundinum um stjórnmálaviðhorfið. Fulltrúaráðsmeðlimir eru hvattir til að mæta vel og stundvislega og vinsamlegast sýna Fulltrúaráðsskirteini 19 75 við innganginn. Stjórn Fulltrúaráðsins. Gunnar Thoroddsen

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.