Morgunblaðið - 20.01.1976, Page 14

Morgunblaðið - 20.01.1976, Page 14
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. JANUAR 1976 14 IMtiíymiIiIfifeifr Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavik. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn og afgreiðsla Aðalstræti 6, sími 10 100. Auglýsingar Aðalstræti 6, simi 22 4 80. Áskriftargjald 800,00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 40,00 kr. eintakið. Elzta samfélagsskip- an hins forna þjóðveld- is voru hrepparnir, sem mynduðu byggðaeiningar. Ein af frumskyldum þeirra var bótaskylda. Þegar bú- smali féll með óeðlilegum hætti eða bæjarhús brunnu, þá skyldu allir hreppsbændur undir tjóni rísa. Sennilegt er, að þarna sé aó finna fyrsta vísi trygginga meðal norrænna manna. Síðan hafa margs konar samtryggingar þró- azt í menningarþjóðfélög- um. Með Viðlagatryggingu íslands, sem nær til tjóna- bóta af völdum náttúru- hamfara, og er varanlegt framhald Viðlagasjóðs, sem settur var á fót eftir eldgos í Heimaey, er stigið nýtt og merkilegt spor í tryggingamálum þjóð- arinnar. í því efni er byggt á nærtækri reynslu, sem náði til tveggja blómlegra byggða, Vestmannaeyja og Neskaupstaðar, og tjóna af völdum elds og íss. Lögin um Viðlagatrygg- ingu íslands voru afgreidd frá Alþingi í maímánuði á sl. ári. Þau voru því ekki eins árs er þriðja stóra áfallið af völdum náttúru- hamfara ríður yfir þjóðina, nú í Þingeyjarsýslu norð- ur, er iítið byggðarlag, Kópasker, varð illa úti af völdum jarðhræringa. Matthías Bjarnason, tryggingaráðherra, sem forgöngu hafði um setn- ingu laganna um Viðlaga- tryggingu íslands, sótti byggðarlagið heim, um helgina, skoðaði vegsum- merki og kynnti sér af eigin raun bæði orðið tjón og óskir íbúanna. Að athuguðu máli leggur hann ríka áherzlu á skjóta upp- byggingu byggðarlagsins og tjónabætur að því marki, sem viðkomandi lög frekast leyfa. Hér verður því brugðizt við með sama hætti og í hinum fornu hreppum landsins. Þegar alvarleg tjón verða, þá skulu allir landsmenn undir rísa. I grein í Morgunblaðinu 15. janúar sl. segir Sigurð- ur Þórarinsson, jarðfræð- ingur: „Enn einu sinni hefur land okkar minnt á, að það er land náttúruham- fara. Á rösklega einu ári höfum við orðið að þola stórtjón af völdum snjó- flóða, ágangs sævar, jarð- skjálfta, og jarðeldur hef- ur látið á sér bæra. Ekki er séð fyrir, hvað úr kann að verða. Ekki tjóir að æðrast, en ráð er að læra sem mest við megnum af þessum dýru lexíum. Sitt hvað höfum við lært af náttúruhamförum síð- ustu ára og er tilkoma Al- mannavarna þar merkasti áfanginn. Þær þarf að efla. Viðlagatryggingin er annað spor í rétta átt.“ Sigurður Þórarinsson leggur fyrst og fremst áherzlu á tvennt, varðandi jarðskjálftana nyrðra, sem rétt er að undirstrika nú þegar. í fyrsta lagi, að hér sé um einstæðar upplýsing- ar að ræða varðandi svo- kallaða landrekskenningu, sem ofarlega sé á baugi með jarðvfsindamönnum. 1 því efni þurfi að tryggja sérfræðingum okkar fé og tíma til ítarlegrar úr- vinnslu þeirra marghátt- uðu upplýsinga, sem safn- azt hafi. í öðru lagi þurfi að draga sem mestan praktískan lærdóm af þessum jarðskjálftum, og þá einkum af áhrifum þeirra á byggingar af ýmsu tagi, m.a. með hliðsjón af strangari reglum um styrk- leika bygginga á hættuleg- ustu jarðskjálftasvæðum okkar. Bendir hann á, að á sama tíma sem „nær dragi næstu sterku jarðskjálft- um á Suðurlandsundir- lendinu fjölgi þar húsum hlöðnum úr vikursteini" og spyr, hvort ekki sé áfátt í öðru um styrkleika sumra húsa á þessu svæði, t.d., hvort nægjanlegt tillit sé tekið til jarðskjálftahættu í sambandi við gerð milli- veggja. Sigurður minnir á, að senn séu 17 ár liðin síðan hann, Sigurður Thorodd- sen og Eysteinn Tryggva- son birtu í Tímariti Verk- fræðingafélags íslands greinargerð um jarð- skjálftahættu á íslandi, þar sem landinu er skipt í svæði, með tilliti til slíkrar hættu. Slíka skiptingu megi gera mun nákvæmari nú og setja jafnhliða við- eigandi reglur um styrk- leika bygginga gagnvart jarðskjálftum, er byggðar yrðu á nú fyrirliggjandi upplýsingum um jarð- skjálftahættu. Minnir Sigurður í þessu sambandi á orð, er gamall maður hafi til sín mælt eftir jarð- skjálftana á Dalvík 2. júní 1935: „Það er nú ekki alltaf Guði að kenna ef ólukkan skeður.“ Ástæða er til að fagna því, sem í rétta átt hefur miðað, bæði með tilkomu Almannavarna og Viðlaga- tryggingar, og stórum hópi sérhæfðra vísindamanna okkar á þessu sviði. Sam- hliða þarf að fylgja enn betur eftir fyrirbyggjandi ráðstöfunum, byggðum á tiltækri reynslu og þekk- ingu. Morgunblaðið vekur athygli á ábendingum Sigurðar Þórarinssonar, jarðfræðings, og hvetur til þess, að þeim verði nægur gaumur gefinn. „Ekki er ráð nema í tíma sé tekið.“ Ekki er ráð nema í tíma sé tekið THE OBSERVER THE OBSERVER ,£&& THE OBSERVER iSfe THE OBSERVER ,£&&. THE OBSERVER Indira Gandhi bætist í hóp and- stæðinga Amnesty International AMNESTY International, sam- tök sem eru upprunnin í Lond- on og hafa það að markmiði að fvlgjast með pólitískum föng- um um allan heim. hafa átt undir högg að sækja hjá ýms- um þekktum stjórnmálaleið- togum, og nú hefur Indira Gandhi, forsætisráðherra Ind- lands, bætzt í þann hóp. Frú Gandhi hefur ásakað samtökin, sem og Socialist Int- ernational sem er fulltrúi lýð- ræðislegra sósíalistaflokka um heim allan, fyrir að láta sig engu skipta manndráp í ríkjum undir beinni einræðisstjórn og beina aðeins skeytum sínum gegn þeim ríkjum, þar sem fólk er haft í haldi, eins og nú hefur gerzt varðandi Indland. Með þessu skipaði forsætis- ráðherra Indlands sér á bekk með John Vorster, forsætisráð- herra Suður-Afríku, þjóðarleið- toga Uganda, Idi Amin, undir- tyllum Francos á Spáni og her- foringjunum, sem til skamms tíma réðu fyrir Grikklandi. All- ir þessir menn hafa beint ná- kvæmlega sams konar gagnrýni að Amnesty International. Þeir þjóðarleiðtogar, sem sætt hafa gagnrýni samtakanna grípa til þess ráðs að brigzla þeim um hlutdrægni til þess að komast hjá því að gefa mark- tæk svör við því, sem á þá er borið vitaskuld er þetta auð- veldasta leiðin. En hún er eigi að siður afar fáránleg og ber vott um vanþóknun viðkomandi aðila á mikilsverðum árangri, sem samtökin hafa náð á 15 ára starfsferli sínum. Amnesty ber að þakka það, að fjölmargir pólitískir fangar hafa verið látnir Iausir, og samtökin eru ekki síður mikilsverð fyrir það, að þau kosta kapps um að beina athygli að örlögum pólitískra fanga, sem oft eru hafðir I haldi með leynd um langt skeið. Samkvæmt síðustu skýrslu Amnesty International, sem ný- lega hefur verið birt, eru það hvorki meira né minna en 107 ríki, sem gert hafa sig sek um að troða fótum mannréttindi. Meðal þessara ríkja má nefna, Sovétríkin, Uganda, Suður- Afríku, Spán og Bretland, þ.e. Ulster, Pakistan, Sri Lanka, Indónesía, Ródesía, Chile og Brazilía. Formaður framkvæmdanefn- IndiraGandhi ar Amnesty International, Þjóðverjinn Dirk Boerner, hef- ur látið þau orð falla, að enda þótt flest aðildarríki Samein- uðu þjóðanna undirriti Alþjóð- lega yfirlýsingu um mannrétt- indi, virði leiðtogar margra eftir Colin Legum þeirra þau aðeins I orði, en ekki á borði. I skýrslunni eru sérstaklega tilgreind Suður-Afríka, Sovét- rfkin, Uganda og Spánn og eru þessi ríki sögð vanvirða mann- réttindi I hróplega ríkum mæli. Ennfremur er mikið fjallað um ástandið I Indónesíu, en þar hafa rúmlega 55.000 manns ver- ið hafðir I haldi sl. áratugi án þess að dómar hafi verið yfir þeim kveðnir. I skýrslunni er einnig bent á, að stjórnvöld i Afríkuríkjum láti pólitiska andstæðinga sína sæta síversnandi meðferð, og á þetta bæði við Afríkuríki, þar sem hvítir menn fara með völd, og þar sem þeldökkir menn ráða ríkjum. Til að mynda munu 250 manns vera hafðir I haldi án dóms og laga I Ródes- íu. Ástandið er einnig slæmt I Suður-Afríku, en ekki síður I löndum eins og Uganda, Chad, Zansibar, Karmerún og Búr- undi. Amnesty gagnrýnir lög sem lúta að samsæri I Bretlandi og hefur óskað eftir tryggingu fyr- ir því að lögum um varnir gegn hryðjuverkastarfsemi verði ekki misbeitt en það á einkum við um ástandið I Ulster um þessar mundir. 6 mál, sem snerta Ulster, eru til rannsókn- ar hjá samtökunum. Á vegum samtakanna eru starfandi félagsdeildir í mörg- um löndum, þar á meðal Sovét- ríkjunum, en forsvarsmenn rússnesku Amnestydeildarinn- ar hafa sætt vaxandi gagnrýni og þrýstingi af opinberri hálfu um rúmlega eins árs skeið. Það er meiriháttar vindhögg, sem frú Gandhi slær, þegar hún leitast við að bera af sér ámæli samtakanna meðþvíaðbenda þeim á ýmislegt sem miður fer á öðrum bæjum. En ekki nóg með það, heldur virðist hún með öllu hafa gleymt málstað þeim, sem kunnir Indverjar, og þar á meðal faðir hennar, hafa barizt fyrir, og Amnesty Inter- national hefur nú gert að sínum með umtalsverðum árangri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.