Morgunblaðið - 20.01.1976, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 20.01.1976, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. JANUAR 1976 GEORGE BEST — samkvæmt skoðunum margra bezti knattspyrnumaður er Bretlandseyjar hafa nokkru sinni eignast — er nú kominn á bókamarkaðinn og gæti nafn hennar útlagst á islenzku „Best segir af sjálfum sér — og lýgur fáu". Bókin er full af sannkölluðu sprengiefni, eins og maður gat átt von á frá knattspyrnumanninum frá Belfast I N-írlandi, er bæði byrjaði og endaði stjörnutímabil sitt í knattspyrnunni með Manchester United. í bók sinni segir hann ekki svo mikið frá hinum stóru sigrum á knattspyrnuvellinum, heldur leyfir hann lesandanum að skyggnast um bak við tjöldin. Hann segir frá ástarævintýrum sinum með fögrum konum rétt áður en alvarlegur knattspyrnuleikur átti að hefjast, hann segist i bókinni hafa kastað fúlum eggjum i stóra mynd af „félaga" sinum Bobby Charlton og að sjálfsögðu er greint frá kærumáli alheimsfegurðardrottningarinnar, er hún ákærði Best fyrir að hafa stolið flikinni, og að sjálfsögðu mörgum fleiri atburðum. En sem sagt þetta er líf George Best, endursagt af blaðamanninum og vini Bests, Michael Parkinson, og fara hér á eftir glefsur úr bók Bests, sem gert hefur mikla lukku, ekki síður en snillingurinn meðan hann var og hét. Best segir af sjálfum sér — Ég sezt oft niður og velti því fyrir mér hvaða stefnu lif mitt hefði tekið ef ég hefði haft pabba og mömmu hjá mér er ég kom til Manchester frá Belfast 16 ára gamall, ef ég hefði verið enskur, en ekki n-írskur og hefði getað leikið með Englendingum í HM, ef ég hefði verið öðru vísi skapi farinn og ekki litið út eins og ég gerði — Ég er sannfærður um að lífið hefði orðið allt öðru visi fyrir mig, en það hefði alls ekki orðið skemmti- legt Ég hef lifað 1 2 ótrúleg ár hjá Manchester United, verið á toppn- um og einnig neðst niðri, en ég hef lifað stórkostlegu lífi og hefði ekki viljað breyta neinu — sama hvað hefði verið í boði Þannig svarar George Best spurningunni sem þúsundir hafa spurt, hvers vegna hann hafi ekki gætt meira hófs og farið aðrar leiðir Derek Dougan, félagi Bests í n-írska landsliðinu og leikmaður með Úlfunum, hefur eftirfarandi um Best að segja: — Cryuff leikur á jörðinni, Best í skýjunum REKINN ÚR SKÓLA Enginn hefur verið i vafa um að Best var (er?) snillingur á knatt- spyrnuvellinum Ferill hans byrjaði raunverulega i öngstrætum Belfast- borgar Best hafði alltaf meiri hæfi- leika en félagar hans og er hann var 15 ára gamall kom njósnari frá Man Utd auga á kauða og setti sig samstundis í samband við Matt Busby, sem þó sýndi ekki áhuga fyrr en að ári liðnu í millitíðínni var Best rekinn úr skóla og hóf nám í einum af lélegri skólum borgarinnar þar sem piltarnir fengu nægan tima til að leika knattspyrnu. Aftur þóttu hæfileikar Bests athyglisverðir, en honum var bent á að hann skyti ekki nógu fast með vinstri fætinum — Ég ákvað að bæta úr þessu, segir Best i bókinni, og næstu viku æfði ég vinstri löppina með tennisbolta. ( leik næsta laugardag notaði ég svo bara vinstri og skoraði 12 mörk i leik sem við unnum 21:0 LENTI Á VITLAUSUM VELLI Það var svo heitan júlidag 1961 að George Best sigldi með ferjunni yfir til Manchester. en aðems tveimur dögum seinna var hann kominn heim aftur. Best var sjóveikur á leiðinr.i, missti af bilnum sem átti að aka hon- um til Old Trafford, loks komst hann þó þangað en lenti á krikk- etvellinum og er hann loks dauðþreyttur fann fótboltavöllinn var hann húðskammaður fyrir að koma of seint „Daginn eftir sá ég leikmenn a-liðsins á æfingu og hélt að ég gæti aldrei orðið eins góður og þeir Pakkaði saman og kom mér heim til Belfast " Matt Busby varð fokvondur er hann frétti þetta, hringdi i föður Bests og sagðist heimta strákinn aftur til Manchester, hann hefði ekki einu sinni séð hann leika Best var sendur til baka og áhorfendur undu glaðir við að sjá þennan skemmti- lega leikmann i baráttunni með emu bezta liði Englands næstu 12 árin. Best gat þó ekki skrifað undir at- vinnumannasamning strax, hann varð að bíða i eitt ár enn, eða þar til hann varð 17 ára launin voru heldur ekki kræsileg til að byrja með, aðeins 1 pund á viku Um fyrsta heimaleik sinn með aðalliði Manchester United hefur Best þetta að segja: — Við áttum að leika gegn West Bromwich fyrir framan nefið á 50 þúsund áhorfend- um þennan laugardag og auðviiað biðu allir spenntir eftir að sjá hvernig ég stæði mig í fyrsta leikn- um I búningsklefanum fyrir leikinn gerðu leikmennirnir grin að mér og sögðu að bakvörður WBA, Graham Williams, myndi tæta mig i sig með húð og hári. Ég hef mætt honum oft síðan og ári eftir fyrsta stefnumót okkar á knattspyrnuvellinum sagði hann við mig. — George, viltu gera mér þann greiða að standa kjur eitt einasta augnabiik, svo ég geti séð hvernig þú litur út — Hvers vegna, spurði ég — Ég hef spilað margoft á móti þér, en hef eiginlega aldrei séð framan i þig, aðeins hrygginn á þér þar sem þú þýtur i átt að marki mínu KASTAÐI EGGJUM í CHARLTON Kvenréttindakonur munu tæplega taka bók Bests með sérlegri gleði Og þeir eru fleiri, sem setja örugg- lega upp svip er þeir renna í gegn- um frásögn Bests. Bobby Charlton til dæmis. Þrjú siðustu ár Bests með United töluðu þeir ekki saman svo heitið gæti. Best hefur orðið — Honum likaði ekki við mig þvi hon- um fannst hegðun mín skaða félagið okkar. Mér fannst reyndar að geta hans sem knattspyrnumanns væri margfalt ýkt. Hann hafði að vísu skapað sér nafn, en löngu eftir að hann var orðinn lélegur flaut hann á fornri frægð. Einu sinni kastaði ég tylft af fúlum eggjum i „plakat'' með mynd af honum Ég var fullur þegar það gerðist. Um þær mundir er Best naut hvað mestrar hylli fékk hann send um 10 000 bréf vikulega og umboðs- menn hans urðu að ráða þrjár stúlk- ur til að annast bréfaskriftir fyrir kappann. Já, vel á minnst, stúlkur. — Þetta var hræðilegt, segir Best. — Ég hef aldrei dregið dul á að ég er kvensamur, en þegar þær voru farnar að skrifa mér í hundraðatali og segja að þeirra heitasta ósk væri að sofa hjá mér, þá fannst mér nóg komið. Ég neita því ekki að margoft átti ég ástarævintýri aðeins einum tíma fyrir leik. Þeir sem halda þvi fram að slíkt komi niður á knatt- spyrnugetunni vaða i villu og svima. I bók Best eyðir hann mörgum siðum i að segja frá sambandi sínu og dönsku stúlkunnar Evu Haraldstad, sem á sínum tlma var búizt við að yrði eiginkona hans. Auk þess greinir hann frá því að hann hafi alltaf verið sérlega veikur fyrir „skandinaviskum'' stúlkum. — Þær eru hnellnar og auk þess sér- lega „viljugar", einkum þær sem leggja leið sina til Mallorca I sumar- leyfum, segir Best EKKI EINN EINASTI GÓÐUR Kvenlýsingar Bests taka mikið rúm i bók hans. Hann segir frá því hvernig hann fór að þvi að plata framkvæmdastjórann, hvað eftir annað til að komast á stefnumót með þessari og hinni stelpunni. Hann segir frá því þegar hann var kærður fyrir að hafa stolið kápu „ungfrú alheims." Sjálfsagt vekja þessar lýsingar athygli einhverra, en fyrir íþróttaunnendur vekja lýsingar hans á enskum knattspyrnumönn- um mun meiri athygli Best segir: — Á öllum Bretlands- eyjum finnst ekki einn einasti al- mennilegur knattspyrnumaður Þeir geta að vísu hlaupið endalaust, en enginn þeirra kann að sparka knett- inum eins og á að gera. Best reynir þessa dagana að leika knattspyrnu með 4. deilda liði og þykir standa sig allvel Hann hefur þar að auki fengið tilboð um að leika knattspyrnu með milljónafélögum í Bandarikjunum og einnig segir sag- an að nokkur ensku 1. deildar lið- anna hafi áhuga á kappanum, því þótt geta hans hafi minnkað kemur fólk enn á knattspyrnuvellina til að sjá hann leika Hvað sem verður um Best i framtíðinni, þá verður hann varla framar sú stjarna, sem hann áður var. Hið Ijúfa lif hefur tekið sinn toll af hæfileikum þessa vin- sæla knattspyrnumanns

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.